Morgunblaðið - 05.02.2007, Qupperneq 20
Ólögleg „Í raun eru öll dýr bönnuð sem ekki eru leyfð
skv. reglugerðum,“ segir Björn Steinbjörnsson, sérfræð-
ingur hjá Landbúnaðarstofnun.
Er með asian rat snake tilsölu. Mjög gæfur og éturrosalega vel … Veit ein-hver um rottu til sölu með
búri og fylgihlutum? … Rocco er til
sölu núna, ein af fallegustu iguana-
eðlum á landinu … Óska eftir snák/
slöngu og einnig sporð-
dreka … Hvernig smyglar maður
iguana?“
Þetta er meðal auglýsinga sem
leynast á spjallsíðum tengdum gælu-
dýraverslununum Dýraríkinu og
Furðufuglum og fylgifiskum. Allt eru
þetta ólögleg dýr hér á landi en hing-
að til hafa dýr á borð við slöngur, eðl-
ur og skjaldbökur ekki verið leyfð. „Í
raun eru öll dýr bönnuð sem ekki eru
leyfð skv. reglugerðum,“ segir Björn
Steinbjörnsson, sérfræðingur hjá
Landbúnaðarstofnun, en hann gefur
umsögn um allar umsóknir um inn-
flutning á lifandi dýrum til landsins.
Á lista yfir leyfð dýr er m.a. að finna
nagdýr, fugla, skrautfiska og ýmis
vatnadýr. „Menn verða hins vegar
alltaf að sækja um til landbún-
aðarráðuneytis að fá að flytja þau inn
til landsins og er þá hvert mál fyrir
sig metið,“ segir Björn.
Ef marka má virknina í umræðum
á spjallsíðum er útbreiðsla hinna
ólöglegu dýra þónokkur. Fyrir utan
beinar auglýsingar þar sem óskað er
eftir eðlum, slöngum og skjaldbökum
eða þær boðnar til kaups leitar fólk
eftir upplýsingum um það hvernig á
að annast dýrin, hvernig fóður þau
þurfa, hvernig bregðast á við biti eða
hvert leita skal ef dýrin veikjast eða
verða fyrir hnjaski:
„Skjaldbakan mín er slösuð, hún
sem sagt datt út úr búrinu sínu og
skelin hennar fékk sprungu á sig, ég
er búin að hringja í 2 dýralækna-
stofur og enginn vill kíkja á hana og
enginn getur sagt mér neitt í gegnum
símann heldur. Getur einhver gefið
mér góð ráð um hvað ég get gert til
að koma henni að hjá dýralækni án
þess að það verði hringt á lögguna og
hún verði aflífuð!“
Í nælonsokk og innan á lærið
Anna Jóhannesdóttir dýralæknir
hjá Dagfinni dýralækni segir nokkuð
um að fólk leiti til stofunnar með
ólögleg dýr þegar þau eru veik eða
slösuð. „Fólk hringir aðallega og
spyrst fyrir. Þessi dýr eru bönnuð.
Hins vegar er ekki hægt annað en að
svara þessum fyrirspurnum því það
er ekki hægt að horfa fram hjá því að
það er fullt af þessum dýrum hér. Og
er þá ekki betra að kenna fólki að
halda þau og upplýsa það um hætt-
urnar?“
Hún segir töluverða hættu á t.d.
salmonellusmiti af völdum dýranna
en salmonella sé náttúrulegur partur
af sýklaflóru margra þessara dýra.
Ástæða þess að dýrin veikist sé hins
vegar oft á tíðum vankunnátta þeirra
sem haldi þau. „Vissulega eru ein-
staklingar sem vita alveg hvað þeir
eru að gera en ég hef á tilfinningunni
að stór hluti þeirra sem eru með þessi
dýr sé ekkert allt of vel upplýstur um
hvernig eigi að annast þau. Það er
ýmislegt sem þarf að huga að, t.d.
hvernig búr dýrin þurfa, hvaða fæði
og eðlurnar þurfa t.a.m. útfjólublátt
Sýkingarhætta „Menn hafa gefist upp á að leyfa þetta
vegna þess að þessi skriðdýr eru einfaldlega náttúrulegir
hýslar fyrir salmonelluna,“ segir Sigurður Örn Hansson
hjá Landbúnaðarstofnun.
Vankunnátta „Ég hef á tilfinningunni að stór hluti þeirra sem eru með þessi dýr sé ekkert
allt of vel upplýstur um hvernig á að annast þau,“ segir Anna Jóhannesdóttir dýralæknir.
Einhver með áhuga á 9
mánaða gamalli tarantúlu?
Töluvert er um ólögleg
gæludýr hér á landi.
Bergþóra Njála Guð-
mundsdóttir kynnti sér
heim þeirra sem hafa
yndi af eðlum, snákum,
skjaldbökum, rottum og
framandi köngullóm.
gæludýr
20 MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
bera þau öll vott um mikla lífsgleði, sem býr
innra með listakonunni ungu. „Myndefnið er
sótt í tilfinningarnar mínar. Þetta eru fant-
asíurnar mínar sem eru uppfullar af litum,
smáatriðum og áhrifum, sem minna kannski
svolítið á austurlenskan heim,“ segir Auður.
Vottur um bjartsýni á lífið
Móðir Auðar, Ingibjörg Finnsdóttir, hefur
verið heimavinnandi allt frá fæðingu Auðar
enda hefur hún þurft mikla umönnun. Ingi-
björg hefur lagt allt kapp á að Auður fái nám
við sitt hæfi þar sem hún fylgir ekki jafn-
öldrum sínum í bóklega náminu, en er snill-
ingur í höndunum, eins og mamman orðar
það. „Ég legg mikið upp úr því að Auður fái
styrkingu í því sem hún er góð í, burtséð frá
því einsleita skólakerfi, sem við búum við.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
„Ég hef verið að teikna, mála og leira frá því
ég var pínulítil og mig langar voðalega mikið
að fara á listabraut Iðnskólans í Hafnarfirði
því mér finnst svo gaman að vinna með hönd-
unum,“ segir Auður Andrea Skúladóttir, sem
opnaði síðastliðinn laugardag sína fyrstu
einkamyndlistarsýningu í veitingastaðnum
Geysi. Auður er í Félagi einstakra barna og
hefur þurft að gangast undir fjölmargar að-
gerðir allt frá fæðingu, en hún er nú nýorðin
sextán ára og er í 10. bekk Borgaskóla auk
þess sem hún hefur verið í málmsmíði í Borg-
arholtsskóla og leirhönnun í Engjaskóla.
Á sýningunni eru 27 litaglöð verk, unnin á
undanförnum þremur til fjórum árum og
Mér finnst við þurfa örlítið meiri mýkt í kerf-
ið. Það eru nefnilega ekki ný sannindi að þeir
sem burðast með námserfiðleika, lesblindu
og athyglisbrest eru oft alveg rosalega flink-
ir í höndunum og það þarf að styrkja. Ég vil
að dóttir mín upplifi það að hún hafi hæfi-
leika og láti ekki bugast þrátt fyrir að vera
öðruvísi og félagslega svolítið einangruð.
Listsköpun er hennar sterka hlið og það er
svo skemmtilegt að sjá hvað bjartsýnin á lífið
kemur sterkt fram í myndunum hennar Auð-
ar. Hún er að skapa sér sinn glaða heim með
litskrúðugu myndefni, sem eru gjarnan
manneskjur með skondna hatta, í skrýtnum
skóm.“
Mæðgurnar héldu samsýningu fyrir fjór-
um árum þegar dóttirin var tólf ára, en þá
sýndi Auður teikningar og Ingibjörg skúlp-
túr. „Það var æðislega gaman því að allar
myndirnar mínar seldust upp,“ segir Auður.
Draumaferð í Disney-garðinn
„Ég er mikið að teikna á kvöldin þegar
mér leiðist og líka þegar ég er nýkomin úr
aðgerðum. Allar myndirnar mínar eru til
sölu því ég er að safna pening til að taka með
mér í ferðalag. Ég var svo heppin að vera
dregin út hjá Vildarbörnum og fæ að fara í
draumaferð til Flórída. Mig hefur nefnilega
alltaf langað til að fara í Disney-garðinn og
sú ósk mín fer að rætast. Er það ekki frá-
bært?“
Listakona Auður Andrea Skúladóttir er að halda sína fyrstu einkasýningu.
Sýning Auðar Andreu er á veitingastaðnum
Geysi, Aðalstræti 2, og stendur til 1. mars.
Akrýlverk Mikil glaðværð er í myndum ungu listakonununnar.
Morgunblaðið/Golli
Býr til lífsglöð og litrík listaverk
daglegt líf