Morgunblaðið - 29.09.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 11
FRÉTTIR
Í gær var loku skotið fyrir Jökulsá á Dal, hið mikilúðlega jökulfljót sem runnið hefur frá Brúarjökli fram um Jökuldal og til ósa í Héraðs-
flóa. Steinunn Ásmundsdóttir ræddi málin við heimafólk og virkjunarmenn sem fylgdust með Jöklu dvína og Hálslóni myndast.
Beðið Jan hinn færeyski er vinnumaður á bæ í Jökulsárhlíð og var búinn að fylgjast lengi með Jöklu hjaðna.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Jökla gæti hefnt sín á okkur
„ÞETTA orkar ekki vel á mig,“ segir
Lilja Hafdís Óladóttir, bóndi á Merki
í Jökuldal. „Þótt hún sé ljót og stund-
um rosaleg hefur Jökla verið mikið
tákn í samfélaginu. Umræðuefni allt-
af og sérstaklega fyrr á tíð þegar
meira var um ófærðir og snjó. Þá var
Jökla samgöngubót á vetrum, bæði
fyrir gangandi og bíla.“ Lilja segir
oft spáð í hvernig áin hagi sér. „Hún
er ljót í dag, ekkert í henni, alveg
græn. Jökla er ótrúlega mikið um-
ræðuefni. Litirnir sögðu manni til
um hitastig og hvernig veður væri
framundan. Væri hún græn og lítið í
henni komu stillur, yrði hún rosalegt
bákn, full af drullu og sandi, var mik-
ið um að vera innra. Veðurhljóðið fer
svo trúlega úr henni hér hjá Merki,
en hún bar með sér feiknamikil hljóð.
Þegar var að koma sunnanátt innan
vinda heyrði maður þetta oft á kvöld-
in. Á vorin þegar hún braut sig kom
ægilegur hávaði. Nú verður þetta
venjuleg á sem maður sér í gegnum,
ekki með þennan hvin og öll litbrigð-
in árið um kring. Gljúfur krumma og
fálkans verður svipminna.“ Lilju
finnst flutningur Jöklu í farveg Lag-
arfljóts siðferðilega ótækur. „Á sem
er búin að renna öll sín ár á rétt á að
vera áfram í farvegi sínum þótt hún
sé jafnvel virkjuð. Þetta er Jökla og
hún er mikil. Mér finnst eins og eitt-
hvað muni gerast. Hún hefnir sín
kannski á einhvern hátt.“
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Smeyk Lilja Hafdís Óladóttir.
VIÐ BRÚ á Jökuldal var í gær fjöldi
manns að horfa á jökulvatnið
sjatna, m.a. bændur úr dalnum. Að-
alsteinn Aðalsteinsson frá Vað-
brekku í Hrafnkelsdal sagði Jöklu
mannskaðaforað sem gott væri að
nýta til gagns. Hann ætlar sem for-
maður veiðifélags á svæðinu að
hefja athuganir á að rækta upp lax í
hinni nýju bergvatnsá á Jökuldal og
segir hana geta orðið bestu veiðiá
landsins. „Þessir atburðir í dag eru
skilgetið afkvæmi friðunarmanna,
þeir bentu á Jöklu sem mun betri
kost en Eyjabakka.“ Bændur hentu
að því gaman að nú kæmu upp úr
ánni öll jeppahræin, rollubeinin og
útburðirnir og þyrfti sjálfsagt að
hreinsa úr farveginum á næstunni.
Verður hin
besta
laxveiðiá
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Laxeldi Aðalsteinn Aðalsteinsson
sér tækifæri í bergvatninu.
„VIÐ vissum að kæmi að þessu í verkinu og
því ekki óvænt, þótt mikill áfangi sé,“ segir
Agnar Olsen, framkvæmdastjóri á verk-
fræði- og framkvæmdasviði Landsvirkjun-
ar. Það er alltaf mikið mál að loka fyrir á og
nú breytist hún fyrir neðan stíflu í berg-
vatnsá. Þessi framkvæmd hefur verið um-
deild frá byrjun, en við áttum kannski ekki
von á þessum miklu viðbrögðum síðustu
vikur. Við töldum að allir vissu að Hálslón
yrði fyllt og ekki yrði aftur snúið. En það er
skiljanlegt að menn hafi mismunandi skoð-
anir. Nú fer að sjá fyrir endann á þessu á
Kárahnjúkasvæðinu, framkvæmdum lýkur
hér á næsta ári. Svo klárast á Hraunasvæð-
inu 2008.“ Agnar segir flesta framkvæmda-
þætti hafa gengið vel, utan borverks og
meiri sprungna en vitað var um.
Fylling lónsins var fyrirséð
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Undrandi Agnar Olsen er hissa á
viðbrögðum við lónsfyllingunni.
„Það er af hinu góða að Jökla skili
peningum í þjóðarbúið og hið besta
mál,“ segir Stefán Halldórsson,
landeigandi á Brú á Jökuldal, en
Hálslón tekur yfir hluta af landi
hans. „Jökla hefur tekið bæði bú-
pening og fólk í gegnum tíðina, ég
hef bæði misst fé í hana og hundinn
minn og ég mun ekki sakna hennar
sérstaklega, þótt hún hafi gegnt
hlutverki sínu ágætlega sem landa-
merki og sauðfjárvarnarlína.“ Stef-
án fylgdist með þegar lokum var
skotið fyrir Jöklu í gærmorgun og
fylgdist með vatninu sjatna í ánni í
Hafrahvammagljúfrum þegar líða
tók á daginn. „Nú sleppi ég laxa-
seiðum í Reykjará til að ganga í
Jöklu.“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ánægður Stefán Halldórsson segir
Jöklu nú skila aurum í þjóðarbúið.
Mun ekki sakna Jöklu
Á MBL.IS er hægt að horfa á tvö
fréttamyndskeið sem tengjast því er
hjáveitugöngum Kárahnjúkastíflu
var lokað í gærmorgun og vatni
safnað í Hálslón. Í því fyrra sést þeg-
ar göngunum var lokað í gærmorg-
un og Hálslón tók að myndast. Í því
síðara má sjá aðstæður í botni gilsins
þar sem Jökla rann áður, en áin er
nú horfin austan við stífluna og mun
jökulvatn ekki streyma framar í
hana. Blaðamaður og myndatöku-
maður mbl.is gengu þar um síðdegis
í gær en um söguleg umskipti á að-
stæðum er að ræða.
Fréttamynd-
skeið að aust-
an á mbl.is
Ljósmynd/Brynjar Gauti
Stoltir Feðgarnir Pálmi Jóhannesson og Þorsteinn Pálmason.
PÁLMI Jóhannesson er aðal-
hönnuður Kárahnjúkastíflu og
horfði ásamt syni sínum Þorsteini
á jökulvatnið stíga í Hálslóni í
gær. „Þetta er hér um bil enda-
punkturinn á 15–20 ára verkefni,“
segir Pálmi. „Jökla er smáá miðað
við í Íran þar sem ég lokaði fyrir
þúsund kúbikmetra á sekúndu,
Jökla er þó bara 150 kúbikmetr-
ar. Þetta verkefni er engu að síð-
ur á heimsmælikvarða. Ef ekki
yrði framleidd orka hér á tiltölu-
lega hreinan máta væri verið að
byggja kolaver í Richard Bay í S-
Afríku. Við búum bara í einum
heimi og erum að minnka mengun
á jörðinni.“
Á heimsmælikvarða
Hefur glímt
víða og við
margar ár
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Stundin komin „Tími til að loka,“
sagði Gianni Porta og leit á úrið.
GIANNI Porta, yfirmaður Imp-
regilo á Íslandi, sá í gær enn einn
stóráfanga virkjunarframkvæmd-
arinnar verða að veruleika. Hann
sagðist ekki hafa búist við allri
þeirri umræðu og athygli sem fyll-
ing Hálslóns hefði haft í för með
sér, en skildi á hinn bóginn að Jökla
og landsvæðið sem færi undir Háls-
lón hefðu ákveðna þýðingu í augum
almennings.
„Fjölmiðlarnir eiga sinn stóra
þátt í að búa til þetta sterka kastljós
sem beinist nú að Hálslóni,“ sagði
Porta. „Auðvitað er þetta stór við-
burður og ekki síst sem kafli í fram-
kvæmdinni.“ Porta hefur glímt við
stærri fljót en Jöklu á ferli sínum
hjá Impregilo, svo sem Efrat-fljótið
og Guluá, sem og smærri ár víða
um heim. Þá hafi einnig verið mikill
viðbúnaður og athygli beinst að
framkvæmdum. Einhver mótmæli
séu alltaf og ekki nema eðlilegt að
skoðanir séu skiptar um verkefnið.
Frá því í gær er Kárahnjúkastífla
hæsta stíflan sem hefur vatn á sér í
heiminum nú um stundir.