Morgunblaðið - 14.09.2006, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 27
UPPÁHALDSBORG Sigurlínar
Margrétar Sigurðardóttur, þulu og
varaþingmanns, er Kraká í Póllandi.
,,Ég kom þangað fyrst í september
1988 og þá á aðaltorgið sem heitir
Wawel og er minn uppáhaldsstaður í
borginni en þar er einnig hinn frægi
Wawel kastali.“
Sigurlín Margrét segir að þegar
hún hafi í fyrsta skipti komið á torg-
ið hafi mjög fáir verið á ferli og húsin
í kringum torgið verið illa hirt, skít-
ug, búðir fáar og hálfhráslagalegt
um að litast. ,,Ég tók samt ástfóstri
við þetta torg og hef heimsótt það 12
sinnum á ferðum mínum til Póllands
í gegnum árin. Þarna var markaður
sem seldi pólskar ferðamannavörur
en núna er miklu meira í hann lagt
og hann jafnframt dýrari. Í hvert
sinn sem ég heimsæki torgið er það
fallegra og margar breytingar til
framfara. Ég og fjölskyldan höfum
alltaf í lok hverrar heimsóknar á
torgið leigt okkur hestvagn til þess
að aka um þröngu göturnar sem eru
allt í kringum torgið og næsta ná-
grenni og upp að Wawel kastala. Það
er líka skemmtilegt að nefna það, en
af einhverjum ástæðum hefur ekill-
inn alltaf ekið fram hjá skóla sem er
fyrir heyrnarlaus börn og bent okk-
ur sérstaklega á hann. Ég hef einnig
séð heyrnarlaus börn leika sér þar í
garðinum. Wawel-torgið og kast-
alinn eru á heimsminjaskrá Samein-
uðu þjóðanna en í nágrenninu eru
líka fleiri sögulegar byggingar.“
Skemmtilegir veitingastaðir
Sigurlín Margrét segir að nú sé
urmull af skemmtilegum veitinga-
stöðum og kaffihúsum á torginu en
árið 1988 hafi þar aðeins verið eitt
sem reyndar sé þar enn. ,,Kakan
góða sem ég fékk í fyrstu heimsókn-
inni er reyndar ekki lengur í boði en
úrvalið af hnallþórum að pólskum
hætti er þó mikið, og gaman að
bragða á Biskupatertunni og Fall-
toppakökunni en sú síðarnefnda er
gerð úr vatnsdeigi, sérstakt krem
sett á milli og svo er flórsykri sáldr-
að yfir.
Í hliðargötum torgsins er að finna
skemmtilegar antíkbúðir sem og
aðrar sérverslanir. Ég fann líka eitt
sinn í einhverri götunni krá sem er í
eigu heyrnarlauss manns og er mjög
vinsæll hverfisbar á svæðinu.“ Tákn-
málið er fyrsta mál Sigurlínar en
hún segir að flestir á svæðinu tali
pólsku en skilji dálítið í ensku. ,,Ég á
stundum auðveldara með að gera
mig skiljanlega á táknmáli við inn-
fædda en talandi samferðamenn
mínir í útlöndum ef tungumálið er
þröskuldur. Það er oft hægt að
bjarga sér á hrognatáknmáli,“ segir
hún og hlær.
Bjargar sér á hrognatáknmáli
Kraká Aðaltorgið sem heitir Wawel er uppáhaldsstaður Sigurlínar í borg-
inni en þar er einnig hinn frægi Wawel-kastali sem sést í á myndinni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Minjagripir Sigurlín Margrét
með hluti sem hún keypti
á Wawel-torginu í Kraká.
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
uhj@mbl.is
ÍRLAND er eitt þeirra landa sem
Íslendingar heimsækja reglulega
og því ættu þeir sem verða staddir í
Dublin í lok þessa mánaðar ekki að
láta framhjá sér fara þá staðreynd
að laugardaginn 30.september
gefst almenningi sjaldgæft tæki-
færi til að heimsækja vinnustofur
rúmlega hundrað listamanna í
borginni góðu. Viðburður þessi
kallast VISIT og felst í því að lista-
menn opna dyrnar að vinnustofum
sínum upp á gátt og bjóða þeim sem
eiga leið um að koma innfyrir, bæði
til að fólk geti skoðað aðstöðuna
þar sem listin verður til, notið lista-
verkanna sjálfra og spjallað við
listamennina á þeirra sköp-
unarvelli. VISIT er forvitnilegur
viðburður bæði fyrir listunnendur
og ekki síður áhugafólk um mann-
líf, því vinnustofur listamanna og
listamennirnir sjálfir eru jafn ólík
og þau eru mörg. Hægt verður að
kaupa verk af listamönnunum.
Reuters
List Aldrei að vita nema gestir rekist á fótleggi þegar þeir líta inn á vinnu-
stofur listamanna í Dublin, rétt eins og þessi gestur á sýningu í Barcelona.
Listamenn opna vinnu-
stofur sínar í einn dag
www.imma.ie