Morgunblaðið - 29.08.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 19
SUÐURNES
SAN FRANCISCO
MINNEAPOLIS – ST. PAUL
ORLANDO
BOSTON
ÍSLAND
GLASGOW
MANCHESTER
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLIN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓAMSTERDAM
ZÜRICH
MADRID
BARCELONA
LONDON
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
Sonja Magnúsdóttir, nemi við Gerrit Rietveld Academie, segir frá Amsterdam í
nýjum haust- og vetrarbæklingi Icelandair, Mín borg. Við bjóðum úrval pakka-
ferða, helgarferða til 19 áfangastaða austan hafs og vestan, golfferða og
sérferða. Kynnið ykkur málið og takið síðan ákvörðun. Ævintýrin liggja í loftinu.
FLUG OG GISTING Í 3 NÆTUR FRÁ 49.900 KR.
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.IS
I
C
E
3
3
9
2
3
0
8
/2
0
0
6
+ Bókaðu á www.icelandair.is
A
M
S
TE
R
D
A
M
MÍN
Safnaðu
Vildarpunktum
Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting á Hilton Hotel**** í tvíbýli í 3 nætur, morgunverður og þjónustugjald, 16. - 19. nóvember 2006 / 11. - 14. janúar 2007.
Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna greiðslu upp í flugfargjald með áætlunarflugi Icelandair til 1. október. Þetta flug gefur 3.000 - 7.600 Vildarpunkta.
„ÉG SLEPPI ÞVÍ ALDREI AÐ
FÁ MÉR „JÓGÚRTFRÚTSJEIK“
Á SINGEL 404.“
Sandgerði | „Það var annað hvort
að fara í þetta eða hætta. Ég tók
gott stökk með góðri hjálp,“ segir
Sverrir Þór Jónsson útgerð-
armaður í Keflavík sem endurnýj-
að hefur smábát sinn, Happadís
GK 16. Hann hafði gert út netabát
en skipti yfir í litla kvótakerfið
þegar hann fékk nýja bátinn sem
er með línubeitningarvél.
„Það vilja allir ferskari fisk. Það
snýst allt um að koma honum
ferskum út með hraði og línufisk-
urinn hentar betur í það en neta-
fiskurinn,“ segir Sverrir Þór.
Hann ákvað því að selja netabát-
inn og láta smíða fyrir sig smábát
sem útbúinn er til línuveiða.
Öll helstu þægindi
Happadís GK 16 er smíðuð á
Akranesi, af Spútnik-gerð. Bát-
urinn er rétt innan við 15 tonn að
stærð. Um borð eru öll helstu
fiskileitartæki og línubeitning-
arvél með 17 þúsund krókum. Bát-
urinn er yfirbyggður og í honum
eru öll venjuleg heimilistæki og
þægindi, að sögn Sverris. Nefnir
hann eldavél, uppþvottavél, sturtu
og salerni og netsamband. Bát-
urinn kostaði um 70 milljónir kr.
með öllu.
Sverrir segir mikið öryggi felast
í því vera á yfirbyggðum báti.
„Maður er varinn fyrir sjó og
veðri. Það er aðeins ein lúga opin
þegar við erum að draga línuna,“
segir hann.
Sverrir gerir út frá Sandgerði.
Auk Happadísar gerir hann út
minni bát á handfæri, bát sem
fljótlega norður í land þar sem
hann hefur róið frá Siglufirði. „Við
förum þangað sem fiskurinn er.“
Þeir hafa fiskað ágætlega út af
Norðurlandi, þangað til síðustu
daga. Þá hefur stóri þorskurinn
komist í síld og bátarnir setið eftir
með smærri þorskinn. Var þá
ákveðið að fara austur fyrir land,
til að leita fyrir sér þar, en ekki var
hægt að komast um helgina vegna
veðurs. „Við verðum að keyra á
þetta, það þýðir ekki að vera að-
gerðarlaus með svona dýrt tæki.“
Fjórir eru á Happadís og segir
Sverrir Þór að ekki veiti af. Róðr-
arnir eru langir, oft 17 til 18 tímar.
Það er oft farið út klukkan þrjú á
nóttunni og komið heim á milli
klukkan 8 og 9 á kvöldin og þá er
eftir að landa. Skipverjarnir búa
um borð og ekki væsir um þá, að
sögn Sverris Þórs, öll þægindi til
staðar.
ar aftur yfir veiðinni á Suð-
urnesjum. Hann fékk bátinn rétt
fyrir verslunarmannahelgi og fór
hann fékk í skiptum fyrir netabát-
inn. Reiknar hann með því að
reyna fyrir sér á honum þegar lifn-
Förum þangað sem fiskurinn er
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Öryggi Skipverjar á nýju yfirbyggðu smábátunum þurfa aldrei að fara út undir bert loft í róðrunum.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Græjurnar Sverrir Þór hefur yfir að ráða öllum helstu fiskileit-
artækjum um borð í Happadís GK og flest þau tæki sem algeng eru á
heimilum í landi að auki. Túrarnir standa yfir í 17–18 tíma.
Keflavík | Gengið hefur verið frá samn-
ingum um innréttingu þriðju hæðar D-álmu
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í Keflavík.
Þar verða nýjar skurðstofur sjúkrahússins.
Hæðin er tæpir 1000 fermetrar að stærð.
Innréttaðar verða tvær skurðstofur og ein
minni aðgerðastofa, ásamt nauðsynlegum
stoðrýmum fyrir þessa starfsemi. Auk þess
verða skrifstofur, bókasafn og fundarher-
bergi sem nú er á fyrstu hæð hússins flutt
upp á þriðju hæðina.
Framkvæmdin var boðin út í júní sl. Tvö
tilboð bárust. Það lægra var frá fyrirtækinu
FB. Festing ehf. að fjárhæð 78,2 milljónir
kr. eða rétt liðlega kostnaðarárætlun ráð-
gjafa stofnunarinnar. Verkinu á að vera lok-
ið í byrjun febrúar, samkvæmt útboðsgögn-
um, en þá hefst vinna við að koma fyrir
sjálfum skurðstofunum og öðrum búnaði.
Reiknað er með að verkinu verði að fullu
lokið í apríl eða maí á næsta ári. Þá kemst
allt þetta hús í notkun en það var byggt á
árunum 1998 til 2000.
Starfsemin efld
Í framtíðarsýn fyrir Heilbrigðisstofn-
unina sem heilbrigðisráðherra samþykkti
um mitt ár 2004 var ákveðið að stefna að
því að færa skurðstofur stofnunarinnar á
þriðju hæðina. Þær eru nú í elsta hluta
sjúkrahússins og segir Sigríður Snæbjörns-
dóttir framkvæmdastjóri að aðstaðan stand-
ist ekki þær kröfur sem gerðar eru í dag.
Sigríður segir að auk bættrar aðstöðu fyrir
starfsfólk og sjúklinga skapist möguleikar
til að efla starfsemina. Í umræddri framtíð-
arsýn er lýst yfir vilja til að auka þjónustu
við Suðurnesjamenn, þannig að ekki þurfi
eins margir að fara á sjúkrahús í Reykjavík
til almennra skurðaðgerða. Vonast Sigríður
til þess að það takist.
Innréttað
húsnæði fyrir
skurðstofur