Morgunblaðið - 05.02.2007, Síða 36
36 MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÉG ÆTLA AÐ FÁ EINA MIÐLUNGS
PÍTSU MEÐ LAUK ANSJÓSUM OG
HVÍTLAUK
VERÐIÐ ÞIÐ AÐ
GIRÐA AF HÚSIÐ
MITT?
HAFÐU HANA
STÓRA!
HANN
HRÆÐIST
EKKI
NEITT!
HVAÐ ER
EIGINLEGA AÐ ÞÉR? EKKI
SEGJA
MÉR AÐ
ÞÚ ÆTLIR
AÐ DREPA
ÞAÐ!
ÆTLI ÉG FÁI
AÐ SJÁ LÍFIÐ MITT
ÞJÓTA HJÁ?
ÞAÐ ER VANDAMÁLIÐ
VIÐ ÞAÐ AÐ VERA SEX
ÁRA GAMALL...
...ÞAÐ TEKUR SVO
STUTTA STUND AÐ HORFA
Á ALLT LÍFIÐ MANNS
ÆTLI ÞEIR SÝNI
MÉR ÞAÐ HÆGT
ÞEGAR ÉG KASTAÐI
SNJÓBOLTA Í ANDLITIÐ
Á SOLLU?
ÞETTA ER SLAGORÐIÐ HANS HRÓLFS,
EN ÞAÐ ER EKKI ALVEG TILBÚIÐ
ÉG FÉKK
MITT
ÞAÐ ÆTTI AÐ
STANDA FYRIR
NEÐAN...
EN ENGLENDINGARNIR VILJA
AÐ ÉG SKILI ÞVÍ
ÉG FÉKK
MITT
ÞESSIR NÝJU
RAUNVERULEIKA-
ÞÆTTIR ERU
ORÐNIR ALVEG
HRÆÐILEGIR
NÚ, HVAÐ
ERTU
EIGINLEGA AÐ
HORFA Á?
EXTREME
COMB-OVERS
EF ÞAU FARA Í ÞENNAN
EINKASKÓLA ÞÁ Á ÞAÐ EFTIR
AÐ TAKA Á FJÁRHAGSLEGA
MÉR FINNST
SAMT BÖRNIN
OKKAR ÞESS
VIRÐI
ERTU ALVEG VISS UM AÐ ÞÚ
SÉRT TILBÚINN AÐ FÓRNA ÞÍNUM
LÍFSTÍL BARA SVO AÐ BÖRNIN ÞÍN
GETI FARIÐ Í FÍNAN EINKASKÓLA
ÆI...
KANNSKI
EKKI
ÞÝÐIR ÞAÐ AÐ ÉG SÉ
SLÆMUR PABBI?
NEI, BARA
SKYNSAMUR
ERTU AÐ FARA AÐ
LEIKA MEÐ ROD RAYMOND,
SKÆRUSTU STJÖRNUNNI
Í HOLLYWOOD?
JÁ! PETER, ÉG ER
SVO SPENNT!
OFT KEMUR ILLUR...
ROD ER KOMINN. VIÐ ERUM
AÐ FARA Í MYNDATÖKU
FYRIR LITAPRUFURNAR
Næstkomandi þriðjudagmun Hannes HólmsteinnGissurarson halda fyr-irlestur á vegum Sagn-
fræðingafélags Íslands. Fyrirlest-
urinn ber yfirskriftina Heimildagildi
heimildamynda og er hluti af fyr-
irlestraröð Sagnfræðingafélagsins
og verður fluttur í fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafnsins.
„Ég mun fjalla um heimildagildi
heimildamynda út frá eigin reynslu,
og hvernig sýn mín á heim-
ildamyndir og gerð þeirra hefur
breyst og þróast í tímans rás,“ segir
Hannes Hólmsteinn sem framleitt
hefur heimildamyndir og -þætti m.a.
um Bjarna Benediktsson, Ólaf
Thors, um Íslenskt varnarsamstarf
og sögu Íslands á 20. öldinni. Þá var
Hannes ritstjóri viðtalsþáttanna
Maður er nefndur.
Hannes Hólmsteinn segir heim-
ildamyndina sterkan miðil: „Til
skamms tíma litið er heimildamynd
einhver sterkasti miðillinn, sér-
staklega vegna þeirra sterku tilfinn-
ingalegu áhrifa sem vönduð fram-
setning getur skapað hjá
áhorfandanum,“ segir Hannes Hólm-
steinn. „Lifandi myndir eru einnig
ákaflega góð leið til að vekja áhuga
fólks á sögu, og í framhaldinu fengið
fólk til að lesa sögubækurnar. Þann-
ig geta heimildamyndir verið viðbót
við sagnfræðiritin og gert söguna lif-
andi.“
Í fyrirlestrinum tekur Hannes
Hólmsteinn fyrir dæmi úr eigin
myndum, og fjallar um helstu vanda-
mál heimildamyndargerðarmanns-
ins: „Þegar ég hóf fyrst að gera
heimildamyndir lagði ég mesta
áherslu á textann sem ég svo mynd-
skreytti, og mætti best lýsa þeim
myndum sem myndskreyttum út-
varpsþáttum,“ segir Hannes Hólm-
steinn. „Seinna vildi ég láta myndina
tala frekar en textann, og gerði
myndir sem kalla má mínímalískar í
þeim skilningi að myndefnið var í
öndvegi, og vinnan einkum fólgin í að
safna öllum tiltækum myndum af
viðfangsefninu og klippa saman í
eina heild. Nú er ég kominn á þriðju
skoðunina, þar sem ég fer bil beggja
með samleik texta og myndar.“
Við gerð sögulegra heim-
ildamynda segir Hannes Hólmsteinn
að kljást þurfi við einstök vandamál.
„Það er lykilatriði að myndin haldi
athygli áhorfandans. Það getur reyn-
ist vandasamt þegar fjallað er um
tímabil í sögunni þar sem hörgull er
á myndefni. Eftir að sjónvarpið kem-
ur til sögunnar verður stærsti vand-
inn hins vegar offramboð á mynd-
efni,“ segir Hannes Hólmsteinn.
„Það þarf að gera átak í skráningu
og flokkun myndefnis hér á landi. Ég
hef m.a. kynnst filmusafni Danska
Ríkissjónvarpsins þar sem allt efni
er mun aðgengilegra og auðfundn-
ara. en hérlendis. Heimildamynda-
gerð er eitthvert skemmtilegasta og
mest skapandi starf sem hægt er að
hugsa sér, en það er feikileg vinna
við að fara í gegnum það mikla og
óskráða efni sem er geymt í íslensk-
um filmusöfnum.“
Fyrirlestur Hannesar Hólmsteins
hefst kl. 12.05. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill meðan húsrúm leyf-
ir. Nánari upplýsingar má finna á
slóðinni www.sagnfraedinga-
felag.net.
Sagnfræði | Fyrirlestraröð Sagnfræðinga-
félags Íslands á þriðjudag kl. 12.05
Heimildagildi
heimildamynda
Hannes Hólm-
steinn Giss-
urarson fæddist í
Reykjavík 1953.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá
Menntaskólanum
í Reykjavík 1972,
BA-prófi í sögu
og heimspeki
1979, cand. mag.-prófi í sögu frá
Háskóla Íslands 1982 og dokt-
orsprófi í stjórnmálafræði frá Ox-
fordháskóla 1985. Hannes var skip-
aður prófessor í stjórnmálafræði
við félagsvísindadeild Háskóla Ís-
lands 1988. Hann hefur fengist við
ritstörf og kvikmyndagerð sam-
hliða fræðastörfum. Hannes situr
jafnframt í bankaráði Seðlabanka
Íslands.
BANDARÍKJAMAÐURINN Ashr-
ita Furman gerði um helgina til-
raun til að setja heimsmet í val-
hoppi. Markmiðið var að valhoppa
5 kílómetra á innan við 40 mín-
útum.
Til að gera ferðina meira spenn-
andi leiddi Furman tígrisdýr sér við
hlið fyrstu og síðustu 100 metra
ferðarinnar.
Furman kom í mark á 35 mín-
útum og 19 sekúndum og fær því
heimsmet í valhoppi skráð með
nafni sínu í Heimsmetabók Guiness.
Reuters
Heimsmet í valhoppi