Morgunblaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 44
|föstudagur|2. 2. 2007| mbl.is
staðurstund
Hljómsveitin Trabant er meðal
þeirra sem fram koma á Glast
onbury-hátíðinni þótt liðsmenn
ætli ekki að sigra heiminn. » 45
tónlist
Skyldi Sjálfstætt fólk II ein-
hvern tímann líta dagsins ljós?
Ingveldur Geirsdóttir skrifar
listapistil dagsins. » 45
af listum
Aðalsmaður vikunnar er Vík-
ingur Heiðar Ólafsson píanó-
leikari. Hann færi sem ljósa-
staur á grímuball. » 47
aðall
Sjötta myndin um hnefaleika-
kappann Rocky er meðal þeirra
mynda sem frumsýndar eru hér
á landi í dag. » 53
kvikmyndir
Eflaust hlakka margir til 21. júlí
næstkomandi en þá kemur sjö-
unda og síðasta bókin um Harry
Potter út í Bretlandi. » 53
fólk
Ný sýningaröð tileinkuðyngri kynslóð listamannahefur göngu sína í Lista-safni Reykjavíkur –
Hafnarhúsi í dag. Vettvangur lista-
mannanna er D-salur Hafnarhússins
og dregur sýningaröðin nafn sitt af
honum. Sýningaröðin er framtíð-
arverkefni safnsins en með henni ætl-
ar Listasafn Reykjavíkur að vekja at-
hygli á efnilegum myndlistarmönnum
sem ekki hafa áður haldið einkasýn-
ingu í stærri söfnum landsins.
Listamennirnir vinna allir ný verk
fyrir salinn og í lok hvers árs verður
sýningunum fylgt eftir með útgáfu
sýningarskrár.
Einhver verður þar
Fyrst til að sýna verk sín í D-
salnum er Birta Guðjónsdóttir og ber
sýning hennar yfirskriftina Einhver
verður þar. Í frétt frá safninu segir að
í innsetningu sinni noti Birta speglun
og tálsýnir til að ögra upplifun áhorf-
andans af tíma og rými, og við biðjum
hana að útskýra það nánar. „Þetta
lýsir frekar því sem ég hef gert áður –
ég hef unnið með speglanir í marg-
víslegum skilningi. Þetta er þema
sem ég hef víkkað út með vísun í
spegla sem eru inni í eldri gerð ljós-
myndavéla – filmuvélum.
Þessi element koma þó líka fyrir í
sýningunni nú. Hún samanstendur af
ljósmyndum og vídeóverkum. Þetta
er innsetning unnin fyrir rýmið; sjálf-
stæð verk sem mynda eina heild,“
segir Birta.
Sjálfsportrettið í formi ljósmynda
hefur lengi verið viðfangsefni lista-
konunnar og á sýningunni eru tvær
ljósmyndir sem vísa í skynjun á rými
og þyngdaraflinu. „Ég nota ýmis trix
sem eru svolítið í ætt við leikhús því
ég hef nokkurn bakgrunn þar.“
Birta segir aðspurð að rétt sé að
staða áhorfandans, upplifun hans og
virkni sé mikið til umræðu í íslenskri
myndlist og alþjóðlegri. „Útgangs-
punkturinn hjá mér er rýmið sjálft.
Það er tilfinningin um að skjanna-
hvítt rými D-salarins fljóti og brengli
rýmisskynjunina sem mig langaði að
magna upp. Það er ákveðin upphafn-
ing, og í ætt við þær sýningar sem ég
hef unnið áður. Það er allur gangur á
því hvernig myndlistarmenn vinna úr
slíkum hugmyndum, en ég leitast við
að skapa rými sem áhorfandinn getur
hvergi annars staðar upplifað sig í.“
Pakkhús postulanna upphafið
Soffía Karlsdóttir, deildarstjóri í
Listasafni Reykjavíkur, segir að það
sé safninu sönn ánægja að geta stutt
við bakið á ungum listamönnum sem
sannarlega séu einbeittir í list sinni
og vilja ná lengra. „Sýningaröð D-
salarins má rekja til þeirra stefnu
sem safnstjórinn Hafþór Yngvason
hefur mótað og með því að leggja
áherslu á að gera samtímamyndlist
hátt undir höfði í Hafnarhúsinu. Þessi
nýbreytni hóf göngu sína með sýning-
unni Pakkhúsi postulanna sem opnuð
var í september á síðasta ári en segja
má að listamenn þeirrar sýningar og
listamenn D-salarins hafi álíkan bak-
grunn, bæði aldurslega, mennt-
unarlega og sýningarlega.“ Soffía
segir það er von Listasafnsins að sýn-
ingin þar verði listamönnunum enn
frekari hvatning til að helga sig
myndlistinni um ókomna tíð. Þeir
sem sýna í D-salar röðinni fram á
haust eru: Geirþrúður Hjörvar, Sig-
urður Guðjónsson, Daníel Karl
Björnsson og Jóhannes Atli Hinriks-
son.
Listamannaspjall á sunnudag
Birta Guðjónsdóttir útskrifaðist
með MA-gráðu frá Rotterdam árið
2004. Sýningarstjóri á sýningu henn-
ar er Ólöf K. Sigurðardóttir. Sýning
Birtu stendur til 18. mars en á sunnu-
daginn kl. 15 bjóða Birta og Ólöf gest-
um í listamannsspjall.
Vill skapa rými sem áhorfandinn
getur hvergi annars staðar upplifað
Listakonan .„Ég nota ýmis trix sem eru svolítið í ætt við leikhús.“ Birta Guðjónsdóttir.
Morgunblaðið/Sverrir
Fljótandi „Þetta er innsetning unnin fyrir rýmið; sjálfstæð verk sem mynda eina heild,“ segir Birta.
Birta Guðjónsdóttir ríður á vaðið í nýrri sýn-
ingaröð Listasafns Reykjavíkur þar sem ungir
listamenn verða kynntir til leiks. Bergþóra Jóns-
dóttir spurði Birtu um speglana hennar og stöðu
áhorfandans í listinni.
TENGLAR
..............................................
www.listasafnreykjavikur.is