Morgunblaðið - 29.09.2006, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Landfylling Samkvæmt tillögu Þyrpingar verður landfyllingin 22 þúsund
fermetrar að stærð og þar verður verslunarhúsnæði Hagkaupa og Bónuss.
Seltjarnarnes | Andstaða er á Sel-
tjarnarnesi við hugmyndir Þyrping-
ar hf., sem er þróunarfélag í eigu
fasteignafélagsins Stoða hf., um
landfyllingu norðaustan við gatna-
mót Norðurstrandar, Suðurstrandar
og Eiðisgranda. Hugmyndin er til
skoðunar hjá bæjaryfirvöldum, en
Þyrping hefur lagt til að landfylling-
in verði 22 þúsund fermetrar að
stærð og að þar verði verslunarhús-
næði fyrir Hagkaup og Bónus auk
útivistarstíga og opinna svæða á fyll-
ingunni. Tilkynnt var fyrr í vikunni
að fallið hefði verið frá áformum um
aðra landfyllingu við sunnanvert Sel-
tjarnarnes, en þar hafði fasteigna-
félagið Klasi lagt til að reist yrði um
3.500 til 4.000 manna byggð.
Undirskriftum safnað
Stefán Arnarson, íbúi við Eið-
istorg 5, er einn þeirra sem er ósátt-
ur við hugmyndir um landfyllingu á
norðanverðu Seltjarnarnesi. Hann
og eiginkona hans, Elín Guðjóns-
dóttir, skrifuðu dreifibréf, sem þau
dreifðu í 60 íbúðir á Eiðistorgi. Bréf-
inu var dreift á þriðjudag, en í því
var lýst andstöðu við landfyllingará-
formin og íbúar Eiðistorgs hvattir til
þess að beita bæjaryfirvöld þrýstingi
í málinu. Í fyrradag hófu íbúar við
Eiðistorg svo undirskriftasöfnun.
Gengið var í íbúðir við götuna og í
nágrenni hennar. Stefán segir að sér
skiljist að viðtökur fólks hafi verið
góðar og flestir þeirra sem hafi verið
heima hjá sér hafi skrifað undir.
Mikil lýti af landfyllingu
Þór Whitehead, íbúi á Seltjarnar-
nesi og félagi í Samtökum um betri
byggð í bænum, segir að á fundi í
Sjálfstæðisfélagi Seltjarnarness á
þriðjudag, sem tæplega 100 manns
sóttu, hafi komið fram tillaga um að
hafna landfyllingum bæði sunnan-
og norðanmegin í bænum. Hún hafi
verið felld með fimm atkvæða mun,
en tillögur Þyrpingar séu til athug-
unar hjá bæjaryfirvöldum og verið
sé að kynna þær á vegum fyrirtæk-
isins. Hann segir að stemningin á
fundinum hafi verið þannig að ljóst
sé að það sé hörð andstaða í bænum
við hvers kyns landfyllingar. Samtök
um betri byggð séu afar tortryggin á
allar slíkar hugmyndir.
Þór segir að ætla megi að mikil
lýti yrðu af landfyllingunni. „Þetta
eru skemmulaga hús og af sjálfri
landfyllingunni leiddi að ströndinni
væri spillt. Ég sé alls enga ástæðu til
þess að gera það og tel að með því
væri gengið á gæði sem við höfum
hér, “ segir Þór. Það sem fáist í stað-
inn sé ekki með nokkrum hætti hægt
að meta til jafns við það sem tapist.
„Þó að það verði hér öllu meira
vöruúrval í búðum, er það ekki, frá
mínu sjónarmiði séð, mest um vert
þegar litið er til þessara mála. Aðal-
atriðið finnst mér, er að varðveita
það fallega samfélag og umhverfi
sem hér er. Ég vona að það sé full
sátt um það á milli bæjarbúa og bæj-
arstjórnar,“ segir Þór.
Andstaða við áform um
landfyllingar á Nesinu
Í HNOTSKURN
»Tillaga Þyrpingar umlandfyllingu norðanmegin
á Seltjarnarnesi hefur verið
rædd í skipulags- og mann-
virkjanefnd bæjarins.
» Þyrping hefur haldiðkynningarfund fyrir bæj-
arstjórn og hún verður kynnt
bæjarbúum til loka mánaðar-
ins.
»Þá mun skipulagsnefndtaka málið fyrir að nýju.
Í GÆR urðu tímamót í rekstri
Konukots er skrifað var undir tíma-
bundinn samning milli Reykjavík-
urdeildar Rauða kross Íslands
(RKÍ) og velferðarsviðs Reykjavík-
urborgar um rekstur athvarfsins.
Mun borgin greiða rekstrarkostnað
en Reykjavíkurdeildin mun halda
utan um reksturinn til vors. Þar til
mun borgin vinna að því að finna
varanlegt úrræði fyrir heim-
ilislausar konur í Reykjavík.
Konukot hefur verið starfrækt í
tvö ár og í upphafi var um það rætt
á milli Reykjavíkurdeildarinnar og
borgarinnar að staðan yrði metin
að þeim tíma liðnum og Reykjavík-
urborg tæki þá jafnvel yfir rekst-
urinn.
Eftir viðræður síðustu vikur hef-
ur nú komist á samningur á milli
þessara aðila um rekstur Konukots
til 30. apríl nk. Sjálfboðaliðar
Reykjavíkurdeildarinnar munu
áfram starfa við Konukot en þeirra
framlag hefur verið ómetanlegt
þessi síðustu tvö ár, að sögn Kötlu
Þorsteinsdóttur, framkvæmda-
stjóra Reykjavíkurdeildarinnar.
Samningstímann ætlar Reykja-
víkurborg að nýta til að finna var-
anlega lausn. Hvort starfsemin
verður í Eskihlíð þar sem hún er nú
eða annars staðar, eða hvort
Reykjavíkurdeildin mun koma að
rekstrinum að samningstíma liðn-
um, á eftir að koma í ljós að sögn
Kötlu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Samið til vors Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs, og Katla
Þorsteinsdóttir frá RKÍ skrifa undir samning um Konukot.
Konukot verður
rekið áfram
STÁLRÖRUM sem notuð verða í Reykjaveitu í Fnjóska-
dal var skipað upp í Krossaneshöfn á Akureyri í vik-
unni. Rörin, sem samtals eru um 48 kílómetra löng,
verða lögð frá Illugastöðum að Grenivík, en þegar
hefur verið lokið við lögn veitunnar frá Reykjum að Ill-
ugastöðum. Að sögn Franz Árnasonar, framkvæmda-
stjóra Norðurorku, er þessa dagana verið að auglýsa
útboð vegna fyrirhugaðra framkvæmda, verkefnið á að
hefjast strax í haust og lýkur vonandi fyrir þarnæstu
áramót. Ef veður leyfir, eins og Franz tók til orða.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
48 kílómetrar af stálrörum
JÓHANNA Þóra Jónsdóttir, elsti
íbúi Akureyrar, er látin, 106 ára að
aldri. Hún lést á dvalarheimilinu
Hlíð aðfaranótt 26. þessa mánaðar.
Jóhanna fæddist á Illugastöðum í
Fnjóskadal 12. febrúar árið 1900.
Hún bjó í dalnum til sautján ára ald-
urs en fór þá sem kaupakona og vetr-
arstúlka í Eyjafjörð, var lengst af á
Þórustöðum, en árið 1934 flutti hún
til Akureyrar. Var þá með son sinn,
Birgi Helgason, þrettán vikna og
fluttist til Kristínar E. Ólafsdóttur
og manns hennar, Jóns Pálssonar
trésmiðs. Eftir lát Jóns bjuggu þær
Kristín saman í húsinu, Aðalstræti
32, alls í 67 ár eða
fram á vorið 2002.
„Við fórum burtu
sama kvöldið,“
sagði Jóhanna í
samtali við Morg-
unblaðið í tilefni
104 ára afmælis
síns fyrir tveimur
árum. „Kristín
fótbrotnaði og fór
á sjúkrahús, en
ég dvaldi hjá syni mínum þar til ég
fékk pláss á Hlíð.“
Örlögin höguðu því svo að um
skeið deildu þær Kristín herbergi á
Hlíð. „Kristín dó þarna um sumarið,
við skildum ekki fyrr en þá.“
Jóhanna Þóra starfaði lengi við
Menntaskólann á Akureyri, var þar
við ræstingar og í eldhúsi, en hún lét
af störfum árið 1979.
„Það er enginn efi í mínum huga
um það,“ sagði Jóhanna Þóra fyrir
nokkrum árum í samtali við Morg-
unblaðið, spurð um hverju hún þakk-
aði langlífið. „Ég þakka það skap-
aranum.“ Þá kvaðst hún einnig hafa
lifað reglusömu lífi alla tíð, hvorki
drukkið áfengi né notað tóbak. „Ég
hef líka alltaf haft létta lund, það
held ég skipti miklu.“
Elsti Akureyringurinn látinn
Jóhanna Þóra
Jónsdóttir
AKUREYRI
FORVARNADAGUR var haldinn í
gær í öllum grunnskólum landsins
þar sem unglingadeildir eru. For-
varnadagurinn er haldinn að frum-
kvæði forseta Íslands í samvinnu við
Samband íslenskra sveitarfélaga,
Íþrótta- og ólympíusamband Ís-
lands, Ungmennafélag Íslands,
Bandalag íslenskra skáta, Reykja-
víkurborg, Háskóla Íslands og Há-
skólann í Reykjavík.
Landsþing Sambands íslenskra
sveitarfélaga fer fram um þessar
mundir á Akureyri og létu lands-
þingsgestir ekki sitt eftir liggja á
forvarnadaginn enda sambandið
einn aðilanna að baki verkefninu.
Þau Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, borgarstjóri í Reykjavík,
Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri í
Dalvíkurbyggð, og Kristján Þór Júl-
íusson, bæjarstjóri á Akureyri, fóru í
heimsókn í Oddeyrarskóla á Akur-
eyri í gærmorgun og hittu þar að
máli nemendur í 9. bekk skólans.
Fengu gestirnir meðal annars að
hlýða á verkefni sem nemendur
höfðu unnið í tilefni dagsins auk þess
sem málefni unglinga voru rædd vítt
og breitt. Að lokum var öllum boðið
upp á léttar veitingar.
Með forvarnadeginum er meðal
annars ætlunin að vekja athygli á því
að unglingar sem eyða tíma með fjöl-
skyldu sinni og stundi íþróttir og
annað skipulagt æskulýðs- og tóm-
stundastarf séu síður líkleg til að
neyta fíkniefna.
Góðir gestir á
forvarnadegi
Morgunblaðið/Skapti
Rætt við unglinga Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, ræðir
hér við einn nemenda Oddeyrarskóla á forvarnadeginum í gær.