Morgunblaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 50
Nýjasta mynd Woody Allen,
Scoop, fær þrjár stjörnur í kvik-
myndagagnrýni Heiðu
Jóhannsdóttur. » 55
kvikmynd
|föstudagur|29. 9. 2006| mbl.is
Staðurstund
Ólíkir tónlistarmenn standa að
baki geislaplötunni Kyljum, sem
byggð er á Bárðarsögu Snæ-
fellsáss. » 55
tónlist
Þekkir einhver manninn á
myndinni? spyr Birta Björns-
dóttir í pistli sínum um sýn-
inguna Ókunn sjónarhorn. » 53
af listum
Fyrstu ástina telur Auðunn
Blöndal sennilega orðna spik-
feita í Oklahoma. Hann segist
þó vera ástfanginn. » 55
aðallinn
Leikritið Sitji Guðs englar er
byggt á vinsælum bókum Guð-
rúnar Helgadóttur og fer á fjalir
Þjóðleikhússins í dag. » 52
leikhús
Eftir Guðjón Guðmundsson
gugu@mbl.is
K
urt Elling er einn
fremsti karlsöngvari í
djasstónlist í dag og
til marks um það hef-
ur hann þrívegis stað-
ið með pálmann í höndunum í gagn-
rýnendavali hins þekkta
djasstímarits, Down Beat. Honum
hefur verið líkt við Al Jarreau en
líka Jon Hendricks
Elling byggir efnisskrá sína að
mestu leyti á verkum eftir mörg af
þekktustu djasstónskáldum Banda-
ríkjanna og semur sjálfur texta við
laglínur og sólókaflana, ekki ósvip-
að og menn eins og Jon Hendricks
og Mark Murphy eru þekktir fyrir.
Von er á Elling til landsins og
heldur hann tónleika ásamt kvart-
etti sínum í Háskólabíói 30. sept-
ember nk. á Jazzhátíð Reykjavíkur.
Við slógum á þráðinn til Chicago
þar sem Elling býr.
„Ég hlakka mikið til að koma til
Íslands í fyrsta sinn,“ segir Elling,
sem er gríðarlega upptekinn og
bókaður tónlistarmaður og kemur
hingað frá tónleikahaldi í Brasilíu
með millilendingu í New York.
Héðan heldur hann síðan til Ist-
anbúl.
Ný plata í febrúar
„Já, það er mikið um tónleika-
ferðalög og þeim á eftir að fjölga
enn frekar þegar við gefum út nýja
plötu í febrúar. Ég ætla að reyna
að taka mér frí í nóvember, desem-
ber og hluta af janúar því þegar
platan kemur út gefast engin grið.“
Platan nýja er með sömu hljóm-
sveit og kemur með Elling til lands-
ins, þ.e. píanóleikarinn Laurence
Hobgood, Rob Amster á bassa, Wil-
lie Jones og Kobie Watkins á
trommum. Eftir Elling liggja sjö
plötur, allar útgefnar af Blue Note.
Sú fyrsta, Close your Eyes, kom út
1995, en sú nýjasta er Man in the
Air, útgefin 2003 og tekin upp 2002.
Það ár var Elling einmitt kjörin
þriðja árið í röð fremsti karldjass-
söngvarinn af gagnrýnendum Down
Beat. „Ég veit ekki hvort það eitt
sér tryggi mér góðan sess innan
djassheimsins. Það eina sem það
gerir er að spila vel á hverju
kvöldi.“
Elling segir að helstu áhrifavald-
ar sínir séu Mark Murphy og Jon
Hendricks. „En um leið og ég
minnist á þá verð ég að minnast
allra hinna djasssöngvaranna. Mað-
ur kemst ekki undan því að verða
fyrir áhrifum.“
„Jon Hendricks beindi sjónum
sínum að verkum samtíðarmanna,
þ.e. Miles Davis, Horace Silver og
Clark Terry. Ég beini sjónum að
mönnum sem ég tel vera á há-
punkti ferils síns. Listamönnum
eins og Wayne Shorter og Herbie
Hancock. Fyrir nokkru gerði ég
reyndar texta við sóló Dexter Gord-
ons. Við höfum því allir kosið að
leita í brunn tónlistarmanna sem
hafa eðlilega skírskotun til okkar,
hver á sinn hátt. Það er því til
skemmtileg og algjörlega nátt-
úruleg aðgreining á því hvert við
höfum beint sköpunargáfu okkar.
Ég hef vissulega lært mikið af Jon
Hendricks, sérstaklega á sviði rím-
aðferða og hnyttni. Jon er í raun
grunnurinn að því sem ég geri.“
Sjálfmenntaður í tónlist
Elling hefur auk þess að semja
texta við tónlist annarra sjálfur
samið tónlist auk þess sem eftir
hann liggur fjöldinn allur af útsetn-
ingum. „Ég vinn talsvert mikið með
Laurence Hobgood. Við semjum
saman og útsetjum og bætum hvor
annan upp. Ég er meira eða minna
sjálfmenntaður í tónlist og hef lært
mest af því að hlusta mikið og vera
sjálfur á sviðinu. Laurence hefur
djúpa þekkingu í tónfræðum. Hug-
myndir mínar eru gjarnan fremur
einfaldar í sniðum meðan tón-
hugsun hans er flóknari. Þannig
bætum við hvor annan upp og höf-
um lært þekkja styrk hvors ann-
ars.“
Elling hefur samið texta við þrjár
af lengri lagasmíðum Wayne Shor-
ter, sem hann ber djúpa virðingu
fyrir. Lögin eru Night Dreamer frá
sjöunda áratugnum, tónleika-
útgáfan af Dolores með VSOP-
kvintettinum á níunda áratugnum.
„Svo gerði ég líka texta við lag af
nýjustu tónleikaplötu hans með nú-
verandi hrynsveit hans, en við höf-
um ekki tekið það upp á plötu
ennþá. Það er búið að vera athygl-
isverð upplifun,“ segir Elling.
Hann hefur gert texta við mörg
af lögum Herbie Hancocks, eins og
Eye of the Hurricane og eldri tón-
smíð hans sem heitir Alone and I.
„Það sem ég hef unnið að núna upp
á síðkastið eru textar við sóló Dex-
ter Gordons í Body and Soul sem
ég tileinka fæðingu fyrsta barns
míns. Ég hef líka skrifað texta við
sóló Van Freemans í I like the
Sunrise eftir Duke Ellington, en
Freeman er einn af hinum eldri
máttarstólpum djassins í Chicago.
Þetta lag ætlum við að taka upp og
munum sennilega flytja það á tón-
leikunum í Reykjavík. Það er mikil
tilhlökkun í sveitinni að koma til Ís-
lands og við erum búnir að lesa
okkur til um landið sem virðist vera
mjög spennandi. Við náum að verja
tveimur dögum til þess að skoða
okkur um,“ segir Elling.
Syngur sóló Shorters og Hancocks
Sveifla Kurt Elling með hljómsveit sinni á tónleikum.
Djasssöngvarinn Kurt Elling hefur verið kjörinn besti djasssöngvarinn af
gagnrýnendum Down Beat sem segir heilmikið um manninn.
Einn alfremsti djasssöngvari dagsins í dag, Kurt Elling, er gestur Jazzhátíðar í Reykjavík
Eftir Kristjönu Stefánsdóttur og
Guðlaugu Dröfn Ólafsdóttur
HVAÐA rosalegi söngvari er þetta?
Þetta flaug í gegnum huga okkar
beggja þegar við heyrðum hina frá-
bæru útsetningu Kurts Ellings á
gamla Nat King Cole-slagaranum
Nature Boy. Báðar stunduðum við
nám við eina virtustu djassdeild
Evrópu í Haag í Hollandi á sama
tíma og er óhætt að segja að rödd
og tónlist Kurts Ellings hafi verið
partur af náminu okkar þar. Hann
hefur verið í framlínu djasssöngv-
ara á klassísku línunni í mörg ár,
unnið til fjölda verðlauna og gefið
út frábærar plötur sem hafa selst í
bílförmum um allan heim. Hann er
undir áhrifum margra þekktra
söngvara en sterkustu áhrifin eru
þó án efa frá Mark Murphy, svalur
en svolítið hrjúfur og heitur. Hann
er með ótrúlegt vald á hljóðfæri
sínu og hikar ekki við að sýna allt
sem hann hefur upp á að bjóða.
Hann er með stórkostlega nærveru
á tónleikum og er húmoristi fram í
fingurgóma og sýnir það jafnt í tón-
listinni sem og í kynningum sínum.
Þannig að allir, jafnvel þeir sem
hlusta ekki að jafnaði á djasstónlist,
hafa gaman af.
Það er ekkert dýrmætara en að
fara á tónleika sem veita manni inn-
blástur. Við stöllur lifum enn á
þeim innblæstri sem við fengum á
tónleikum Kurts og tríós Laurence
Hobgoods þótt liðin séu nokkur ár.
Kurt og Laurence eru frábært
teymi þegar kemur að lagavali og
útsetningum. Tónleikarnir í Há-
skólabíói eru veisla sem enginn má
missa af.
Hvaða rosalegi
söngvari er þetta?