Morgunblaðið - 21.02.2007, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 21.02.2007, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is AÐEINS nokkrir áratugir eru liðnir frá því hugtakið „táningur“ kom fyrst fram á sjónarsviðið og voru seljendur fjöldaframleiddra neysluvara fljótir að koma auga á að þarna væri kom- inn nýr þjóðfélagshópur sem hefði meira fé til ráðstöfunar í afþreyingu og tísku en aðrir. Kynlíf hefur gegnt lykilhlutverki í markaðssetningunni, þróun sem hefur að mati margra beinst að börnum í æ ríkara mæli. Nú kann þessi þróun hins vegar að snúast við fyrir atbeina langþreyttra foreldra, eftir að rannsakendur bandarísku sálfræðingasamtakanna, APA, komust að þeirri niðurstöðu að kyngerving stúlkna hefði skaðleg áhrif á allt niður í fjögurra ára börn. Áhrifin eru sögð alvarleg, skortur á sjálfstrausti vegna eigin útlits, þunglyndi og átröskun eru allt sagðir fylgifiskar slíkrar markaðssetningar. Hópurinn komst jafnframt að því að slíkar ímyndir, sem birtast meðal annars í tímaritum, sjónvarpi og tón- listarmyndböndum, geti raskað kyn- þroska stúlkna, sem hafi óeðlilega miklar áhyggjur af líkamanum. „Við höfum nægjanlegar sannanir til að álykta að kyngerving hefur nei- kvæð áhrif á ýmsum sviðum,“ sagði dr. Eileen Zurbriggen, formaður hópsins, sem benti máli sínu til stuðn- ings á neikvæð áhrif á andlega og lík- amlega heilsu stúlkna. Stutt pils fyrir stúlkubörnin Meint áhrif eru tilgreind í 72 síðna skýrslu þar sem niðurstöður hópsins eru lagðar fram. Þar segir orðrétt: „Það eru mörg dæmi um kyngerv- ingu stúlkna og æskuára þeirra í bandarískri menningu. Leikfanga- fyrirtæki framleiða dúkkur í stuttum, svörtum leðurpilsum […] og mark- aðssetja þær fyrir átta til tíu ára stúlkur. Fataverslanir selja efnislitl- ar nærbuxur sem passa fyrir sjö til tíu ára stúlkur og á sumar þeirra eru letruð slagorð á borð við „augnakon- fekt“. Í heimi barnafegurðarsam- keppna nota fimm ára stúlkur gervi- tennur, gervihár og andlitsfarða og er hvattar til að „daðra“.“ Sérfræðingar APA skilgreina kyn- gervingu í fjórum atriðum.  Verðleikar einstaklings koma að- eins fram í kynþokka eða hegðun á kostnað annarra persónueinkenna.  Einstaklingur er metinn eftir staðli sem jafnar líkamlegum þokka við kynþokka.  Manneskja er gerð að kynferðis- legu viðfangi – þ.e. gerð að hlut sem varðar kynlífsnotkun annarra – frem- ur en hún sé einstaklingur með getu til að breyta sjálfstætt.  Kyngervingu er þröngvað upp á einstakling á óviðeigandi hátt. Að lokinni þessari skilgreiningu segir að öll skilyrðin fjögur þurfi ekki að vera fyrir hendi, sérhvert þeirra sé vísbending um kyngervingu. Síðast- nefnda atriðið er sagt einkar tengt börnum, kyngervingu sé oft þröngv- að upp á þau fremur en vera þeirra eigið val. Stúlkur eru með öðrum orð- um gerðar að kynverum áður en þær ná kynþroskaaldri. Barnastjarnan verður kyntákn Af framansögðu má ráða að þetta eru að sjálfsögðu fullkomlega óraun- hæfar ímyndir fyrir börn og til að brúa bilið eru ungar konur, á borð við poppstjörnuna Christina Aguilera, látnar sýna kynþokka sinn á ögrandi hátt í klæðnaði stúlkubarna. Til að flýta fyrir kynþroskanum er svo stúlkum boðið upp á fyllta brjóstahaldara, stuttpils, efnislítil nærföt og sérstakan andlitsfarða. Sterk þörf fyrir nýjar neysluvörur er búin til og margir hagnast. Breska dagblaðið The Daily Tele- graph setur feril poppsöngkonunnar Britney Spears í samhengi við skýrslu APA, en hún er um margt holdgervingur þessarar þróunar. Er þar rakið hvernig Britney hóf feril sinn sem 12 ára barnastjarna hjá Disney árið 1993 en að fimm árum liðnum hafi verið gripið til þess ráðs að stækka aðdáendahópinn með því að kyngera ímynd hennar. Myndbandið við smáskífuna „Hit Me Baby One More Time“ var til marks um þessa umbreytingu, barnastjarnan hafði vikið fyrir ögr- andi stúlku í skólabúningi. Almenningur áhugasamur Hin nýja Britney var svo markaðs- sett í þaula og spunameistarar fengn- ir til að sjá hungruðum fjölmiðlum fyrir stórtíðindum úr skrautlegu einkalífi hennar. Þótt vísun til Brit- ney kunni að vera ófrumleg í þessu samhengi er hún um margt tákngerv- ingur þeirra tilhneigingar afþreying- ariðnaðarins að leita sífellt utar á jað- ar þess sem samfélagið telur ásættanlegt. Hver veit nema kynlífsbyltingin verði fórnarlamb eigin upprunalög- máls, að berjast gegn viðjum þeirra öfga sem samfélagið velur sér. Kyngerving stúlkna skaðar heilsu þeirra  Ímyndir af börnum sem kynferðislegum viðföngum hafa slæm áhrif á þau  Hvött til að daðra í fegurðarsamkeppni Fræg og rík Britney í barnaherberginu. Fegurðardís Stúlka vinnur til verðlauna. Ósæmilegt? Stúlka auglýsir fatnað. STÆRSTU bankar Bretlands standa nú frammi fyrir fordæm- islausri „uppreisn“ milljóna manna sem hyggjast krefjast endurgreiðslu á ólöglegum gjöldum er þeim hefur verið gert að greiða. Breska dag- blaðið The Independent greindi frá þessu í gær. Breskir bankar munu á næstu vik- um birta uppgjör sín og verða þær upplýsingar nýttar til að hefja her- ferð gegn fyrirtækjum þessum. Martin nokkur Lewis, stofnandi vef- setursins moneysavingexpert.com, fer fyrir herferðinni og segir engan vafa leika á að breskir bankar brjóti lög með því að leggja gjald á þá sem fara umfram yfirdráttarheimild sína. „Bankarnir hafa árum saman rænt viðskiptavini sína og nú er komið að því að þeir fái að gjalda fyrir þá framgöngu.“ Í apríl í fyrra féll úrskurður í Bretlandi þess efnis að óheimilt væri að leggja gjöld á þá sem fara yfir út- tektarheimildir á greiðslukortum sínum. Jafnframt var boðað að tekin yrðu til skoðunar gjöld sem lögð væru á þá sem færu fram úr yf- irdráttarheimildum sínum í bönkum. Úrskurðar um lögmæti þessa er að vænta á næstu vikum. Talsmenn neytendasamtaka telja hins vegar ástæðulaust að bíða þeirrar niðurstöðu. Helen Ainswort, talsmaður samtakanna „Which“, segir í samtali við blaðið að helstu bankar landsins hafi samtals inn- heimt um 4,7 milljarða punda, um 608 milljarða króna, með þessum hætti í fyrra. Gjöldin séu lögbrot og sífellt fleiri geri sér grein fyrir að þeir eigi rétt á endurgreiðslu. Hún spáir því að „þáttaskil“ verði í þess- um efnum á næstu vikum í Bret- landi. Bankar muni greina frá millj- arðahagnaði og forráðamenn þeirra þá standa frammi fyrir miklum fjölda reiðra viðskiptavina. Samkvæmt breskum lögum mega lánardrottnar aðeins leggja kostnað sem hlýst af innheimtu við upphæð þá sem tekin er að láni án tilskilinna leyfa. Þetta þýðir að unnt er að inn- heimta gjald fyrir stöðluð bréf sem viðskiptavinum eru send eða kostn- að sem til kemur sökum tölvuvinnslu gagna. Lánardrottnar mega ekki hagnast á gjörningnum. Helstu bankar í Bretlandi gera við- skiptavinum hins vegar að greiða allt að 35 punda gjald, sem svarar til rúmlega 2.300 króna, í hvert skipti sem viðkomandi fer fram úr yf- irdráttarheimild sinni. Hið sama gildir um innistæðulausar ávísanir. Talsmenn bankanna halda því fram að gjöldin séu sanngjörn og gegnsæ enda sé þeirra krafist fyrir vinnu starfsfólks og veitta þjónustu. Viðskiptavinum sé enda greint frá þeim er þeir opna reikninga. „Uppreisn“ í Bretlandi Reuters Smápeningar Breskir bankar græddu um 5.200 milljarða í fyrra. Endurgreiðslu kraf- ist á ólöglegum gjöldum banka Teheran. AP, AFP. | Mahmoud Ahmad- inejad, forseti Írans, sagði í gær að Íranar myndu ekki hætta auðgun úrans nema vestræn ríki gerðu það sama. Í dag rennur út frestur sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna veitti Írönum til að verða við þeirri kröfu ráðsins að hætta auðgun úr- ans sem hægt er að nota til að fram- leiða orku en einnig í kjarnavopn. Mjög ólíklegt er að Vesturlönd fallist á skilyrðið sem Ahmadinejad setti fyrir því að Íranar yrðu við kröfunni. Íranski forsetinn kvaðst þó vilja hefja samningaviðræður að nýju um deiluna. Aðalsamningamaður Írans, Ali Larijani, tók í sama streng þegar hann ræddi við Mohamed ElBar- adei, framkvæmdastjóra Alþjóða- kjarnorkumálastofnunarinnar í Vín. „Við erum að leita að leiðum til að hefja samn- ingaviðræður,“ sagði Larijani. Íranar segjast hafa rétt til að framleiða auðg- að úran og hag- nýta kjarn- orkuna í friðsamlegum til- gangi en vestræn ríki saka þá um að ætla að framleiða kjarnavopn. Bandaríska varnarmálaráðu- neytið sagði í gær að ekkert væri hæft í frétt breska ríkisútvarpsins, BBC, um að bandaríski herinn hefði samið ítarlega áætlun um loftárásir á skotmörk í Íran, ekki aðeins kjarnorkumannvirki, heldur einnig ýmsar stöðvar og byggingar hers- ins. Segjast hætta auðgun úrans geri Vesturlönd það sama Mahmoud Ahmadinejad DANSKUR karlmaður var í gær dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að nauðga tíu ára dóttur sinni og selja fjölda karlmanna aðgang að henni til að þeir gætu misþyrmt henni kynferðislega. Málið hefur vakið mikinn óhug í Danmörku og fengið mikla umfjöll- un í fjölmiðlum landsins frá því að maðurinn var handtekinn í bænum Tønder í ágúst 2005 eftir nafnlausa ábendingu. Maðurinn játaði sig sekan um öll ákæruatriðin. Hann kvaðst hafa nauðgað dóttur sinni ítrekað á tímabilinu frá febrúar til ágúst 2005 þegar stúlkan var tíu og ellefu ára. Maðurinn setti auglýsingar í blöð og á Netið og bauð þeim sem svör- uðu að hafa kynmök við stúlkuna gegn greiðslu. Fjórtán karlmenn hafa þegar verið dæmdir í allt að sex ára fangelsi fyrir að nauðga stúlkunni. Faðirinn var einnig dæmdur fyr- ir að misþyrma annarri dóttur sinni á árunum 2003 og 2004 þegar hún var sex og sjö ára. Móðir stúlknanna hefur verið dæmd til vistar á geðsjúkrahúsi fyr- ir samsekt í málinu. Barnaníð- ingsmál vekur óhug ÞING Afganistans hefur samþykkt umdeilt lagafrumvarp um almenna sakaruppgjöf þeirra er hafa verið sakaðir um stríðsglæpi sl. 30 ár. Forseti landsins getur þó beitt neit- unarvaldi. Mörg grimmdarverk voru framin þar á þessum tíma. Refsilausir glæpir BANDARÍSKUR áfrýjunarréttur úrskurðaði í gær að fangar í Guant- anamo á Kúbu gætu ekki skotið málum sínum til borgaralegra dóm- stóla. Talið er að úrskurðinum verði áfrýjað til hæstaréttar Banda- ríkjanna. Málskoti hafnað MINNST 20 börn og þrír kennarar drukknuðu þegar bátur sökk á stöðuvatni á fuglaverndarsvæði austan við hafnarborgina Kochi á Indlandi í gær. Börnin voru öll yngri en ellefu ára og í fuglaskoðun ásamt um 80 öðrum börnum. Börn drukknuðu HÆSTIRÉTTUR Bandaríkjanna hnekkti í gær úrskurði kviðdóms í Oregon-ríki um að tóbaksfyrirtæk- inu Philip Morris bæri að greiða ekkju 79,5 milljónir dollara, sem svarar 5,2 milljörðum króna, vegna dauða manns hennar, en hann dó af völdum lungnakrabbameins. Bótadómi hnekkt ÞRÍR þindarlausir langhlauparar gerðu nokkuð sem flestir myndu telja brjálæði: hlupu ígildi tveggja maranþonhlaupa á dag í 111 daga, þvert yfir Sahara-eyðimörkina. Hlaupinu lauk í Egyptalandi í fyrrakvöld, tæpum fjórum mánuðum eftir að það hófst. Þremenningarnir hlupu um sex lönd, Sene- gal, Máritaníu, Malí, Níger og Líbíu, auk Egyptalands. „Þetta er án nokkurs vafa það alerfiðasta sem við höfum gert,“ sagði einn hlaupagarp- anna, Charlie Engle, 44 ára Bandaríkjamað- ur. Með honum hlupu Ray Zahab, 38 ára Kan- adamaður og Kevin Lin, þrítugur Taívani. Hlupu tvö mara- þon á 111 dögum Óþreytandi Hlaupararnir Charlie Engle og Ray Zahab. Brussel. AFP. | Umhverfisráðherr- ar aðildarríkja Evrópusambands- ins sögðu í gær að þau myndu draga úr losun koltvísýrings um að minnsta kosti 20% fyrir árið 2020 og væru tilbúin að minnka hana um 30% á sama tímabili ef önnur iðnríki féllust á sams kon- ar aðgerðir til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. Gert er ráð fyrir því að leiðtog- ar ESB-ríkjanna samþykki þessi áform á fundi í Brussel 8.–9. næsta mánaðar. Stavros Dimas, sem fer með umhverfismál í framkvæmda- stjórn ESB, kvaðst vera mjög ánægður með niðurstöðu um- hverfisráðherranna. Nokkur um- hverfisvernd- arsamtök gagn- rýndu þó Evrópusam- bandið fyrir að hafa ekki sett sér það mark- mið að minnka losun koltvísýr- ings um að minnsta kosti 30% án þess að setja það skilyrði að önnur iðn- ríki gerðu það sama. ESB-ríkin eiga eftir að semja um hvað hvert þeirra eigi að gera til að losunin í öllu Evrópu- sambandinu minnki um 20% mið- að við losunina árið 1990. Boða minnst 20% minni losun Stavros Dimas

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.