Morgunblaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 17 RÁÐHERRAR frá átta af 25 aðildarríkjum Evrópusambandsins og nokkrir að liðsmönnum fram- kvæmdastjórnarinnar í Brussel ætla að koma saman á fundi á Spáni í dag til að ræða leiðir til að draga úr straumi ólöglegra innflytjenda til landanna í suðurhluta álfunnar. Í skýrslu sem þing ESB hefur lagt blessun sína yfir og birt var í gær er lagt til að settar verði reglur sem kveði á um takmarkanir á innflutn- ingi. Jafnframt að innflytjendur sem fyrir eru fái aukin réttindi á vinnu- markaði og betri aðgang að heilsu- gæslu og skólum. Auk þess verði að veita heimalöndum flóttafólksins að- stoð til að bæta kjörin í löndunum. Það sem af er þessu ári hafa um 23.000 manns flúið slæm kjör í fá- tækum heimalöndum sínum og kom- ið sjóleiðis frá Afríkulöndum til Spánar, aðallega til Kanaríeyja við norðvesturströnd Afríku, í von um að fá leyfi til að setjast að á Spáni. Talið er að minnst 550 að auki hafi drukknað en oft er notast við lélegar fleytur og allt of margir um borð. Sumir örvæntingarfullir Afríku- menn hafa jafnvel reynt að synda yf- ir Gíbraltarsund sem er um 20 kíló- metrar að breidd þar sem það er mjóst. Spánverjar hafa sent 52.000 manns aftur til heimalandsins á þessu ári. Lítil aðstoð við Spánverja Mikið er einnig um að innflytj- endur reyni að komast yfir Mið- jarðarhaf frá Líbýu og frá Tyrklandi yfir til meginlands Evrópu. Evrópu- sambandið hefur ekki neina sam- eiginlega stefnu í innflytjendamál- um þar sem sum ríkin vilja alls ekki gefa frá sér valdið til að setja eigin reglur. Sambandið samþykkti í ágúst að aðildarríkin ættu að aðstoða Spán- verja við að hefta innflytjenda- strauminn til Kanaríeyja, þ.á m. með eftirliti úr lofti, en lítið hefur orðið úr framkvæmdum. Finnar og Ítalir hafa sent eina flugvél hvor þjóð og Ítalir og Portúgalar sent nokkra eft- irlitsbáta. Einkum er um að ræða flóttafólk frá löndum sunnan við Sahara en þar er meira um sára fátækt en á öðrum heimssvæðum. Frakkar hafa gagnrýnt þá ákvörðun Spánverja í fyrra að veita um 600.000 ólöglegum flóttamönnum í landinu formlegt landvistarleyfi. Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra Frakklands og líklegt forsetaefni hægrimanna á næsta ári, sagði að með þessu væri verið að ýta undir ólöglegan inn- flutning á fólki. Þjóðir sem gripu til aðgerða af þessu tagi ættu ekki að verða undrandi ef þær yrðu „fyrstar til að fá á sig flóðbylgju ólöglegra innflytjenda“. Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar og leiðtogi Sósíalistaflokksins, brást hart við á miðvikudag. Sagði hann að Spán- verjar þyrftu ekki á neinum áminn- ingum að halda af hálfu Frakka varðandi innflytjendamál; óeirðirnar í innflytjendahverfum Frakklands í fyrra sýndu það vel. Ríkin átta sem halda fundinn eru Spánn, Frakkland, Portúgal, Ítalía, Grikkland, Malta, Kýpur og Slóven- ía en þess má geta að ítölsk yfirvöld hafa handtekið um 16.000 ólöglega innflytjendur í lögsögunni á Mið- jarðarhafi það sem af er árinu. Alls komu um 23.000 manns með ólögleg- um hætti sjóleiðis til ítölsku eyjar- innar Lampedusa, skammt frá Tún- is, í fyrra og báðu um landvist. Vilja efla samstarf um landamæraeftirlit Í opnu bréfi sem ríkin átta sendu frá sér í vikunni er sagt að það „skipti sköpum að gerður verði sem fyrst samningur við Afríkuríki um að hægt verði að senda aftur heim“ ólöglega flóttamenn, þ.e. fólk sem er fyrst og fremst að komast burt frá heimalandi sínu af efnahagslegum orsökum. Einnig verði að efla „svæðisbundið samstarf um gæslu sameiginlegra landamæra ESB í suðri“. Bent er á að veita þurfi löndum, sem taki aftur við flóttafólki frá þriðja landi og annaðhvort leyfi því að setjast að eða sendi það áfram til upprunalandsins, fjárhagslega og tæknilega aðstoð. Mesta áherslu eigi að leggja á aðstoð við samvinnufús ríki á þessu sviði. Vilja færri landvistarleyfi Ríki í Suður-Evrópu ræða viðbrögð vegna ólöglegra innflytjenda frá Afríku Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is Reuters Velkomnir? Ólöglegir innflytjendur frá Afríku hlýja sér eftir að hafa verið handteknir á smáeynni Alboran undan borginni Almeria á S-Spáni í gær. Chicago. AFP. | Iva Toguri D’Aquino, betur þekkt sem „Tókýó-rósin“, lést í fyrradag í Chicago, níræð að aldri. Hún öðlað- ist heimsfrægð fyrir áróður sinn í seinni heims- styrjöld þar sem hún sagði banda- rískum hermönnum í útvarpsþáttum að þeir væru að tapa stríðinu. Iva fæddist í Los Angeles árið 1916 og var bandarískur ríkisborg- ari. Árið 1941 heimsótti hún ættingja sinn í Japan, þar sem hún varð inn- lyksa eftir að stríð hófst milli Japans og Bandaríkjanna sama ár. Hún talaði ekki japönsku en varð fyrir áhrifum af andúð á Bandaríkj- unum, sem kann að hafa leitt til þess að hún gerðist ritari hjá úvarpsstöð- inni Radio Tokyo og varð síðar starfsmaður þáttarins „Zero Hour“. Útsendingar hennar, þar sem leik- in var vinsæl tónlist, urðu víðfrægar en í þeim sagði hún bandarískum hermönnum að stríð þeirra væri von- laust og á meðan þeir fórnuðu lífi sínu héldu eiginkonurnar framhjá þeim heima í Bandaríkjunum. Á sama tíma hjálpaði hún stríðs- föngum úr röðum bandamanna og lagði sig í töluverða hættu er hún smyglaði til þeirra mat og lyfjum. Þegar hún sneri heim var hún dæmd í sex ára fangelsi árið 1949 fyrir landráð, vegna aðildar sinnar að hópi útvarpsmanna er nefndir voru „Tókýó-rósin“. Hún var hins vegar náðuð af Gerald Ford Banda- ríkjaforseta árið 1977. „Tókýó- rósin“ látin Iva Toguri D’Aquino Sjálfvirk hnakka- púðastilling, aðeins í Stressless – Þú getur lesið eða horft á sjónvarp í hallandi stöðu. Ótrúleg þægindi. Sérstakur mjóbaks- stuðningur samtengdur hnakkapúða- stillingu. Þú nýtur full- komins stuðnings hvort sem þú situr í hallandi eða uppréttri stöðu. Ármúla 44 108 Reykjavík Sími 553 2035 www.lifoglist.is THE INNOVATORS OF COMFORT ™ Réttu sætin fyrir heimabíóið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.