Morgunblaðið - 05.02.2007, Page 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 36. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Fremur hæg
norðlæg átt aust-
an til og stöku él,
en austan 5–8 m/s
um landið vestanvert og
bjartviðri. » 8
Heitast Kaldast
0°C -7°C
NÝR Kjalvegur gæti verið kominn í gagnið
2010 ef áætlanir Norðurvegar ehf. ná fram að
ganga. Félagið vill hefja undirbúning að lagn-
ingu vegarins í einkaframkvæmd hið fyrsta og
hefur samgönguráðherra falið Vegagerðinni að
hefja samstarf við það, m.a. um mat á stærð-
argráðu verksins, áætlaðan rekstrarkostnað
miðað við heilsársveg og um mat á helstu um-
hverfisvandamálum. Að sögn forsvarsmanna
Norðurvegar er talið að stofnkostnaður nemi
4,2 milljörðum króna en fjármögnun er ekki
hafin.
„Það er mjög mikilvægt að nýta áhuga á
kostum í einkaframkvæmd þannig að ég fagna
því að fjárfestar sýni einkaframkvæmd í vega-
gerð áhuga,“ segir Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra sem vill að öðru leyti lítið tjá
sig um verkefni Norðurvegar og vísar í frum-
varp um breytingar á vegalögum sem liggur
fyrir Alþingi.
Gert er ráð fyrir einni akrein í hvora átt og
að upphaf nýja Kjalvegar yrði nálægt Gullfossi
og lægi hann að Silfrastöðum í Skagafirði. Þá
er gert ráð fyrir gjaldtöku vegna umferðar. | 6
Nýr Kjal-
vegur 2010?
Einkaframkvæmd veg-
arins undirbúin hið fyrsta
RANNSÓKNARLÖGREGLAN á Akureyri
óskaði í gærkvöldi eftir því að tveir menn
yrðu úrskurðaðir í gæsluvarðhald en þeir
eru grunaðir um nokkra þjófnaði um
helgina. Meðal annars var bifreið stolið og
fannst hún utan vegar í Eyjafjarðarsveit, lík-
lega ónýt.
Í gær var einnig stolið fartölvu úr fyr-
irtækinu Dregg á Oddeyrartanga og úr Arn-
arauga á Óseyri var stolið tækjabúnaði sem
metinn er á tvær til þrjár milljónir króna.
Fleiri innbrot á Akureyri síðustu daga eru
til rannsóknar. Fjórir voru handteknir í gær
og gæsluvarðhalds krafist yfir tveimur sem
fyrr segir. Rannsókn er á frumstigi en grun-
ur leikur á að viðkomandi, sem eru góðkunn-
ingjar lögreglunnar, tengist mörgum mál-
anna.
Stolið fyrir
milljónir króna
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÞEIR sérfræð-
ingar sem
Morgunblaðið
ræðir við í dag
eru á einu máli
um að nagla-
dekk eigi þátt í
myndun svif-
ryks. Þeir hafa
hins vegar ólík-
ar skoðanir á
því hvernig
bregðast eigi við þessum vanda,
sem talinn er kosta skattgreiðend-
ur hundruð milljóna króna á ári.
Byggist þetta mat á beinum
kostnaði vegna aukinna útgjalda
til malbikunar og við hreinsun á
regnvatnskerfi Reykjavíkur. Ekki
eru til tölur fyrir allt höfuðborg-
arsvæðið vegna útgjalda við
hreinsun þessa kerfis en sé bætt
við hóflegu mati á viðbótarkostn-
aði við bílþrif má áætla að nagla-
dekk kosti samfélagið upp undir
hálfan milljarð á ársgrundvelli.
Er þá gengið út frá þeirri skoð-
un margra viðmælenda að lítill
munur sé á gagnsemi negldra og
ónegldra, grófra vetrardekkja.
Eins og rakið hefur verið hér í
blaðinu benda rannsóknir til að
loftmengun við stofnæðar hér sé
til jafns við það sem gerist í evr-
ópskum borgum. Að mati sér-
fræðinga er ekki hægt að meta
kostnað vegna heilsufarslegra
áhrifa svifryksins, þótt einn við-
mælandi blaðsins áætli að hann
nemi árlega hundruðum milljóna.
Blaðið leitaði jafnframt álits
Þorsteins Jóhannssonar jarðfræð-
ings sem hefur sett fram kenningu
um myndun svifryks á vegum en
samkvæmt henni þarf að fækka
nagladekkjum verulega til að ná
árangri í baráttunni við rykið.
Krefst samræmdra aðgerða
Fyrir helgi tilkynnti Jónína
Bjartmarz umhverfisráðherra
mat starfshóps sem falið var að
meta leiðir til að draga úr svif-
ryksmengun. Var lagt til að unnið
yrði gegn menguninni með
fræðslu og efnahagslegum og
skipulagslegum leiðum.
Vegslit vegna naglanna
kostar hundruð milljóna
Nemur ígildi varðskips á fimm árum að viðbættum heilsufarsþættinum
Í HNOTSKURN
»Fjöldi skráðra ökutækjaá Íslandi hefur farið
stigvaxandi á áratugnum.
»Nagladekkjanotkun erenn allútbreidd og talið
að um sex af hverjum tíu
bifreiðum séu á nöglum.
»Naglarnir spæna uppmalbik og eiga þátt í
mengun.
Dýr mengunarvaldur | 10
Þorsteinn
Jóhannsson
♦♦♦
MIKIL mildi má teljast að ekki
urðu alvarleg slys í hörðum
árekstri á Miklubrautinni í gær-
kvöldi þegar stjórnlaus fólksbíll
skall harkalega á bíl í ferðaþjón-
ustu fyrir fatlaða. Í fólksbílnum
voru tveir menn og missti öku-
maðurinn stjórn á bílnum sem
flaug yfir umferðareyju áður en
hann lenti á litlu rútunni. Var afl-
ið svo mikið að hún hentist aftur
á bak en fólksbíllinn valt og lenti
á hvolfi.
Fjórir voru fluttir á sjúkrahús.
Hvorki urðu þó alvarleg meiðsli
á þeim sem voru innanborðs í
fólksbílnum né á þeim tveim sem
voru í rútunni, ökumanni hennar
og fötluðum farþega. Eftir
áreksturinn skapaðist eldhætta
þegar bensín lak úr flaki fólks-
bílsins en slökkvilið tryggði vett-
vanginn. Tildrög slyssins eru í
nánari rannsókn.
Morgunblaðið/Ómar
Valt eftir
árekstur
HAFÍSINN sem herjaði á vestfirska firði í
lok janúar náði á síður sunnudagsútgáfu
breska dagblaðsins Sunday Telegraph sem
greindi frá því í gær að þrátt fyrir að ísinn
hefði valdið sjómönnum nokkru hugarangri,
þar sem þeir komust ekki á sjó, hefðu helstu
áhyggjur manna beinst að hugsanlegum far-
þegum, þ.e. ísbjörnum.
Blaðið segir frá því að alloft hafi ísbirnir
komið að landi með ísjökum en ávallt átt
undir undir högg að sækja þar sem Íslend-
ingar láti sér fátt um finnast þegar kemur
að dýraverndun. Rifjar blaðið upp nokkur
kynni Íslendinga af björnunum, m.a. „Gríms-
eyjarbirninum“, sem unninn var í Grímsey
veturinn 1969 og er til sýnis í Safnahúsinu á
Húsavík og minnir á að um 25 þúsund ís-
birnir séu til í dag og varað hafi verið við
því að þeir gætu dáið út minnkuðu heim-
kynni þeirra, s.s. vegna hækkandi hitastigs.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu
Íslands ættu Vestfirðingar að geta andað
léttar þar sem norðaustanátt hefur verið á
Grænlandssundi og ísinn því á vesturleið og
ekki á leið til landsins – allavega á næst-
unni.
Litlir dýravinir?
ÁRIÐ 2007 verður ef fer sem
horfir metár í ferðalögum Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands.
Hljómsveitin undirbýr nú tón-
leikaferð til Þýskalands, Króatíu
og Austurríkis síðar í mán-
uðinum en auk þess hefur þess-
ari fjölmennustu hljómsveit
landsins verið boðið að leika í
Japan og Færeyjum síðar á
árinu. Þá hefur komið til tals að
hljómsveitin leiki aftur í Þýska-
landi í nóvember.
Segja má að tónleikaferðin nú
hefjist innanlands því fyrirhug-
aðir eru tvennir tónleikar hér á
landi í vikunni þar sem sama
efnisskrá og erlendum gestum
verður boðið upp á í ferðinni
verður kynnt íslenskum áheyr-
endum. | 14Morgunblaðið/Einar Falur
Stefnir
í metár
KVENMANNSNAFNIÐ Siv hefur ekki öðlast
hefð í íslensku máli enda stafsetning þess
með v-i ekki í samræmi við íslenska réttritun.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum
úrskurði mannanafnanefndar. Nefndin hefur
samþykkt að færa nöfnin Eufemía, Róbjörg,
Líba og Marit á mannanafnaskrá. | 4
Ekki hefð fyrir Siv