Morgunblaðið - 29.09.2006, Page 14

Morgunblaðið - 29.09.2006, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                          !""#         $#%&' ("")(          * !+,!')          ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● MIKIL viðskipti voru með hlutabréf í Kauphöll Íslands í gær eða fyrir um 19,9 milljarða króna. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,33% og var 6.336 stig við lok viðskipta. Mest voru viðskipti með bréf Glitn- is eða 8.425 milljónir króna og hækkuðu bréf bankans um 0,49%. Mest hækkuðu bréf Avion eða um 1,72% en bréf FL Group lækkuðu um 2,11%. Mikil viðskipti með hlutabréf SÍMINN og OgVodafone gera at- hugasemdir við fullyrðingar Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) um verð á GSM þjónustu hér á landi og segja þær á misskilningi byggðar. Í sam- anburði á verði á GSM þjónustu á Norðurlöndunum sé ekki tekið tillit til afsláttarkjara sem íslenskum neytendum standi til boða, auk þess sem niðurstöður erlendrar skýrslu séu slitnar úr samhengi. Í tilkynningu segist Síminn undr- ast að PFS skuli ekki taka tillit til þeirrar staðreyndar að samkeppni á íslenskum farsímamarkaði hafi eink- um falist í áskriftartilboðum og af- slætti í valin símanúmer. Í alþjóð- legum verðsamanburði sé tekið tillit til afsláttarkjara sem felast í inni- földum mínútum, en í tölum fyrir verðlag á Íslandi sé ekki tekið tillit til afsláttarkjara í vinanúmer. „Þá er ekki tekið tillit til mismun- ar á kaupmætti og verðbólgu í lönd- unum, en væri það gert yrði mun- urinn á milli landanna enn minni,“ segir Eva Magnúsdóttir hjá Síman- um. „Auk þess verður að telja at- hugavert að í tilkynningu sinni nefni PFS það ekki að í hópi 32 landa sé Ís- land með sjötta lægsta verðið á far- símaþjónustu. Þetta er slitið úr sam- hengi í tilkynningu stofnunarinnar.“ Hvað varðar þær upplýsingar að PFS ætli að leggja á Símann að- gangskvöð til að auðvelda nýliðum aðgang að íslenska farsímamarkaðn- um segir Eva að það sé í fyrsta skipti sem Síminn heyri af þeim áformum. „Þetta eru ný tíðindi fyrir okkur og verður að teljast undarlegt að þetta sé tilkynnt í fjölmiðlum áður en við- komandi aðili fær að kynna sér málið og nýta sér andmælarétt sinn.“ Hvað varðar fullyrðingar PFS um fákeppni hér á landi segir Eva virka samkeppni ekki endilega fást með fjölgun aðila á markaði. Sem dæmi má nefna að í Bretlandi eru um 30 þjónustuaðilar, en þar er samt hærra verð á þjónustunni en hér á landi. Fullyrðingum PFS mótmælt Vaxtaálag hefur þrefaldast Lánskjör Kaupþings banka í Bandaríkjunum heldur betri en menn áttu von á Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is VIÐSKIPTABANKARNIR þrír hafa nú lokið endurfjármögnun sinni vegna ársins 2007, nú síðast Kaup- þing banki með stærstu skuldabréfa- útgáfu sem nokkur íslenskur banki hefur staðið að fram til þessa. Líklega er þó fulldjúpt í árinni tek- ið að segja að fjármögnun íslensku bankanna sé þar með lokið því flestir ef ekki allir þeirra eiga eftir að fjár- magna væntan vöxt á næsta ári en sú fjármögnun verður þó áreiðanlega ekki torsótt. Glitnir með bestu kjörin Og í raun eru lánskjör þau sem Kaupþing banki fékk vestra líklega betri en margir áttu von á. Höfðu menn einkum horft til álags á skulda- bréf á eftirmarkaði en álagið á bréf Kaupþings hefur verið hærra en á bréfum hinna. Þriggja ára skuldabréf Kaupþings vestra voru seld með 0,7% álagi ofan á millibankavexti (Libor) sem er sama álag og á þriggja ára bréfum Lands- banka. Fimm ára skuldabréf voru verðlögð með 0,8% álagi ofan á Libor en fimm ára skuldabréf Landsbanka með 0,8% þannig að þar naut Kaup- þing lítillega betri kjara. Glitnir nýtur bestu lánskjaranna af íslensku bönkunum en hefur ekki gef- ið út sams konar skuldabréf vestra á svipuðum tíma og hinir bankarnir. En miðað við mun í fyrri útgáfum og tryggingarálag mætti gróflega ætla að Glitnir hefði getað fengið 0,15– 0,25% betri kjör. Fjármögnun íslensku bankanna er orðin mun dýrari en hún var í fyrra þegar þeir gáfu út mikið af skulda- bréfum í Evrópu og greiddu þá 0,2– 0,3% ofan á Libor-vexti; ætla má að álagið hafi þannig um það bil þrefald- ast. Og 0,4–0,6% til eða frá er mikið í bankaheiminum og hefur veruleg áhrif á samkeppnisstöðu. Sem dæmi má nefna að lánskjör Actavis, sem fær bestu lánskjörin af stóru íslensku fyrirtækjunum, munu nú vera orðin mjög áþekk þeim kjörum sem ís- lensku bankarnir fá. Illmögulegt er að reyna að slá á það hver heildarviðbótarkostnaður bank- anna þriggja er vegna verri lánskjara. Í Vegvísi Landsbankans kemur þó fram að að miðað við 0,45% hækkun álagsins hjá Kaupþingi banka kosti útgáfan nú bankann um 950 milljónir til viðbótar á ári. Heildarfjármögnun Kaupþings vegna ársins 2007 nam um 350–360 milljörðum króna þannig að útgáfan nú var tæplega 60%; viðbót- arkostnaðurinn er því örugglega vel á annan milljarð á ári eða hugsanlega hátt í 1,5 milljarða. Af heildarendur- fjármögnun bankanna þriggja vegna 2007 var Kaupþing með um helming þannig að viðbótarkostnaður bank- anna þriggja á ári vegna verri láns- kjara kynni að vera einhvers staðar á bilinu 2–3 milljarðar króna. Full ástæða er til að ætla að ís- lensku bankarnir muni að mestu eða öllu leyti velta auknum fjármagns- kostnaði yfir á viðskiptavini sína hér á heimamarkaði. Í nýlegri skýrslu eins bankanna var ýjað að þessu, a.m.k. undir rós og Morgunblaðið hefur haldið því fram að þetta sé líkleg niðurstaða – án þess að nokkur bank- anna þriggja hafi kosið að mótmæla því opinberlega. Á erlendum mörk- uðum er staðan allt önnur; þar verða íslensku bankarnir annaðhvort að minnka eigin vaxtamun til þess að vera áfram samkeppnisfærir – eða missa viðskipti ella. Í HNOTSKURN » Lánskjör Landsbankans ogKaupþings á þriggja ára bréfum eru hin sömu eða 0,7% ofan á Libor-vexti en 0,85% og 0,8% á fimm ára skuldabréfum. » Glitnir banki hefur ekki gef-ið út samsvarandi bréf vestra en ætla má að álagið sé 0,15– 0,25% lægra. » Bankarnir greiða nú 0,4–0,6% meira fyrir fjármögnun sína en fyrir ári síðan þegar þeir gáfu út umtaslvert magn skulda- bréfa í Evrópu. Fjármögnun gekk framar vonum „Og í raun eru lánskjör þau sem Kaup- þing banki fékk vestra líklega betri en margir áttu von á.“                 "'  ( "##) *    - .(/0!12#& 3&)-#&  !0"/0!12#& .(!'/0!12#& 4"".%0/0!12#& 5607'#& 8/0!12#& /3( '(06'"(#& $129('56'"(#& 8' 6'"(:3' #& 0)3#& !(-#(!'#& ; 3' (-) 0!3)1< 01<10=410>0?@?0& 6'"(#& A10#& + ,    B( #& 35/0!12#& C4/0' (#& *-)3' (-/0!12#& D#)0@(#& 0E55('5<(> %>('#& F(''31 %>('#& - &   . 3? 10&G35 1>103' .&  (     *H I>  .(>" .)0>                                 40)E ('5&0? &E00.(>" .)0>  =    =   =     =  =   = =  = = = =  = = = =  J  K = J K JK J= K J K J=K J  K J K J K J= K J= K J K = J=  K = = = J= K = = = = J K C)(3 0.(>"(2 ( 5(' (36!>I3!" 5L $12 3                                            = = = =                            =                          =   =  F(>"(2 (I97 "0 C M #151'03( ( @%3 ( .(>"(2         = = = =  VIÐRÆÐUM KB banka við FL Group um kaup á Icelandair miðar vel. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur Glitnir fallið frá áformum um kaup á félaginu, en um síðustu helgi var bankinn að kanna hugsanleg kaup á Icelandair, með mögulega samvinnu við fjárfesta fyrrum Sambandsfyrirtækja í huga. KB banki hefur boðið Ólafi Ólafs- syni, stjórnarformanni Samskipa, og öðrum fjárfestum að verða þátttak- endur í kaupunum á Icelandair, leiði viðræður á annað borð til samninga. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hefur Ólafur Ólafsson þekkst boðið um að kanna fjárfest- inguna, án þess að hafa ákveðið þátt- töku í kaupunum. Ljóst er að FL Group mun inn- leysa verulegan hagnað, verði af söl- unni, en á þessu stigi liggur ekki ljóst fyrir á hvaða verði Icelandair verður selt, verði félagið selt á annað borð. Glitnir hættur við ● EIMSKIP, dótturfélag Avion Group, hefur gengið frá kaupum á 65% hlut í finnska skipafélaginu Container- ships. Fyrirtækin munu, ásamt lithá- enska skipafélaginu Kurisu Linija, sem Eimskip á að fullu, mynda eitt stærsta flutningabandalag Evrópu, að því er kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá Avion Group. Saman munu fyrirtækin reka 41 skip og ráða yfir 30.000 gámaein- ingum, velta um 18 milljörðum og vera með 500 starfsmenn. Kaup- verð er trúnaðarmál, en Container- ships rekur fimm skip og 8.000 gámaeiningar. Félagið er með höfuð- stöðvar í Helsinki og starfsemi í níu löndum. Eimskip kaupir 65% hlut í Containerships ● BRESKA tískuvöruverslunarkeðjan Mosaic Fashions, sem skráð er í Kauphöll Íslands, var 428 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi en hagn- aður var 187 milljónir króna á sama tímabili í fyrra, að því er kemur fram í tilkynningu félagsins í Kauphöllinni. Á fyrstu sex mánuðum ársins nam hagnaður félagsins 500 milljónum króna, en á sama tíma í fyrra var hann 240 milljónir króna. Hagnaður fyrir afskrifti og skatta (EBITA) var 2,3 milljarðar króna á fyrri hluta árs- ins, miðað við 2,5 milljarða króna á síðasta ári. Sala félagsins á fyrri helmingi árs- ins nam 18,9 milljörðum króna, mið- að 17,3 milljarða króna á sama árs- helmingi í fyrra. Heildarsala fyrirtækisins jókst þannig um 9%, en sala utan Bretlands jókst um 34%. Forstjóri Mosaic, Derek Lovelock, segir í tilkynningunni að árangur fé- lagsins á öðrum ársfjórðungi sé betri en á þeim fyrsta. Hagnaður Mosaic Fashions 428 milljónir JAFET S. Ólafsson framkvæmda- stjóri hefur selt tæplega fjórðungs- hlut sinn í VBS fjárfestingarbanka hf. og mun eftir viðskiptin eiga um 2% hlut í fyrirtækinu. Kaupandi er fjárfestingafélagið FSP, sem er í eigu 20 sparisjóða en stærstu eig- endurnir eru Sparisjóður vélstjóra, Sparisjóðurinn í Keflavík og Spari- banki Íslands. Fyrir átt FSP um 13% hlut í VBS og mun því eiga eftir kaupin tæp- lega 37% hlut í félaginu. Þá áttu sparisjóðirnir tæpan 11% hlut í VBS fyrir kaupin, þannig að samtals fara sparisjóðirnir með um 48% hlut í VBS. Jafet lætur af störfum Í samtali við Morgunblaðið segir Jafet Ólafsson að hann hyggist láta af störfum sem framkvæmdastjóri VBS í lok ársins. „Ég mun setjast í sjórn félagsins en ráðgert er að hluthafafundur verði í lok október þegar samþykki Fjármálaeftirlitsins liggur fyrir,“ segir Jafet. Spurður um ástæðu þess að hann ákveður að selja og láta af störfum segir Jafet að eftir 10 ára veru hjá félaginu finnist sér kominn tími til að söðla um. „Félagið verður 10 ára núna í næsta mánuði og eftir þennan 10 ára sprett er ágætt að færa sig yfir á hliðarlínuna, eins og þeir segja í fótboltanum. En það er nóg af verk- efnum framundan og ég mun áfram starfa á sviði fjárfestinga í framtíð- inni,“ segir Jafet. Hluthafar í VBS fjárfestingar- banka eru nú um 70 talsins og starfsmenn 24. Kjartan Broddi Bragason, fram- kvæmdastjóri FSP, segir að félagið líta á kaupin sem góða fjárfestingu og engar ákvarðanir liggi fyrir um breytingar á rekstri VBS. „Við vilj- um styðja við bakið á starfseminni, efla hana og styrkja,“ segir Kjartan. Jafet Ólafsson selur FSP tæp- an fjórðungshlut sinn í VBS Morgunblaðið/Ásdís Lætur af störfum Jafet Ólafsson mun hætta sem framkvæmdastjóri VBS í lok ársins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.