Morgunblaðið - 05.02.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 33
úr vesturheimi
ÍSLENDINGAFÉLAGIÐ í Ot-
tawa, Friends of Iceland eða Ís-
landsvinir, er yngsta félagið innan
Þjóðræknisfélags Íslendinga í
Norður-Ameríku, en það verður
fimm ára í mars.
Gerry Einarsson var helsta drif-
fjöðurin á bak við endurreisn fé-
lagsins sem var starfrækt í höf-
uðborginni fyrir meira en 20 árum
og lognaðist út af þegar Bjarni
Guðlaugsson flutti aftur til Íslands.
Eftir endurreisnina hefur verið
mikill kraftur í félaginu og segir
Lou Howard, forseti þess, að nýlið-
ið starfsár hafi verið sérstaklega
viðburðaríkt. „Það hefur verið
kraftur í þessu hjá okkur,“ segir
hann, en um 40 manns mættu á að-
alfund félagsins á dögunum og 80
manns sáu myndina Atómstöðina í
Ottawa í desember og þáðu jóla-
glögg í boði sendiherrahjónanna á
eftir. Þá voru um 190 manns við-
staddir athöfn sem Sendiráð Ís-
lands í Ottawa og Íslandsvinir
efndu til í október sl. til heiðurs
fyrrverandi hermönnum í lið-
sveitum Kanadahers, er aðsetur
höfðu á Íslandi í síðari heimsstyrj-
öldinni, en við sama tækifæri var
minnst hermanna af íslenskum ætt-
um, sem þátt tóku í heimsstyrjöld-
unum undir merkjum Kanada, og
kanadískra sjóliða af tundurspill-
inum HMCS Skeena, sem fórust
þegar skipið strandaði við Viðey í
október 1944.
Lou segir að sendiherrahjónin
Markús Örn Antonsson og Stein-
unn Ármannsdóttir hafi tekið virk-
an þátt í starfseminni og hafi það
ýtt undir félagsmenn, en aðal-
fundur félagsins fór fram á heimili
þeirra í liðinni viku. Í félaginu eru
um 60 fjölskyldur eða um 190
manns. Á stjórnarfundi um næstu
helgi tekur Völundur Þorbjörnsson
við formannsembættinu en Lou og
Gerry Einarsson starfa áfram í
stjórn sem fyrrverandi formenn.
„Þannig getum við best miðlað af
reynslunni innan stjórnarinnar,“
segir Lou, en framundan er þorra-
blót og síðan tekur hver viðburð-
urinn við af öðrum.
Íslandsvinir Sendiherrahjónin ásamt stjórnarmönnum. Aftari röð frá vinstri: Roger Eyvindson, Sigurdur Sig-
urdson, Judith Hoye og Edith Pahlke. Fremri röð frá vinstri: Markús Örn Antonsson, Gerry Einarsson, Steinunn
Ármannsdóttir, Lou Howard, Völundur Þorbjörnsson og David Anido.
Íslandsvinir sterkir í Ottawa
Yngsta félagið innan Þjóðræknisfélags
Íslendinga í Norður-Ameríku
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
ERIC Stefanson í Winnipeg hefur
tekið sæti í stjórn kanadísku járn-
brautanna, VIA Rail Canada INC.,
og er sennilega fyrsti Kanadamað-
urinn af íslenskum ættum til að sitja
í stjórn félagsins.
Miklir vöruflutningar fara fram
með járnbrautunum stranda á milli
og þær eru vinsælt samgöngutæki
en 2005 ferðuðust meira en fjórar
milljónir farþega með þeim í Kan-
ada. „Þetta er spennandi verkefni og
ég hlakka til að takast á við það,“
segir Eric Stefanson við Morgun-
blaðið. „Járnbrautirnar hafa gegnt
veigamiklu hlutverki í sögu þjóðar-
innar og tengja framtíðina við fortíð-
ina.“
Atkvæðamikill í stjórnmálum
Fyrir aldarfjórðungi hóf Eric
Stefanson opinber afskipti af stjórn-
málum en hann sat í borgarstjórn
Winnipeg 1982 til 1989 og var m.a.
aðstoðarborgarstjóri 1986 til 1988.
Hann var þingmaður Manitoba 1990
til 2000 og gegndi þá m.a. stöðu heil-
brigðisráðherra, aðstoðarforsætis-
ráðherra, fjármálaráðherra og iðn-
aðar-, viðskipta- og ferðamálaráð-
herra.
Ásamt öðrum rak hann endur-
skoðunarfyrirtækið Stefanson and
Lee 1978 til 1990 og gekk til liðs við
ráðgjafarfyrirtækið Assante Canada
1999 þar sem hann varð fram-
kvæmdastjóri. Fyrir nokkrum árum
seldi hann hlut sinn í fyrirtækinu og
sér nú ásamt öðrum um starfsemi fé-
lagsins BDO Dunwoody í Mið-Kan-
ada, en félagið er sjötta stærsta end-
urskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki
Kanada.
Eric Stefanson hefur eins og
bræður hans Kristján, Dennis og
Tom haldið góðu sambandi við Ís-
lendinga og lagt sitt af mörkum
varðandi tengsl Íslands við íslenska
samfélagið vestra. Eric er t.d. í
stjórn Þjóðræknisfélagsins og
Snorra West-verkefnisins í Mani-
toba og hann var sæmdur hinni ís-
lensku fálkaorðu 2000. Hann var í
fylgdarliði Gary Doers, forsætisráð-
herra Manitoba, sem kom í opinbera
heimsókn til Íslands í ágúst á liðnu
ári.
Morgunblaðið/Steinþór
Tenging Bræðurnir Eric, Kris og Tom (lengst til hægri) frá Winnipeg halda
góðu sambandi við Ísland og eru hér með forsætisráðherrahjónunum Geir
H. Haarde og Ingu Jónu Þórðardóttur.
Eric Stefanson
í stjórn járn-
brautanna
FJÁRÖFLUN til að tryggja til
lengri tíma útgáfu blaðsins Lög-
bergs-Heimskringlu í Winnipeg hef-
ur gengið vel. Dr. Ken Thorlakson,
formaður fjáröflunarnefndarinnar,
segir að rúmlega milljón dollarar
hafi safnast og því vanti tæplega
hálfa milljón dollara, um 30 millj-
ónir króna, til að ná settu marki.
Blaðaútgáfa hefur verið ríkur
þáttur í íslenska samfélaginu í
Manitoba frá því fyrstu Íslending-
arnir settust þar að haustið 1875.
Hún hefur samt alla tíð verið erfið
og oft hefur hún verið við það að
líða undir lok en jafnoft hafa menn
brugðist við og bjargað henni fyrir
horn.
Vantar 30 milljónir
Núverandi fjáröflun vegna Lög-
bergs-Heimskringlu hófst með und-
irbúningsvinnu snemma árs 2004 og
söfnunin fór síðan opinberlega af
stað 17. júní 2005. Takmarkið er að
safna 1,5 milljónum kanadískra
dollara, um 90 milljónum króna,
fyrir 17. júní í ár, en þá lýkur söfn-
uninni. „Ég er ánægður með árang-
urinn til þessa en mikil vinna er
framundan til að reyna að ná settu
marki og við þurfum á allri mögu-
legri aðstoð að halda,“ segir Ken
Thorlakson.
Í upphafi voru sett þrjú markmið.
Í fyrsta lagi að gera blaðið eða öllu
heldur blöðin Lögberg, Heims-
kringlu og Lögberg-Heimskringlu
aðgengileg á Netinu. Ríkisstjórn Ís-
lands gekk í málið og Gaza-
myndastofa Landsbókasafnsins
setti blöðin á stafrænt form og á
Netið haustið 2005. Í öðru lagi
þurfti að endurbæta tækjakost
blaðsins, tölvur og fleira, og hefur
söfnunin gert það kleift. Í
þriðja lagi var markmiðið
að safna í sjóð og reka blað-
ið fyrir vextina. Í þennan
sjóð hafa nú safnast um 325
þúsund dollarar.
Útgáfa í meira en 130 ár
Ken Thorlakson segir að
meira en 400 manns, fyr-
irtæki, stofnanir og félög í
Bandaríkjunum, Kanada og
á Íslandi hafi lagt málinu
lið. „Hvert einasta framlag
skiptir máli og söfnunin
hefur þegar skilað miklum
árangri en herslumuninn
vantar,“ segir Ken.
Auk ríkisstjórnar Íslands
hafa Donald K. Johnson,
Gordon Reykdal og Irene
Eggertson gefið meira en
100.000 dollara í söfnunina
en Gordon Reykdal hefur
auk þess tryggt blaðinu
frítt húsnæði til 2009.
Heimskringla var stofn-
uð 1886 og Lögberg 1888 en blöðin
voru sameinuð 1959. Ken Thorlak-
son segir að blaðið gegni veiga-
miklu hlutverki í íslenska samfélag-
inu vestra, „og náum við settu
marki tryggjum við útgáfu þess í
framtíðinni.“
Hafa safnað um 60
milljónum króna
Morgunblaðið/Steinþór
Söfnun Dr. Ken Thorlakson með kynning-
arbækling vegna átaksins.
Meira en 400 manns, fyrirtæki, stofnanir og félög hafa
styrkt útgáfu blaðsins Lögberg-Heimskringla
ÞJÓÐRÆKNISÞING Þjóðrækn-
isfélags Íslendinga í Norður-
Ameríku verður haldið í Winnipeg í
Kanada 27.–29. apríl nk. og hafa
Vesturferðir sf. í samvinnu við
Þjóðræknisfélag Íslendinga skipu-
lagt ferð vestur í tengslum við
þingið.
Hópferðin hefst 20. apríl með
flugi til Minneapolis en þaðan verð-
ur ekið um Íslendingabyggðir í
Norður-Dakota og síðan farið um
Nýja Ísland í Manitoba.
Hópurinn verður í Winnipeg 25.–
29. apríl og gefst þátttakendum þá
kostur á að sækja Þjóðrækn-
isþingið. Síðan verður ekið til Min-
neapolis og flogið heim 1. maí.
Skipulögð ferð
á Þjóðræknisþingið