Morgunblaðið - 14.09.2006, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
ÞAÐ hljómar eins og úr munni vitfirr-
ings að nefna þær hrikalegu hraðatöl-
ur sem komið hafa í ljós sumar á einu
versta slysasumri lengi. „Svartur
ágústmánuður“ kallar Vegagerðin ný-
liðinn mánuð. Það segir líka sitt að
Vegagerðin þarf nánast á áfallahjálp
að halda eftir hinn svarta ágústmán-
uð, eins og Viktor Arnar Ingólfsson,
útgáfustjóri Framkvæmdafrétta
Vegagerðarinnar, kemst að orði í
blaðinu.
Það hlýtur þá að virka einkennilega
á fólk að á sama tíma og lögreglan
berst nú við að láta ökumenn virða
reglur um 30 km hámarkshraða í
íbúðahverfum, hafa nærri 1.300 öku-
tæki mælst á yfir 150 km hraða á viss-
um stöðum á þjóðvegunum í sumar.
Þetta eru upplýsingar sem Vegagerð-
in hefur aflað með sérhönnuðum um-
ferðargreinum víðs vegar um landið.
Alls 1.264 ökumenn voru á yfir 150 km
hraða í Ártúnsbrekku, á Esjumelum
og í Langadal. Þar af voru 69 öku-
menn sem óku á meira 200 km hraða í
Ártúnsbrekkunni og 36 ökumenn
voru á sama hraða í Langadalnum.
Þetta þýðir að einungis á þessum
tveim umræddu stöðum fóru 105 öku-
menn yfir 200 km hraða í sumar. Bara
við Esjumela mældust 1.159 ökumenn
á yfir 150 km hraða. Vert er að geta
þess að um bráðabirgðatölur er að
ræða.
Í ljósi þessa og annars er því ekki
undarlegt að Umferðarstofa skuli
hafa ákveðið að blása til sóknar gegn
hraðakstri og umferðarslysum undir
kjörorðinu: „Nú segjum við stopp“.
Talsmaður Umferðarstofu, Einar
Magnús Magnússon, segir að af þeim
19 mannslífum sem umferðin hefur
kostað í sumar, hafi átta lífum verið
fórnað fyrir fífldirfsku og leikaraskap.
Fólk sættir sig við lengri ferða-
tíma í flugi en á vegunum
Viktor Arnar hjá Vegagerðinni
kynnir hugmynd í baráttunni gegn
umferðarslysunum í Framkvæmda-
fréttum og leggur til að hámarkshraði
verði lækkaður á sumum stöðum en
hækkaður annars staðar.
Hann segir að almenningur sætti
sig við tafir vegna herts öryggiseft-
irlits í farþegaflugi vegna hryðju-
verkaógnarinnar. Segir hann ekki
óvarlegt að ætla að venjuleg flugferð
hafi lengst um hálftíma af þessum
sökum og spyr hvort fólk gæti ekki á
sama hátt sætt sig við svipaða leng-
ingu á ferðatíma á þjóðvegunum með
því að lækka t.d. ökuhraða úr 90 km í
80 km og tekur dæmi af ökuleiðinni
milli Reykjavíkur og Akureyrar í því
samhengi.
„Ógnin í umferðinni er miklum mun
áþreifanlegri en hryðjuverkaógnin í
farþegaflugi fyrir okkur Íslendinga,“
segir hann. „Að meðaltali látast tveir
einstaklingar í mánuði á vegunum og
það er alveg ljóst að of mikill hraði á
stóran þátt í þessum slysum,“ bætir
hann við. Hann bendir einnig á að í
gildi séu reglur um mismunandi há-
markshraða ökutækja þ.e. þau sem
eru með tengivagn og mega ekki fara
upp fyrir 80 km/klst og hin sem mega
fara upp í 90 km hraða.
„Er ekki nær að hámarkshraði fyr-
ir öll ökutæki sé 80 km/klst. á vegi
með bundnu slitlagi þar sem aksturs-
stefnur eru ekki aðgreindar með
vegriði?“ spyr hann.
Viktor leggur síðan til eftirfarandi
reglur fyrir hámarkshraða: Á malar-
vegum lækki hraði úr 80 km í 70 km
og á malbikuðum vegum án að-
greindra akstursstefna þar sem nú er
90 km hámarkshraði lækki hann í 80
km. Malbikaður vegur með aðgreind-
um akstursstefnum, líkt og á Hellis-
heiði (2+1 vegur) verði með 90 km há-
markshraða og loks verði hraði
hækkaður úr 90 km í 100 km á malbik-
uðum vegum með a.m.k. tveim ak-
reinum í hvora átt með vegriði eða
svæði á milli akstursstefna eins og er
á Keflavíkurveginum. Skilyrði þar séu
að öll gatnamót séu enn fremur mis-
læg.
Viktor segir síðan að tillögur um
lægri hámarkshraða hafi lítið fylgi við
fyrstu sýn en segir þetta þó eðlilega
ráðstöfun ef málið er skoðað í sam-
hengi við aðrar öryggiskröfur í sam-
félaginu. „Hver sá vettvangur annar
sem yrði fyrir 24 banaslysum á ári
yrði rígnegldur með ströngustu ör-
yggisreglum þar til ástandið yrði
ásættanlegt,“ segir hann.
Að mati Einars Magnúsar Magn-
ússonar virðast viðurlög og úrskurðir
dómstóla styrkja það „undarlega“ við-
horf almennings að brot á umferðar-
lögum sé ekki alvarlegt, í það minnsta
ekki eins alvarlegt og t.d. brot á lög-
um um meðferð skotvopna en með
þeim sé líka hægt að bana fólki. Fyrir
nokkrum misserum dæmdi Hæsti-
réttur ungan mann í 2 mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir manndráp af
gáleysi fyrir vítaverðan akstur með
þeim afleiðingum að 15 ára stúlka lést
er hún varð fyrir bílnum. Sagðist
ákærði sjálfur hafa verið á 150 km
hraða og hlaut að auki 2 ára ökuleyf-
issviptingu.
Að mati Einars virðist fjöldi öku-
manna líta á sektir sem „fórnarkostn-
að“ fyrir það að geta ekið langt um-
fram löglegan hámarkshraða. En
hver er þessi fórnarkostnaður? Sá
sem ekur á 170 km hraða úti á þjóð-
vegunum með 90 km hámarkshraða
fær 70 þúsund kr. sekt og 3 mánaða
sviptingu. Því er þannig háttað að
sektarskalinn nær ekki lengra en upp
í 170 km hraða og þess vegna mega
þeir hundrað ökumenn sem voru á yf-
ir 200 km hraða ekki búast við að fá
þyngri sekt þótt þeir gefi hraustlega í
frá 170 km hraða. Í raun fengu þeir
alls enga sekt því aðeins örfáir voru
stöðvaðir af lögreglu, einkum bifhjóla-
menn. Í Finnlandi byggjast sektir upp
á meðalmánaðartekjum skv. skatt-
framtali síðasta árs og fyrir ölvunar-
akstur er hámarksrefsing 5 ára fang-
elsi.
Eitt þeirra mögulega úrræða gegn
ofsaakstri telur Einar vera hraðatak-
markara í bíla og telur að þótt sumir
segi slíkt of langt gengið af hálfu yf-
irvalda, væri engu að síður hægt að
taka úr umferð það sem flokkast und-
ir ofsaakstur. „Þetta er mögulegt úr-
ræði til björgunar mannslífa,“ segir
hann. „Ef ekki hefði verið hægt að
komast á ofsahraða í nokkrum bana-
slysum sumarsins, þá eru mestar lík-
ur á að bjarga hefði mátt sex manns-
lífum.“
Ofsaaksturinn kallar á áfallahjálp
Morgunblaðið/Júlíus
Nóg komið Frá vettvangi eins þeirra mörgu banaslysa sem urðu í sumar. Vegagerðinni er nóg boðið og Umferðar-
stofu sömuleiðis og vilja stöðva hina grafalvarlegu þróun sem orðið hefur í sumar. Þörf er á hugarfarsbreytingu.
Í HNOTSKURN
»Hraðatakmarkanir í bílaer eitt þeirra úrræða sem
Umferðarstofa leggur til í bar-
áttunni við banaslysin.
»Hraðasektir ná „aðeins“upp í 170 km hraða og þeir
hundrað ökumenn sem fóru á
yfir 200 km í sumar hefðu
fengið sömu sektina og hinir,
70 þúsund krónur og 3 mán-
aða sviptingu.
EFNT verður til borgarafundar
samtímis á sjö stöðum á landinu í
dag kl. 17:15 undir yfirskriftinni:
„Nú segjum við stopp!“ Tilefni
fundanna er sú alda umferðarslysa
sem skollið hefur á landsmönnum
að undanförnu.
Mörg þessara slysa má rekja til
áhættuhegðunar ökumannanna og
er ljóst að þörf er á róttækri hug-
arfarsbreytingu að mati Umferð-
arstofu.
Á fundunum verða flutt stutt er-
indi fólks sem hefur upplifað það
áfall og þá sorg sem fylgir alvar-
legum slysum. Þá lýsa lögreglu- og
sjúkraflutningamenn reynslu sinni
af vettvangi.
Fundirnir verða haldnir í Reykja-
vík, Reykjanesbæ, á Selfossi, Egils-
stöðum, Akureyri, Ísafirði og í
Borgarnesi og mun samgöngu-
ráðherra flytja þjóðinni aðgerða-
áætlun stjórnvalda gegn umferð-
arslysunum.
„Nú segjum
við stopp!“
Fréttaskýring | Á annað þúsund ökutæki óku á yfir 150 km hraða á vissum stöðum í sumar og banaslysin eru orðin 19 það sem af er árinu.
Síðasti mánuður var sérstaklega slæmur og kallar Vegagerðin hann „svarta ágústmánuð“. Umferðarstofa boðar til fundaherferðar í dag
undir kjörorðinu: „Nú segjum við stopp!“ og segir þörf á hugarfarsbreytingu meðal ökumanna til að sporna við ástandinu.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær þrjá menn á tvítugs-
aldri í fangelsi fyrir innflutning á
rúmlega 400 grömmum af kókaíni til
landsins í janúar sl. og fleiri hegning-
arlagabrot. Einn ákærðu, Kristófer
Már Gunnarsson, hlaut þriggja ára
fangelsi og meðákærði, Hákon
Traustason, tveggja ára fangelsi.
Félagi þeirra var dæmdur í átján
mánaða fangelsi. Voru tveir fyrst-
nefndu einnig sakfelldir fyrir þjófn-
aði á hlutum að verðmæti fleiri millj-
ónir króna.
Kristófer Már viðurkenndi að hafa
flutt 140 grömm af kókaíni til lands-
ins frá Þýskalandi og meðákærði
Hákon viðurkenndi innflutning á
öðru eins magni. Félagi þeirra við-
urkenndi þá innflutning á 142
grömmum. Viðurkenndu þeir allir að
hafa farið utan í smyglferðina að
undirlagi karlmanns sem sat með
þeim Kristófer og Hákoni í fangelsi á
Litla-Hrauni. Sagðist Kristófer hafa
fengið flugmiða og peninga hjá
manninum til fararinnar þótt í fyrstu
hefði hann hafnað boðinu. Hann sló
síðar til í því skyni að borga fíkni-
efnaskuldir. Í Amsterdam fengu
mennirnir fíkniefnin í einum stórum
poka og fluttu til landsins.
Skilorð kom ekki til greina
Kristófer Már er fæddur árið 1987
og rauf nú fyrri skilorðsdóm en hann
hefur framið fjölmörg brot að því er
segir í dómi héraðsdóms. Brot hans
voru mikil og ljóst að mati dómsins
að skilorðsbinding refsingar kæmi
hvorki að haldi, né væri hún viðeig-
andi vegna hins mikla magns fíkni-
efna sem ákærði var sakfelldur fyrir.
Meðákærði Hákon hefur einnig
hlotið fangelsisdóma áður fyrir fíkni-
efnabrot og rauf skilorð fyrri dóms.
Þótti ófært að skilorðsbinda refsingu
hans nú. Þriðji sakborningur á einn-
ig sakaferil en ekki eins langan og
hinir tveir.
Stærsta skaðabótakrafan í málinu
vegna þjófnaðarmálanna var sett
fram af hálfu Tryggingamiðstöðvar-
innar og nam tæpum 5 milljónum
króna en dómurinn fjallaði ekki um
hana þar sem henni hafði verið vísað
áður frá í öðrum dómi. Öðrum kröf-
um var vísað frá dómi.
Sakarkostnaður var felldur á sak-
borningana og nam hann um 1,5
milljónum króna.
Símon Sigvaldason héraðsdómari
dæmdi málið. Verjendur voru Lár-
entsíus Kristjánsson hrl. fyrir Krist-
ófer, Jón Höskuldsson hdl. fyrir Há-
kon og Ásbjörn Jónsson hdl. fyrir
meðákærða. Sækjandi var Daði
Kristjánsson, fulltrúi Lögreglustjór-
ans í Reykjavík.
Þriggja ára fangelsi fyrir
kókaínsmygl og fleiri brot