Morgunblaðið - 05.02.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 37
dægradvöl
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5.
Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Be7 8. Df3 Dc7 9. 0–0–0
Rbd7 10. Bd3 h6 11. Bh4 g5 12. fxg5 Re5 13.
De2 Rfg4 14. Rf3 hxg5 15. Bxg5 Bxg5+ 16.
Rxg5 Dc5 17. Rh3 Bd7 18. Kb1 b5 19. Hde1
0–0–0 20. Rd1 Hdg8 21. Dd2 Bc6 22. He2
Kb7 23. a3 Db6 24. Df4 a5 25. Rg5 b4 26.
Rxf7 Hf8 27. Rxd6+ Kc7 28. Rf5 exf5 29.
exf5 He8 30. Hhe1 Dc5 31. h3 Kb6 32. axb4
axb4 33. hxg4 Rxd3 34. cxd3 Hxe2 35. Hxe2
Hh1 36. Dc1 Ba4 37. He6+ Kb5 38. Rc3+
bxc3 39. Dxh1 Df2 40. He5+ Kb4 41. bxc3+
Ka3 42. Dc1+ Kb3 43. Dd1+ Ka3
Þessi óvenjulega staða kom upp í C-
flokki Corus skákhátíðarinnar sem er
nýlokið í Wijk aan Zee í Hollandi.
Sænski stórmeistarinn Emanuel Berg
(2.586) hafði hvítt gegn hollenska stór-
meistaranum Wouter Spoelman
(2.414). 44. He2! Db6+ 45. Ka1 Bc2
hvítur hefði unnið drottninguna til baka
eftir 45. … Bxd1 46. Ha2+ Kb3 47.
Hb2+. 46. Dc1+ og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Enn um tvíspilið.
Norður
♠Á54
♥KG102
♦63
♣KDG7
Vestur Austur
♠KD108 ♠92
♥96 ♥73
♦10872 ♦ÁDG54
♣Á43 ♣9865
Suður
♠G763
♥ÁD854
♦K9
♣102
Suður spilar 4♥ Vestur spilar út
spaðakóng og sagnhafi dúkkar. Á opnu
borði er einfalt að ná þessu niður: Vest-
ur skiptir yfir í tígul í öðrum slag og
austur spilar spaða í gegnum gosann. Í
reynd gæti þetta vafist fyrir bestu spil-
urum, sem eru vanir því að „sýna tvíspil“
í tíma og ótíma. Vestur gæti misskilið
talninguna fyrir kall út á spaðagosann
og spilað spaða áfram með hræðilegum
afleiðingum. Þetta er enn ein staðan þar
sem blöndum á varnarreglum skapar
vanda – það er einfaldlega ekki hægt að
eiga kökuna og éta hana. Hér verður að
liggja ljóst fyrir að spaðafylgja austurs
er kall eða frávísun og hefur ekkert með
lengd hans í litnum að gera. Austur vísar
frá og vestur lætur sér skiljast að spaða-
gosinn er hjá sagnhafa.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 Illmælin, 8
pysjan, 9 einskær, 10
eyktamark, 11 kaka, 13
ákveð, 15 fugl, 18 úr-
þvættis, 21 hestur, 22
skrifa, 23 klaufdýr, 24
uppástunguna.
Lóðrétt | 2 melrakki, 3
þekkja, 4 úldna, 5 angan,
6 afkimi, 7 andvari, 12
guð, 14 skip, 15 lítilsvirt,
16 þátttakandi, 17 af-
réttur, 18 óveður, 19
lykt, 20 harmur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hlíta, 4 tefja, 7 álkan, 8 nótum, 9 agn, 11 port,
13 iður, 14 efinn, 15 rugl, 17 nekt, 20 hal, 22 mögla, 23
æmtir, 14 apans, 25 tærir.
Lóðrétt: 1 hjálp, 2 ískur, 3 Anna, 4 tonn, 5 fátið, 6 aumar,
10 geisa, 12 tel, 13 inn, 15 rimma, 16 gagna, 18 eitur, 19
tórir, 20 hass, 21 lært.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 Umdeildur dómur var kveðinnupp í Hæstarétti í kynferð-
isafbrotamáli gagnvart ungum stúlk-
um. Eingöngu karldómarar skipuðu
dóminn en tvær konur sitja einnig í
Hæstarétti. Hverjar eru þær.
2 Félagsmenn í umhverf-issamtökum hittust í vikunni
sem leið til að ræða hugsanlegt
þingframboð. Hvað nefnast sam-
tökin?
3 Útgáfuréttur á bók Yrsu Sigurð-ardóttur, Þriðja tákninu, hefur
verið seldur til enn eins landsins.
Hvaða land er það?
4 Chelsea hefur neitað að hafa áttí viðræðum við ítalskan þjálfara
um að taka við liðinu af Jose Mour-
inho. Hvaða þálfara er um að ræða?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Safni verður komið á fót í nafni Heiðars
Jóhannssonar á Akureyri sem fórst af
slysförum í fyrrasumar. Hvers konar safn
verður þetta? Svar: Vélhjólasafn. 2. Ið-
anaðarmannafélag Reykjavíkur á stór-
afmæli um þessar mundir. Hversu gamalt
er félagið? Svar: 140 ára. 3. Hvað er talið
að margir Danir hafi horft á landsleikinn
við Íslendinga. Svar: Tvær milljónir. 4. Ís-
lenskri hljómsveit hefur verið boðið að
leika á Glastonbury-tónlistarhátíðinni.
Hver er það? Svar: Trabant.
Spurt er …
ritstjorn@mbl.is
ÆVINTÝRAHEIMUR norðursins
fyllti Grafíksafn Íslands í mynd-
verkum Sigrid Østerby. Sigrid
sýndi grafík unna á ýmsa vegu, tré-
ristur, þurrnál, messotintur og ak-
rýlmyndir. Myndefni hennar á sýn-
ingunni á að mestu leyti rætur
sínar að rekja til ferða listakon-
unnar um Samabyggðir. Þegar inn
kemur eru það myndir af samískum
galdratrommum sem mæta áhorf-
andanum, þar sem sjá má fornar
rúnir sem Samarnir máluðu á
trommur sínar. Við taka akrýlverk
sem birta táknheim rúnanna og
fjölkynngikonur í skógi sínum. Litl-
ar dýramyndir og stórar tréristur
af eyrnamörkum hreindýra og
óhlutbundnari myndir undir titl-
unum Hreindýr og Tvennir tímar.
Lítill fífill, ef til vill af íslenskum
uppruna, lokar þessum myndhring,
ef svo má kalla, sem Sigrid sýnir.
Táknheimur rúnanna og birting-
armyndir þeirra á myndfleti Sigrid
minna að hluta til á það þegar lista-
menn hafa sótt í aðra menningar-
heima að myndefni og myndmáli,
hvort sem það eru svokallaðir
frumstæðir myndheimar framandi
þjóða eins og sjá má td. í verkum
Picasso eða í bernsku myndmáli
Cobra-málara eins og Alechinsky.
Sigrid leitast þó líklega meira við
að skoða rúnirnar sem slíkar og
velta fyrir sér myndrænum eig-
inleikum þeirra í samtímanum,
frekar en að hún hallist að frelsandi
áhrifum þeirra sem myndmáls líkt
og Cobra-listamennirnir gerðu. Þó
er ekki hægt að líta fram hjá þeim
galdri sem þessar fornu og að
nokkru leyti óútskýrðu rúnir búa
yfir, en Sigrid sækir bæði til svo-
kallaðra hellarista sem fundist hafa
á norðurslóðum Norðurlanda og
eru frá 3–2000 fyrir Krist, og til
galdrarúna. Hellaristurnar sýna
bæði dýr og manneskjur og tengj-
ast líklega veiðum. Galdrarúnirnar
sem samískir seiðmenn mála á
trommur sínar eru heillandi, merk-
ing þeirra er ekki augljós en engu
að síður bera þær með sér eitthvað
af þeim krafti sem seiðmennirnir
virkjuðu með trommuslætti sínum.
Sigrid skoðar myndefni sitt og
möguleika þess út frá myndlistinni,
þannig verða eyrnamörk hreindýra
að mótífi sem túlka má abstrakt
sem samspil forma og lita. Skóg-
arnornir eru leikur að lifandi línum
og lýsandi birtu norræns skógar.
Listakonan hefur gott vald á mis-
munandi vinnuaðferðum innan graf-
íklistarinnar eins og sýningin ber
vitni og notfærir sér kunnáttu sína
af öryggi, þannig er vinnuaðferðin
jafnan í góðu samræmi við mynd-
efnið, lítill fífill birtist með hjálp
fínlegrar messotintu en rúnatákn
með bernsku yfirbragði lifna við í
sterkum litum akrýlverka.
Sýning Sigrid var hógvær en vel
unnin, heiðarlegur afrakstur sjón-
rænnar upplifunar á norðurslóðum.
Myndmál tveggja heima
MYNDLIST
Grafíksafnið
Sýningu lauk 3. febrúar.
Sigrid Østerby
Ragna Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Sverrir
Hógvær „Sýning Sigrid var hógvær
en vel unnin, heiðarlegur afrakstur
sjónrænnar upplifunar á norð-
urslóðum.“
Afhending bresku tónlistarverð-launanna, BRIT, fer fram hinn
14. febrúar næstkomandi.
Nú hefur verið tilkynnt að Bítillinn
fyrrverandi, Ringo Starr, komi til
með að veita hljómsveitinni Oasis
heiðursverðlaun á hátíðinni fyrir
framlag hennar til tónlistarsögunnar.
Upphaflega stóð til að leikarinn Jo-
hnny Depp veitti verðlaunin en vegna
anna við kvikmyndaleik sá hann sér
ekki fært að mæta til hátíðarinnar.
Það vita kannski ekki margir að
Johnny Depp lék á gítar með Oasis í
laginu „Fade In/Out“ á plötunni Be
Here Now frá árinu 1997.
Þeir Gallagher-bræður eru að sögn
hæstánægðir með skiptin en þeir
hafa verið ósparir á lof til Bítlanna
gegnum árin.
Fólk folk@mbl.is