Morgunblaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Stuðbandið
frá Borgarnesi
í kvöld
Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill öll kvöld vikunnar.
www.kringlukrain.is Sími 568 0878
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Lau 30/9 kl. 14 Sun 1/10 kl. 14
Sun 8/10 kl. 14 Sun 15/10 kl. 14
VILTU FINNA MILLJÓN?
Lau 30/9 kl. 20 UPPS. Fös 6/10 kl. 20
Fös 13/10 kl. 20 Sun 15/10 kl. 20
FOOTLOOSE
Í kvöld kl. 20 UPPS. Lau 7/10 kl. 20
Sun 8/10 kl. 20 Fim 12/10 kl. 20
HVÍT KANÍNA
Nemendaleikhúsið frumsýnir nýtt verk
eftir hópinn
Í kvöld kl. 20 Lau 30/9 kl. 20
Sun 1/10 kl. 20 Fim 5/10 kl. 20
BANNAÐ INNAN 16 ÁRA.
Engum hleypt inn án skilríkja.
FRÍTT FYRIR 12 ÁRA OG YNGRI
Börn 12 ára og yngri fá frítt í leikhúsið í
fylgd með forráðamönnum*
*Gildir ekki á söngleiki og barnasýnin-
gar.
Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is
MEIN KAMPF
Í kvöld kl. 20
Lau 7/10 kl. 20
Sun 8/10 kl. 20
Lau 14/10 kl. 20
Lau 21/10 kl. 20
ÁSKRIFTARKORT
Endurnýjun áskriftarkorta stendur yfir!
5 sýningar á 9.900 kr.
Mein Kampf e. George Tabori
Amadeus e. Peter Shaffer
Fagra veröld e. Anthony Neilson
Dagur vonar e. Birgi Sigurðsson
Söngleikurinn Grettir e. Ólaf Hauk
Símonarson, Þórarin Eldjárn og Egil
Ólafsson
Lík í óskilum e. Anthony Neilson
Ronja ræningjadóttir e. Astrid Lind-
gren
Viltu finna milljón? e. Ray Cooney
Belgíska Kongó e. Braga Ólafsson
Manntafl e. Stefan Zweig
Alveg brilljant skilnaður e. Geraldine
Aron
Íslenski dansflokkurinn
og margt, margt fleira.
Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is
www.leikfelag.is
4 600 200
Kortasala í fullum gangi!
Áskriftarkort er ávísun á góðan vetur. Vertu með!
Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu
Lau. 30.sept. kl. 14 UPPSELT - 3.kortasýn.
Lau. 30. sept. kl. 15 UPPSELT
Lau. 30. sept. kl. 16 Aukasýning - í sölu núna
Sun. 1. okt. kl. 14 UPPSELT - 4.kortasýn.
Sun. 1. okt. kl. 15 UPPSELT
Sun. 1. okt. kl. 16 UPPSELT
Sun. 8. okt. kl. 17 örfá sæti laus - 5.kortasýn.
Næstu sýningar: 15/10, 22/10, 29/10
Mike Attack - Gestasýning sýnd í Rýminu
Fös. 29.sept. kl. 21 UPPSELT - 1.kortasýn.
Lau. 30.sept. kl. 21 2.kortasýn.
Næstu sýningar: 05/10, 06/10, 12/10, 13/10, 14/10
Mr. Skallagrímsson
- leiksýning Landnámssetri í Borgarnesi
LEIKHÚSTILBOÐ:
Tvíréttaður kvöldverður og
leikhúsmiði frá kr. 4300 - 4800
TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
frá kl. 10 til 16 mánudaga - fimmtudaga
í síma 437 1600. Staðfesta þarf miða með
greiðslu viku fyrir sýningardag
Fimmtudagur 28/09 kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 5/10 kl. 20 Laus sæti
Föstudagur 6/10 kl. 20 Uppselt
Laugardagur 7/10 kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 8/10 kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 12/10 kl. 20 Uppselt
Föstudagur 13/10 kl. 20 Uppselt
Laugardagur 14/10 kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 15/10 kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 19/10 kl. 20 Uppselt
Föstudagur 20/10 kl. 20 Uppselt
Laugardagur 21/10 kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 22/10 kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 26/10 kl. 20 Síð. sýn. á árinu
Uppselt
Eftir Benedikt Erlingsson
Sýningar í september og október
FÍLHARMÓNÍA
SÖNGSVEITIN
Carl Orff
Tónleikar í Langholtskirkju
sunnudag, 1. október kl. 17
miðvikudag, 4. október kl. 20
Stjórnandi: Magnús Ragnarsson
Guðríður St. Sigurðardóttir, Kristinn Örn Kristinsson
Píanóleikarar:
Hallveig Rúnarsdóttir, Bergþór Pálsson, Einar Clausen
Einsöngvarar:
Miðasala við innganginn og á www.midi.is, nánar á www.filharmonia.mi.is
6 manna slagverkssveit, Drengjakór Kársnesskóla
CARMINA
BURANA
LEIKSTJÓRINN, handritshöfund-
urinn og leikarinn Kevin Smith
komst í guðatölu hjá ákveðnum hópi
bíógesta eftir frumraunina Clerks.
Hún var sáraeinföld og fyndin spé-
spegill á lífið og tilveruna með aug-
um tveggja búðarlokna í hverfis-
verslun í New Jersey. Dante
(O’Halloran), sá um búðina, Randal
(Anderson), myndbandaleiguna við
hliðina. Utan dyra, undir vegg,
hímdu tveir, skaðbrenndir hass-
hausar og dópsalar ásamt öflugu
hljómflutningstæki. Þetta voru Jay
(Mewes) og Silent Bob (Smith), út-
fríkaðir Laurel og Hardy, dópnett-
aðra úthverfa 10. áratugarins.
Clerks er klassík, líkt og Silent
Bob, persónugervingur sérhæfðs
skopskyns leikstjórans, sem skrifaði
og tók myndina í búðinni á horninu á
æskuslóðunum í New Jersey, og
leikararnir flestir vinir hans úr
hverfinu. Myndin kostaði engan
pening en malaði gull og Smith varð
frægur og eftirsóttur. Fékk að von-
um heimboð frá Hollywood, þar sem
honum hefur ekki vegnað sem skyldi
síðustu árin. Tími kominn til að kíkja
á búðarholuna góðu og sjá hvort
finnast ekki einhverjir kúnnar,
reiðubúnir að kíkja inn fyrir dyrnar.
Clerks II, er að vísu í lit, að öðru
leyti er Smith í svipuðum sporum
með Dante og Anderson í aðal-
hlutverkunum, en búið er að loka
gömlu sjoppunni og vinirnir komnir
til starfa á skyndibitastað aðeins
neðar í götunni. Nýi vinnustaðurinn
breytir litlu, Dante er sá ábyrgi, á
leiðinni að gifta sig, Randall er sami
klámkjafturinn, móðgandi viðskipta-
vinina, en báðir hafa elst og Randall
er orðinn kaldhæðnari og fær
áminningu um rislága þjóðfélags-
stöðuna þegar gamall skólabróðir
rekur inn nefið. Í hópinn hefur bæst
drengundrið Elias (Fehrman), og út
undir vegg hanga lúðarnir Jay og
Silent Bob
Það er ekki mikið um framhaldið
að segja, kunnuglegt flest, kvenna-
mál Dantes í mikilli óreiðu sem fyrr,
brandararnir klúrir og jafnan á
mörkum siðseminnar. Viðundrið
Elias kemur með möguleika á nýjum
hliðum neðanmittisbrandarana, er
vel nýttur og veitir ekki af. Merk-
asta viðbótin er Dawson í hlutverki
rekstrarstjóra staðarins. Hún kem-
ur með jarðbundið mótvægi við
ærslafganginn og gefur honum víð-
ari merkingu. Lokaatriðið með
asnanum og eiganda hans er svo
yfirgengilegt að enginn ætti að þurfa
að bregða undir sig betri fætinum,
en er fullkomlega ófyndið og lukkast
ekki að ganga fram af gestinum, sem
er ætlunin
Smith er bestur við að gera kald-
hæðnisklegt grín að tilgangsleysinu
og andlegri niðurníðslu sem vill
fylgja áhyggjum af því að hafa siglt í
strand og ekki haft nennu til að ýta
farinu á flot. Smith hefur þó minnk-
andi fyrirlitningu á veraldlegri vel-
ferð og lífsgæðakapphlaupi og ekki
frítt við bóli á alvarlegum hugarfars-
breytingum hjá undirmálsmönn-
unum hans í myndarlok. Við fáum
örugglega að sjá hvernig þeim vegn-
ar, svona á að giska um 2018.
Búðarlokum vex ásmegin
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Kevin Smith. Aðalleikarar: Bri-
an O’Halloran, Jeff Anderson, Rosario
Dawson, Jason Mewes, Trevor Fehrman,
Jennifer Schwalbach. 98 mín. Bandaríkin
2006.
Clerks II
Smith „Í guðatölu hjá ákveðnum hópi bíógesta eftir frumraunina Clerks.“
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYNDIN Harsh Times segir
frá fyrrum hermanni sem rásar af
beinu brautinni eftir herskylduna.
Hann leiðist út í glæpi ásamt besta
vini sínum.
Það er Christian Bale sem fer með
hlutverk hermannsins fyrrverandi
en í öðrum helstu hlutverkum eru
Freddy Rodriguez (Six Feet Under)
og Eva Longoria (Desperate House-
wives).
Leikstjóri myndarinnar er David
Ayer en hann er jafnframt handrits-
höfundur. Þetta er frumraun hans í
leikstjórn en hann á að baki handrit
mynda á borð við Training Day,
U-571 og The Fast and the Furious.
Harsh Times er frumsýnd í Sam-
bíóunum í dag.
Frumsýning |
Harsh Times
Erfiðir
tímar
Glæpamaður Christian Bale fer með hlutverk fyrrverandi hermanns.
Fréttir í
tölvupósti
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050