Morgunblaðið - 29.09.2006, Page 52
52 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
ÞÚ ÁTT STEFNUMÓT VIÐ ...
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
GUÐRÚNU Helgadótturþarf ekki að kynna fyrirneinu bókelsku barni ensögur hennar hafa
skemmt nokkrum kynslóðum Ís-
lendinga. Bækur hennar eru þeim
kostum gæddar að jafnt börn og
fullorðnir hafa gaman af lestrinum
og ætti það sama að eiga við um
leiksýninguna.
Þríleikur hennar um fjölmennu
fjölskylduna í Hafnarfirðinum,
Sitji guðs englar, Saman í hring
og Sænginni yfir minni, eru meðal
þekktustu bóka Guðrúnar og hef-
ur sagan nú ratað á fjalir Þjóð-
leikhússins.
Það er Sigurður Sigurjónsson
sem leikstýrir verkinu.
Með hlutverk Heiðu fer Bryn-
hildur Guðjónsdóttir. Þau Þórunn
Erna Clausen og Baldur Trausti
Hreinsson fara með hlutverk for-
eldranna og Ragnheiður Stein-
dórsdóttir og Sigurður Skúlason
eru afi og amma. Darri Ingólfsson
er Birgir Björn, Hjálmar Hjálm-
arsson er Láki netamaður, Kjart-
an Guðjónsson Lási í Seli, Krist-
ján Franklín Magnús er Bárður
kaupmaður, Lilja Guðrún Þor-
valdsdóttir er Kristín á 12 og
Nanna Kristín Magnúsdóttir er
Guðfinna. Auk þess fara leik-
ararnir með önnur minni hlutverk.
Verkið prýða sex sönglög eftir
Jóhann G. Jóhannsson við texta
Þórarins Eldjárn. Meðan á sýn-
ingunni stendur fer Jóhann svo
sjálfur fyrir valinkunnum hljóð-
færaleikurum.
Leikgerðin, sem unnin er af Ill-
uga Jökulssyni, spannar allar
bækurnar þrjár. Í samtali við
Morgunblaðið sagði Illugi það
hafa verið talsverðan höfuðverk að
velja og hafna atriðum úr bók-
unum.
„Þetta eru allt saman frábærar
bækur en fyrst ég varð að tak-
marka mig við eitthvað er þetta
nú mest úr fyrstu bókinni, talsvert
úr annarri og minnst úr þeirri
þriðju. Það var andi bókanna, per-
sónurnar og það andrúmsloft sem
þar er lýst sem ég reyndi frekar
að ná fram heldur en kannski ein-
stökum atburðum,“ segir Illugi.
Vonar að leikritið verði
Guðrúnu til sóma
„Það er nú þannig með þessar
bækur að það er ekki mikið um
gegnumgangandi plott í þeim.
Þetta eru meira myndir af lífi fjöl-
skyldu. Mér fannst skipta mestu
máli að ná að fanga andrúmsloftið.
Þetta er notalegt, fallegt og
huggulegt andrúmsloft en samt er
alveg blygðunarlaust tekist á við
erfið mál eins og dauðann. Fólk
deyr alveg hikstalaust í bókunum
og Guðrún býður ekkert upp á bil-
legar lausnir á því. Hún fjallar um
lífið eins og það er og mér fannst
mikilvægt að koma því til skila.“
Illugi segist ekki hafa verið í
sambandi við Guðrúnu sjálfa með-
an á skrifunum stóð.
„Nei, hún sagði mér að sjá al-
veg um þetta sjálfur. Hún sagðist
alveg treysta mér fyrir þessu og
ég var mjög þakklátur fyrir það.
Ég vona að þetta verði henni til
sóma,“ segir hann.
Systkinin og allir hinir
eru frábærar persónur
„Ég las bækurnar fyrir dóttur
mína á sínum tíma og uppgötvaði
þá hvað þetta eru frábærar bæk-
ur,“ segir Illugi en hann vann fyr-
ir nokkrum árum þriggja klukku-
tíma útvarpsleikrit úr sögunum
þremur. „Ég er því orðinn nokkuð
kunnugur þessum bókum.“
Illugi segist ekki geta gert upp
á milli persónanna í bókinni og
eigi sér ekkert eftirlæti.
„Það eru svo margir skemmti-
legir karakterar þarna. Systkinin
og allir hinir eru allt frábærar
persónur á sinn hátt.“
Systkinin öll, Heiða, Halldór,
Arnór, Lóa Lóa, Páll, Abba hin og
Guðbergur, eru á sínum stað í
leikritinu og engum sleppt eins og
stundum er gert. Fjórtán börn
fara með hlutverk í sýningunni.
Skyldi Illugi hafa verið meðvit-
aður um að hann væri að skrifa
fyrir unga leikara?
„Nei, alls ekki. Þetta er ekki
hugsað sem hrein og klár barna-
sýning. Við vonum að fólk á öllum
aldri geti haft gaman af henni. Ég
tók aldrei tillit til þess að börn
væru að fara að leika hlutverkin.
Leikstjórinn yrði bara að sjá um
þá hlið og mér sýnist hann hafa
gert það vel,“ segir Illugi og bætir
við að hann hafi fylgst talsvert
með æfingum nú undir lokin.
„Mér finnst þetta lofa af-
skaplega góðu,“ sagði hann að lok-
um.
Fjallar um lífið
eins og það er
Fjölmenni Það er oft mikið um að vera á stóru heimili þar sem búa sjö
börn, foreldrar þeirra og afi og amma.
Feðginin Það eru þau Baldur Trausti Hreinsson og Brynhildur Guðjóns-
dóttir sem fara með hlutverk feðginanna Heiðu og Oddgeirs.
Sjómannslíf Fyrirvinnur flestra í hverfinu eru sjómenn og fjölskyldur
þeirra flykktust gjarnan niður á bryggju þegar von var á þeim heim.
Leikstjóri:
Sigurður Sigurjónsson.
Leikgerð: Illugi Jökulsson.
Aðalhlutverk: Brynhildur
Guðjónsdóttir, Baldur Trausti
Hreinsson, Þórunn Erna Clau-
sen, Sigurður Skúlason, Ragn-
heiður Steindórsdóttir.
Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson.
Söngtextar:
Þórarinn Eldjárn.
Hljóðfæraleikarar: Jóhann G.
Jóhannsson, Sigurður Flosa-
son/Peter Tomkins og Óskar
Guðjónsson/Ólafur Jónsson.
Leikgervi:
Ásdís Bjarnþórsdóttir.
Hár: Guðrún Erla
Sigurbjarnadóttir.
Lýsing: Hörður Ágústsson.
Búningar:
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.
Leikmynd: Frosti Friðriksson.
Sitji guðs
englar
Sitji guðs englar er byggt á þríleik Guðrúnar
Helgadóttur um stúlkuna Heiðu og fjölmennu
fjölskylduna hennar í Hafnarfirðinum.
Illugi Jökulsson sá um að færa bækurnar
þrjár upp á fjalir Þjóðleikhússins en leikstjóri
verksins er Sigurður Sigurjónsson.
Leiklist | Sitji guðs englar Guðrúnar
Helgadóttur frumsýnt í Þjóðleikhúsinu