Morgunblaðið - 29.09.2006, Side 23
Morgunblaðið/Arnaldur
Heimalagað Það geta allir búið til
sína eigin útgáfu af brauðraspi.
Eftir Heiðu Björgu Hilmisdóttur
EF OF mikið er til af brauði á
heimilinu er snjallt að nýta brauð-
ið í brauðrasp. Raspið má síðan
nota í kjöthleif, utan á fisk eða
kjöt áður en steikt er, út í köku-
deig eða í klassíska danska epla-
köku. Þetta var oft gert áður á
heimilum, en heimalagaða raspið
hefur það fram yfir það keypta að
það getur verið mun hollara þar
sem hæglega má blanda saman við
fræjum, nú eða þá nota gróft
brauð. Svo er líka hægur leikur að
krydda raspið að vild.
Aðferð: Best er að setja brauðið
í ofnskúffu og koma því fyrir inni í
ofni. Ofninn er síðan stilltur á 50–
70°C og brauðið látið standa þar
og þorna. Gott er að opna ofninn
annað slagið til að hleypa út raka
sem þar myndast. Þetta getur tek-
ið allt að klukkutíma.
Þegar brauðið er orðið það
þurrt að það molnar er það tilbúið.
Brauðið er þá mulið niður, ann-
aðhvort í hakkavél, matvinnsluvél
eða í poka sem barinn er að utan
með kökukefli. Setjið í þétta
krukku og þá geymist raspið auð-
veldlega í margar vikur.
Heimagert brauðrasp
matur
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 23
Haust á Þingvöllum
Þingvellir skarta nú sínu fegursta
enda komnir í haustlitina. Fyrir þá,
sem vilja fá sér rúnt út fyrir borgar-
mörkin, væri upplagt að bregða sér í
gönguferð um Þingvelli með nestis-
körfuna í farteskinu til að taka á móti
haustinu.
Hátíð í Breiðholti
Fjölþjóðlegur kvennakór Regn-
bogakórsins ætlar að syngja í göngu-
götu Mjóddarinnar kl. 14.00 á morg-
un, en þar verður Breiðholtsdagurinn
haldinn hátíðlegur frá kl. 13.00 til
16.00. Boðið verður upp á fjölbreytta
dagskrá fyrir fjölskylduna. Borg-
arstjóri ávarpar samkomuna og tekur
á móti tillögum um „Betra Breiðholt“
frá fulltrúum 12 ára barna í Breið-
holti. Kór og hljómsveit eldri borgara
flytja nokkur lög. Fjölþjóðlegur
kvennakór syngur. Idolstjarnan
Snorri Snorrason treður upp og nem-
endur úr dansdeild ÍR verða með
danssýningu. Samsöngur verður frá
leikskólabörnum úr leikskólum í
Breiðholti. Breiðholtsskokkið byrjar
og endar við göngugötuna í Mjódd.
Skokkið er til styrktar umsjón-
arfélagi einhverfra og mun Atlants-
olía hf. greiða 200 kr. þátttökugjald
fyrir alla þá, sem hlaupa.
Leiktæki verða fyrir börnin og í til-
efni dagsins verða fjölmargar sýn-
ingar og kynningar í Mjóddinni auk
þess sem fjöldi fyrirtækja býður
gestum margvísleg tilboð á vöru og
þjónustu.
Bíó á kvikmyndahátíð
Fyrir þá, sem ætla sér að vera á
mölinni, má minna á að alþjóðlega
kvikmyndahátíðin stendur sem hæst.
Hún var sett í gær og stendur til 8.
október. 220 kvikmyndasýningar
verða á vegum hátíðarinnar eða tutt-
ugu og tvær bíósýningar á degi hverj-
um.
Miðasala á allar sýningar er á film-
fest.is og midi.is, en einnig í upplýs-
ingamiðstöð hátíðarinnar Thorvald-
sen bar við Austurvöll. Miða má
einnig fá í viðkomandi bíóhúsum, í
Háskólabíói, Tjarnarbíói og Iðnó.
Handbolti og fótbolti
Íþróttabullur hafa getað valið að
fara á handboltaleik eða fótboltaleik
því úrslitaleikurinn í bikarkeppni
karla í knattspyrnu fer fram á Laug-
ardalsvelli kl. 14.00 á laugardag, en
þar eigast við lið KR og Keflavíkur.
Viðureign Íslandsmeistara Fram
og þýska stórliðsins Gummesbach fer
svo fram í meistaradeild Evrópu í
handknattleik í Laugardalshöll kl.
17.00 á sunnudag. Alfreð Gíslason,
landsliðsþjálfari Íslands í handknatt-
leik, stýrir Gummersbach og með lið-
inu leika þrír íslenskir handknatt-
leiksmenn, þeir Guðjón Valur
Sigurðsson, Róbert Gunnarsson og
Sverre Jakobsson.
Morgunblaðið/Ómar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
mælt með …
Suðurlandsbraut 20 – 108 Reykjavík – Sími 588 0200 – www.eirvik.is
-hágæðaheimilistæki
Ef þú kaupir Miele þvottavél færðu kaupverðið
endurgreitt með betri meðferð á þvottinum
Miele þvottavélar eru með nýrri tromlu með
vaxkökumynstri sem fer betur með þvottinn.
Einkaleyfi Miele.
Miele þvottavélar eru byggðar á stálgrind
og eru með ytri þvottabelg úr ryðfríu stáli
ólíkt flestum öðrum þvottavélum.
Miele þvottavélar endast lengur en aðrar
þvottavélar.
Íslenskt stjórnborð
AFSLÁTTUR
30%
ALLT AÐ
1. VERÐLAUN
í Þýskalandi
W2241WPS
Gerð Listaverð TILBOÐ
Þvottavél W2241 kr. 164.000 kr. 114.800
1400sn/mín/5 kg.
Þvottavél W3241 kr. 168.000 kr. 126.075
1400sn/mín/6 kg.
Þvottavél W3245 kr. 191.300 kr. 143.475
1600sn/mín/6 kg.
Þurrkari T233 kr. 112.200 kr. 78.540
m rakaskynjara og útblæstri/5 kg.
Þurrkari T233C kr. 131.000 kr. 91.700
m rakaskynjara og þétti/5 kg.
Þurrkari T4163 kr. 119.800 kr. 107.820
m rakaskynjara og útblæstri/6 kg.
Þurrkari T4263C kr. 141.200 kr. 127.080
m rakaskynjara og þétti/6 kg.
MIELE ÞVOTTAVÉL
- fjárfesting sem borgar sig
Hreinn sparnaður
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Fullkomnaðu
verkið með
Þ
A
K
R
E
N
N
U
K
E
R
FI
á
öllhús
–
allsstaðar
Þ
A
K
R
E
N
N
U
K
E
R
FI
á
öllhús
–
allsstaðar
BLIKKÁS –
Smiðjuvegi 74
Sími 515 8700