Morgunblaðið - 21.02.2007, Page 2
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 26
Staksteinar 8 Umræðan 28/32
Veður 8 Bréf 32
Viðskipti 14/15 Minningar 33/37
Erlent 17/18 Myndasögur 44
Höfuðborgin 20 Brids 40
Akureyri 20 Dagbók 45/49
Suðurnes 21 Staðurstund 46/47
Landið 21 Leikhús 42
Daglegt líf 22/25 Bíó 46/49
Menning 19,41/45 Ljósvakamiðlar 50
* * *
2 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
miðvikudagur 21. 2. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Pressan verður á leikmönnum Barcelona á Nou Camp >> 2
VEISLA Á ÁSVÖLLUM
KVENNALIÐ HAUKA MÆTIR VAL Í KVÖLD OG KARLALIÐ
HAUKA TEKUR Á MÓTI ÍSLANDSMEISTURUM FRAM >> 4
Giggs skoraði markið beint úr aukaspyrnu,
skaut á meðan verið var að stilla varnar-
veggnum upp og markið var dæmt gott og
gilt. Leikmenn Lille voru ævareiðir og
strax eftir að leikurinn hófst á ný virtust
þeir allir ætla að yfirgefa völlinn, eftir fyr-
irskipanir frá varamannabekknum.
„Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt, þetta
var algjör aðför að dómaranum. UEFA
verður að gera eitthvað í þessu. Þjálfaralið
Lille veittist að dómaranum og andrúms-
loftið var verulega alvarlegt. Það þarf að
taka hart á þessu og ég hafði áhyggjur af
mínum mönnum, ýmsum hlutum var kastað
inn á völlinn og Gary Neville varð fyrir ein-
um þeirra,“ sagði Ferguson í samtali við
ITV sjónvarpsstöðina eftir leikinn.
Frakkarnir voru líka ósáttir þegar mark
var dæmt af þeim á 61. mínútu. Peter
Odemwingie skallaði þá boltann í mark
United en ýtti á bakið á Nemanja Vidic,
varnarmanni enska liðsins, um leið og dóm-
arinn dæmdi aukaspyrnu á Odemwingie.
Claude Puel, þjálfari Lille, lýsti yfir mikilli
óánægju með hollenska dómarann Eric Bra-
amhaar. „Þetta var óskiljanlegt. Við vorum
búnir að biðja um innáskiptingu þegar auka-
spyrnan var tekin, og síðan bað markvörð-
urinn um að fá að stilla upp varnarveggnum.
Samt var aldrei flautað og leikmaðurinn
skaut strax. En við áttum frábæran seinni
hálfleik og skutum þessu sterka liði skelk í
bringu og fengum betri marktækifæri. Ég er
stoltur af mínum mönnum sem sýndu að það
er ekki tilviljun að við erum komnir svona
langt,“ sagði Puel.
Hræðsla meðal áhorfenda
Hluti stuðningsmanna Manchester Unit-
ed varð fyrir ógnvekjandi lífsreynslu þegar
um 15 mínútur voru liðnar af leiknum í
Lille. Lögregla hleypti þá Englendingum
sem höfðu verið með miða annars staðar á
vellinum inn í stæði hjá löndum þeirra fyrir
aftan annað markið. Margir þrýstust þá
upp að öryggisgirðingu og ekki bætti úr
skák að óeirðalögregla sem var á vellinum
hélt að um slagsmál væri að ræða og úðaði
táragasi inn í hópinn. Öryggisverðir náðu
að bjarga málum án þess að slys yrðu á
fólki.
Markalaust í Glasgow
Celtic og AC Milan gerðu markalaust
jafntefli í hörkuleik í Glasgow. Celtic nýtti
ekki ágæt marktækifæri og á erfiðan leik
fyrir höndum á San Siro leikvanginum í
Mílanó eftir hálfan mánuð.
Reuters
Sigurmarkið Ryan Giggs fagnar eftir að hann skoraði hið umdeilda sigurmark Manchester United gegn
Lille. Leikmenn Lille hugðust ganga af velli í mótmælaskyni eftir að Giggs skoraði beint úr aukaspyrnu.
ALEX Ferguson, knattspyrnustjóri Man-
chester United, krafðist þess eftir sigur á
Lille, 1:0, í Frakklandi í gærkvöld að
UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu,
tæki framkomu forráðamanna franska
liðsins til alvarlegrar athugunar. Eftir að
Ryan Giggs skoraði sigurmark United á
83. mínútu reyndi einn af þjálfurum Lille
að kalla leikmenn liðsins af velli og leik-
urinn tafðist um stund af þeim sökum.
Þetta var fyrri viðureign liðanna í 16-liða
úrslitum Meistaradeildar Evrópu og
United stendur nú vel að vígi.
Leikmenn Lille kallaðir af velli eftir að Ryan
Giggs skoraði umdeilt sigurmark Man.Utd
„Það þarf að taka
hart á þessu“
FORSVARSMENN norska knatt-
spyrnuliðsins Viking frá Stavanger hafa
komist að samkomulagi við íslenska
landsliðsframherjann Hannes Þ. Sigurðs-
son um að ganga til liðs við félagið frá
Bröndby í Danmörku. Samningurinn
gildir til ársins 2010 en hefur ekki verið
undirritaður. Egil Østenstad, fram-
kvæmdastjóri Viking, segir við Stavanger
Aftenblad að ekki verði skrifað undir
samninginn fyrr en búið verði að ganga úr
skugga um að Hannes geti leikið með lið-
inu í upphafi leiktíðar. Samkvæmt félaga-
skiptareglum Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, FIFA, geta leikmenn ekki skipt
nema einu sinni um lið á tímabilinu 1. júlí -
30. júní. Hannes var í röðum enska liðsins
Stoke City s.l. haust en var keyptur til
Bröndby þann 30. ágúst s.l.
„Ég held að þetta verði ekkert vanda-
mál enda er búið að gefa fordæmi í svona
málum. Garðar Jóhannsson fékk að
skipta í Fredrikstad þrátt fyrir að hafa
leikið með Val og KR á sama árinu. Og
nýverið fékk Javier Mascherano að skipta
yfir í Liverpool þrátt fyrir að hafa leikið
með Corinthians og West Ham á þessu
tímabili,“ sagði Hannes í gær en hann var
þá staddur í Kaupmannahöfn þar sem að
Viking átti að leika æfingaleik gegn FC
Köbenhavn. „Það gæti tekið nokkkra
daga að fá svar frá FIFA en ég er bjart-
sýnn,“ sagði Hannes.
Birkir meiddist í Danmörku
Birkir Bjarnason, hinn 18 ára gamli
leikmaður Viking og verðandi samherji
Hannesar, meiddist á hné í leik liðsins
gegn FC Köbenhavn í gær. Hann þurfti
að fara af velli í fyrri hálfleik en ekki er
ljóst hve lengi hann verður frá keppni.
FC Köbenhavn vann leikinn, 3:0.
Hannes Þ. með samning til 2010
en bíður eftir viðbrögðum FIFA
VÍKINGAR hafa óskað eft-
ir því við Fylkismenn að fá
markvörðinn Bjarna Þórð
Halldórsson að láni en að-
almarkvörður liðsins,
Ingvar Þór Kale, er
meiddur og liggur ekki
ljóst fyrir hvenær hann
verði leikfær á ný.
Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hafa Vík-
ingar náð samkomulagi
við Bjarna en for-
ráðamenn Árbæjarliðsins
hafa ekki gefið grænt ljós
á að Bjarni geti farið.
Fjalar Þorgeirsson var
aðalmarkvörður Fylk-
ismanna á síðustu leiktíð
en Bjarni, sem var lengi
frá vegna nárameiðsla á
síðasta ári, stóð á milli
stanganna í sigurleik
Fylkis gegn Stjörnunni í
fyrstu umferð deildabik-
arkeppninnar um síðustu
helgi vegna veikinda Fjal-
ars.
Víkingar vilja fá
Bjarna að láni
Y f i r l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Innlent
Ofsaakstur tveggja ungra manna
í Reykjavík um liðna helgi er rann-
sakaður með tilliti til þess hvort for-
sendur séu til að kæra þá fyrir brot á
almennum hegningarlögum. Allt að
sex ára fangelsi liggur við þeim
ákvæðum laganna sem helst koma
til álita í þessum málum. » Forsíða
Karlmaður um fertugt situr í
gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á
smygli á tæplega fjórum kílóum af
kókaíni til landsins. Er þetta mesta
magn kókaíns sem fundist hefur í
einu lagi hér á landi. » Baksíða
Borgarstjórn Reykjavíkur álykt-
aði í gær einróma um að fyrirhuguð
ráðstefna klámframleiðenda hér á
landi verði haldin í mikilli óþökk
borgaryfirvalda. Vill borgarstjórn
láta rannsaka hvort ráðstefnugestir
framleiði ólöglegt klámefni. » 4
Erlent
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hyggst tilkynna í dag að
brottflutningur breskra hermanna
hefjist á næstu vikum, að sögn
breskra fjölmiðla í gærkvöldi. Um
1.500 hermenn verða kallaðir heim
innan nokkurra vikna og 1.500 til
viðbótar fyrir árslok. Alls eru núna
um 7.100 breskir hermenn í Írak. »
Forsíða
Vinsæll ráðherra í Kólumbíu,
María Consuelo Araújo utanrík-
isráðherra, hefur ákveðið að segja af
sér vegna meintra synda bróður
síns. Bróðirinn er öldungadeild-
arþingmaður og var handtekinn í
vikunni sem leið, sakaður um að hafa
fjármagnað starfsemi vígaflokka
hægri manna í landinu. » 17
Stærstu bankar Bretlands
standa frammi fyrir „uppreisn“
milljóna manna sem ætla að krefjast
endurgreiðslu á ólöglegum gjöldum
sem þeim hefur verið gert að greiða,
að sögn breska dagblaðsins The In-
dependent. » 18
Viðskipti
Til greina kemur að skrá Glitni í
erlenda kauphöll og stjórnendur
bankans ætla að fara vandlega yfir
kosti þess á næstu mánuðum. Einar
Sveinsson, formaður bankaráðs
Glitnis, skýrði frá þessu í ræðu á að-
alfundi í gær. » Baksíða, 15
ÁSKRIFTARVERÐ fjölmiðla
lækkar um 7% um næstu mánaða-
mót samhliða lækkun á virðisauka-
skatti. Skatturinn er 14% í dag en
lækkar í 7% 1. mars nk.
Breytingar á virðisaukaskattin-
um þýða að almennt afnotagjald
Ríkisútvarpsins lækkar úr 2.921
kr. á mánuði í 2.742 krónur. Af-
notagjald elli- og örorkulífeyris-
þega lækkar úr 2.337 kr. í 2.194 kr.
Áskrift að sjónvarpsstöðvum
Skjásins, þ.e. Skjásporti og Skjá-
heimi, lækkar um 7%. Nýtt verð á
Skjásporti er 2.342 kr. eftir breyt-
ingu. Fullt verð fyrir Skjáheim
verður eftir breytingu 4.125 kr.
Samkvæmt upplýsingum frá 365
hf. leiðir lækkun virðisaukaskatts
til þess að verð á sjónvarpsáskrift
lækkar um 7%. Fullt áskriftarverð
á Stöð 2 fer úr 5.450 í 5.068 kr
(M-12-áskrift mun kosta 4.645).
Sýn fer úr 4.790 kr. í 4.455 kr.
(M-12-áskrift kostar 4.060).
Áskriftarverð á Morgunblaðinu
lækkar um mánaðamótin. Full
áskrift kostar í dag 2.800 krónur
en verður um 2.600 krónur eftir
lækkun skattsins.
Áskriftargjaldi Viðskiptablaðs-
ins verður ekki breytt um mán-
aðamótin. Haraldur Flosi Tryggva-
son hjá Viðskiptablaðinu sagði að
þegar blaðið var gert að áskrift-
arblaði fyrr í þessum mánuði hafi
verið ákveðið að halda óbreyttu
áskriftarverði. Það þýddi að áskrif-
endur fengju fleiri blöð í hendur og
meiri þjónustu en á móti kæmi að
útgáfufélagið lækkaði ekki verðið
þegar virðisaukaskatturinn lækk-
aði. Áskrift að blaðinu mun því
áfram kosta 3.450 krónur.
Fjölmiðlar lækka
áskriftarverð sitt
Virðisaukaskattur á fjölmiðlum lækkar úr 14% í 7%
Í HNOTSKURN
»Stjórnvöld ákváðu aðlækka virðisaukaskatt á
fjölmiðlum og bókum úr 14% í
7% samhliða lækkun á virð-
isaukaskatti matvæla.
»Áskrift að Morgunblaðinu,RÚV, sjónvarpsstöðvum
365-miðla og sjónvarps-
stöðvum Skjásins lækkar um
mánaðamótin.
ILLA gekk að hefja slökkvistarf á Bíldudal í gær er
svokallað Tréverkshús brann til nær kaldra kola. Mjög
fáir slökkviliðsmenn voru á staðnum og bifreið slökkvi-
liðsins mun ekki hafa farið í gang þegar til átti að taka.
Vegna slæms atvinnuástands í þorpinu voru margir
slökkviliðsmenn við störf annars staðar en á Bíldudal.
Seinnipartinn tókst þó að slökkva eldinn en slökkvi-
liðin á Patreksfirði og Tálknafirði voru kölluð til að-
stoðar við slökkvistarfið. Byggingin var mannlaus en
ýmis félög notuðu hana sem geymslu. Eldri hluti húss-
ins er frá árinu 1972 en nýrri hlutinn er byggður 1986.
Eigandi hússins er Berglín ehf. í Stykkishólmi. Reykj-
arlykt mun hafa fundist alla leið til Breiðavíkur.
Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson
Húsið er gjörónýtt af eldi
SKORIÐ var úr því í sjónvarpsþætt-
inum Íslandi í dag í gærkvöldi að það
voru kartöflur, en ekki mýs, sem
skoppuðu eftir gólfinu í verslun Bón-
uss í Holtagörðum þegar verið var að
taka myndir vegna verðkönnunar
þáttarins sem birtist á mánudags-
kvöld. Bloggarar og fleiri veltu því
töluvert fyrir sér í gær hvaða fyr-
irbæri hefði þarna verið á ferðinni.
„Ég sá fréttina í gær [fyrradag] en
ég sá engar mýs. Ég sá þarna tvær
kartöflur skjótast hjá. Þetta er
kannski í mesta lagi kartöflumús,“
sagði Guðmundur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Bónuss.
Hann sagði að enginn músagang-
ur væri í Bónus í Holtagörðum þótt
aldrei væri hægt að útiloka að mýs
kæmust inn í húsið, fremur en í önn-
ur hús. Viðurkenndur aðili hefði um-
sjón með meindýravörnum líkt og
stjórnvöld gerðu kröfu um.
Guðmundur bætti við að það væri
fyrir neðan allar hellur ef athygli
fjölmiðla beindist öll að því að rýna í
hvort mýs eða kartöflur hefðu skot-
ist yfir gólfið en ekki að þeirri nið-
urstöðu verðkönnunarinnar, sem
sagt var frá á Stöð 2, að þurrvaran
hefði verið ódýrari í Bónus en í ódýr-
ustu lágvöruverðsbúðinni í Dan-
mörku sem er 20 sinnum stærra
markaðssvæði. Þetta væri þó lýsandi
fyrir umræðuna um matvörumark-
aðinn á Íslandi.
Kartöflur en ekki mýs
á ferðalagi um Bónus
Slæmt að kartöflumýs hafi beint athygli frá verðkönnun
„ÉG tel Samfylkinguna vera fram-
sæknasta flokkinn á Íslandi í dag,“
segir Reynir Harðarson sem sam-
þykkt hefur að taka sæti á öðrum
lista Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Heimildir blaðsins herma að honum
verði boðið öruggt varaþingmanns-
sæti. Enn hafa þó listarnir ekki verið
formlega samþykktir.
Reynir er stofnandi hugbúnaðar-
fyrirtækisins CCP sem hefur notið
mikillar velgengni með tölvuleiknum
Eve Online. Þá er Reynir stjórnar-
maður í Framtíðarlandinu.
„Það er margt, nýtt, ungt og flott
fólk í flokknum, með ferskar hug-
myndir sem ég sé ekki hjá hinum
flokkunum og sérstaklega ekki mín-
um fyrrverandi flokki Sjálfstæðis-
flokknum.“ Hann nefnir vilja til að
búa ungum fyrirtækjum hagstæðari
skilyrði, og „sterkari framtíðarsýn,
sérstaklega í grænu málunum.
Fagra Ísland þarf að ná fram að
ganga“.
Reynir segir
Samfylkinguna
hafa þróast mikið
á undanförnum
árum og hægri-
vinstri kvarðann
orðinn annan en
áður. Hann vitnar
í það sem oft sé
sagt að menn séu
hjartalausir ef
þeir eru ekki vinstrisinnaðir ungir,
en heilalausir ef þeir verði ekki
hægrisinnaðir með aldrinum. „Sjálf-
stæðisflokkurinn nú hefur hins veg-
ar hvorki heila né hjarta.“
Þá herma heimildir að Margrét
Kristmannsdóttir, formaður kvenna
í atvinnurekstri, verði á lista Sam-
fylkingarinnar. Einnig eru nefnd til
sögunnar Lárus Ýmir Óskarsson
kvikmyndaleikstjóri og Ragnheiður
Gröndal söngkona, auk Guðrúnar
Ögmundsdóttur og Bryndísar Hlöð-
versdóttur í heiðurssætum.
Í framboð fyrir
Samfylkinguna
Reynir Harðarson