Morgunblaðið - 14.09.2006, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 14.09.2006, Blaðsíða 46
Staðurstund Leikgerð Sigurbjargar Þrast- ardóttur af Gunnlaðar sögu Svövu Jakobsdóttur verður frumsýnd annað kvöld. » 48 leiklist Enn á ný vermir Baggalútur toppinn á Tónlistanum, með öp- unum sínum í Eden og ekta Hawaii-stemningu. » 49 plötur Birta Björnsdóttir spyr hvort Oasis sé best í heimi, en lag þeirra „Live Forever“ var valið besta lag allra tíma af Q. » 48 af listum SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN efnir nú til sérstakrar raðar með kamm- ertónleikum, þar sem hljóðfæraleik- arar hljómsveitarinnar spila. Þar með gefst hlustendum tækifæri til að kynnast hljóðfæraleikurunum í meira „návígi“ en á sinfóníutón- leikum, þar sem kammermúsíkin krefst ekki nema nokkurra flytjenda og er því lágværari, þó ekki sé hún endilega lágstemmdari. Tónleikaröðin nefnist Kristallinn, og verður í Listasafni Íslands. Fyrstu tónleikarnir verða á laug- ardaginn kl. 16. Kristalstónleikarnir verða um klukkustund að lengd og verður miðaverði stillt í hóf, að sögn sinfón- íufólks, en áskrifendum bjóðast enn hagstæðari kjör. Athyglisverð efnis- skrá verður á fyrstu tónleikum krist- alsraðarinnar, Passacaglia eftir Händel, útsett fyrir fiðlu og selló af norska tónskáldinu Johan Hal- vorsen og svo hinn veglegi Septet í Es-dúr op. 20 fyrir klarinett, fagott, horn, fiðlu, víólu, selló og kontra- bassa eftir Beethoven. Flytjendur verða Einar Jóhanes- son á klarinettu, Rúnar Vilbergsson á fagott, Joseph Ognibene á horn, Sigrún Eðvaldsdóttir á fiðlu, Helga Þórarinsdóttir á víólu, Bryndís Halla Gylfadóttir á selló og Hávarð- ur Tryggvason á kontrabassa. Alls verða sex tónleikar í krist- alsröðinni, þeir næstu í lok október og þeir síðustu í maí. Hljóðfæra- leikararnir í sviðsljósinu Sellóleikararnir Sellóið er vinsælt í hvers konar kammermúsík. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Þ að er alltaf svo góður mórall hjá okkur horn- leikurunum, og þess vegna leggjast þessir tónleikar vel í mig, eins og allir aðrir tónleikar,“ seg- ir Stefán Jón Bernharðsson horn- leikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, um tónleika kvöldsins, þar sem hljómsveitin leikur tvær sinfóníur; þá númer fimm eftir enska tón- skáldið Malcolm Arnold, og „tólfuna“, eins og Stefán Jón kallar tólftu sinfóníu Dimitris Sjostakovitsj. „Við hornleikararnir erum öll góðir vinir og hitt- umst mikið utan vinnunnar – og það er alltaf létt og skemmtilegt hjá okkur.“ Spurður um verkefni kvöldsins segir Stefán Jón að það sé alltaf nóg að gera fyrir hornleikarana í sinfóníum Sjos- takovitsj. „Maður veit að sinfónía eftir Sjostakovitsj er ávísun á mikinn blástur, miklar styrkleikabreytingar og dýnamík. Það er hrár kraftur í þeim, og persónulega hef ég alltaf rosalega gaman af þeim – það er alltaf veisla þegar hann er annars vegar. Ég er því líka mjög ánægður með að hljómsveitin skuli vera að spila allar sin- fóníurnar hans, þótt það séu ekki nema nokkrar á ári í nokkur ár. Fyrir þá sem elska Sjostakovitsj er þetta bara æði, því sumar sinfóní- urnar væru kannski ekkert spilaðar annars. Arnold er ekki eins þekktur og Sjostakovitsj og lítið þekktur utan Bretlands. Þessi sinfónía hefur örugglega ekki verið spiluð hér áður. Arnold var trompetleikari og flestir málmblásarar þekkja hann vel, því hann samdi mjög gott verk fyrir brasskvintett. En það er alltaf gaman að spila eitthvað nýtt og ég þori að fullyrða að fólk þekkir ekki þessa sinfóníu.“ Stefán Jón segir að þegar hornaflokkurinn hittist utan vinnu snú- ist talið óhjákvæmilega oft um spilamennskuna, hljóðfærin og starf- ið. „En við tölum líka um allt mögulegt og spilum líka okkur til gamans – þá kannski léttari verk. En þetta eru mis-formlegt hjá okkur. Stundum höfum við „horn-hitting“ og bjóðum fleiri horn- leikurum, og þá pöntum við oft pizzu og horfum á eitthvað skemmtilegt. Félagslega hliðin bindur okkur. Við höfum líka farið saman á alþjóðleg hornþing út um allan heim. Við erum búin að stofna Hornleikarafélag Íslands, Hornís, og í það eru allir horn- leikarar og hornvelunnarar velkomnir.“ Sjostakovitsj er ávísun á mikinn blástur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.