Morgunblaðið - 05.02.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.02.2007, Blaðsíða 17
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 17 KONUR draga enn þá vagninn þegar kemur að daglegum innkaupum, að sækja börn og eldamennsku – jafnvel þótt báðir foreldrar séu útivinnandi. Þetta kemur fram í nýrri könnun HK/ Privat sem Berlingske Tidende greinir frá. Dagleg verkefni á heimilinu auk 37 stunda vinnuviku gera það að verkum að konur vinna auðveldlega 60 tíma á viku, séu heimilisstörfin tekin með. Í könnun sem stéttarfélagið HK/Privat gerði með- al félagsmanna sinna kom fram að kon- Konur strita meira heima við urnar eyddu tveimur til fjórum tímum daglega í að skutla og sækja, elda mat og kaupa inn. Einn yfirmanna HK/Privat, Carlo Søndergaard bendir á að þannig sinni konur í raun tvöfaldri vinnu. „Konur bera meiri byrðar á heimilinu,“ segir hann. „Í raun vinna þær mun meira en hefðbundnar kannanir hafa sýnt fram á. Það er nauðsynlegt að beina athyglinni að þessu vandamáli því margir finna raunverulega fyrir því á sínu skinni í daglegu lífi.“ Nýjasta fatatíska og um-hverfisvitund virðistfljótt á litið eiga litlasamleið, þegar litið er til þeirra aðferða sem notaðar eru við að framleiða og lita efnin í fatnaðinn. Nokkrir brasilískir hönnuðir eru þó á öðru máli. Á tískuvikunni í Sao Paulo á dög- unum sýndu þeir nokkra glæsi- kjóla úr lífrænni bómull sem framleidd er án skordýraeiturs og úr efnum framleiddum úr endur- unnum flöskum. Flöskurnar eru einnig notaðar í fyllingar fyrir bólstruð efni, bindi og boðunga að því er fram kemur í frétt frá Reuters. Þar fyrir utan er jákvætt að söfnun flasknanna skapar vinnu fyrir þúsundir fá- tækra brasilískra fjölskyldna. Einn af helstu tískuspekingum Brasilíu, Gloria Kalil telur um- hverfisvæn fataefni eiga eftir að marka stórar breytingar í tísku- heiminum. „Hér eftir verður iðn- aðurinn að taka tillit til umhverf- isins. Hver á eftir að vilja kaupa hluti sem eru skaðlegir jörðinni?“ spyr hún. Þá er bent á að Netið sé nú þegar öflugt tæki fyrir neytendur til að kanna hvort fatn- aðurinn sem þeir klæðast sé úr efnum sem skaða umhverfið eða búinn til í þrælavinnu. Hefðbundin bómullarræktun sérlega skaðleg umhverfinu Framleiðsla umhverfisvænna fataefna er allt að 20% dýrari en hefðbundin fataefnaframleiðsla. Hins vegar er bent á að hefð- bundin bómullarræktun sé sérlega skaðleg umhverfinu vegna þess hversu mikið skordýraeitur er notað við hana. Eitrið drepur ekki einungis þau sníkjudýr sem herja á bómullarakrana heldur einnig fiðrildi og fugla auk þess sem það mengar grunnvatn. Raquel Davidowicz, hönnuður tískuhússins UMA, hannaði í ár sína fyrstu tískulínu sem gerð er úr lífrænni bómull og bamb- ustrefjum. „Við vorum að leita að nýjum efnum og völdum þessi ein- mitt vegna þess að þau eru ekki skaðleg náttúrunni, jafnvel þótt við vitum að þau eru erfiðari í sölu,“ segir hún. Sérfræðingar telja að það geti tekið fimm ár áður en almenn- ingur telur sjálfsagt að borga meira fyrir fatnað framleiddan úr umhverfisvænum efnum en ann- an. Flott Tískuhúsið UMA kynnti nýlega fatalínu úr lífrænni bómull og bambustrefjum. Umhverfis- væn tíska Umhverfisvænt Endurunnar flöskur voru meðal þess sem notað var í efnin í þessum kjól sem stillt var fram á gínu á tískuvikunni í Sao Paulo. Reuters E N N E M M / S ÍA / N M 2 5 8 12 Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00 Krómgrind á mynd er ekki innifalin í verði á Adventure. Umboðsmenn um land allt Njarðvík 421 8808 Akranesi 431 1376 Höfn í Hornafirði 478 1990 Reyðarfirði 474 1453 Akureyri 464 7940 Nissan X-Trail Adventure er ekki bara hentugur fyrir íslenskar aðstæður heldur sérhannaður fyrir þær og fæst hvergi nema á Íslandi. Um er að ræða breyttan X-Trail með upphækkun, 29" dekkjum, bakkvörn, stigbretti og krók. X-Trail Adventure er kröftugur og sérstakur jeppi sem sýnir frábæra frammistöðu við hvaða aðstæður sem er. Stíllinn snýst ekki aðeins um glæsilegt útlit heldur kraft, öryggi og lipurð. Hönnun fram- og afturenda bílsins er miðuð við að akstur í torfærum, grjóti og snjó verði auðveldari og að þú sjáir öll fjögur hornin úr ökumannssætinu og getir stjórnað og lagt X-Trail af öryggi. Ríkulegur staðalbúnaður og frábærar breytingar frá Arctic Trucks gera þennan jeppa að sannkallaðri kjöreign. Komdu og reynsluaktu Nissan X-Trail Adventure, hann er ævintýri á hjólum! NÁTTÚRULEGHÆFNI MEÐÆTTARNAFN Nissan X-Trail Adventure Séríslensk útgáfa NISSAN X-TRAIL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.