Morgunblaðið - 29.08.2006, Page 32

Morgunblaðið - 29.08.2006, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Halldóra Guð-rún Björns- dóttir fæddist í Reykjavík 16. júlí 1942. Hún lést á heimili sínu 21 ágúst síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Björns Júlíusar Gríms- sonar, f. 15. júní 1917, d. 21. júní 1968 og Soffíu Björnsdóttur, f. 13. maí 1921, Dalbæ á Dalvík. Systkini Halldóru eru Grímur Sigurður, f. 18. janúar 1945, maki Björg Jósepsdóttir, Guðmundur Á., f. 29. nóvember 1950, d. 12. nóv- ember 1984, Þorsteinn Kristinn, f. 31. desember 1952, maki Guð- finna Ásdís Arnardóttir, og Björn Á., f. 7. september 1955, maki Elísabet Erlendsdóttir. Halldóra giftist 22. apríl 1962 Páli Kristjánssyni sjómanni, f. Guðmundsson, synir þeirra eru Davíð Freyr, f. 6. janúar 2001 og Björn Ísak, f. 8. nóvember 2005, c) Sigríður Sæunn, f. 9. júlí 1984, sonur hennar Óðinn Þór, f. 25. nóvember 2003, og d) Rakel Ýr, f. 16. janúar 1987, sambýlis- maður Magnús Benediktsson. 3) Sigurlaug S., f. 17. janúar 1966, gift Guðna Þór Þorvaldssyni, börn þeirra eru Páll, f. 21. júní 1985 og Sigurhildur, f. 28. nóv- ember 1997. 4) Anna Lilja, f. 29. júlí 1971, gift Ívari Guðmunds- syni, börn þeirra eru Anna Lí- ney, f. 23. janúar 1992, Andri Krisján, f. 27. maí 1993 og Sara Lind, f. 18. janúar 2005. Halldóra ólst upp í Reykjavík og fluttist norður á Siglufjörð með eiginmanni sínum og þar eru börnin öll fædd. Hún vann þar ýmis störf tengd fiskiðnaði. Þau fluttu síðan á Tunguheiði í Kópavogi 1978, þá fór hún að vinna við aðhlynningu aldraðra á Landspítalanum, Borgarspít- alanum og elliheimilinu Grund, þar sem hún varð loks að láta af störfum vegna veikinda. Halldóra verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13. 12. desember 1937. Foreldrar hans voru Kristján Sigtryggs- son, f. 27. október 1906, d. 11. janúar 1982, og Aðalbjörg Pálsdóttir, f. 2. júní 1905, d. 15. ágúst 1979. Börn Halldóru og Páls eru: 1) Aðal- björg, f. 7. janúar 1961, gift Steindóri Jóni Péturssyni börn þeirra eru: a) Halldóra María, f. 17. ágúst 1978, son- ur hennar er Ívan Dagur, f. 20. janúar 2003, b) Pétur Ágúst, f. 23. október 1982, sambýliskona Úlfhildur Ævarsdóttir, og c) Anna Lilja, d. 29. janúar 1993. 2) Björn, f. 17. desember 1961, kvæntur Berglindi Lúðvíks- dóttur börn þeirra eru: a) Lúð- vík Aron, f. 2. september 1979, b) Halldóra Guðrún, f. 7. mars 1983, sambýlismaður Agnar Elsku mamma, mín, mikið á ég eftir að sakna þín. Þetta er það erf- iðasta sem ég hef gengið í gegnum á minni ævi. Ég veit samt með vissu að nú líður þér miklu betur, þar sem þú ert nú þarft þú ekki að burðast með súrefniskútinn til að halda í þér lífinu og getur andað léttar. Þú ert búin að vera svo veik svo lengi, en nú ertu búin að fá hvíldina. Ég á eftir að sakna símtalanna við þig og ekki síst stundanna sem við fórum saman í bingó, það á eftir að vera skrítin tilfinning að vera þar og þú ekki með mér. Einnig öll mat- arboðin sem við komum í öll systk- inin og fjölskyldur okkar upp á Tunguheiði og borðum þar fiskinn sem pabbi veiddi og þú eldaðir af þinni alkunnu snilld. Þá var oft glatt á hjalla á Tunguheiðinni. Við eigum eftir að hittast þegar minn tími kemur, ég veit að þú tekur á móti mér þegar að því kemur. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr.) Megi guð styrkja pabba og ömmu Soffíu á þessum erfiðu stundum einnig systkini mín, tengdabörn, barabörn og barnabarnabörn Ég elska þig mamma mín, Guð geymi þig. Þín dóttir Sigurlaug. Elsku besta amma mín, þetta hafa verið verstu og erfiðustu dagar lífs míns og ég trúi því ekki enn að þú sért farin frá okkur. En ég reyni að hugga mig við það að þér líði miklu betur núna og getir andað léttar, án allra aukahluta. Ég veit líka að þú fékkst að fara eins og þú hefðir sjálf viljað, heima hjá ykkur afa, en þú hefðir aldrei viljað vera á spítala síð- ustu stundirnar þínar. Þú hefur alltaf verið höfuð og herðar allra í fjölskyldunni, bæði hægri og vinstri hönd. Alltaf varstu tilbúin að gera allt fyrir alla og sama hvað stóð til, þú varst alltaf fyrst til að bjóða fram aðstoð þína, ef afmæli eða veisla stóðu til, þá varst þú búin að baka fjöldann allan af kökum, gera brauðrétti og brauðtertur áður en nokkur náði að blikka augum. Þú hefur alltaf verið kokkur og bakari af Guðs náð og margar fjölmennar veislurnar hafa nú farið fram á Tunguheiðinni við hin ýmsu tæki- færi, s.s. skírnir, fermingar, brúð- kaup eða afmæli, enda var Tungu- heiðin eins og heimili okkar allra og allir ávallt velkomnir. Við höfum átt óteljandi margar stundir saman sem ég mun aldrei gleyma og mörg eru nú samtölin okkar sem aðeins þú og ég vitum um. Þú varst svo miklu meira en bara amma fyrir mér, þú varst eins og önnur mamma mín, enda ólst ég svo mikið upp hjá ykkur afa, en þú varst líka svo mikil vinkona mín og alltaf gat ég komið til þín og rætt um öll lífsins mál og alltaf áttir þú til ráð og svör við öllu. Þú hefur verið til staðar fyrir mig alla tíð, og varst meira að segja viðstödd þegar ég dró andann í fyrsta skipti. Svo hélstu mér undir skírn og það er sú skemmtilegasta saga sem ég hef heyrt frá æsku minni, því ég var orðin tveggja ára gömul og var víst bara á spjallinu við prestinn og sull- andi í skírnavatninu og þegar þú lýstir því hvernig kjóllinn þinn hrist- ist eins og laufblað í vindi því þú varst svo stressuð yfir því hvað ég myndi gera næst eða segja og hvað Lauga sem var að fermast á sama tíma skammaðist sín og þóttist ekki þekkja þetta prakkarabarn sem vildi ekkert láta halda á sér eins og smábarni við skírnina. Ég er svo heppin að eiga fullt hjarta af minningum um þig og allt sem við höfum gert saman og mun ég halda fast í þær allar og nota minningar okkar til þess að hjálpa mér að komast í gegnum þessa miklu sorg. Ég veit að þú átt eftir að sitja á öxlinni minni og varðveita mig og styrkja. Þú talaðir alltaf um það hvað þú værir rík því þú ættir fjögur börn, fjögur tengdabörn, tólf barnabörn og fjögur barna-barna- börn. Þú ólst okkur upp í því að vera öll svo náin og mikið saman og öll eigum við eftir að muna þær stundir í hjarta okkar, það væri hægt að fylla margar bækur af minningum um þig og okkur, t.d. öll ferðalögin sem við fjölskyldan höfum farið í saman, öll jól, áramót og afmæli sem við höfum eytt saman. Elsku amma mín, þú varst svo sannarlega búin til úr skínandi gulli, hafðir svo stórt og gott hjarta, varst svo hlý og góð við alla, tókst á móti öllum með faðmlagi og kossum, það kom enginn eða fór frá Tunguheiði án þess að fá knús og kossa frá þér. Þú hefur alltaf verið svo mikil glæsi- kona með hárið fallega lagt og uppá- klædd þrátt fyrir öll þín veikindi. Og hvort sem þú varst í útilegu eða þurftir að leggjast inn á spítala varstu alltaf með silkináttkjólana þína með þér og man ég eftir þeim eins langt aftur og ég man. Manstu sumarið þegar ég var svo mikið hjá ykkur og var að vinna í bakaríinu þá áttir þú það til að skutla mér í vinn- una á inniskónum og silkináttkjóln- um, ef þú varst í bökunarstuði snemma dags bakaðir þú meira segja í honum. Ég veit það að hann pabbi þinn, Gummi bróðir þinn, Steini bróðir hans afa og foreldrar þeirra halda þér félagsskap núna og að þú munt vaka öllum stundum yfir okkur hin- um. Ég læt fylgja hérna með vers sem ég veit að var þér mjög kært, vers sem skrifað var inn í sálma- bækur okkar allra, sem þú gafst okkur þegar við fermdumst. Drottins hönd þig ljúfa leiði ljóssins vegum á og hann þína götu greiði með góðvild öllum hjá. Að lokum vil ég kveðja þig með sömu orðum og þú notaðir ávallt við mig áður en ég fór að sofa sem barn, elsku amma mín, Guð geymi þig. Ég elska þig, þín Halldóra María. Elsku amma mín, ég trúi því bara ekki að þú sért farin frá okkur. Ein- hvern veginn hélt ég að þú yrðir allt- af til staðar eins og þú hefur alltaf verið. Sama hvað gekk á, þú varst alltaf með bros á vör og lést sem ekkert væri að, tilbúin að taka á móti gestum og vera alltaf hlý og elskuleg og bjóða þeim kaffi og kök- ur. Þú varst alltaf svo dugleg og hjálpsöm. Fyrir um 2 árum, þegar ég var í menntaskóla, þá var ég spurð, hver er fyrirmyndin þín? Ég svaraði allt- af amma og þegar ég var spurð, af hverju amma þín? sagðist ég aldrei á minni lífsleið eiga eftir að þekkja manneskju sem er jafnmikil bar- áttumanneskja. Hún hélt öllu sam- an. Hún hugsaði um aðra, áður en hún hugsaði um sig og náði að vera svo fín og falleg. Síðast þegar ég sá þig sagðirðu, kíkiði sem oftast í heimsókn, þú og Maggi. Bara ef ég hefði komið oftar og bara ef ég hefði verið hjá þér. Þegar ég var lítil var það besta í heimi að koma til ömmu, þú gafst okkur alltaf rabarbara með sykri og svo sat maður inni eldhúsi, rosa ánægður að vera kominn heim til ömmu. Ég á eftir að sakna þín svo mikið og að spjalla við þig, það var svo gott að koma til þín. Ég hugsa til þín á hverju degi og hversu mikið ég sakna þín. Ég vildi óska þess að þú værir hér hjá mér að gefa mér góð ráð og vera til staðar þegar ég eign- ast mitt fyrsta barn og gifti mig. En ég veit að þú verður mér við hlið alla tíð í gegnum góða tíma og slæma, sem engillinn minn. Mér finnst ég ekki hafa sagt þér nóg hversu mikil fyrirmynd þú ert mér og hversu mikið ég elska þig, þú munt alltaf vera í hjartanu mínu. Ég veit að þegar minn tími kemur að yfirgefa þennan heim þarf ég ekkert að ótt- ast, þú tekur á móti mér með opnum örmum eins og alltaf. Elska þig, þín Rakel Ýr Elsku amma, ég sakna þín svo mikið. Ég trúi ekki að þú sért farin frá okkur, en það er eitt sem róar mig, að núna getur þú andað ein. Mér þykir það svo leitt þegar ég sá þig seinnast var ég að flýta mér svo mikið og gat stoppað svo stutt hjá þér. Það er svo sárt að ég hafi ekki getað kvatt þig. Ég man þegar ég og Dóra komum í heimsókn til þín og eins og vanalega gafst þú okkur að borða og bakaðir vöfflur fyrir okkur og þegar þú fékkst þér rjóma úr rjómasprautuni sprautaðir þú yfir þig alla og út um allt, við hlógum mikið að því og þú öll þakin í rjóma frá toppi til táar, þetta var eins og atriði úr bíómynd. Þú varst alltaf svo glæsileg. Elsku amma, ég mun sakna þín mikið. Takk fyrir að kenna okkur allt. Ég elska þig. Sigríður Sæunn. Elsku besta langamma mín, mamma segir mér að núna sért þú komin til Guðs og að þér líði miklu betur þar, því þar sértu ekkert veik. Ég á eftir að sakna þín rosalega mik- ið og að geta ekki komið í heimsókn til þín beint eftir leikskóla eins og við mamma gerðum svo oft. Það var allt- af svo gott að koma til þín og langafa. Þú skildir svo vel svanga leikskóla- stráka og áttir alltaf til mjólk og kök- ur, sem gott var að fá eftir langan dag. Oft drógust nú heimsóknir okk- ar á langinn og enduðum við með því að stoppa í marga tíma, því alltaf vildir þú bjóða öllum í mat og fannst mér það alltaf svo gaman þegar við borðuðum öll saman hjá ykkur, oft var það nú það fyrsta sem ég spurði þig að sem ég sagði við „ætlum við að borða hjá ykkur í kvöld“ og alltaf fékk ég nú jákvætt svar við því. Ég á svolítið erfitt með að skilja það að ég eigi ekki eftir að geta feng- ið að sjá þig aftur og þegar mamma var að reyna að útskýra þetta fyrir mér þá var ég fljótur að segja henni að Guð myndi bara keyra þig aftur heim til langafa svo við gætum hitt þig aftur, en hún sagði mér að það væri ekki hægt því það væru ekki neinar götur né bílar hjá Guði, því þegar maður færi til Guðs yrði mað- ur engill og fengi vængi og þá fannst mér bara eðlilegt að þú myndir bara fljúga eins og fugl aftur til okkar. En ég er bara þriggja ára og á því svolít- ið erfitt með að skilja þetta, en mamma sagði mér að ég gæti alltaf talað við þig og þú myndir alltaf heyra í mér og það mun ég gera. Ég mun aldrei gleyma þér, elsku langamma mín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Ég elska þig, þinn Ívan Dagur. Þegar sorgin knýr dyra er gott að geta notið góðra minninga um þann látna sem verma sálina. Dóra systir og mágkona er látin eftir erfið og langvarandi veikindi. Hún var sterk kona sem lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Þó var það þannig að vonbrigði og vonleysi gerði vart við sig þegar henni voru borin þau skila- boð að henni væri synjað um aðgerð sem gæti fært heilsu hennar til betri vegar. Það er í raun ótrúlegt að til séu dómarar í samfélagi okkar sem fella svona dóma með því skeyting- arleysi sem var í hennar tilfelli og verður þessi dómur þeirra, þeim sem í hlut eiga, til ævarandi hneisu. Dóra og Palli hófu búskap sinn á Siglufirði og fljótlega stækkaði fjöl- skyldan og að endingu urðu börnin fjögur, Aðalbjörg, Björn, Sigurlaug Soffía og Anna Lilja. Nú eru ömmu- börnin orðin 12 og langömmubörnin 4. Þessi hópur naut þess að koma í Tunguheiðina og heilsa upp á ömmu Dóru og afa Palla. Ég veit að ómögu- legt er að fylla það skarð sem fráfall Dóru hefur myndað og söknuður þeirra og missir verður mikill. Við Dísa áttum erindi til Reykja- víkur um síðustu helgi, þegar Dóra frétti af ferðalagi okkar hafði hún samband og bauð okkur í kvöldmat. Þar nutum við gestrisni hennar, sem var við brugðið, og áttum við skemmtilega kvöldstund saman og ekki minnkaði kátínan þegar Palli kom heim af sjónum. Það leyndi sér ekki að heilsu henn- ar hafði hrakað en hún reyndi að láta lítið á því bera og ræddi af miklum áhuga um hannyrðir við Dísu. Hann- yrðir styttu Dóru stundir eftir að heilsu hennar hrakaði og gáfu lífi hennar aftur einhvern tilgang og naut hún þess að ræða þessi tóm- stundamál sín við Dísu. Þegar við kvöddum hana kom okkur ekki í hug að þessi kvöldstund yrði sú síðasta sem við nytum með henni. Minn- ingin um hana er ljúf og verður ekki frá okkur tekin. Við í Dalbrautinni, Dalvík og amma Soffía á Dalbæ viljum senda Palla, Boggu, Bjössa, Laugu, Önnu Lilju og mökum þeirra, börnum og barnabörnum okkar dýpstu samúð- arkveðjur og vonum að Guð styrki þau á erfiðri stund. Ásdís og Þorsteinn (Dísa og Steini). Elskulega Dóra frænka, nú ertu farin frá okkur, eftir erfið og lang- varandi veikindi. Það er hálfskrýtið að hugsa til þess að þegar við Máni, sonur minn, komum til Íslands nú í sumar að það yrði í síðasta skiptið sem við mynd- um fara í heimsókn til þín í Tungu- heiðina. Máni var svo hrifinn af þér og kom með blóm sem hann hafði tínt stuttu áður og gaf þér stóran koss, eins og honum einum er lagið. Mér þótti svo vænt um það þegar þú sagðir mér að ég væri komin á vinalistann fyrir símtöl til útlanda og að þú ætlaðir að nýta þér þá þjónustu og hringja í frænku í Eng- landi og ég var strax farin að hlakka til að heyra í þér og fá fréttir af heiman. Það er mér ennþá svo minnisstætt með þakklæti í huga, að á þeim tíma sem ég var mikið á ferðalögum voru dyrnar hjá þér alltaf opnar fyrir mig. Þó svo að fyrirvarinn hafi oft verið stuttur þá skipti það engu máli, ég var alltaf jafn velkomin á heimilið þitt. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Elsku Palli, Bogga, Bjössi, Lauga, Anna Lilja, makar ykkar, börn, barnabörn og amma Soffía, við Tim og Michael Máni, sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur, megi góður Guð gefa ykkur styrk á þess- ari erfiðu stundu. Helga Kristín, Englandi. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Í dag kveð ég, með miklum sökn- uði, mína kæru vinkonu Halldóru. Þegar ég kynntist henni fyrir alvöru stóð ég á talsverðum tímamótum í lífi mínu. Halldóra var mér þá stoð og stytta og veitti mér mikla upp- örvun. Höfum við frá þeim tíma ver- ið ákaflega miklar og góðar vinkon- ur og getað deilt með hvor annarri gleði og sorg. Meðan heilsa Halldóru leyfði gerðum við ýmislegt saman, fórum í búðir, borðuðum saman á veitinga- stað eftir fundi, svo eitthvað sé nefnt. Ég fékk einnig að fylgjast með ýmsum merkisatburðum í lífi fjölskyldu Halldóru. Þar má nefna gleðina yfir fæðingu ömmu- og lang- ömmubarna og þroskaferli þeirra. Ég sendi mínar einlægustu sam- úðarkveðjur til Palla og allra afkom- enda hennar Halldóru minnar. Minning þín lifir í huga mér. Margrét L. Halldóra Guðrún Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.