Morgunblaðið - 29.09.2006, Page 55

Morgunblaðið - 29.09.2006, Page 55
Hvað segirðu gott? Ég er bara nokkuð hress þessa dagana. Ertu ástfanginn? (Spurt af síðasta aðalsmanni, Reyni Lyngdal.) Já, og ekki bara af sjálfum mér lengur. Kanntu þjóðsönginn? Nei, en ég kann „Ísland er land þitt“ og fullt af öðrum góðum lög- um! Áttu þér gælunafn? Já, var stundum kallaður Tank- urinn á djamminu …aðallega af sjálfum mér. En hann hefur ryðgað síðustu ár. Hvað talarðu mörg tungumál? Þrjú edrú en 11 eftir nokkra kalda. Hvenær fórstu síðast til útlanda og hvert? Fór í júlí til Króatíu að slappa af og læra fleiri tungumál. Sveppi eða Pétur Jóhann? Úff, þetta er eins og að spyrja hvort að þú eigir að lemja litlu eða stóru systur mína! Uppáhaldsmaturinn? Fylltur kjúlli hjá múttu hefur enn ekki klikkað. Bragðbesti skyndibitinn? Rizzo pizza og Gæðaloka á Aktu taktu. Hvaða bók lastu síðast? Einar Áskel fyrir litlu frænku mína. Talandi um bók sem eldist illa maður! Hvaða leikrit sástu síðast? Footloose og skemmti mér vel. En kvikmynd? Sá Crank í bíó. Eðalhasar þar á ferð. Hvaða plötu ertu að hlusta á? Er oftast bara með Ipodinn. Uppáhaldsútvarpsstöðin? Svissa vel á milli en Capone er uppáhaldsþáttur. Besti sjónvarpsþátturinn? My name is Earl og King of Queens eru í miklu uppáhaldi. Á grímuballi mæti ég sem … Sveppi Helstu kostir þínir? Stundvís, hress og metnaðarfullur. En gallar? Tapsár, kærulaus og get verið eig- ingjarn. Fyrsta ástin? Er örugglega orðin spikfeit í Okla- homa eftir að hafa hryggbrotið sjö ára Íslending. Besta líkamsræktin? Er heitur fyrir skvassinu þessa dagana. Algengasti ruslpósturinn? Reikningar, opnar þetta einhver? Hvaða ilmvatn notarðu? Hugo Boss stendur fyrir sínu. Hvar myndirðu vilja búa annars staðar en á Íslandi? Ætli það séu ekki bara Bandaríkin. Er pínu Kani í mér. Ertu með bloggsíðu? Nei, ekki enn allavega. Hvers viltu spyrja næsta viðmæl- anda? Hefurðu farið með pabba þínum í bað? Íslenskur aðall | Auðunn Blöndal Einar Áskell eldist illa Aðalsmanni vikunnar er fátt heilagt í væntan- legum sjónvarpsþætti sínum Tekinn. Hann heitir Auðunn Blöndal en kallar sjálfan sig stundum Tankinn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tekinn Auðunn Blöndal ætlar að hrekkja þekkta einstaklinga. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 55 menning Til bókaútgefenda: BÓKATÍÐINDI 2006 Skilafrestur vegna kynningar og auglýsinga í Bókatíðindum 2006 er til 12. október nk. Ritinu verður sem fyrr dreift á öll heimili á Íslandi Allar upplýsingar á skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda, Barónsstíg 5, sími 511 8020. Netfang: baekur@simnet.is —————————————  ————————————— Frestur til að leggja fram bækur vegna Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2006 er til 13. október nk. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. ÞAÐ er mikill léttir að komast að því að Woody Allen geti ennþá búið til sæmilega kvikmynd sem einkennist af þeirri að virðist fyrirhafnalausu fyndni sem álitin hefur verið eitt af hans aðalsmerkjum. Satt að segja var undirrituð orðin úrkula vonar eftir að hafa séð næstnýjust mynd Allens, Match Point, sem þótti mun skárri en undanfarnar myndir leik- stjórans, en var að mínu mati bæði stirð og tilgerðaleg. Í Fyrst með fréttina (Scoop) grillir hins vegar loksins í gömlu góðu taktana hans Allens, gamanfléttan er ekkert ofur- metnaðarfull en hún er skemmtileg, gengur vel upp og er handritið upp- fullt af snilldarlínum í anda þeirrar kímnigáfu sem einkenndi kvikmynd- ir Allens á árum áður. Segja má að Woody Allen hafi flust búferlum frá Manhattan til London, en Fyrst með fréttina á sér stað í Lundúnum líkt og Match Point. Hér dregur Woody Allen stéttapólitík inn í gamanádeilu sína, og lætur bandaríska og breska menningu mætast í aðalpersónun- um. Kaldhæðnin í þeirri umfjöllun verður þó ekki til þess að sliga hand- ritið eins og tilfellið var í Match Po- int, heldur spinnur Allen af fingrum fram nokkurs konar tilbrigði við Kobba kviðristu hryllingminnið. Þar segir í stuttu máli frá ungum bandarískum blaðamennskunema, Sondra Pransky (Scarlett Joh- ansson), sem hefur það markmið eitt í lífinu að verða ofurblaðamaður. Hún fer á töfrasýningu hjá Sid Wa- terman (Woody Allen) gömlum bragðarefi frá Brooklyn sem kemur fram í gervi töframannsins Splend- inis. Þegar Sondra fer inn í töfra- kassa Splendinis birtist henni ofur- blaðamaðurinn Joe Strombel (Ian McShane) sem er nýfarinn yfir móð- una miklu og situr á stórri skúbbf- rétt um hver Tarrot-morðinginn sem herjað hefur á vændiskonur í London sé í raun og veru. Böndin berast að Lyman lávarði (Hugh Jackman) sem þykir mikill fyr- irmyndarborgari, en þau Sondra og Sid reyna að komast að hinu sanna. Ofangreindir leikarar eiga stór- góðan samleik í þessari farsakenndu gamanmynd, og er skemmtilegt að sjá Woody Allen bregða sér í sann- allenískt trúðshlutverk í myndinni. Fyrst með fréttina er lúmskt fyndin gamanmynd og hressileg upprifjun á þeirri kíminigáfu sem virtist alveg horfin leikstjóranum. Allen snýr aftur KVIKMYND Laugarásbíó Leikstjórn: Woody Allen. Aðahlutverk: Scarlett Johansson, Woody Allen, Hugh Jackman og Ian McShane. Bretland/ Bandríkin, 96 mín. Fyrst með fréttina (Scoop)  Reuters Fyndin „Fyrst með fréttina er lúmskt fyndin gamanmynd og hressileg upp- rifjun á þeirri kíminigáfu sem virtist alveg horfin leikstjóranum.“ Heiða Jóhannsdóttir EINS OG segir í textabók byggist verkið á Bárðarsögu Snæfellsáss og segir þar frá leik Helgu, dóttur Bárðar, og Rauðfelds Þorkelssonar sem endar á þann veg að Helgu er í ógáti komið á ísjaka sem rekur frá landi. Bárður faðir hennar finnur á sér að eitthvað slæmt hefur gerst og þegar hann kemst að sannleikanum, kastar hann Rauðfeldi og Sölva bróður hans fyrir björg til þess að færa Ása-Þór fórn. Bárður vonar að mannfórnin færi honum Helgu aftur úr greipum íss og kulda. Það er ekki auðvelt að nálgast Ís- lendingasögurnar eins og gert er á geisladiskinum Kyljur. Sagan sem sögð er í gegnum textana er gömul og fyrirfram gefin og sé ég ekki bet- ur en að hún hafi fengið góða nálgun. Ljóðin spanna söguferlið ágætlega. Byrjað er á leik ungmennanna, næst er fjallað um samviskubit Rauðfelds þegar Helga er á jakann komin og svo koll af kolli. Mér þykja ljóð Kristins Kristjánssonar afskaplega falleg og skila sögunni vel. Um tónlistina get ég ekki sagt al- veg það sama. Lögin eru fín en mér þykja útsetningarnar vera tilgerð- arlegar. Ekkert minnir á þá mögn- uðu sögu sem verkið hefur að geyma, mér fannst þetta minna frek- ar á Meatloaf en Íslendingasögur. Ekki svo að skilja að tónlistin eigi að vera þjóðleg, heldur á hún að sýna verkinu þá virðingu sem það á skilið. Hljóðfæraleikurinn er fullkominn, enda ekki við öðru að búast þegar bestu hljóðfæraleikarar Íslands eiga í hlut, en það bjargar samt ekki því að mér finnst tónlistin samt sem áð- ur ekki passa nægilega vel við ljóðin. Tæknin er fullkomin en sálin er eng- in. Söngurinn á plötunni er ágætur. Raddútsetningarnar eru allt í lagi, skringilegar bakraddir á köflum en engin hörmung. Svolítið finnst mér um ú-ú-ú og je-je-je hjá þeim sem sungu en mér þykir það frekar óvið- eigandi. Heiða Ólafsdóttir sýnir einna best hvað hún getur og sleppir því blessunarlega að vera með mikið af tilgangslausu veini. Útgeislun hennar skín hér í gegn af krafti. Það sem mér þótti best við Kyljur eru ljóðin. Heillandi orð á fallegu máli. Ekki spillir fyrir að textinn við Sæl væri ég kemur beint úr handriti Bárðarsögu Snæfellsáss. Ég vildi óska þess að mér hefði þótt fram- setningin vera betri. Heillandi orð á fallegu máli TÓNLIST Íslenskur geisladiskur Geisladiskurinn Kyljur byggist á Bárð- arsögu Snæfellsáss. Flytjendur eru Reg- ína Ósk Óskarsdóttir, Bergsveinn Arilíus- son, Heiða Ólafsdóttir, Hreimur Örn Heimisson, Friðrik Ómar Hjörleifsson og hljómsveitin Möl en hana skipa Guð- mundur Pétursson: gítar og röddun, Gunnlaugur Briem: trommur, slagverk og röddun, Jóhann Ásmundsson: bassi, Þór- ir Úlfarsson: orgel, píanó og röddun. Allir textar eru eftir Kristin Kristjánsson utan ,,Sæl væri ég“ sem er úr Bárðarsögu Snæfellsáss. Lög eru eftir Ingva Þór Kor- máksson, Pálma Almarsson, Alfreð Örn Almarsson og Sigurð Höskuldsson. Um útsetningar á söng og röddum sáu Þórir og Friðrik Ómar. Addi 800 sá um upp- tökustjórn og hljóðblöndun en Haffi tempó sá um eftirvinnslu. Upptökur á hljóðfæraleik fóru fram PUK Recording Studios á Jótlandi en upptökur á söng fóru fram í Kirsuberinu. Hljóðblöndun og eftirvinnsla fór fram í Stúdíó Sýrlandi og Írak. Útgefandi er Pöpull en um dreifingu sá Músik. Ýmsir – Kyljur  Helga Þórey Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.