Morgunblaðið - 29.08.2006, Page 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Jóhann Sæ-mundur Björns-
son fæddist á
Hvammstanga hinn
20. febrúar 1942.
Hann andaðist á
Landspítalanum
hinn 20. ágúst síð-
astliðinn. Foreldrar
Jóhanns voru Björn
Kr. Guðmundsson,
verkstjóri og síðar
skrifstofumaður hjá
Kaupfélagi Vestur-
Húnvetninga á
Hvammstanga, f.
20.3. 1906, d. 2.9. 1983, og Þor-
björg Ólafsdóttir húsmóðir, f.
31.5. 1901, d. 11.1. 1981. Bræður
Jóhanns eru Trausti, f. 2.6. 1932,
kvæntur Áslaugu Hilmarsdóttur,
og Ólafur, f. 28.2. 1937, kvæntur
Mjöll Þórðardóttur.
Jóhann kvæntist 10.6. 1962
Svanhildi Þorkelsdóttur forstöðu-
manni, f. 14.3. 1943. Hún er dóttir
hans er Emilía Björg Jónsdóttir
skrifstofumaður, f. 26.8. 1970.
Börn þeirra eru Jóhann Gylfi, f.
2.10. 1999, og Auður Jóney, f.
14.12. 2004.
Jóhann ólst upp á Hvamms-
tanga, hann stundaði nám við
Héraðsskólann á Reykjum í
Hrútafirði og lauk þaðan gagn-
fræðaprófi 1960. Jóhann starfaði
síðan eitt ár við Kaupfélag Vest-
ur-Húnvetninga á Hvammstanga
en flutti til Reykjavíkur 1961 og
stundaði þar verslunarstörf í
Kjöti og fiski í nokkur ár. Hann
var síðan afgreiðslumaður í Nátt-
úrulækningabúðinni um skeið en
stofnaði ásamt öðrum Hunangs-
búðina 1966 og rak hana ásamt
öðrum til 1970 en síðan einsamall
til 1973. Þá hóf Jóhann nám í
húsasmíði hjá mági sínum. Hann
lauk sveinsprófi 1976 en hafði
eignast hlut í trésmiðjunni K-14 í
Mosfellsbæ sem hann starfrækti
með mágum sínum þar til árið
1991. Þá hóf Jóhann að vinna sem
framkvæmdastjóri fyrir sókn-
arnefnd Lágafellssóknar og sinnti
hann því starfi til dauðadags.
Útför Jóhanns verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Þorkels Einarssonar,
húsasmíðameistara í
Reykjavík, f. 26.12.
1910, d. 11.6. 2003,
og Ölfu Ásgeirs-
dóttur húsmóður, f.
8.7. 1911, d. 17.10.
1965. Börn þeirra Jó-
hanns og Svanhildar
eru: 1) Þorkell Ás-
geir flugstjóri, f.
27.4. 1963. Kona
hans er Ragnhildur
Hallgrímsdóttir leik-
skólakennari, f. 28.3.
1961. Börn þeirra
eru Þorbjörg Una, f. 17.4. 1995,
Hallgrímur Anton, f. 12.9. 1997,
og Snæbjörn Máni, f. 8.11. 2000.
2) Alfa Regína framkvæmdastjóri,
f. 3.3. 1966. Var gift Steinari
Ólafssyni, f. 10.10. 1966. Börn
þeirra eru Svanhildur, f. 4.9.
1992, og Ólafur Jóhann, f. 30.11.
1996. 3) Þorbjörn Valur lög-
reglumaður, f. 4.1. 1969. Kona
Eitt sinn heyrði ég mætan mann
segja að aðalatriðið í lífinu væri ekki
að lifa sem lengst, heldur að lifa fyrir
aðra. Mér finnst það hitta vel í mark
og aldrei hef ég skilið þessa speki
betur en nú þegar ég lít yfir farinn
veg á kveðjustund pabba, því þótt
hún sé allsendis ótímabær, þá er það
aðalatriði við lífshlaup hans að hann
lifði fyrir aðra. Ævinlega var þessi
höfðingi boðinn og búinn að hlaupa til
þegar einhvern vantaði hjálp eða
greiða. Allt líf hans einkenndist af því
að hann var að búa í haginn fyrir okk-
ur, fjölskylduna sína, og fyrir vini og
vandamenn. Jafnvel á erfiðum tímum
þegar fjárhagurinn var þröngur, þá
sá þess hvergi stað að við systkinin
liðum á nokkurn hátt fyrir það, okkur
var búið öruggt athvarf á fallegu
heimili, og hvað sem við tókum okkur
fyrir hendur í íþróttum eða tónlist
m.a. þá skorti aldrei á stuðninginn
heima fyrir. Þessu kynntust margir
fleiri, m.a. í gegnum störf pabba, því
hann var þannig að ef nokkurs staðar
vantaði hjálp eða stuðning, þá fannst
honum svo sjálfsagt að verða að liði.
Enda held ég að hans mesta lífsfyll-
ing hafi verið að láta öðrum líða sem
best í návist sinni, því hann kunni ein-
mitt þá list manna best. Ég vona að
afabörnin hans hafi numið af honum
þessa list, og mig grunar að minning
þeirra um afa sinn verði þeim hvatn-
ing til þessa um ókomna tíð. Það er
ómetanleg arfleifð sem ég bý sjálfur
að, ekki bara eftir pabba heldur einn-
ig ömmu og afa á Hvammstanga. Er
ekki einmitt þetta kjarninn í því að
lifa fyrir aðra, það að hafa þessa góðu
návist þar sem þeir sem hennar njóta
finna hlýju og traust? Þess láns feng-
um við öll að njóta, að kynnast pabba
og þessum eiginleikum hans, og er
því m.a. mikill harmur kveðinn að
afabörnunum hans. Þeim hug sem
krílin mín, Þorbjörg, Haggi og Snæ-
björn, bera til hans er best lýst í ljóði
sem dóttir mín, ellefu ára, gaf honum
meðan hann glímdi við sjúkdóminn
sem nú hefur lagt hann að velli:
Elsku afi láttu þér batna,
til venjulegs lífs þú verður að vakna,
annars mun ég ávallt þín sakna
og þá mun líf mitt til enda upp rakna.
Ég hef alltaf elskað þig,
alveg síðan þú þekktir mig,
alveg, út af lífinu ég elska þig
og ávallt verður maður að trúa á sig.
(Þorbjörg Una)
Nú þegar við horfum á eftir pabba
vitum við öll, líka börnin okkar, að afi
þeirra er kominn til betri heims, líkn-
aður af þeim fjötrum sem þjáður lík-
ami batt hann í.
Það renna margar minningar
gegnum hugann á svona stundum,
engar nema góðar, margar lærdóms-
ríkar og enn aðrar kitla hláturtauga-
rnar. En eitt af því sem mér finnst
rísa upp úr þessum minningasjóði er
sú staðreynd að þótt pabbi hafi verið
mikill húmoristi og prakkari, og hefði
m.a. unun af gamansögum um fólk,
þá féll honum aldrei hnjóðsyrði af
vörum um nokkurn mann. Svo eru
líka minningarnar um einstakan
náttúruunnanda, sem naut þess að
fara um landið, og ekki bara njóta
þess sem íslensk náttúra hefur upp á
að bjóða heldur leyfa einnig öðrum að
njóta þess með sér. Við systkinin og
mamma eigum dýrmætar minningar
og reynslubrunn eftir ótalmargar
ferðir og útilegur, vítt og breitt um
landið, þegar pabbi hafði af einstakri
natni komið fyrir í litla „voffanum“
tjaldi, fimm svefnpokum, nesti og
viðlegubúnaði, veiðigræjum, ferða-
töskum og öllu öðru sem fylgja þurfti
fimm manna fjölskyldu í svona fyr-
irtæki, svo bílgreyið mátti þola álag
sem þessir stóru pallbílar væru full-
sæmdir af í dag. Svo var bara keyrt
af stað út í óvissuna, oft með ein-
hverri viðkomu á Hvammstanga hjá
afa og ömmu og það var nú ekki ónýtt
heldur. Þessi ferðalög hafa skilið eft-
ir sig þrá til að ferðast meira, sjá
meira. Þekkja betur landið okkar og
náttúruna.
Elsku pabbi, það er svo margt sem
mig langar til að segja enn, án þess
þó að koma orðum að því. En ég held
að það geti allt falist í því þegar ég
segi: við söknum þín öll. Við hittumst
nú einhvern tímann aftur í fjarlægri
framtíð og ég hugsa til þess með til-
hlökkun, en þangað til ætla ég að
reyna að kenna börnunum mínum, og
vonandi afabörnum seinna, eitthvað
af því sem þú miðlaðir til mín um
mannlífið og náttúruna, og gildi þess
að lifa fyrir aðra. Takk fyrir allt,
pabbi minn.
Þorkell Ásgeir Jóhannsson.
Afastrákar pabba, Ólafur Jóhann
og Jóhann Gylfi, voru að ræða sam-
an, þá sex og þriggja ára gamlir.
Óli: „Sko í gamla daga þá notuðu
menn sko skjaldbökur til þess að
lyfta bílunum upp og skipta um
dekk.“ „Núúú!?!“ segir Jóhann Gylfi,
„já því þá voru ekki til svona tæki …“
sagði Óli, „jaaaaá, svon’ er nú lífið,“
sagði þá Jóhann Gylfi.
Þetta samtal kom upp í huga mér
þegar ég sat við dánarbeð föður míns
og hugsaði með mér, já svona er nú
lífið, allt tekur enda. Það er yndislegt
hvað barnshugurinn er saklaus eins
og ofangreind tilvitnun ber með sér
en staðreyndir lífsins geta oft á tíðum
verið sorglegar sem raun ber vitni.
Þegar vinir kveðja þá hugsar mað-
ur um liðna tíma og þannig var að
Jóhann Sæmundur
Björnsson
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÞORBJÖRG JÓNSDÓTTIR
frá Geitavík,
Borgarfirði eystra,
verður jarðsungin frá Bakkagerðiskirkju Borgar-
firði eystra, fimmtudaginn 31. ágúst kl. 14.00.
Björn Jónsson,
Jón Björnsson, Guðlaug K. Kröyer,
Svavar H. Björnsson, Líneik Haraldsdóttir,
Guðrún Björnsdóttir, Gunnar Guðjónsson,
Birgir Björnsson,
Axel A. Björnsson, Lilja K. Einarsdóttir,
Þorbjörn B. Björnsson, Jóhanna E. Vigfúsdóttir,
Geirlaug G. Björnsdóttir, Ólafur Jakobsson,
Ásdís Björnsdóttir, Arnar Margeirsson,
ömmubörn og langömmubörn.
Okkar ástkæri sonur, bróðir og frændi,
JENS WILLY ÍSLEIFSSON,
Frostafold 22,
Reykjavík,
lést af slysförum laugardaginn 26. ágúst.
Jarðarför hans verður gerð frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 4. september kl. 13.00.
Ísleifur Jónsson, Elísabet Vilhjálmsdóttir,
Vilborg L. Ísleifsdóttir,
Martha Sigurðardóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
ÞORSTEINN KRISTJÁNSSON,
Efstasundi 22,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu sunnudaginn 20. ágúst,
verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn
31. ágúst kl. 15.00.
Jónína Þorsteinsdóttir, Lárus L. Sigurðsson,
Ágústa Kristín Þorsteinsdóttir, Guðjón Þór Ólafsson,
barnabörn, langafabörn,
langalangafabarn og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, dóttir, systir, amma og langamma,
HALLDÓRA GUÐRÚN BJÖRNSDÓTTIR,
Tunguheiði 12,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík í
dag, þriðjudaginn 29. ágúst, kl. 13.00.
Páll Kristjánsson,
Aðalbjörg Pálsdóttir, Steindór Jón Pétursson,
Björn Pálsson, Berglind Lúðvíksdóttir,
Sigurlaug Pálsdóttir, Guðni Þór Þorvaldsson,
Anna Lilja Pálsdóttir, Ívar Guðmundsson,
Soffía Björnsdóttir,
Grímur S. Björnsson, Björg Jósepsdóttir,
Þorsteinn Kr. Björnsson, Guðfinna Ásdís Arnardóttir,
Björn A. Björnsson, Elísabet Erlendsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
BRYNDÍS ZOPHONÍASDÓTTIR,
Hlévangi,
Keflavík,
lést af slysförum sunnudaginn 27. ágúst.
Guðmundur Friðrik Georgsson, Sigurbjörg Anna Guðnadóttir,
Brynjar Helgi Guðmundsson
og Dagur Fróði Guðmundsson.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR
(Didda),
Steinagerði 1,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 31. ágúst kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga.
Stefán Eysteinn Sigurðsson,
Sigurður M. Stefánsson, Soffía H. Magnúsdóttir,
Guðmundur Skúli Stefánsson,
Gunnar H. Stefánsson, Sæunn Halldórsdóttir,
Guðrún M. Stefánsdóttir, Paul Siemelink,
Andri Stefánsson, Harpa María Örlygsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskaður sonur okkar, bróðir, frændi, barnabarn
og vinur,
SIGURÐUR RÚNAR ÞÓRISSON,
sem lést laugardaginn 19. ágúst, verður jarðsung-
inn frá Digraneskirkju fimmtudaginn 31. ágúst
kl. 15.00.
Þórir Rúnar Jónsson, Kristín Sæunn Pjetursdóttir,
Guðmunda S. Þórisdóttir, Sigvaldi E. Eggertsson,
Þóra G. Þórisdóttir, Sævar Þ. Guðmundsson,
Valgerður G. Þórisdóttir Gisler, Alex Gisler,
Þórir Kr. Þórisson, Karen Martensdóttir,
Signý Magnúsdóttir,
Rakel E. Sævarsdóttir,
Þórir H. Sigvaldason,
Marten B. Þórisson,
Róbert Thór Gisler,
Þóra Gunnarsdóttir
og vinahópurinn.