Morgunblaðið - 05.02.2007, Side 12

Morgunblaðið - 05.02.2007, Side 12
12 MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Reykjavíkurhöfn hefur verið töluvert í um- ræðunni að undanförnu. Mest hefur umræðan verið um byggingu tónlistarhússins, en einnig byggingu íbúðarhúsnæðis á gamla slippsvæð- inu. Nú síðast hafa uppkaup á lóðum við Fiskislóð verið í fréttum og hugmyndir um töluverða íbúðabyggð á uppfyllingu á norð- anverðri Örfirisey. Minna hefur farið fyrir umræðu um fiskihöfnina sjálfa. Fyrir vikið hafa heyrzt þær raddir að mannfólkið sé að bola fiskinum burt úr höfninni. Þær raddir heyrast að fiskihöfn með tilheyrandi fisk- vinnslu eigi ekki heima í nágrenni íbúða. Það er satt að segja orðið einkennilegt ef fiskur og fólk getur ekki átt samleið á Íslandi. Íslend- ingar hafa átt samleið með þorskinum allt frá landnámi og fleiri tegundir hafa síðan bætzt í hópinn. Fiskurinn stóð undir mestu efnahags- legu framförum, sem átt hafa sér stað á Ís- landi á síðustu öld. Fiskurinn færði Íslend- inga úr moldarkofunum á mölina, reyndar með tilheyrandi mótbárum afturhaldsaflanna, sem ekki gátu séð fyrir sér að breyttir at- vinnuhættir væru þjóðinni til góða. En það var öðru nær. Fiskurinn gerði þjóðina ríka. Fiskurinn var upphaf útrásar íslenzkra fyr- irtækja. Hann ruddi brautina fyrir Baug og bankana. Fólk og fiskur eiga samleið. Það er ekkert því til fyrirstöðu að íbúðabyggð umhverfis Reykjavíkurhöfn geti ekki átt samleið með fiskihöfninni. Hún hefur verið mikið bætt og aukin á undanförnum misserum, búin undir það að taka á móti ennþá meiri fiski. Það hef- ur kannski farið framhjá einhverjum að Reykjavík er mesta fiskihöfn landsins og ræð- ur fyrir mestum aflaheimildum. Sjávarútveg- urinn við höfnina er einn af stærstu vinnuveit- endum borgarinnar. Sambýli fólks og fisk er af hinu góða. Það tengir fólk við grunnatvinnuveg þjóðarinnar. Fiskurinn hefur líka aðdráttarafl fyrir ferða- menn. Það er frábær tenging fólks og fisk, sem framundan er. Fréttin um að Brim sé að kaupa fiskvinnslu Fiskkaupa við Geirsgötu er gott dæmi um slíkt sambýli. Þar ætlar Guð- mundur Kristjánsson að gefa fólki kost á því að kynna sér fiskvinnslu og njóta matar á sér- stöku fiskveitingahúsi. Fiskvinnsla HB Granda á Norðurgarði getur einnig orðið ferðamönnum og forvitnum Íslendingum fróð- legur staður. Kannski væri hægt að byggja þar aðstöðu til að skoða einhverja fullkomn- ustu og tæknivæddustu fiskvinnslu í heimi. Verið er að byggja upp glæsilegt sjáv- arútvegssafn í gömlu BÚR- húsunum. Sæ- greifinn býður upp á fisk í Verinu og Tveir fiskar gera slíkt hið sama. Það er vel hægt að sjá fyrir sér líflegt sambýli fisks og fólks þar sem fróðleiksfýsn er svarað og fólk borðar einhvern hollasta og bezta mat, sem fáanlegur er í heimi. Hvalaskoðun og sjóstangaveiði get- ur blómstrað við þetta sambýli. Lystiskipin koma með þúsundir ferðamanna í Reykjavík- urhöfn. Af hverju sýnum við þeim ekki á hverju velmegun á Íslandi hefur byggzt? Af hverju kynnum við ekki fyrir þeim hinn frá- bæra íslenzka fisk? Bryggjuspjallari sér fyrir sér iðandi mannlíf við Reykjavíkurhöfn. Lista- söfn, tónleikahús, veitingahús, fiskvinnsluhús, íbúðarhús. Frábært sambýli. Af fiski og fólki » Listasöfn, tónleikahús, veit-ingahús, fiskvinnsluhús, íbúðarhús. Frábært sambýli BRYGGJUSPSJALL Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is ÚR VERINU NÚ ER að ljúka tveggja ára rann- sóknaverkefni Hafrannsóknastofn- unarinnar í Arnarfirði á hjarðeldi. Upphaflegur tilgangur með verk- efninu var þríþættur; að kanna hvort unnt væri með reglubund- inni fóðrun að draga úr afráni þorsks á rækju til að forða rækju- stofninum frá hruni; að kanna möguleika reglubundinnar fóðrun- ar við að draga úr veiðikostnaði; að kanna möguleika reglubundinnar fóðrunar við að auka vaxtarhraða þorsks. Hægt að mynda þorskhjarðir Björn Björnsson verkefnisstjóri segir að úrvinnslu ganga sé ekki lokið, en „niðurstöðurnar sýna að hægt er að mynda þorskhjarðir með reglubundinni fóðrun á ákveðnum stöðum. Merkingar hafa sýnt að þorskurinn í hjörðunum er mjög staðbundinn og étur ekkert annað en fóðrið sem honum er gef- ið. Þannig er ljóst að hjarðfisk- urinn étur ekki rækju meðan hann er fóðraður en hins vegar fer því fjarri að tekist hafi að safna öllum þorski í Arnarfirði saman í hjarð- irnar. Lausleg áætlun bendir til að um það bil 10% af þorski í Arn- arfirði hafi safnast að hinum fjór- um fóðrunarstöðvum í firðinum. Frekari þróunar er þörf til að auka göngur fisks að fóðrunarstöðvun- um, m.a. með tilraunum með hljóð- merki, lykt og lýsingu auk um- fangsmeiri fóðrunar,“ segir Björn. Rannsóknir á fiski sem merktur var í sumar í hjörðunum sýna að hann þyngdist að jafnaði um 1,7 kg á þremur mánuðum sem er marg- faldur vöxtur miðað við villtan þorsk. Reyta loðnuna út um netið „Þetta sýnir þá möguleika sem kynnu að vera fólgnir í hjarðeldi. Fóðrunaraðferðin felst í því að koma frosinni loðnu eða síld í net- poka í landi og sigla með þá út á fóðrunarstöðvarnar þar sem þeim er slakað niður á um 20 metra dýpi, um 10 m frá botni. Þorsk- arnir raða sér í kringum fóðurpok- ana og reyta loðnuna út um netið eftir því sem hún þiðnar. Teknar hafa verið vídeómyndir af þessu atferli. Þá hafa verið gerðar til- raunir með nýtt veiðarfæri, svo- kallaðan lyftiháf, sem er allstór háfur með beitupoka yfir og lítilli vídeóvél. Þegar fiskur hefur safn- ast í háfinn er hann hífður upp. Þessi veiðiaðferð hefur að mörgu leyti reynst vel þó að afköstin séu ekki jafnmikil og hjá stórvirkum veiðarfærum eins og til dæmis dragnót. Mesti afli á dag í háfinn hefur verið um 3 tonn. Lífvænlegur fiskur Eflaust mætti útfæra lyftiháfinn þannig að afköst gætu orðið meiri. Kosturinn við háfinn er að allur fiskur sem fæst í hann er lífvæn- legur og því unnt að sleppa smá- fiski eða safna honum til áfram- eldis í sjókvíum. Einnig virðist frekasti og stærsti þorskurinn koma helst í háfinn og því hentar þessi aðferð til að tína úr hjörðinni þá þorska sem eru tilbúnir til slátrunar. Ef farið yrði út í hjarð- eldi í stórum stíl er hins vegar nauðsynlegt að velja afkastameira veiðarfæri, t.d. dragnót eða hring- nót. Í verkefninu var komið upp fjór- um sjókvíum skammt frá Bíldudal sem áframeldisfiskurinn var stærðarflokkaður í og alinn áfram til slátrunar. Reynslan hefur sýnt að of mikill tími hefur farið í þenn- an þátt verkefnisins og ekki nægi- lega mikill tími til veiða úr hjörð- unum. Það þurfti að fóðra fiskinn í kvíunum, tína úr dauða fiska, sinna viðhaldi á kvíunum og síðan slátra upp úr kvíunum. Þá skemmdist ein kvíin í óveðri og sökk þannig að allur fiskur í þeirri kví slapp. Því kann að vera skynsamlegra að stunda hjarðeldið að mestu án þess að nota kvíar, fóðra fiskinn í hjörð- unum og taka stærsta fiskinn beint til slátrunar en sleppa smæsta fiskinum aftur í hjarðirnar. Eftir því sem liðið hefur á verk- efnið hafa möguleikar hjarðeldis komið betur í ljós, annars vegar hjarðeldi sem veiðiaðferð og hins vegar hjarðeldi sem eldisaðferð,“ segir Björn. Hugsanlegir kostir hjarðeldis miðað við hefðbundnar veiðar  Lítill veiðikostnaður með því að safna fiski saman með fóðri, lykt, hljóði og ljósi.  Lítill orkukostnaður  Lítil áhrif á botn og umhverfi  Hægt að koma í veg fyrir smá- fiskadráp og veiðar á friðuðum tegundum  Unnt að draga úr afráni á verð- mætum nytjastofnum svo sem rækju  Hægt að auka meðalþyngd, gæði og verð á fiski með fóðrun  Aukin nýting á kvóta (kvóti mið- ast við meðalþyngd fisks fyrir fóðrun)  Bætt meðferð á fiski (fish wel- fare) Kostir hjarðeldis miðað við hefðbundið aleldi á þorski í sjókvíum  Enginn kostnaður við kvíar  Enginn kostnaður við seiðakaup  Engin erfðablöndun (unnið með villtan fisk)  Unnt að stunda hjarðeldið á mun opnari og skjólminni stöð- um  Minni sjónmengun í fjörðum landsins  Fiskur í hjörðum getur forðað sér og verður því ekki fyrir skaða í hvassviðri eða miklum frostum eða vegna ísreks, mar- glyttu, eitraðra þörunga eða súrefnisskorts „Það er því ljóst af rannsóknum í Arnarfirði að áhugaverðir mögu- leikar gætu falist í hjarðeldi sem nýrri aðferð við að auka og bæta nýtingu nytjastofna í fjörðum landsins. Hægt er að umbreyta til- tölulega smáum og horuðum inn- fjarðafiski í stóran og verðmætan fisk. Þessi aðferð er enn á þróun- arstigi og eru Íslendingar fyrstir til að gera tilraunir með hana. Ljóst er að margir þættir eru enn óljósir varðandi tæknilega út- færslu og mögulega arðsemi þess- arar aðferðar sem vonandi skýrast á komandi árum. Tækniþróunar- sjóður og sjávarútvegsráðuneytið hafa styrkt verkefnið fjárhagslega. Á næstu misserum tekur við úr- vinnsla gagna sem safnað hefur verið í verkefninu, meðal annars til að leggja mat á arðsemismöguleika þessarar aðferðar. Mikilvægt er að sjómenn sem stunda veiðar í Arn- arfirði hafi vakandi auga með merktum fiski og skili upplýsing- um um hann til Hafrannsókna- stofnunarinnar,“ segir Björn Björnsson verkefnisstjóri. Ljósmynd/Unnar Reynisson Rannsóknir Þorskurinn veiddur úr hjörðunum með lyftiháf, beitupoka og myndavél sem er ofan við háfinn. Ljósmynd/Björn Björnsson Eldið Fóðrað með frosinni loðnu en þorsknum er einnig gefin síld. Áhugaverðir möguleikar í hjarðeldi á þorski

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.