Morgunblaðið - 05.02.2007, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.02.2007, Blaðsíða 32
Hann var að mestu leyti góður tónninn sem gefinn var á afhendingu Íslensku tónlist- arverðlaunanna í Borgarleikhúsinu þegar músíklandsliðið okkar var heiðrað. En þótt sviðsmyndin hafi verið glæsileg var eitthvað hálfhjákátlegt við glamúrus Hollywood- stemninguna. Íslendingar verða svo sveitó í glimmerumhverfi … Tilnefndir tónlistarmenn sátu alltof langt frá sviðinu og var vandræða- legt að sjá þá mjaka sér framhjá öllum gest- unum á þéttsetnum bekkjunum og upp að svið- inu. Bubbi og frú sátu t.d. fyrir miðjum 5. bekk en kóngurinn átti að sjálfsögðu langbestu þakkarræðuna: ,,Mér hefur alltaf fundist ég góður söngvari. Alltaf.“ Að öðrum ólöstuðum var það snillingskrúttið Lay Low sem átti hug og hjörtu allra; auðkýf- inga, listamanna og ,,wannabe-liðsins“ og þeg- ar hún spilaði sálartónlist sína af einlægni fóru straumar hlýju og bjartsýni um salinn. Að mati Flugu var Einar Valur Scheving trommuleik- ari og verðlaunahafi kynþokkafyllstur allra karla á svæðinu, ferlega flottur og ,,fitt“ í smóking. Meðal áhorfenda í þessu allsherjar bransapartíi voru Rúnar Júlíuson í rokkleð- urjakkanum og Andrés Helgason í Tónastöð- inni og tískumeðvitaða parið Reynir Lyngdal leikstjóri og leikkonan Elma Lísa Gunn- arsdóttir, sem bæði skörtuðu fjólubláu. Alls kyns klæðnaður var í gangi; margt smart en annað ekki eins og til dæmis lúðalegar lopa- peysur sem eru löngu orðnar ,,out“ og dap- urleg dúnvesti. Inni á milli tískuslysa leyndust þó gæjalegir strákar í svörtum gallabuxum, vel gyrtir og greiddir og meira að segja Bagga- lútsmenn voru í sparijakkafötum og hvítum skyrtum. Söngkonan Hafdís Huld Þrastar- dóttir tiplaði svo á svið til að taka á móti verð- launum sínum í hvítum hnésokkum og barna- legum bleikum kjól með hvítan linda um sig miðja. Er ekki annars búið að ferma hana? … Gegnsær ráðherra … Þá var Valgerður Sverrisdóttir utanrík- isráðherra þvílík skutla þegar hún kynnti verð- laun í flokki rokks og jaðartónlistar, í kræfum svörtum blúndukjól sem var gegnsær að hluta. Go Valgerður! Birta Guðjónsdóttir reið á vaðið í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á verkum yngri kyn- slóðar myndlistarmanna á föstudaginn með sýningunni ,,Einhver verður þar“ en samtímis var opnuð sýning á 100 vatnslitamyndum Er- rós. Allir sem telja sig til listunnenda voru mættir og þar af margir af Frakklandsmenn- ingarmýtuskólanum; Sigurður Pálsson skáld, Kristín Jóhannesdóttir kvikmyndagerðarkona og Sveinn Einarsson menningarmógúll. Einn- ig voru á sveimi stöllurnar Signý Pálsdóttir og Svanhildur Konráðsdóttir hjá menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar. Flugu til mikillar ánægju bættist nýr karakter í opn- unarelítuna en sjálfur Bobby Fischer var mættur – að skoða ,,mannganginn“ á safninu eins og fröken Fluga … | flugan@mbl.is Ljósmyndir/Eggert Þorgeir Guðmundsson, Sigurjón Kjart- ansson, Ólafur Páll Gunnarsson og Guðni Finnsson. Rúnar Júlíusson, Baldur Baldursson og María Baldursdóttir. Haraldur Jónsson, Hólmfríður Matthíasdóttir og Bragi Ólafsson. Benedikt Freyr Jónsson og Barði Jóhannsson. Morgunblaðið/Eggert Óskar Einarsson, Vigdís Rún Jónsdóttir og Einar Scheving. Páll Eyjólfsson, Bubbi Morthens og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir. Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Helgi Rúnar Gunnarsson og Atli Fannar Bjarkarson. Óskar Kemp, Thelma Huld Þrastardóttir, Hafdís Huld Þrastardóttir og Alistair Wright. Samúel Jón Samúelsson og Kristín Bergsdóttir. flugan … Lúðalegar lopapeysur og dapurleg dúnvesti … Íslendingar verða svo sveitó í glimmerumhverfi Ester Talía, Eyja Ólafsdóttir og Birta Guðjónsdóttir. Sara Björnsdóttir, Kristján Björn Þórðarson, Finn- ur Arnar Arnarsson og Hallgerður Thorlasíus. Hafþór Ingvarsson, Guðrún Ingvadóttir og Jón Bjarni Þorsteinsson. Morgunblaðið/Eggert Ester Þorvaldsdóttir, Hrafnkell Örn Guðjónsson, Guðjón Ketilsson og Gabríela Friðriksdóttir. » Íslensku tónlistarverðlaun-in 2006 voru afhent í Borg- arleikhúsinu. » Árni Matthíasson blaða-maður hélt upp á fimmtugs- afmæli sitt á NASA. » Í Listasafni Reykjavíkur var opnuð sýning Birtu Guðjóns-dóttur, Einhver verður þar, og er hún sú fyrsta í sýningarröð tileinkuð yngri kynslóð listaman Jóhann Jóhannsson og Árni Matthíasson. staðurstund Nú er komið í ljós hvaða níu lög taka þátt í úrslitum Söngva- keppni Sjónvarpsins hinn 17. febrúar næstkomandi. »35 tónlist Gagnrýnandi segir kvikmyndina Vef Karlottu sígilda og fulla af fallegum boðskap sem sé öllum börnum hollur. »35 dómur Íslendingafélagið í Ottawa í Kanada nefnist Íslandsvinir en félagið hefur verið starfrækt í bráðum fimm ár. »33 vesturheimur Vissir þú að Johnny Depp lék á gítar með hljómsveitinni Oasis í einu lagi á plötu hennar Be Here Now frá árinu 1997? »37 fólk Stallone þykir hafa náð því ósennilega markmiði að gera nokkuð vel heppnaða mynd um persónu úr fortíðinni. »34 kvikmynd |mánudagur|5. 2. 2007| mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.