Morgunblaðið - 29.08.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.08.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 17 MENNING Í VETUR verður áhersla lögð á sýningar fyrir börn og unglinga í Þjóðleikhúsinu eins og Morg- unblaðið greindi frá í gær. Að sögn Tinnu Gunnlaugsdóttur verður starfið blómlegt: „Við leggjum áherslu á að leikhúsið standi sem listastofnun algerlega óáreitt þó að viðgerðir séu í gangi utandyra. Þó við segjum að Þjóðleikhúsið sé fyr- ir alla og ætlum að höfða til allra, þá verðum við ekki með neitt miðjumoð heldur er verkefnaskráin það fjölbreytt að við teljum að hún geti höfðað til fólks alveg frá 9 mánaða aldri og upp í 99 ára.“ Tinna sagði á blaðamannafundi í gær að að- stæður til list- sköpunar í hús- inu séu „ekki eins og best verður á kosið og að þær geri kröf- ur um umburð- arlyndi í umgengni við sjúklinginn Þjóðleikhúsið sem nú er í aðgerð.“ Til að bæta aðstæðurnar telur Tinna nauðsynlegt að byggja við leikhúsið til austurs og endurnýja tæknisviðið, sem hefur nánast verið óbreytt frá upphafi leikhússins. Tinna vék einnig að starfi þýskra leikhústæknifræðinga og arkitekta sem nýverið skiluðu bráðabirgða- skýrslu varðandi aðbúnað í Þjóð- leikhúsinu: „hún er vægast sagt svört. Jafnvel svartari en ég átti von á. Nú líður að því að þeir skili lokaskýrslu og þá er væntanlega hægt að leggja hlutina á borðið fyr- ir ráðamenn.“ Aðspurð um það hún telji skýrsluna svarta sagði Tinna: „Víða er aðstaða þannig að það er farið að nálgast hættumörk. Þetta hangir saman: húsið er búið að leka lengi og þar með verða annars kon- ar skemmdir í festingum og hlutir ryðga og fúna.“ Svört bráðabirgða- skýrsla um aðstöðu Þjóðleikhússins Leiklist | Vetrarstarf Þjóðleikhússins kynnt í gær Morgunblaðið/Ásdís Fjölbreytni Margir listamenn starfa við Þjóðleikhúsið í vetur. Dagskráin verður fjölbreytt og mun höfða til allra, „án þess að vera miðjumoð,“ að sögn Þjóðleikhússtjóra. Tinna Gunnlaugsdóttir HINN 16. september verður í fyrsta sinn í Þýskalandi sett upp ópera sem fjallar um helförina. Óperan ber nafnið „Auschwitz-kvenna- hljómsveitin“ og fjallar um hljóm- sveit sem setti mikinn svip á lífið í útrýmingarbúðunum í Auschwitz á árunum 1943 og 1944 og var skipuð jafnt þrautreyndum sem óreyndum hljóðfæraleikurum. Höfundur óperunnar, Stefan Heucke, segir að sig hafi lengi haft áhuga á að fjalla um hljómsveitina sem var fyrst og fremst stjórnað af tónskáldinu og fiðluleikaranum Alma Rosé, frænku Gustavs Mahl- ers. Einir 25 söngvarar taka þátt í uppfærslunni sem tekur um þrjá klukkutíma í flutningi. Norski kontraaltinn Anne Gjevang flytur hlutverk Ölmu Rosé. Ópera um helförina GOSPELKÓR og barnaballett- hópur, ásamt fjöldanum öllum af söngvurum og dönsurum, eru meðal þeirra 80 sviðslistamanna sem koma að söngleiknum Thriller Live sem var frumsýndur sl. sunnudag á West End í Lond- on. Í söng- leiknum hljóma öll eftirminnilegustu lög banda- ríska poppgoðsins Michaels Jack- sons. Framleiðandi sýningarinnar er Adrian Grant sem árið 1988 stofn- aði fyrsta aðdáendaklúbb stjörn- unnar í Bretlandi. Grant fékk hug- myndina að Thriller Live árið 2002 í kjölfarið á vinsældum árvissrar Jackson-sýningar sem hann hefur sjálfur staðið að frá árinu 1991. Söngleikurinn fylgir engri eig- inlegri sögu heldur er einfaldlega um að ræða flutning á vinsælustu lögunum sem Jackson hefur gert fræg, allt frá því hann var í Jackson Five til dagsins í dag. Sjálfur kemur Jackson hvergi að uppfærslunni en hann hefur engu að síður lagt blessun sína yfir hana. Jackson á West End Michael Jackson Söngleikur með lögum poppstjörn- unnar í London NÝR samningur var undirritaður í gær í Íslensku óperunni milli rík- isins og óperunnar. Hann kveður á um styttri samningstíma, fleiri samstarfsverk- efni og hærra árlegt framlag. Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir mennta- málaráðherra undirritaði samninginn af hálfu ríkisins og hélt stutta tölu. Í máli hennar kom fram að spenn- andi tímar séu í vændum í ís- lensku menningarlífi með tilkomu tónlistarhússins í Reykjavík, menningarhúss á Akureyri og fyr- irætluðu óperuhúsi í Kópavogi. Þorgerður telur þessar breyttu aðstæður fela í sér möguleika á nánari samvinnu menningarstofn- ana en áður. „Slík samvinna mun leiða af sér hagræðingu, sem leiðir af sér meiri gæði og möguleika fyrir listamenn og listalíf að njóta sín,“ sagði Þorgerður. Aðspurð um það hvers vegna samningurinn er til fjögurra ára í stað fimm, benti Þorgerður á að vegna væntanlegrar tilkomu nýrra tónlistarhúsa kynni að „vera beggja hagur að samningurinn sé fyrr laus heldur en áður“. Ákvæð- ið um fleiri samstarfsverkefni er að sögn ráðherra tilkomið til að „þrýsta á að það verði aukið sam- starf á milli stofnana. Ég vil gjarnan sjá að ríkisstofnanir líkt og Þjóðleikhúsið fari í samstarf við Íslensku óperuna. Önnur sam- starfsverkefni kunna að vera að fá fleiri fjárfesta og atvinnulífið til að styrkja enn frekar við óperuna.“ Frjálsar hendur með verkefni Að mati Bjarna Daníelssonar óperustjóra felur samningurinn í sér „þann sveigjanleika sem er nauðsynlegur til að óperan geti sinnt margvíslegum öðrum verk- efnum á sviði óperulista“. Íslenska óperan hafi frjálsar hendur varð- andi hvaða samstarfsverkefni verður farið út í. Aðspurður um möguleg verkefni sagði Bjarni að framhald verði á því sem Íslenska óperan hefur verið að „þreifa fyrir sér með“: „Það er hugsanlegt að hafa sam- starf við stóru leikhúsin og sinfón- íuna en við höfum líka svigrúm til að eiga samstarf við minni aðila. T.d. frjálsa leikhópa og frjálsa óp- eruhópa sem vilja vinna brautryðj- endastarf og tilraunastarf. Þannig getum við tekið þátt í því sem er að gerast í samtímanum með því að sýna nýjar óperur og lagt eitt- hvað af mörkum til framtíðarinnar með því að gera tilraunir.“ Tónlist | Íslenska óperan og ríkið gera með sér fjögurra ára samning Fleiri samstarfsverkefni Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson hsb@mbl.is TRIO Bellarti hlotnast sá heiður að spila á síðustu sumartónleikum Lista- safns Sigurjóns Ólafs- sonar að þessu sinni, en tónleikarnir fara fram í kvöld. Tríóið mun flytja verk eftir Mozart, Jón Nordal og Arensky. Tón- leikarnir hefjast klukkan 20.30 og er aðgangseyrir 1.500 krónur. Nánari upplýsingar um tónleikana má finna á heimasíðu Listasafnsins, lso.is. Síðustu sumar- tónleikarnir Tónlist Trio Bellarti NÝLEGA varði Kjartan Jónsson doktorsritgerð við félagsvís- indadeild Háskóla Íslands sem fjallar um hvernig karlmennska og gildismat karlmanna mótast og flyst frá einni kynslóð til ann- arrar á meðal Pókot-manna í Kenýu og hvaða gildi eru mik- ilvægast í lífi þeirra. Kjartan bjó á meðal Pókot-manna í rúm 11 ár sem prestur og rannsakaði líf þeirra og trúarbrögð. Ritgerð hans er nú komin út og fæst í Bóksölu stúdenta. Karlmennskan komin út Bókmenntir Kjartan Jónsson Í TENGSLUM við Al- þjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, sem fram fer 28. september til 8. október, er boðið upp á ókeypis nám- skeið í eftirvinnslu mynda með iMovie-hugbúnaðinum næstu tvo laugardaga. Nám- skeiðið er hugsað sem und- irbúningur fyrir kepni í gerð heimildarmynda og fer fram í höfuðstöðvum Apple á Laugavegi 182. Nánari uplýsingar eru á heimasíðu hátíðarinnar, filmfest.is. Námskeið í eftirvinnslu Kvikmyndir Kennt verður að klippa kvikmyndir. ♦♦♦ Jón Ásbergsson stjórnarformaður Íslensku óperunnar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra undirrituðu nýja samninginn sem rennur út í árslok 2009. Morgunblaðið/ Jim Smart Bjart framundan »Nýi samningurinn milli ríkisinsog óperunnar er til fjögurra ára í stað fimm ára áður. »Helsta breytingin er að kveðiðer á um fleiri samstarfsverkefni á samningstímanum. Óperan hefur frjálsar hendur með þessi verkefni. Að auki mun Íslenska óperan sam- kvæmt samningnum uppfæra eigi færri en átta meðalstórar óperur og eina barnaóperu. »Óperurnar sem settar verðaupp eru „meðalstórar“ því hús- næði Íslensku óperunnar hentar ekki stærri óperum eins og t.d. eftir Strauss og Wagner. »Að sögn Þorgerðar Katrínarmenntamálaráðherra mun nýi samningurinn tryggja Íslensku óp- erunni 175,6 milljónir króna í ár- legt framlag, sem hækkar um 46 milljónir króna. Árlegt framlag var 130 milljónir króna á árunum 2003- 2005. Það tvöfaldaðist frá árinu 2001 á meðan eldri samningurinn var í gildi. Í HNOTSKURN Bjarni Daníelsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.