Morgunblaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 27 Verslunareigendum ber skylda til að verðmerkja allar vörur samkvæmt lögum. Þetta á jafnt við inni í verslunum sem í búðargluggum.Verðmerking á að vera vel sýnileg og ekki má fara á milli mála til hvaða vöru hún vísar. Oft getur verið erfitt að átta sig á hagkvæmustu kaupunum þar sem úrval af vörum er mikið og pakkningar misstórar. Til að auðvelda þér að bera saman verð hafa því verið settar reglur sem skylda verslunareigendur til að gefa upp mæli- einingarverð vöru, auk söluverðs. Notaðu rétt þinn. Borgartúni 21 • 105 Reykjavík • Sími 510 1100 • www.neytendastofa.is P R [p je e rr ] Neytendastofa Deildar meiningar eru umerfðabreytt matvæli,hvort þau séu skaðlegfólki eða ekki. Í Noregi eru öll erfðabreytt matvæli bönnuð og því voru vörur sem innihalda erfðabreytt hrísgrjón innkallaðar úr verslunum þar í landi í gær. Frá þessu var sagt í netútgáfu Aften- posten. Á meðal þess sem innkallað verð- ur er hrísgrjónagrautur frá TORO sem fæst í verslunum hér á landi (Risengrøt snarkokt). Elín Guð- mundsdóttir, yfirmaður mat- vælasviðs hjá Umhverfisstofnun, svaraði því til að ekki yrði gripið til þeirra aðgerða hérlendis að inn- kalla þessa grauta eða aðrar vörur sem innihalda þessi grjón, vegna þess að engar reglur væru til á Ís- landi um erfðabreytt matvæli. Hún sagði að boltinn væri hjá Umhverf- isráðuneytinu, þar í húsi væru tekn- ar ákvarðanir um slíkar reglur. Sigrún Ágústsdóttir, lögfræð- ingur hjá Umhverfisráðuneytinu, sagði að ákvæði væri í matvælalög- unum um að ef talið væri að mat- væli yllu heilsutjóni, þá væri hægt að grípa til aðgerða. „En það eru reglur á leiðinni inn í EES- samninginn um erfðabreytt mat- væli. Þetta er allt í ákveðnu ferli en hefur kannski gengið svolítið hægt. Þær reglur sem fara inn í samning- inn þarf að innleiða í íslenska lög- gjöf. Þó kemur til greina að vera eitthvað á undan í þessum málum og setja kröfu um merkingar, þann- ig að fólk viti hvort það sé að kaupa vörur sem innihalda erfðabreytt matvæli eða ekki. Það er verið að skoða þessi mál með merkingarn- ar.“ Sigrún segist ekki sjá fyrir sér að á Íslandi verði teknar upp sömu reglur og í Noregi, og öll erfða- breytt matvæli bönnuð. Erfðabreytt matvæli á Íslandi Morgunblaðið/Árni Sæberg Hrísgrjón Ekki eru allir á einu máli um ágæti erfðabreyttra matvæla. Kristján Bersi Ólafsson vekurathygli á því að ístjórnartíð Hermanns Jónassonar á kreppuárunum mun um skeið hafa verið gripið til símahlerana til þess að koma upp um leynivínsölu. „Verkið var falið starfsmanni hjá símanum sem Guðmundur hét og átti það auðvitað að fara leynt. En leyndin varð ekki meiri en svo að hlerunarstarfið kvisaðist fljótlega út og varð á allra vitorði sem vita vildu. Var þá farið að kalla símamanninn Gvend hlustarverk. Gekk honum seint að losna við þetta viðurnefni heldur þurfti að burðast með það löngu eftir að þessari leyniaðgerð var hætt.“ Kristján Bersi segir nokkuð talað um að Gvendur hlustarverkur sé enn á sveimi í kringum okkur og jafnvel að umsvif hans muni aukast talsvert á næstu misserum. Þess vegna finnist honum rétt að vara fólk við og geri það með þessari vísu: Segðu fátt í símann þinn, sértu í varúð sterkur. Um allar gáttir gægist inn Gvendur hlustarverkur. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Gvendur hlustarverkur HEILBRIGÐISYFIRVÖLD í Bret- landi hafa áhyggjur af því að blessuð börnin þar í landi borði of mikið af kartöfluflögum, að því er segir á fréttavef BBC. Þar segir að helmingur allra breskra barna hesthúsi um fimm lítr- um af bökunarolíu árlega, sem sé bein afleiðing þess að þau borði pakka af kartöfluflögum á degi hverjum. Rann- sóknir sýna að fimmta hvert barn bæti um betur og borði tvo pakka af kart- öfluflögum á dag. Nú er því búið að hrinda af stað herferð gegn óhollustu, þar sem ætlunin er að vekja athygli á salti, fitu og sykri sem víða leynist í hversdagsfæðu. Olían í kart- öfluflögum er einmitt dæmi um slíkt og í auglýsingaherferð vegna þessa, er birt ljósmynd af stúlku að drekka bökunarolíu og textinn sem fylgir með hljóðar á þessa leið: „Það sem fer inn í flögurnar, fer inn í þig.“ Herferðin hefur verið gagnrýnd sem hræðsluáróður. Og samtök þeirra sem framleiða snakk, hnetur og kart- öfluflögur, fullyrða að olíuinnihaldið sé ofmetið – útreikningarnir séu grund- vallaðir á stórum pakkningum af kart- öfluflögum. Staðreyndin sé sú að 35 gramma poki af kartöfluflögum innihaldi um það bil tvær og hálfa teskeið af olíu. Ekki hakka í ykkur kartöflu- flögur!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.