Morgunblaðið - 29.08.2006, Page 25

Morgunblaðið - 29.08.2006, Page 25
nefnt skynvilltur. Auðugt ímynd- unarafl, sem oftast felur í sér myndræna hugsun, veldur oft skynvillu en þá verður lesaranum á í lestrinum og gerir villu. Því er það svo mikilvægt að leiðrétta skynvilluna til þess að ná óbrengl- aðri skynjun og upplifa rétta merkingu lesinna orða. Myndræna hugsunin er hins vegar það sem oft er nefnd náðargáfa lesblind- unnar enda eru þeir einstaklingar oft mjög frjóir, skapandi og verk- lagnir. ,,Margt framúrskarandi fólk hefur glímt við lesblindu eins og vísindamaðurinn Albert Einstein, kvikmyndaleikstjórinn Steven Spielberg, uppfinningamaðurinn Thomas Alva Edison og tónlist- armaðurinn John Lennon.“ Meistrun stafa og orða Davis-námtæknin leggur áherslu á að nemandinn upplifi að öll orð hafi myndirnar þrjár og meistra til þess bæði stafrófið og orð. ,,Nýyrðið meistrun er íslensk- un á enska orðinu mastery. Það þýðir að ná svo góðum tökum á viðfangsefninu að það verður ómeðvitaður hluti af okkur líkt og að ganga, hjóla eða synda. Þegar kunnáttan er til staðar er yfirleitt ekki hægt að glata henni. Í meistruninni eru stafir, orð og önnur tákn sem hafa ruglað les- arann í ríminu mótuð í höndunum í ljósan leir. Þannig er tvívíður texti kominn í þrívítt, myndrænt og merkingarbært form. Ef við tökum sem dæmi orðið epli, sem er reyndar mjög myndrænt orð, myndi lesarinn byrja á því að búa til merkingarmyndina og leira ein- faldlega epli. Síðan myndi hann skrifa sjónmynd orðsins með leir- stöfum og æfa síðan hljóðmyndina þar til hann væri búinn að meistra táknið. Næst þegar sjónmyndina ber fyrir augu lesarans á hann ekki að þurfa að hljóða orðið staf fyrir staf heldur á myndin af epl- inu að fljúga fyrir hugskotssjónum hans og hljóðmyndin um leið. Hann segir epli án þess að taka um það meðvitaða ákvörðun.“ Myndlausu orðin eru vandamál Sum orð eru hins vegar mynd- laus. ,,Í íslensku eru um 3–400 orð sem eiga sér enga merkingarmynd og er þá oftast um að ræða smá- orð eins og að, til og frá. ,,Fyrir þá sem eru mjög háðir meðvitaðri myndrænni hugsun, er tilfinn- ingin, þegar að þessum orðum kemur í lestrinum, líklega svipuð og hjá þeim sem reynir að lesa er- lent tungumál sem hann er ekki fullnuma í. Af og til koma orð sem hann skilur ekki og þar verður eyða. Ef slík orð eru mörg í setn- ingu og texta missir viðkomandi samhengið og skilur ekki merk- ingu þess lesna. Það eru sennilega fáir sem hafa áhuga á að lesa sér til skemmtunar við slíkar að- stæður.“ Sturla segir rannsóknir hafa sýnt að Davis-námstæknin nýtist öllum nemendum burtséð frá námsstíl eða lestrargetu. ,,Læsum vex málþroski, stirðlæsir ná valdi á lestri, engum er vísað í sér- kennslu, bráðger börn finnast fleiri í námstæknibekkjum en samanburðarbekkjum og kenn- urum verður agastjórnun auðveld- ari. Fjölmargir kennarar í íslensk- um grunnskólum hafa innleitt Davis-námstæknina í sinni kennslu á síðustu árum og sífellt fleiri sækja námskeið til þess að læra að beita henni, enda er ár- angurinn mjög góður.“ Morgunblaðið/Eggert Hjálpartæki Þetta er athyglis- og orkuskífan sem er mikilvægt myndrænt hjálpartæki fyrir nemendur til þess að stilla af orkuna sína. Með hjálp vís- anNa læra þeir hvers konar athygli og orka er viðeigandi fyrir hverja at- höfn. Við lestur ættu vísarnir að vera á milli 2–4 en í frímínútum á milli 5–8. TENGLAR ..................................................... www.les.is www.lesblind.com uhj@mbl.is ÞRÍR tebollar eða meira á dag geta gert fólki jafngott og mikil vatnsdrykkja og gætu jafnvel haft betri áhrif á heilsuna, að því er ný rannsókn bendir til. Þetta kemur fram í næringarfræðiritinu Europ- ean Journal of Clinical Nutrition. Þar er því haldið fram að te geti unnið gegn hjartakvillum og jafn- vel krabbameini. Sérfræðingarnir sem unnu rann- sóknina segjast trúa því að ákveð- in efni í tei geti eflt heilsu fólks, andoxunarefni sem finna má í mat og plöntum, þ.á m. telaufum, sem geta hindrað frumuskemmdir. Te hefur verið talið vökvalosandi en þessi rannsókn bendir til hins gagnstæða. Rannsóknin var gerð við Kings College í Lundúnum. Önnur já- kvæð áhrif af tedrykkju eru talin vernd gegn tannskemmdum og beinstyrking. Dr. Ruxton, sem stýrði rannsókninni, segir te- drykkju betri en vatnsdrykkju þar sem það bæti upp vökvatap og hafi einnig fyrrgreind áhrif. Það sé koffín í miklu magni sem geti ver- ið vatnslosandi en þó svo mikið sé af því í tei eða kaffi valdi það ekki vökvatapi þar sem megn drykkjar- ins sé vatn. Ruxton segir ekkert sanna að tedrykkja skaði heilsu fólks nema þá að það geti hamlað upptöku járns úr fæðu. Fréttavefur BBC segir frá þessu. Nokkrir tebollar jafn- hollir og vatnsdrykkja? MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 25 Munið Mastercard ferðaávísunina Costa del Sol 28. sept., 5. eða 12 okt. Sértilboð Hotel La Barracuda frá kr. 49.990 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Heimsferðir kynna frábært tilboð til Costa del Sol í september og október. Bjóðum mjög gott 3* hótel, Hotel La Barracuda með góðum aðbúnaði fyrir gesti. Fallegur sundlaugargarður með góðri aðstöðu og smekklega innréttuð og vel útbúin herbergi. Skemmtidagskrá á vegum hótelsins. Hotel La Barracuda er vel staðsett, alveg við ströndina og stutt frá snekkjubátahöfninni. Góður valkostur á einstöku verði með góða þjónustu og staðsetningu. Að sjálf- sögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða. Hálft fæði er innifalið í verði. Góð gisting - 1, 2 eða 3 vikur Verð kr.49.990 m. hálfu fæði Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli á Hotel La Barracuda *** með hálfu fæði í viku. Aukavika kr. 19.000. Takmarkaður fjöldi herbergja í boði á þessu tilboðsverði Nú eru sportdagar í Tösku- og hanskabúðinni 20% afsláttur af völdum sporttöskum Stærsta töskuverslun landsins Skólavörðustíg 7, Rvík, sími 551 5814 Verð: 1.950 Nú 1.560 Verð: 1.950 Nú 1.560 Verð: 3.700 Nú 2.960 Verð: 3.100 Nú 2.480 Verð: 2.500 Nú 1.990 Verð: 2.200 Nú 1.760 »Orðræn hugsun og myndræneru hugök sem notuð eru til að skilgreina hugsanaferli sem byggja á ólíkum grunni. Flestir geta að einhverju marki notað bæði ferlin en hefur tilhneigingu til að sérhæfa sig sérhæfa sig í annarri hvorri. Í orðrænni hugsun eru það hljóðin sem ráða ferðinni. »Þótt orsakir lesblindu séu hinarsömu geta birtingarmyndir hennar verið einstaklingsbundnar. Bóklestur fullorðinna fyrir börn er ómetanlegur. Þar er lagður grunn- ur að lestrarvenjum þeirra um alla framtíð. »Lesblindir bera löng orð oftrangt fram, klára ekki setn- ingar, stama undir álagi, rugla orðatiltækjum, endurtaka eða víxla orðum og tölum eða flytja til í lestri. Í HNOTSKURN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.