Morgunblaðið - 14.09.2006, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 14.09.2006, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. dagbók Þegar fréttir berastaf grófu og tilefn- islausu ofbeldi eða árásum spyr fólk oft hvernig svona lagað „geti gerst“ og hvað hafi eiginlega „vakað“ fyrir árásarmanninum eða -mönnunum. Vík- verja finnst í sjálfu sér eðlilegt að reyna að skilja ástæður þess að einhver gengur í skrokk á öðrum með barsmíðum, eða hníf- stungum sem eru furðulega algengar hér á landi. Hafa ekki allir þörf fyrir að skilja aðdraganda voða- verka til að geta yfirhöfuð botnað eitthvað í sjálfum atburðinum? Oft er talað um rifrildi eða misklíð af einverju tagi, það er verið að rífast um peninga, nú eða fíkniefni eða -skuldir. Eða þá að það var hrein- lega engin sérstök ástæða fyrir of- beldinu. En ofsinn og miskunn- arleysið kann að eiga sínar skýringar sem er sérkapítuli í þessu samhengi. Það er fíkniefnaneyslan og allur óttinn og örvæntingin sem fylgir henni. Maður sem er að lenda í fráhvarfi og á ekki fyrir næsta skammti er löngu hættur að hugsa um velferð annarra. Ef barn, gam- almenni eða Víkverji yrði óvart á vegi slíks manns og truflaði á minnsta hátt vonir hans um næstu vímu þá væri hætta á ferð- um. Eins og sársoltið rándýr myndi fíkni- efnaneytandinn ryðja úr vegi hvers konar hindrunum. Gengi hann með hníf væri stórhætta á ferð. Það er löngu upplýst að það þarf að smygla heilu tonni af hassi til að fullnægja þörfum stórnotenda og hálfu tonni af amfetamíni. Það gera 4 kg á hverjum einasta degi. Neytendur hugsa ekki rökrétt og það kemst ekkert annað að hjá þeim en full- nægja þörfinni. Síðan fer reglulega allt í bál og brand með ótrúlegu of- beldi. Og fólk er drepið á Íslandi. Tvö manndráp á ári að meðaltali síð- ustu árin eða svo. Er ekki nokkuð ljóst hvernig svona lagað „geti gerst“? Víkverja finnst þetta sam- félag orðið fárveikt. Fimm milljarða kr. ársvelta með fíkniefni á 300 þús- und manna eyju. Og neyðarástand á staurblönkum spítala helgi eftir helgi vegna ofbeldismála tengdum forríkum fíkniefnaheiminum. víkverji skrifar | vikverji@mbl.is     Orð dagsins :Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jóh. 14, 20.) Í dag er fimmtudagur 14. september, 257. dag- ur ársins 2006 árnað heilla ritstjorn@mbl.is velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Jón eða séra Jón ÉG velti því svolítið fyrir mér eftir að sjá að Árni Johnsen fékk uppreisn æru að það er ekki sama hvort er Jón eða séra Jón. Ég er t.d. „bara ung kona“ sem ábyggilega eins og Árni á dásemd- arbörn, lenti í því að vera of bjartsýn, stofna fyrirtæki sem gekk svo sem ágætlega að því leyti að ég reyndi hvað ég gat að halda því gangandi og greiða mínum birgjum. Ég bara var á of litlum stað til að það gæti þrifist án þess að ég tæki til minna ráða, auk þess sem ég var einfaldlega of bjartsýn og kannski pínu kjáni. Ég seldi það og sá sem keypti gat ekki staðið við sitt. Ég sat eftir í súpunni. Í dag eins og Árna, langar mig að halda áfram, ekki að stjórna landinu eða reka fyrirtæki, nei mér finnst ég ekki þess verðug fyrst mér mistókst, þótt ég hafi aldrei stolið af neinum, viljandi a.m.k. Lenti að vísu í skuld við Landsbankann sem ég hafði allt- af staðið í skilum við þar til ég lenti í þessum hremmingum. En mig langar að halda áfram að geta verið börnum mínum stoð og stytta. Ég get ekki beðið um upp- reisn æru (finnst það fallegra orð og nota það því í mínu tilfelli), ég bara verð að segja við soninn í Háskóla, „nei, mamma er ekki verð að skrifa upp á námslánið þitt“, við soninn sem er að fara til útlanda að keppa í sinni íþrótt, „nei, mamma á ekki pen- inga, allir peningarnir fara í matinn, elskan, á reyndar góða foreldra og systkini að sem hjálpa, svo þú ferð“. En mamma er samt svo svartur sauður í þjóðfélaginu. Enginn vill leyfa henni að hjálpa sínum börnum, þótt hún hafi góða vinnu og geri allt sitt besta til að koma góðum þjóð- félagsþegnum út í lífið, því hún „fær ekki uppreisn æru fyrr en eftir ein- hver ár“. Samt er hún svo góð mann- eskja sem engan hefur svikið, nema sjálfa sig fyrir að hafa treyst! Vá, ef hún hefði kjarkinn til að henda sér framan af svölunum væri hún löngu búin að gera það. En það væri bara svo vont, ekki endilega fyrir hana, heldur fyrir börnin. Hvert eiga svona mömmur að leita? Sem hafa kjark til að halda áfram, einar, stoltar af börnunum sínum, hissa á sjálfum sér fyrir að vera ekki bitrar. Bara pínu nið- urlægðar af þjóðfélaginu fyrir að eiga sér ekki von. Bara spyr. Er svo- lítið mikil Pollýanna í mér og trúi að einhver eigi svar. Veit innst inni að ég og börnin mín skipta svo miklu máli, finnst ég alveg hafa lært af mínum mistökum, mistökum að hafa treyst öðrum! En kannski er einhver þarna úti sem á svar við þeirri spurningu, hvert leita ungar konur með metnað fyrir því að vilja gera betur. Hvernig fæ ég uppreisn æru og segi, ég er gildur þegn! Ein stolt en gjaldþrota. Stærra letur ÉG VIL koma þeirri spurningu á framfæri hvort Morgunblaðið gæti ekki haft Vísnahornið með stærra letri, því eldri borgarar eiga erfitt með að lesa þetta. Eins mætti stækka letrið á hugvekju Sigurðar Ægissonar. Af því að Morgunblaðið brýndi liðsmenn Sjálfstæðisflokksins í borg- arstjórnarkosningunum í vor að koma til móts við óskir og þarfir eldri borgara finnst mér að Morg- unblaðið ætti að sýna það í verki og auðvelda okkur eldri borgurum að lesa blaðið. Sveinn Björnsson ellilífeyrisþegi. Vasaklútasafn fæst gefins VASAKLÚTASAFN, 18 klútar mjög fallegir, fást gefins. Upplýs- ingar í síma 864 9545. 70 ára afmæli.Sunnudaginn 17. september verð- ur sjötugur Paul B. Hansen, tæknifræð- ingur. Í tilefni þess býður hann ætt- ingjum, vinum og starfsfélögum til fagnaðar á afmæl- isdaginn í Hlégarði kl. 17–19. Gjafir af- þakkaðar. Brúðkaup | 1. júlí sl. voru gefin saman í Dómkirkjunni í Reykjavík af. sr. Ei- ríki Jóhannssyni (prestur í Hruna) þau Sveinn Benediktsson og Margrét Björnsdóttir. The Rolling Stones munu verðaaðalstjörnurnar í nýrri teikni- mynd sem nú er í vinnslu. Kallast hún Ruby Tuesday, eftir einu lagi sveitarinnar. Tólf laga Stones munu prýða myndina en segja má að það sér verið að taka hið teiknimynda- lega, og ýkta, vörumerki sveit- arinnar (tunguna) á annað stig. Söguþráðurinn er fástískur og segir af einstæðri móður sem leitar í ör- væntingu að hamingjunni í New York. Það eru bræðurnir Paul og Gaetan Brizzi sem leikstýra mynd- inni, auk þess að semja handritið. Þeir eru kunnastir fyrir teikni- myndina Asterix vs. Caesar og auk þess áttu þeir innslag í myndina Fantasia 2000. Nýjasta verkefni Mike Patton,Peeping Tom, mun sjá um að hita upp á komandi tónleika- ferðalagi The Who. Patton er þekktur fyrir fjölhæfni á tónlist- arsviðinu, hann hefur þannig unnið með Björk, auk þess að reka sveit- irnar Fantomas og Tomahawk. Þá hefur hann sinnt ýmiss konar sóló- og hliðarverkefnum. Auk þess rek- ur hann eitt af heitari neðanjarð- armerkjum Bandaríkjanna í dag, Ipecac. Hann öðlaðist frægð í kringum 1990 sem söngvari sveit- arinnar Faith no More. Peeping Tom, og samnefnd plata, byggist á samstarfi Patton og listamanna á borð við Bebel Gilberto, Massive Attack, Kool Keith, Noruh Jones, Kid Koala, Amon Tobin, Odd Nos- dam, Doseone og Dan the Autom- ator. Hljómsveitin var að ljúka nokkrum tónleikum með Gnarls Barkley („Crazy“) en væntanlegt tónleikaferðalag með The Who hef- ur komið af stað þónokkru hausa- klóri. Ferðalagið hófst í fyrradag en þeir sem aðstoða Patton á sviði eru m.a. taktkjafturinn Rahzel, meðlimir úr Dub Trio og söngv- arinn og fiðluleikarinn Imani Cop- pola.    Fergie, söngkona Black EyedPeas, hefur viðurkennt að hún hafi barist við fíkn í garð „crystal meth“, sem er reykjanlegt amfeta- mín og stórhættulegt. „Þetta er það erfiðasta sem ég Fólk folk@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís Hlutavelta | Þessir duglegu krakkar, Hildur Rós Vilhelmsdóttir, Esther Rós Arnarsdóttir, Kristjana Birta Krist- jánsdóttir, Katrín María Karlsdóttir og Arnar Viðarsson, héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfn- uðu þau 2.878 kr. ICELAND FILM FESTIVAL 2006 Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGA 30. ÁGÚST - 21. SEPTEMBER HETJAN... SKRÍMSLIÐ... GOÐSÖGNIN. DÝRASTA KVIKMYND SEM GERÐ HEFUR VERIÐ Á ÍSLANDI. BJÓLFSKVIÐAeeee blaðið eee H.J. - MBL HEIMURINN HEFUR FENGIÐ AÐVÖRUN. AÐSÓKNARMESTA HEIMILDARMYN- DIN Í ÁR. MYNDIN HEFUR FENGIÐ EINVALADÓMA BÆÐI FRÁ GAG- NRÝNENDUM OG VÍSINDAMÖNNUM. BYGGÐ Á METSÖLUBÓK AL GORE, FYR- RUM VARAFORSETA BANDARÍKJANNA. HEIMILDARMYND ÁRSINS SEM TEKUR Á EFNI SEM SNERTIR ALLA JARÐARBÚA. eeeee H.J. MBL eeee TOMMI/KVIKMYNDIR.IS eeee V.J.V. TOPP5.IS MAURAHRELLIRINN M/ÍSL TALI kl. 6 leyfð A COCK AND BULL... STEP UP kl. 6 - 8 - 10 Leyfð MAURAHR... Ísl tal. kl. 6 Leyfð UNITED 93 kl. 8 - 10 B.i. 12 ÞETTA ER EK... kl. 8 Leyfð LITTLE MAN kl. 8 - 10 B.i. 12 YOU ME AND... kl. 10:10 B.I.14 / AKUREYRI / KEFLAVÍK FRAMLEIDD AF TOM HANKS. RENAISSANCE www.haskolabio.is • Miðasalan opnar kl. 17HAGATORGI • S. 530 1919 eeee TOMMI KVIKMYNDIR.IS eeee S.U.S. XFM 91,9. 4 vikur á toppnum á Íslandi ! V.J.V. TOPP5.IS eeee MEÐ KYNTRÖLLINU CHANNING TATUM (“SHE’S THE MAN”) FRÁBÆR DANSMYND HLAÐIN GEGGJAÐRI TÓNLIST EN MYN- DIN KOM HELDUR BETUR Á ÓVART Í USA FYRIR NOKKRU. ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ ANNAÐ TÆKIFÆRI ÞARFTU AÐ TAKA FYRSTA SPORIÐ. DEITMYNDIN Í ÁR STEP UP BJÓLFSKVIÐA kl. 10:15 B.i.16 .ára. Renaissance kl. 8 B.i. 12.ára. A Cock and Bull Story kl. 10:30 B.i.16 .ára. Down in the Valley kl. 5:45 B.i. 16.ára. THE LIBERTINE The Libertine kl. 8 B.i.12 .ára. Looking for Comedy in the Muslim World kl. 5:55 Leyfð The Sisters kl. 8 B.i.12 .ára. Öskrandi Api, ballett í leynum kl. 10:30 B.i.12 .ára. AN INCONVENIENT TRUTH kl. 5:45 - 8 - 10:15 leyfð THE SISTERS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.