Morgunblaðið - 14.09.2006, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 14.09.2006, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 45 Vörubílar Kranabíll. DAF 85 CF 380 8x4 með Palfinger 66000. Pallur með gámalásum + 20 tonna víraheisi. Getum útvegað þennan bíl. Einnig aðra bíla og tæki. Alls kon- ar varahlutir. Fjaðrir, hjólkoppar, dekk o.fl. Heiði rekstrarfélag ehf., s. 696 1051. Hjólhýsi HJÓLHÝSI TIL LEIGU Lengdu sumarið í leiguhjólhýsi frá okkur. Fullbúin og tilbúin í ferða- lagið. Ótrúlegir möguleikar í boði. Hafðu samb., 587 2200, 898 4500. www.vagnasmidjan.is Kerrur Easyline 105 Kerrur til sölu á gamla verðinu! Verð frá 39.900. Innanmál 105x84x32 cm. Burðargeta 350 kg. 8" dekk. Klassakerra frá Easyline. Lyfta.is - Reykjanesbæ - 421 4037 - www.lyfta.is Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Húsnæði í boði Miðbæjarleiga, city center rent í miðbænum. Glæsileg fullbúin 2ja herb. björt með 3,3 metra loft- hæð. Laus 25. sept. Leigist viku+. Nánari upplýsingar http:// reykjavik-rent.mysite.wanadoo- members.co.uk eða Berta 003368596558. Aukahlutapakki fylgir með í júlí á meðan birgðir endast. Upphækkun, heilsársdekk og 16” álfelgur. Júlípakki: 180.000 kr. STAÐALBÚNAÐUR: 2.0 lítra - 158 hestöfl, fjórhjóladrif, hiti í speglum, hraðastillir (PLUS), hiti í sætum (PLUS), hiti í framrúðu (PLUS), sjálfvirk loftkæling (PLUS), kastarar í stuðara (PLUS), sóllúga (LUX), aðgerðastýri (LUX) og leðurinnrétting (LUX). Jepplingur á verði fólksbíls. 2.590.000 kr. www.subaru.is Forester2.590.000,- Forester PLUS2.790.000,- Forester LUX 3.090.000,- Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00.Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Akureyri 461-2960 Njarðvík 421-8808 Höfn í Hornafirði 478-1990 Reyðarfirði 474-1453 Subaru Forester er mun öflugri en margir stærri jeppar en samt lipur og léttur í akstri líkt og fólksbíll. Forester var valinn dráttarbíll ársins í Hollandi og hentar því vel fyrir fellihýsi og tjaldvagna. Í Rússlandi var hann valinn jepplingur ársins og bíllinn með minnstu bilanatíðnina í Þýskalandi. Á Íslandi er hann ódýrasti sjálfskipti jepplingurinn á markaðnum í dag. Umboðsmenn um land allt FRÉTTIR Rangt föðurnafn Í FORMÁLA minningargreina um Jón Karl Ólafsson, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, miðvikudag- inn 13. september, var tengdadóttir dóttur hans, Höllu, og manns hennar Gunnars E. Finnbogasonar, Kristín Sigurðardóttir, óvart sögð Gunnars- dóttir. Það leiðréttist hér með. Rangt ártal Í FRÁSÖGN af Þorsteini Eyjólfs- syni 100 ára í Morgunblaðinu á mánudag var sagt að hann hefði fæðst sama ár og fyrsti togarinn kom til Íslands. Hið rétta er að fyrsti íslenski togarinn, Coot, kom til landsins árið 1904, þ.e. tveimur ár- um áður en Þorsteinn fæddist. Beð- ist er velvirðingar á þessum mistök- um. LEIÐRÉTT OPIÐ hús verður í Heilsudrekanum í Skeifunni 3, í dag,14. sept., og á morgun, föstudag, kl. 7–19. Einnig verður opið laugardag og sunnu- dag kl. 9–16. Kynnt verður ýmis heilsumeðferð, t.d. nálastungur, kínverskt nudd, tækjameðferð, kín- versk leikfimi fyrir alla aldurshópa s.s. Wu Shu Art, Tai Chi og hugræn teygjuleikfimi. Þá verður kynning á margskonar kínversku heilsutei. Kynningartilboð verða veitt með- an á kínversku heilsudögunum stendur. Kínverskur sérfræðingur verður á staðnum til að veita leiðbeiningar um kínverska heilsurækt og hvern- ig hún getur gagnast til að ná jafnt líkamlegu sem andlegu jafnvægi en samkvæmt kínverskum heilsuráð- leggingum er haustið sú árstíð sem best er til þess fallin að safna orku fyrir líkamann, segir í frétta- tilkynningu. Nánari uppl.í síma 553-8282 og á heimasíðunni www.heilsudrek- inn.is. Kínverskir heilsudagar KEPPNIN sterkasti fatlaði maður heims fer fram dagana 15. og 16. september og eru keppendur að þessu sinni frá Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð og Færeyjum. Búið er að sérhæfa kraftagreinar fyrir fatlaða bæði í flokki standandi og í flokki hjólastóla. Skipuleggjendur mótsins eru Arnar Már Jónsson þjálfari ÍFR og Magnús Ver Magnússon mótshald- ari. Mótið er haldið í samvinnu við Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík og verða því gerð skil í sjónvarpsþætti á RÚV, segir í fréttatilkynningu. Dagskráin hefst föstudaginn 15. sept. kl 15, á Lækjartorg þar sem dreginn verður 2,5 tonna bíll, geng- ið 20 metra með 180 kg kúta o.fl. Á laugardag hefst dagskrá kl. 11, í Fjörukránni í Hafnarfirði, þar verður m.a. drumbalyfta, Herkúles- arhald, réttstöðulyfta o.fl. Sterkasti fatlaði maður heims ÞRÍR háskólanemar í meistara- og doktorsnámi hljóta námsstyrki frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands á þessu hausti vegna rannsóknar- verkefna sem tengjast þróunar- málum. Styrkþegarnir eru Dag- finnur Sveinbjörnsson, sem er í doktorsnámi við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, Inga Dóra Péturs- dóttir, sem er í meistaranámi við fé- lagsvísindadeild Háskóla Íslands, og Jo Tore Berg sem einnig leggur stund á meistaranám við félags- vísindadeild HÍ. Styrkirnir eru bæði náms- og ferðastyrkir. Þetta er í þriðja sinn sem stjórn Þróunarsamvinnustofnunar veitir námsstyrki til háskólanema en styrkirnir eru auglýstir í samvinnu við Háskóla Íslands og afgreiddir að fenginni umsókn skólans, segir í fréttatilkynningu. Þróunarsam- vinnustofnun veitir styrki STJÓRNARFUNDUR Verk-Vest sem haldinn var á Reykhólum 9. september sl.,vill enn og ítrekað vekja máls á því að bættar sam- göngur eru ein af undirstöðunum til að tryggja og viðhalda byggð í landinu. „Eitt brýnasta verkefnið hvað varðar Vestfirði er að tengja byggðir fjórðungsins með góðum vegum sem nýtast allt árið. Barist hefur verið fyrir því að vegir á heiðum og hálsum, sem gjarnan eru tepptir stóran hluta árs, verði færðir niður á láglendi, yfir firði og fyrir nes. Ein af þeim hugmyndum er vega- lagning í Barðastrandarsýslu, frá Melanesi yfir Gufufjörð, Djúpafjörð og Þorskafjörð, u.þ.b. 15 km leið og losna þar með við hættulegan veg yfir Hjallaháls og Ódrjúgsháls. Stjórnin tekur undir óskir heima- manna á Reykhólum um að þessi vegagerð, sem Vegagerð ríkisins mælir með og kölluð er leið B, verði valin. Við verðum að treysta því að við slíkar framkvæmdir sýni þeir sem verkið vinna fyllstu gát svo umhverfinu verði ekki spillt, enda hefur vegagerðin sýnt í verkum sín- um að hún er þess trausts verð.“ Hvetja til vegagerðar á Vestfjörðum STOFNFUNDUR Lögreglustjóra- félags Íslands var haldinn á Hvols- felli sl. laugardag. Félagið er stofnað vegna fyrirhugaðra breytinga á skipulagi lögreglunnar og eru fé- lagar allir lögreglustjórar og aðstoð- arlögreglustjórar sem sinna munu þeim störfum eftir 1. janúar 2007. Tilgangur félagsins er að vera vett- vangur félagslegrar umræðu um málefni lögreglunnar þ.m.t. að stuðla að bættu starfsumhverfi lögreglunn- ar, vera ráðgefandi og hafa frum- kvæði gagnvart ríkisstjórn og Al- þingi um nýmæli í löggjöf sem vænta má að snerti verksvið félagsmanna eða þegar óskað er eftir áliti félags- ins, stuðla að samræmi í lagafram- kvæmd og embættisfærslu fé- lagsmanna og annast fyrirsvar fyrir félagsmenn í kjaramálum, segir í fréttatilkynningu. Stjórn félagsins skipa eftirtaldir lögreglustjórar: Kjartan Þorkelsson, Hvolsvelli, formaður, Stefán Eiríks- son, höfuðborgarsvæðinu, Sigríður B. Guðjónsdóttir, Ísafirði, Ólafur K. Ólafsson, Stykkishólmi, og Lárus Bjarnason, Seyðisfirði. Dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, flutti ávarp, segir í til- kynningunni. Stofnfundur Lögreglustjórafélags Íslands á Hvolsvelli Vettvangur fyrir málefni lögreglunnar FJÖLBRAUTASKÓLINN við Ár- múla fékk afhentan Grænfána, fyrstur allra framhaldsskóla, við at- höfn sem fram fór 11. september sl. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra flutti ávarp og dró fánann að húni. Þá afhenti fulltrúi frá Landvernd skólanum al- þjóðlegt FEE skírteini. Leikin var lifandi tónlist fyrir viðstadda eftir að fáninn hafði ver- ið dreginn að húni og boðið var upp á lífrænt ræktaðar veitingar í skól- anum sem skreyttur var í grænu í tilefni dagsins, segir í fréttatilkynn- ingu. FÁ fékk afhentan Grænfánann AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.