Morgunblaðið - 05.02.2007, Síða 8

Morgunblaðið - 05.02.2007, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Lögmaður Færeyinga velti upp hugsanlegum vöruskiptum ef olía fyndist við eyjar. VEÐUR Það eru mikil umbrot í pólitíkinnium þessar mundir – meiri en fyrirfram mátti búast við. Óróleik- inn í kringum Frjálslynda flokkinn getur haft áhrif, jafnvel þótt sá flokkur yrði illa úti.     Margrét Sverrisdóttir hefur til-kynnt að til sé að verða ný stjórnmálahreyfing hægra megin við miðju. Það mun vekja at- hygli enda hafa margir lengi talið að Margrét mundi halla sér á vinstri hliðina.     Þetta þýðir hinsvegar að það eru að verða býsna margir sem sækjast eftir atkvæðum hægra megin við miðju. Það hefur alltaf verið aðal vettvangur Sjálfstæð- isflokksins. Frjálslyndi flokkur Sverris Hermannssonar sótti á þau mið og náði að festa sig í sessi.     Nú er ýmislegt sem bendir til aðþað sem eftir er af þeim flokki í höndum annarra manna sækist eftir fylgi til hægri við Sjálfstæðisflokk- inn. Það hefur ekki gerzt í 55 ár.     En að vísu benda skoðanakann-anir til að Frjálslyndi flokk- urinn með ógeðfellda stefnu í mál- efnum innflytjenda sæki fylgi frekar til vinstri.     Vinstri armur Framsóknarflokks-ins virðist horfinn og ekki ólík- legt að Framsóknarflokkur Jóns Sigurðssonar sækist eftir sama kjósendafylgi og Sjálfstæðisflokk- urinn.     Ef Margrét Sverrisdóttir bætistvið fer að verða þröngt á þingi.     Þetta getur orðið varasamt fyrirSjálfstæðisflokkinn STAKSTEINAR Margrét Sverrisdóttir Umbrot SIGMUND                      !  "#   $ %&  ' (                              )'  *  +, -  % . /    * ,                ! "# $             !#  01     0  2   3 1, 1  ) ,  4  0  $ 5 '67 8 3 #  '      $         $  $  "       9  )#:;                           !      "   )  ## : )   % &  '#  & #     "# $ (" <1  <  <1  <  <1  % #'  )  * +,!"-   =7 , >         <   76  ."  !   !#    /** %!. 0    1 !#"  2 "1$! !  &  "" !& " (*      ." !#  "" (*  .   '  & *"0 #  ($"#! "   # "3$ #  &   5  1  ." #+ %4 0   '&  5& %!. (*  0   -   # "6!    0 # *  1 &    7/ "88 "#$4 " !$")  * 2&34 ?3 ?)<4@AB )C-.B<4@AB +4D/C (-B  0 0                    0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0            Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Sigmar Guðmundsson | 4. febrúar Heiða og Gunni sigra Af þeim lögum sem flutt voru í und- ankeppninni í ár og í fyrra eru skuggalega fá frambærileg. Þegar kannski fimm lög af 48 eru boðleg á þessum tveimur árum er eitthvað mikið að. Af hverju taka ekki fleiri góðir laga- smiðir þátt í þessari keppni? […] Ef eitthvert réttlæti er í þessum heimi sigra doktor Gunni og Heiða í þessari undankeppni. Lagið þeirra ber af í ár að mínu mati. Meira: http://sigmarg.blog.is/ Kristján B. Jónasson | 4. febrúar Bókalager skilað Nú er liðinn opinber skilafrestur bóksala á jólabókum til útgefenda. Menn sjá því þessa dag- ana svart á hvítu hvað þeir seldu í raun og veru. [...] Óforvarindis dúkkar upp heill bókalager sem legið hefur undir bekk einhvers staðar í af- skekktri búð í Samkaupa-samstæð- unni. Einhver verslunarstjóri pantaði óvart 150 eintök í staðinn fyrir 50 ein- tök. Þetta kemur allt í hausinn á útgef- andanum aftur og er oftast tapað fé. Meira: Meira: http://kristjanb.blog.is. Stefán Friðrik Stefánsson | 4. febrúar Góð tíðindi og vond Það eru því góð tíðindi og vond í könnuninni. Þau góðu að fylgið á landsbyggðinni eykst en hin vondu að fólkið í baráttusætum á höf- uðborgarsvæðinu er ekki inni. Ef ég þekki félaga mína fyrir sunnan rétt efast ég um að þeir séu sáttir við fjóra inn í báðum kjördæmum borgarinnar og fimm í Kraganum. Á heildina litið finnst mér gott auðvitað að fylgi flokksins sé yfir fylginu fyrir fjórum árum. Meira: Meira: http://stebbifr.blog.is/ Dofri Hermannsson | 4. febrúar Sjálfstæðisflokkurinn stikkfrí? Fjölmiðlar hafa nú krafið umhverf- isráðherra um stefnu í loftslagsmálum. Hún mun vera í smíðum. Vonandi er það rétt og vonandi gengur hún ekki út á reiknibrellur til að hægt sé að fara út í alla þá stóriðju sem nú er í bígerð. Umhverfisráðherra svaraði reyndar á afar undarlegan hátt þeg- ar hún var spurð út í þetta atriði í fréttum í gær. Hún vildi meina að ef stóriðjan færi fram úr heimildum Ís- lands yrðu álfyrirtækin bara að koma með kvóta með sér. Ég hef frétt að Valgerður Sverrisdóttir hafi sagt það sama á kosningafundi vegna prófkjörs í Þingeyjarsýslu í síðasta mánuði. Ég hef engan sérfræðing heyrt eða hitt sem telur að þetta sé mögu- legt. Kvóti skv. Kyoto er eign þjóð- ríkjanna en ekki alþjóðlegra auð- hringa s.s. Alcoa. Þannig er t.d. íslenska ákvæðið sem heimilaði auk- inn útblástur vegna stóriðju ekki framseljanlegur á nokkurn hátt. Ólíklegt er að annað gildi um önnur ríki. Þetta er ódýr brella stjórnvalda til að breiða yfir þá staðreynd að þau hafa skapað stóriðju og orkufyr- irtækjum sjálftökurétt hvað varðar virkjanir og losun gróðurhúsa- lofttegunda. Stjórnvöld hafa enga stjórn á því hvort Ísland fer fram úr Kyoto-heimildunum eða ekki. Kjósi Hafnfirðingar að stækka ál- verið í Straumsvík eru heimildir Ís- lands meira en fullnýttar. Taka þarf af almenningskvótanum til að stækkunin rúmist innan Kyoto. Allt umfram það setur Ísland í skamm- arlega stöðu gagnvart alþjóða- samfélaginu. Nú þegar búið er að kreista þetta skrýtna og ótrúverðuga svar upp úr umhverfisráðherra væri gaman að fá að heyra afstöðu sjálfstæð- ismanna. Af hverju þegja þeir þunnu hljóði um hlýnun loftslags og skýrslu Sam- einuðu þjóðanna? Er það af því lína sjálfstæðismanna, ættuð frá Bush, AEI og ExxonMobile hefur verið af- hjúpuð og afsönnuð? Standa þeir kannski bara stikkfrí í þessu eins og öðru? Meira: Meira: http://dofri.blog.is/ BLOG.IS ÁSTÆÐA er til að fagna lækkun matarverðs um 8,7% sem vænt- anleg er miðað við útreikninga Hagstofunnar, að sögn Sigurðar Jónssonar, fram- kvæmdastjóra Samtaka verslun- ar og þjónustu (SVÞ). Hann segir þó mikilvægt að fólk gefi því gaum að ekki muni allt úr út búð lækka í verði 1. mars þegar aðgerðir stjórn- valda til lækkunar á matvöruverði koma til framkvæmda, en þær fela m.a. í sér lækkun virðisaukaskatts af matvælum úr 14% í 7%. Sigurður segir að skoða þurfi hver sé uppruni þeirra vara sem seldar eru í matvöruverslunum hér á landi en þar séu um 45% landbún- aðarvara, 25% önnur innlend fram- leiðsla og 30% innflutt vara, á borð við hreinlætis- og snyrtivörur, tann- krem, þvottaefni og fleira. Þessar vörur muni áfram hafa 24,5% virð- isaukaskatt og því muni breyting- arnar 1. mars ekki hafa áhrif á þær. Líklegt sé að margir átti sig ekki á þessu og telji að allt út úr búð muni lækka, að sögn Sigurðar. Þá eigi vörugjöld að lækka 1. mars um 1,3%. Sú lækkun muni þó ekki skila sér til neytenda strax heldur komi fram á 4–6 vikum eftir því sem nýjar vörur koma inn í verslanir. Fólk eigi því fyrst og fremst eftir að verða vart við breytinguna á virð- isaukaskatti. Um viðbótarkvóta á innfluttum landbúnaðarvörum, sem boðaðir hafa verið, segir Sigurður að nánari útfærsla á þessu hafi ekki verið kynnt. Hann bendir jafnframt á að enn sé eftir að bjóða upp þessa kvóta. Það verði gert í mars og í júní og enn viti menn ekki á hvaða verði þeir fari. Hann bendir á að í skýrslu hag- stofustjóra frá í fyrra segi að ef toll- vernd af búvörum yrði afnumin með öllu þýddi það 15,6% lækkun á mat- vörum. Hagstofan hafi ótvírætt bent á að fella þurfi niður tollverndina því að hún haldi uppi háu verðlagi á landbúnaðarvörum, en þær séu um 45% þess sem seljist út úr búð. Ekki lækka all- ar vörur 1. mars Sigurður Jónsson Breytingar hafa ekki áhrif á verð á innfluttum snyrti- og hreinlætisvörum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.