Morgunblaðið - 14.09.2006, Side 21

Morgunblaðið - 14.09.2006, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 21 SUÐURNES AUSTURLAND „VERULEGAR breytingar verða á rennsli Jökulsár á Dal með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar“ sagði Óli Grétar Blöndal Sveinsson, deild- arstjóri rannsókna á verkfræði- og framkvæmdasviði Landsvirkjunar, á opnum fundi um virkjunarfram- kvæmdina sem haldinn var á Fljótsdalshéraði fyrir skemmstu. Byrja á að safna vatni í Hálslón á allra næstu dög- um. „Þegar lónið fyllist fer vatnið á yfirfall og það mun jafnan ger- ast síðsumars og eitthvað fram á haustið. Þetta er eina jökulvatnið sem kemur í ána eftir Kárahnjúkavirkjun, annars er eingöngu um bergvatn að ræða.“ Óli Grétar segir göngin frá lóninu eðli málsins samkvæmt aðeins rúma það vatnsmagn sem virkjunin geti tekið við, ríflega 100 m3/sek og þegar lónið sé fullt taki yfirfallið af- ganginn. „Sum ár eru mjög mögur og þá mun Hálslón ekki fyllast og ekkert jökulvatn koma í ána. Í blautustu árum mun vatn koma á yfirfall Hálslóns um miðjan júlí. Reiknað er með að annað hvert ár komi vatn á yfirfallið fyrir miðjan ágúst og verði á yfirfalli fram eftir september. Það vatn sem kemur á yfirfallið eykst smám saman byrjar frá engu og vex upp í tæplega dæmigert núverandi rennsli Jöklu. Góður aðdragandi er að því þegar vatn byrjar að renna á yfirfalli og tilkynnt verður um það sérstaklega.“ Vatnasvið Jökulsár á Dal er um 4000 km² að stærð. Þar af kemur vatn af 1800 km² í Hálslón, en þar af eru 1400 km² á jökli. Af vatnasviði Brúar á Jökuldal rennur Reykjará í Jöklu og enn neð- ar, milli Brúar og Hjarðarhaga renna ár eins og Hrafnkela, Hölkná, Eyvindará og Gilsá ásamt minni sprænum. Því munu áfram verða vorflóð frá þessum dragám í farvegi Jöklu. „Almennt er það þannig með lón og stöðuvötn að stundum eru stíflur ekki endilega byggðar til að safna vatni til rafmagnsframleiðslu, heldur til áveitna, flóðvarna og til að dempa flóð“ segir Óli Grétar. „Stór flóð sem munu koma í fullt Hálslón skila sér ekki óbreytt niður Jökuldalinn, heldur munu þau demp- ast töluvert af völdum lónsins. Í júlí og ágúst er mesta bráðnunin úr Brú- arjökli og þá er mesta innrennsli í Hálslón. Þar sem ár renna gegnum lón minnka flóðtoppar og lengjast vegna þeirrar geymslu sem er í lón- inu. Innrennslið í Hálslón fer í að hækka yfirborð þess en afgangurinn rennur um yfirfallið. Það getur flutt allt að 2250 m3/sek og er hannað til að geta tekið við aftakaflóðsatburð- um; stærsta mögulega flóði miðað við eðlisfræði loftsins og vatnasviðs- ins, sem á ekkert skylt við líkindi. Ef við ímyndum okkur að miklar nátt- úruhamfarir, svo sem eldgos í Vatna- jökli, geti átt sér stað, þá er hluti Desjarárstíflu byggður veikari og hefur svokallað flóðvar. Fari rennsli á yfirfalli Kárahnjúkastíflu yfir 2250 m3/sek, á þessi hluti Desjarárstíflu að gefa sig og getur flutt aukalega 6000 rúmmetra vatns á sekúndu og er til að varna því að stíflurnar fari í slíku hamfaraflóði.“ „Við erum að taka eitt aurugasta fljót landsins til virkjunar og hluti af því verður fluttur yfir á annað vatna- svið, sem er einsdæmi hér á Íslandi. Að meðaltali erum við því að auka rennslið í Lagarfljóti um það magn sem við flytjum yfir, eða um 90 m3/ sek sem settir eru jafnt og þétt í Lagarfljót. Það var eitt af skilyrðum umhverf- isráðherra til að varna hækkaðri vatnsborðsstöðu í fljótinu að lækka klapparhaft við Lagarfoss. Eftir slík- ar aðgerðir og m.v. óbreytt rennsli lítur út fyrir að mesta meðalvatns- hæð á sumrin verði svipuð og áður við Lagarfljótsbrú við Egilsstaði, en töluvert lægri niðri við Lagarfoss. Eins og áður verða lokur Lagarfoss- virkjunar notaðar til að auka rennsli framhjá Lagarfossvirkjun frá vori og fram á haust.“ Hálslón verður 2350 milljón rúm- metrar (örlítið stærra en Lögurinn að flatarmáli en aðeins minna að rúmmáli) og af því nýtast um 2100 rúmmetrar til miðlunar. Núverandi aurburður í Jöklu mun að mestu leyti setjast til í lóninu og miðað við nú- verandi framburð mun lónið fyllast á um 400 árum. Skerðing á lónrýmd mun ekki hafa nein teljanleg áhrif á rekstur virkjunarinnar a.m.k. fyrstu 100 árin. Jökla rennur vart meir um Jökuldal Morgunblaðið/RAX Breytingar Innan skamms verður byrjað að safna vatni í Hálslón og í kjöl- far þess verður sjaldgæft að jökulvatn renni í Jöklu. Í farveg hennar neðan stíflu renna margar dragár sem munu skila bergvatni niður farveginn og þar mun gæta vorflóða í framtíðinni. Í HNOTSKURN »Bergvatn aðliggjandidragáa mun renna í far- vegi Jöklu, auk jökulvatns af yfirfalli Hálslóns þegar það er fullt síðari hluta sumar. »Hálslón mun dempa áhrifstórflóða undan jökli af völdum náttúruhamfara eða hlýnunar andrúmsloftsins »Ekki er gert ráð fyrirvatnsborðsbreytingum í Lagarfljóti nema á vetrum þegar það minnkar vegna stækkunar farvegarins við Lagarfoss.Óli Grétar Blöndal Sveinsson Vatnsleysuströnd | „Fuglinn hag- aði sér alveg eins og taminn fugl. Við fréttum fljótlega að franski vís- indamaðurinn hefði sleppt mávi áð- ur en skipið fórst og því datt okkur í hug að þetta væri fuglinn hans,“ segir Símon Kristjánsson, fyrrver- andi bóndi og sjómaður, á Neðri- Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd. Sérfræðingar töldu þó ólíkegt að um sama fugl væri að ræða. Franski leiðangursstjórinn á Po- urquoi-pas?, dr. Charcot, fóstraði í káetu sinni særðan máv sem leitaði til skipverja við Grænland. Þegar útséð var um björgun skipsins eftir að það steytti á skerjum við Mýrar í september 1936 opnaði Charcot búrið svo fuglinn gæti bjargað sér. 39 skipverjar fórust en einn bjarg- aðist. Um miðjan janúar, fjórum mán- uðum eftir slysið, birtist frétt í Morgunblaðinu um að mávur dr. Charcots kynni að hafa fundist. Drengur á Vatnsleysuströnd hefði veitt taminn máv. Umræddur drengur, Símon Kristjánsson, var tvítugur þegar hann náði fuglinum en verður níræður næstkomandi mánudag. „Fuglinn kom hér á land. Við tókum eftir honum úti á túni og þegar við löbbuðum til hans kom hann strax til okkar. Hann var greinilega taminn,“ segir Símon þegar hann er beðinn að rifja þessi atvik upp. Hann segir að það hafi frést fljótlega að leiðangursstjóri Pour- quoi-Pas? hafi sleppt mávi áður en skipið fórst og því hafi menn talið hugsanlegt að þetta væri fuglinn hans. Að beiðni Morgunblaðsins fór Símon með mávinn til Reykjavíkur þar sem hann var á ritstjórn blaðs- ins hluta úr degi. Magnús Björns- son náttúrufræðingur var fenginn til að skoða fuglinn. Sagði hann að þetta væri ísmávur, hreinræktaður Grænlendingur, eins og hann komst að orði í Morgunblaðinu. Fuglar af þessari tegund skipta um lit tvisvar á ári, eins og rjúpan, eru grábrúnir á sumrin en snjóhvítir um vetur. Hins vegar taldi Magnús að mávurinn væri um það bil þriggja ára og þar með var talið útilokað að þetta væri fugl Char- cots því sá hafði verið tekinn ungi við Grænland um sumarið. Síðar um daginn kom konsúll Frakka og frú á Morgunblaðið til að skoða mávinn. Þau höfðu bæði séð fugl dr. Carcots og þekktu vel. Þvertóku þau fyrir að þetta væri sami mávurinn. Drapst úr leiðindum Út frá þessu sló Morgunblaðið því föstu í grein sem birtist 28. jan- úar 1937 að þetta væri ekki máv- urinn frægi frá Pourquoi-Pas? en lesendur voru skildir eftir með þá ráðgátu hverjir hefðu náð þessum fugli norður í Íshafi og tamið. Sím- on og fleiri Suðurnesjamenn telja enn þann dag í dag að mávurinn sem hann fann kunni að hafa verið fugl Frakkans. Símon segist hafa alið fuglinn lengi en hann hafi veikst og drepist. „Hann gæti alveg hafa drepist úr leiðindum. Það er ekki ósennilegra en hvað annað,“ segir Símon. Hvað varð um mávinn? Taminn Báðir mávarnir voru afar gæfir eins og sést á myndinni af dr. Charcot og Símoni Kristjánssyni. Á myndinni til hægri er Símon á heimili sínu. Morgunblaðið/Helgi BjarnasonLjósmyndastofa Lofts Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Grindavík | Börn í Grindavík fengu óvænt tölvuskeyti frá Írlandi í gær. Tvær ungar konur frá Dyflinni fundu flöskuskeyti sem pabbi krakk- anna hafði sent af Flæmska hattinum fyr- ir sex mán- uðum. Þegar Stef- án Jónsson úr Grindavík var á íslenska skipinu Pétri Jónssyni á Flæmska hattinum við Nýfundnaland í mars- mánuði datt honum í hug að senda flöskuskeyti. Hann bað börnin sín, Leon Inga sem er sex ára og Ólafíu Elínborgu sem er að verða fimm ára, að koma með spurningar fyrir hugs- anlega viðtakendur. Þau vildu spyrja viðkomandi hvað hann væri gamall og í hvaða leikskóla hann væri. Stefán henti einu flöskuskeyti í sjóinn á dag, í heilan mánuð. Gekk kirfilega frá þeim í hálfslítra kók- flöskum en bjóst ekki við miklum ár- angri og þá helst frá Grænlandi eða Ameríku. Það kom því skemmtilega á óvart þegar tölvubréf kom frá kon- um sem höfðu fundið eitt skeytið á strönd í norðvesturhluta Írlands. Stúlkurnar svöruðu spurning- unum samviskulega, sögðust 22 ára gamlar og að þær væru ekki lengur í leikskóla. Hins vegar báðu þær krakkana um að senda bóndanum á bænum kort, hann væri afar ánægð- ur með þennan fund. Svöruðu flösku- skeytinu Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Bújörð á Suðurlandi Fjársterkur viðskiptavinur hefur beðið okkur um að útvega fallega jörð í uppsveitum Suðurlands til kaups. Æskileg fjarlægð frá Reykjavík er 1-1½ klukkutíma akstur. Staðgreiðsla í boði fyrir réttu jörðina. Nánari upplýsingar veitir: Óskar Rúnar Harðarson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 824 9092.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.