Morgunblaðið - 21.02.2007, Síða 19

Morgunblaðið - 21.02.2007, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 19 MENNING BANDARÍSK verðlauna- skáldsaga fyrir börn hefur valdið miklu fjaðrafoki vestanhafs og jafnvel verið bönnuð í nokkr- um þarlendum barnaskólum. Ástæðan er sú að í bókinni kemur orðið „pungur“ (e. scrotum) fyrir. Bókin, The Higher Power of Lucky eftir Susan Patron, var ný- verið sæmd hinni eftirsóttu New- bery-orðu fyrir árið 2007, en orðan sú er veitt bókmenntaverki fyrir börn sem þykir skara fram úr að mati bókasafnsvarða í Bandaríkj- unum. Á fyrstu síðu bókarinnar lýs- ir sögupersóna því hvar skröltorm- ur hefur bitið hund hennar og bregður hinu umdeilda orði þá fyr- ir. Hefur kaflinn farið fyrir brjóstið á mörgum kennurum og bókasafns- vörðum, m.a. með þeim afleiðingum að nokkrir skólar harðneita að kaupa bókina, eins og venjan er með sigurbók Newbery-orðunnar. Þá hafa sumir bókasafnsverðir tek- ið það upp hjá sjálfum sér að fela bókina. Málið er mjög eldfimt eins og skrif á bókmennta- og bókasafns- vefsíður í Bandaríkjunum eru til vitnis um. Síðastliðinn fimmtudag birtist í tímaritinu Publisher’s Weekly yf- irlýsing frá höfundinum Susan Pa- tron en hún starfar sjálf á bóka- safnsafni í Los Angeles. Hún kveðst vera bæði „hneyksluð“ og „skelfd“ vegna árasanna á bók hennar og harma þá ritskoð- unartilburði einstakra bókasafnsv- arða að fjarlægja bókina úr hillum vinnustaða sinna. Vilja banna barnabók Orðið „pungur“ veldur deilum Bókin umdeilda. SÖLUÁGÓÐI hins fræga litla svarta kjóls sem leikkonan Audrey Hepburn klædd- ist í kvikmynd- inni Breakfast at Tiffany’s mun duga til uppbygg- ingar fimmtán nýrra mennta- miðstöðva á Ind- landi segir í BBC. Svarti Givenchy-kjóllinn, sem var gerður sérstaklega fyrir hlutverk Hepburn árið 1961, var seldur nafn- lausum kaupanda fyrir 467.200 pund hjá Christie-uppboðshúsinu í desem- ber síðastliðnum. Ágóði sölunnar rann beint til hjálparsamtakana City of Joy Aid í Kalkútta á Indlandi. Fyrsta mennta- miðstöðin verður byggð í Lakshmik- antapur í Bengal og verður opnuð í lok febrúar. Hún verður búin tölvum og öðrum tæknibúnaði til að kenna börnum, sem færu annars aldrei í skóla, enska tungu. Það var franski rithöfundurinn Dominique Lapierre sem stofnaði City of Joy Aid sem hefur það að markmiði að hjálpa þeim fátækustu á Indlandi í gegnum skóla, heilsu- gæslu, sjúkrahús og fleiri stofnanir sem geta leitt til betra lífs. Lapierre fékk kjólinn, sem er einn af þremur sem voru sérsaumaðir á Hepburn í hlutverki hennar í Break- fast at Tiffany’s, að gjöf frá hönn- uðinum Hubert de Givenchy. Búist var við að kjóllinn færi á um 70.000 pund en sú upphæð var slegin rækilega út á uppboðinu, öllum til undrunar og gleði. Kjóll til hjálpar Hepburn EYRARRÓSIN, sérstök við- urkenning fyrir framúrskar- andi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum í dag kl. 16. Þrjú verkefni hafa verið til- nefnd en þau eru: Safnasafnið, Sumartónleikar í Skálholts- kirkju og Strandagaldur. Fyrir rúmu ári féllu verð- launin í skaut LungA – listahá- tíð ungs fólks, Austurlandi en árið 2005 hlaut Þjóðlagahátíðin á Siglufirði Eyr- arrósina. Verðlaunin veitir Dorrit Moussaieff for- setafrú, sem jafnframt er verndari Eyrarrós- arinnar. Viðurkenning Eyrarrósin afhent á Bessastöðum Dorrit Moussaieff FYRIRLESTRARÖÐ í tilefni af því að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jónasar Hallgríms- sonar heldur áfram í dag í Bratta, fyrirlestrasal KHÍ klukkan 16. Stefán Bergmann heldur fyrirlesturinn „Nátt- úrufræðin í lífi Jónasar Hall- grímssonar“ en eins og kunn- ugt er leit Jónas á sig sem náttúrufræðing og vildi starfa sem slíkur. Ragnar Ingi Að- alsteinsson flytur svo sinn fyrirlestur, ,,Stuðla- setning í ljóðum Jónasar Hallgrímssonar“ en eins og yfirskriftin ber með sér fjallar hann um stuðl- un í kvæðum Jónasar. Fyrirlestur 200 ára afmæli Jón- asar Hallgrímssonar Jónas Hallgrímsson HLJÓMSVEITIN Sprengjuhöllin heldur tón- leika á skemmtistaðnum Sirkus við Klapparstíg í kvöld. Tónleikana ber upp á öskudag og eru gestir hvattir til að mæta í grímubúningi í tilefni dagsins. Verða liðs- menn Sprengjuhallarinnar klæddir búningum og búast má við miklum látalátum frá sveitinni. Tónleikarnir hefjast um kl. 22 og það er enginn aðgangseyrir. Í fréttatilkynningu sem sveitin sendi frá sér segir að hún vilji einnig koma því á framfæri að hún hafi ekki enn tekið afstöðu til Baugsmálsins. Tónleikar Sprengjuhöllin á Sirkus í kvöld Sprengjuhöllin Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „ÞAÐ er önnur hver hljómsveit farin að spila þetta lag, og það er tilfinn- ingalegur sársauki sem fylgir því fyrir mig að heyra lagið ennþá eignað öðrum.“ Sigrún Björns- dóttir er ekkja Ragnars Björns- sonar fyrrverandi dómorganista og skólastjóra Nýja tónlistarskólans. Sigrún er þess fullviss, að dæg- urlagið gamla, sem hefst þannig: „Við gengum tvö, við gengum tvö, í rökkurró,“ sé eftir Ragnar, enda hafi hann sjálfur ætíð haldið því fram. „Ragnar var nýútskrifaður org- anisti úr Tónlistarskólanum í Reykjavík, þegar hann var ráðinn til Siglufjarðar sem organisti og kór- stjóri. Hann var þá kornungur mað- ur, og ætlaði að vera fyrir norðan í eitt ár áður en hann lyki píanóleik- araprófi. Hann bjó hjá Sigurjóni Sæ- mundssyni prentara og Rögnu konu hans, og þar kynntist hann textum Valdimars Hólm Hallstað. Ragnar sagði að þessi texti Valdimars hefði strax gripið sig; hann hefði sest við píanóið og samið þetta lag.“ Sigrún segir að Ragnar hafi tekið þátt í gleðskap unga fólksins í bænum og skömmu eftir að hann samdi lagið, hafi hann spilað það í partíi í bænum. „Þarna var ungt fólk að skemmta sér og lagið féll strax í kramið. Ragnar sagði til dæmis, að þar hefði verið ung stúlka, sem hefði lært lag- ið utanað á augabragði, og sjálfri finnst mér það ekki skrýtið, því það syngur sig sjálft.“ Fyrr en varði fór Ragnar, að sögn Sigrúnar, að heyra hljómsveitir spila lagið, en sakir æsku sinnar og ókunnugleika um réttindamál höf- unda, hafi hann ekkert gert í því að vernda höfundarrétt sinn, enda hafi slíkt tæpast verið í umræðunni þá, árið 1947. „Svo kom að því að Ragnar heyrði lagið eignað Friðriki Jónssyni frá Halldórsstöðum. Honum var brugð- ið, en Friðrik kom úr mikilli og sterkri tónlistarfjölskyldu á norð- vesturhorni landsins. Ragnar taldi það verða erfitt fyrir sig að fá þetta leiðrétt,“ segir Sigrún. Því fór sem fór, að Ragnar hafðist ekki að, og nóturnar að frumgerð lagsins glat- aðar. „Ég spurði Ragnar hvort ekki gæti allt eins verið að hann hefði heyrt lagið og „fundist“ hann hafa samið það, eins og vissulega getur gerst, en hann var staðfastur.“ Það hlýtur að vera erfitt að færa sönnur á höfundarrétt ef engin gögn eru til að staðfesta hann. Sigrún seg- ir hins vegar að sönnunargögnin séu fólgin í laginu sjálfu. „Ragnar samdi ekki mörg dæg- urlög, en þegar hann gerði það, þá voru þau aðallega í þeim rytma sem einkennir þetta lag. Þá er laglínan líka mjög dæmigerð fyrir það sem Ragnar gerði. Ég heyrði eitt sinn útvarps- dagskrá um Friðrik Jónsson og lög- in hans, og sagt að eitt lag stæði uppúr og væri sérstakt fyrir hann, og það var einmitt „Við gengum tvö“.“ Sigrún telur, að það hve lagið lík- ist þeim dægurlögum sem Ragnar samdi, en sé ólíkt öðrum lögum Frið- riks, styrki hennar mál. En hvað er til ráða í tilfellum sem þessum? Urður Snædal, á skrifstofu STEFs, segir að deilur um höfund- arrétt séu mjög sjaldgæfar. Hún segir, að komi til þess að tónskáld þurfi að leita réttar síns, geti það orðið heilmikið ferli að komast að hinu rétta. Fyrsta skrefið sé auðvit- að að leita til STEFs, en þess séu dæmi að matsmenn séu kallaðir til, til dæmis í þeim tilfellum er mikill svipur er með tveimur verkum. „Matsmenn eru til staðar ef nauðsyn krefur.“ Ekki kemur fram í skrám STEFs hvenær lagið „Við gengum tvö“ var fyrst skráð, en ekki fer á milli mála að þar er það eignað Friðriki Jóns- syni. Ragnar Björnsson lést árið 1998. Samdi dómorganistinn „Við gengum tvö“? Ekkja Ragnars Björnssonar telur að gamalt dægurlag sé eignað röngum höf- undi. Dæmi um að matsmenn séu til kallaðir til að skera úr um vafaatriði Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Bæjarins bestu Söltunarstúlkur á Siglufirði í upphafi sjöunda áratug- arins. Þær hafa eflaust þekkt og sungið „Við gengum tvö“. Ragnar Björnsson FULLTRÚAR frá Straumi- Burðarási Fjárfestingabanka, FL Group, Olíufélaginu og Artangel- listastofnuninni skrifuðu í gær undir samstarfssamning sín á milli um stuðning fyrirtækjanna við Vatna- safnið í Stykkishólmi, sem er hug- arsmíð bandarísku listakonunnar Roni Horn. Stuðningurinn nemur 13,5 milljónum króna og er hugsaður til að koma á fót innsetningu lista- konunnar og samfélagsmiðstöð í Vatnasafninu, sagði Bjarni Bene- diktsson, stjórnarformaður Olíufé- lagsins. „Þetta verkefni er að okkar áliti framúrskarandi spennandi og aðild að því á virtur listamaður með mikla framtíðarsýn,“ sagði Bjarni jafn- framt. „Þetta getur eins orðið fyr- irmynd að viðlíka starfsemi annars staðar á landinu.“ Starfsemi safnsins verður tvenns konar. Í kjallara hússins verður íbúð og vinnuaðstaða sem rithöfundar hafa aðgang að í sex mánuði í senn. Á Vatnasafninu sjálfu á að koma fyr- ir listaverki eftir Roni Horn sem samanstendur af 20–30 glersúlum. Hver súla inniheldur ákveðið magn af vatni sem fengið verður úr helstu jöklum og ám landsins. Framúrskarandi spennandi verkefni Morgunblaðið/Ásdís Frá fundinum Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir hjá Straumi Burðarási, Bjarni Benediktsson, stjórnarformaður Olíufélagsins, James Lingwood forstöðumaður Artangel og Kristján Kristjánsson hjá FL Group. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.