Morgunblaðið - 21.02.2007, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MEÐ norskri aðferð sem Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins er að æfa er
hugsanlegt að stytta tímann sem
það tekur að ná fólki út úr illa
klesstum bílflökum um allt að
helming. Aðferðin felst í því að bíl-
flakið er togað í sundur og klippum
beitt um leið.
Árni Ómar Árnason aðstoð-
arvarðstjóri segir að aðferðin felist
í því að afturhluti bílflaksins er
festur við stóran bíl, vegrið eða
annað traust og að framan er það
fest við spil á slökkviliðsbíl. Síðan
er togað í flakið og hefðbundnum
klippum beitt eftir þörfum.
„Upphaflega byrjuðu Norðmenn
að nota þessa aðferð af því þeim
fannst þeir ekki vera nógu fljótir
að klippa bíla með hefðbundnum
aðferðum. Fólk lét oft lífið áður en
tókst að ná því út,“ segir Árni Óm-
ar. Norðmenn hafi gefið það upp að
með þessari aðferð séu þeir um 7–
10 mínútur að ná fólki út úr bílum
eftir harðan árekstur en hér á landi
séu dæmi um að það hafi tekið allt
að 20 mínútur að losa fólk út úr bíl-
flökum. Hver mínúta getur skipt
sköpum um hvort tekst að bjarga
mannslífum. „Við erum fljótari með
þessari aðferð, það er ekki spurn-
ing.“
Bílum sleppt úr 24 metra hæð
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
fékk spurnir af norsku aðferðinni í
gegnum íslenskan slökkviliðsmann,
Jóhann Viggó Jónsson, sem starf-
aði um tíma hjá norsku slökkviliði.
Í nóvember fóru Jóhann, Jörgen
Valdimarsson og Árni Ómar til
Noregs á námskeið til að kynna sér
aðferðina betur og kynna hana síð-
an fyrir félögum sínum.
Eina almennilega leiðin til að æfa
norsku aðferðina er að útvega sér
illa farin bílflök og það var einmitt
það sem Slökkvilið höfuðborg-
arsvæðisins gerði í gær. Tíu gamlir
bílar, sem hefðu annars farið bein-
ustu leið í endurvinnslu, voru fluttir
að slökkvistöðinni í Hafnarfirði þar
sem þeir voru hífðir upp í 24 metra
hæð og síðan sleppt. Með þessu var
líkt eftir árekstri tveggja bíla á 90
kílómetra hraða.
Morgunblaðið/Júlíus
Togað Afturhluti flaksins er tryggilega festur og síðan togað í framhlutann með spili. Klippum er einnig beitt.
Féllu 10 bílar voru látnir falla úr 24 metra hæð til að
líkja eftir árekstri á 90 km hraða, þ. á m. þessi Volvo.
Mögulegt að stytta tímann við að klippa bílflök í sundur um allt að helming
Toga í flökin og klippa um leið
Högg Þótt Volvo-bílar séu sterkbyggðir standast þeir
ekki slíkt högg. Varla hefði ökumaður kembt hærurnar.
VERÐ á osti, áleggi og fleiri vörum
með mikið geymsluþol er byrjað að
lækka þó að 1. mars sé ekki geng-
inn í garð.
Um mánaðamótin lækkar virð-
isaukaskattur á matvörum. Skattur
á flestum vörum lækkar úr 14% í
7%. Margar vörur eru verðmerktar
hjá framleiðendum að ósk kaup-
enda um leið og þeim er pakkað.
Þetta á t.d. við um kjötvörur, frosið
kjöt og ost í stykkjum og sneiðum.
Til að tryggja að skattalækkun á
þessum vörum skili sér til framleið-
enda, hefur verið ákveðið að frá og
með 20. febrúar verði þessar vörur
verðmerktar miðað við 7% virð-
isaukaskatt.
Í bréfi frá Samtökum verslunar
og þjónustu og Samtökum iðnaðar-
ins segir að þetta geti þýtt að fram-
leiðendur og verslanir tapi ein-
hverri framlegð þessa síðustu viku
febrúarmánaðar.
Verð á osti og
áleggi lækkar
BJÖRN Bjarna-
son, dóms- og
kirkjumálaráð-
herra, var út-
skrifaður af
Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi í
gær. Hann hefur
dvalið á sjúkra-
húsinu frá 5.
febrúar sl. vegna
sjúkdóms sem
kallast loftbrjóst. Sjúkdómurinn
olli því að hægra lunga Björns féll
saman.
Björn hefur skrifað á heimasíðu
sína, www.bjorn.is, af sjúkrabeði
og lýst líðan sinni og sjúkra-
húsdvölinni frá degi til dags auk
þess að fjalla um ýmis þjóðfélags-
mál. Þá upplýsir Björn í pistlum
sínum að auk þess að hlusta á tón-
list og lesa bækur á sjúkrahúsinu
hafi hann unnið að málum embættis
síns og í tengslum við ráðuneyti sitt
með hjálp tölvunnar.
Útskrifaður af
sjúkrahúsi
Björn Bjarnason
ráðherra
VALGERÐUR Sverrisdóttir segir
að tími málamiðlana sé liðinn, hvað
varðar þátt kvenna í stjórnmálum.
Í pistli á heimasíðu sinni í gær
segir Valgerður það umhugsunar-
efni að kona hafi aldrei hlotið
stuðning til að gegna ákveðnum
ráðherraembættum hér á landi.
„Ég nefni hér embætti fjár-
málaráðherra, landbúnaðarráð-
herra, sjávarútvegsráðherra og
samgönguráðherra, að ógleymdu
forsætisráðherraembættinu. Ekki
er það vegna þess að skortur sé á
hæfum konum.“
Nú hefur verið gengið frá fram-
boðslistum Framsóknarflokksins
fyrir alþingiskosningar. „Það er
sérstakt ánægjuefni að listana
skipa nákvæmlega jafnmargar kon-
ur og karlar,“ segir Valgerður.
Þrjár konur og þrír karlar leiða
lista og í fjórum efstu sætunum sitja
10 karlar og 14 konur. „Þetta er
jafnrétti og framsækni í orði og
verki,“ segir hún og bendir einnig á
að Framsókn eigi þrjá af fjórum
kvenráðherrum.
Tími málamiðl-
ana sé liðinn
FJÓRIR voru handteknir vegna
gruns um vörslu og neyslu fíkni-
efna í heimahúsi í Reykjanesbæ í
fyrrinótt. Fólkið, einn ungur karl-
maður og þrjár ungar konur, var
látið laust eftir skýrslutökur hjá
lögreglunni á Suðurnesjum sem við
rannsókn málsins lagði hald á lít-
ilræði af ætluðum fíkniefnum og
ýmsum tækjum og tólum til neyslu
fíkniefna.
Handtekin
vegna fíkniefna
HEILSUVERNDARSTÖÐIN við
Barónsstíg var seld einkaaðila fyr-
ir um fjórum vikum og stendur til
að opna þar hótel. Jón Guðmunds-
son hjá Fasteignamarkaðnum
sagðist í gær í samtali við mbl.is
ekki skilja hvers vegna enn væri
verið að ræða málið á þingi þar
sem byggingin væri ekki lengur til
sölu.
Jón sagði að reynt hefði verið að
bjóða heilbrigðisráðuneytinu húsið
til kaups, til áframhaldi notkunar
sem heilsuverndarstöð, en að það
hefði ekki borið árangur. Kaupandi
hefði svo komið fram og húsið verið
selt í kjölfarið.
Kaupsamningi hefur ekki verið
þinglýst og fæst ekki upp gefið
hver kaupandinn er. Hins vegar
sagði Jón að kaupandinn hefði í
hyggju að opna hótel á staðnum.
Húsið friðað að hluta í fyrra
Heilsuverndarstöðin var friðuð
að hluta á síðasta ári. Friðunin nær
til ytra borðs, ásamt aðalanddyris
og stigahúss, anddyra við Baróns-
stíg og Egilsgötu auk tilheyrandi
fastra innréttinga, gólfefna og frá-
gangs. Höfundar eru arkitektarnir
Einar Sveinsson og Gunnar H.
Ólafsson. Byggingarstílinn má
fremur heimfæra upp á póstmód-
ernisma en módernisma og var á
undan sinni samtíð hvað hönnun
varðaði. Húsið er fyrsta sérhann-
aða heilsugæslubygging landsins.
Magnús Skúlason, forstöðumað-
ur húsafriðunarnefndar, sagði að
friðun húss þýddi ekki að allt væri
fryst. Ef ætti að breyta friðuðum
húsum, eða þeim hlutum húsa sem
friðaðir hafa verið, þyrfti að leita
leyfis húsafriðunarnefndar. Það
væri því ekki ómögulegt að breyta
friðuðum húsum.
Magnús sagði einnig að sér þætti
slæmt að húsið skyldi hafa verið
selt en ekki nýtt sem heilsugæslu-
stöð eða fyrir heilsugæslu því húsið
væri sérhannað til þeirra nota. Það
tók við af gömlu Líkn og sagði
Magnús að sér þætti ákaflega mið-
ur að þetta sérhannaða hús skyldi
ekki nýtast í þágu þeirrar starf-
semi sem það var hannað til.
Jón Guðmundsson fasteignasali
kvaðst ekki vita annað en að nýr
eigandi hygðist virða þær kvaðir
sem fylgdu kaupum á húsinu, en
telur að þær komi ekki í veg fyrir
að þar verði hægt að innrétta hótel.
Heilsuverndarstöðin verður hótel
Leita verður leyfis húsafriðunarnefndar ef breyta á friðuðum hlutum hússins
Morgunblaðið/Ómar
Hótel Heilsuverndarstöðin var seld einkaaðila fyrir um fjórum vikum og stendur til að opna þar hótel, að sögn
Jóns Guðmundssonar fasteignasala. Hann sagði að reynt hefði verið að bjóða heilbrigðisráðuneytinu húsið.