Morgunblaðið - 05.02.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.02.2007, Blaðsíða 1
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is IGUANA-EÐLUR, snákar, skjald- bökur og tarantúlur eru meðal þeirra dýra sem ganga kaupum og sölum á íslenskum spjallsíðum tengdum gæludýrahaldi. Öll eru þessi dýr ólögleg hér á landi. „Það er staðreynd að fólk smygl- ar þessum dýrum inn í landið og það er töluvert um þau,“ segir Anna Jóhannesdóttir, dýralæknir hjá dýralæknastofunni Dagfinni dýra- lækni, en nokkuð er um að fólk leiti til stofunnar þegar ólögleg skriðdýr veikjast eða slasast. „Þetta eru ekki bara einhverjir tíu einstaklingar, heldur miklu fleiri.“ Á spjallsíðunum gefa notendur þeirra m.a. ráð um hvaða aðferðir gagnast best við að koma slíkum dýrum fram hjá tolli og innflutn- ingsyfirvöldum. „… nælonsokk og innan á lærið eða annars er örugg- ara að setja undir [...] en þeir leita oft þar líka,“ ráðleggur einn spjall- arinn. Annar segir: „Ég flutti iguana-eðluna mína bara á öxlinni og var bara í víðum jakka utan yf- ir …“ Að sögn lögreglu og Land- búnaðarstofnunar er ekki unnið markvisst að því að hafa uppi á slík- um dýrum. Hins vegar sé brugðist við ábendingum um ólögleg gælu- dýr með því að farga þeim. | 20 Snákar, eðlur og tarantúlur ganga kaupum og sölum STOFNAÐ 1913 . TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is LITIR OG LÍFSGLEÐI HÚN AUÐUR ANDREA ER BJARTSÝN Á LÍFIÐ OG LISTINA ÞRÁTT FYRIR ERFIÐLEIKA >> 20 HVER VILL VERÐA ÞORSKASMALI? HJARÐELDI ÚR VERINU >> 12 Eftir Kristján Torfa Einarsson kte@mbl.is HÖFNIN við álverið í Reyðarfirði verður ein stærsta vöruflutninga- höfn landsins þegar þjónustu- samningur Alcoa Fjarðaáls og Eimskips um alla hafnastarfsemi á svæðinu tekur gildi. Samningurinn verður undirrit- aður af forstjórum félaganna við Reyðarfjarðarhöfn í dag. Forstjóri Alcoa Fjarðaáls segir að gríðarleg- ur útflutningur muni fara um höfn- ina. Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips, segir samninginn koma til með að bæta flutningsþjónustu Eimskips á landsbyggðinni. „Hafnaruppbyggingin verður í okkar höndum en að henni lokinni áætlum við að umsvifin verði álíka mikil og við erum með í Sunda- höfninni í dag.“ Eimskip rekur nú þjónustumiðstöð á Eskifirði en öll starfsemin verður færð til Reyð- arfjarðarhafnar. Um 40 manns starfa hjá Eimskip á Austurlandi í dag en þeim mun fjölga um minnst 30. Stór samningur „Betri aðstaða og þjónusta er grunnur að meiri flutningum og því felst mikill þjónustuauki við lands- byggðina í samningnum. Við mun- um geta nýtt okkur aðstöðuna til að dreifa vörum til og frá Norður- og Austurlandi. Til að mynda er styttra til Akureyrar frá Reyðar- firði heldur en Reykjavík,“ segir Baldur. „Þetta er stór samningur sem kveður á um að Eimskip muni sjá um alla þjónustu og flutninga inn á hafnasvæðinu, en þau munu verða umtalsverð,“ segir Tómas Már Sig- urðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls. „Gríðarlegur útflutningur mun fara um þessa höfn í samanburði við aðrar hafnir í landinu, þegar ál- framleiðslan bætist við fiskafurð- irnar, en Alcoa mun flytja um höfn- ina 1,3 milljónir tonna á ári,“ segir Tómas að endingu. „Gríðarlegur útflutningur mun fara um þessa höfn“  Eimskip semur við Alcoa Fjarðaál um viðamikla flutninga fyrir álverið  Reyðarfjarðarhöfn verður ein stærsta vöruflutningahöfn landsins Í HNOTSKURN » Alcoa Fjarðaál og Eim-skip hafa gert með sér þjónustusamning og mun Eimskip sjá um alla upp- byggingu, þjónustu og flutn- ingastarfsemi á hafnarsvæð- inu við álverið í Reyðarfirði. FRÉTTASKÝRING Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is VERÐ á aflahlutdeild hefur nú tvöfaldazt á um tveimur árum og meira en tífaldazt síðan 1992 þegar sala varanlegra aflaheimilda hófst að ráði. Síðustu samningar um kaup, sem kunnugt er um, eru upp á 2.400 krónur kíló af þorski, en fyrirliggjandi eru sölutilboð upp á 2.700 krónur. Þorskkíló seldist á um 200 krónur árið 1992. Kvótamiðlun LÍÚ hafði fyrir stuttu milli- göngu um sölu á hreinum þorskkvóta og komu 6 eða 7 tilboð í hann. Hæsta tilboðið var 2.400 krónur og heimildir eru um fleiri slík viðskipti með hreinan, óveiddan kvóta. Kaup á varanlegum aflaheimildum hafa und- anfarin ár í flestum tilfellum verið kaup á litlu magni, þar sem smærri aðilar hafa verið að bæta við sig, kannski 5 til 10 tonnum. Í þessum viðskiptum hefur verðið oft verið hátt og leitt til verðhækkunar þegar um stærri viðskipti hefur verið að ræða. Fyrir nokkru var algengt verð á þorskkílóinu 2.200 krónur, en fyrir um tveimur árum var það í kringum 1.000 krónur. Stærri kaupendur eru að bæta stöðu sína, til að auka nýtingu á skipum og hugsanlega til að geta betur stað- ið við samninga um sölu á fiski á erlendum mörkuðum. Nú velta menn því fyrir sér hvort hámarki sé náð, en sú umræða hefur reyndar komið upp oft áður. Ljóst er að fyrir þá sem tiltölulega litlar heimildir hafa er miklu meira út úr því að hafa að selja afla- hlutdeildina en að nýta hana til veiða. Óvissa um framhald fiskveiðistjórnunar, í kjölfar kosninga til Alþingis, getur einnig sett verulegt strik í þennan reikning. Leiguverð í hámarki Svipaða sögu er að segja af leigumark- aðnum. Þar er verð á þorski komið upp í 175 krónur, en svo hátt hefur það aðeins einu sinni farið. Það var í apríl 2002. Í upphafi síð- asta fiskveiðiárs var verðið 120 krónur, var komið í 156 í haust og er nú komið í hámarkið á ný. En framboðið er nánast ekkert, allir virðast vera að veiða sinn kvóta, en eftir- spurn er nokkur. Það er hins vegar ljóst að enginn getur gert að öllu leyti út á kvóta- leigu þegar þarf að byrja á því að borga 175 krónur fyrir óveiddan þorsk. Það eru því helzt þeir sem hafa töluverðar heimildir, en þurfa að bæta smáslöttum við sig til að standa við sölusamninga, sem leigja til sín. Þegar leiguverðið er svona hátt leggjast við- skiptin að miklu leyti af og menn reyna held- ur skipti á tegundum, til að hagræða og geta staðið við samninga. Þetta á til dæmis í mörgum tilfellum við þá sem veiða og vinna fisk sem fer ferskur utan með flugi. Hins vegar er nú þokkalegt framboð á ýsu og ufsa á leigumarkaðnum og verð nokkuð stöðugt. Leiguverð á ýsunni er um 42 krónur og 20 krónur á ufsanum. Hæsta verðið fyrir utan þorskinn er á steinbít, 75 krónur, en þar er ekkert framboð. Þróun mála í smábáta- kerfinu er svipuð. Þar fækkar bátunum, þeir stækka og verða dýrari og þurfa því meira af fiski til að standa undir sér. Því færast afla- heimildirnar af þeim smáu yfir á þá stóru. Verð á afla- heimildum í hámarki ÞAÐ var ekki amalegt að eiga góðan reið- skjóta í góða veðrinu í gær og þessir hesta- menn slepptu ekki tækifærinu. Þeir brugðu sér á bak og létu sólina leika við sig í nágrenni Rauðhóla. Óskandi er að fleiri jafn fallegir vetrardagar láti sjá sig á næstunni. Morgunblaðið/Sverrir Vekringar í vetrarblíðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.