Morgunblaðið - 21.02.2007, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINN STAÐUR
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
FRAMUNDAN eru töluverðar
framkvæmdir á svæði Fimleika-
félags Hafnarfjarðar í Kaplakrika.
Að þeim loknum, eftir rúmlega tvö
ár, verða FH-ingar meðal annars
komnir með langþráða fé-
lagsaðstöðu, tvær stúkur með þaki
við aðalknattspyrnuvöll félagsins
og 4.500 fermetra frjálsíþróttahús
sem mun nýtast öllum fé-
lagsmönnum og bæjarbúum.
Miklar framkvæmdir
Mikil uppbygging hófst á svæði
FH í Kaplakrika sumarið 2005 í
framhaldi af viljayfirlýsingu FH
og Hafnarfjarðarbæjar, sem und-
irrituð var á 75 ára afmæli félags-
ins 16. október 2004. Lokaáfangi
þeirrar uppbyggingar er hafinn
með útboði á jarðvegsfram-
kvæmdum og eftirliti en verkinu á
að vera að fullu lokið eftir rúmlega
tvö ár eða 1. júní 2009.
Í lokaáfanganum er um að ræða
félags- og skrifstofuaðstöðu á einni
hæð, ný búningsherbergi sem upp-
fylla UEFA-staðla, viðbótarstúku,
aðstöðu fyrir fréttamenn og
keppnisstjórn, skyggni yfir núver-
andi stúku, sem rúmar þá nær
2.000 manns í sæti, skylmingasal,
endurgerð á eldra húsnæði, þar
með talið á búningsherbergjum,
200 m² tækja- og lyftingasal, 4.500
m² frjálsíþróttahús, tengibyggingu
á milli allra húsa, þar með talið í
knattspyrnuhúsið Risann. Samtals
eru nýbyggingar um 7.000 m².
Lóðin verður öll endurgerð, bíla-
stæði, gönguleiðir og aðkoma að
svæðinu, þ.m.t. við Flatahraun og
aðgengi að íþróttamiðstöðinni.
Loksins félagsaðstaða
„Við höfum beðið lengi eftir fé-
lagsaðstöðunni, segir Viðar Hall-
dórsson, varaformaður FH og ann-
ar fulltrúa félagsins í bygging-
arnefnd vegna Kaplakrika.
FH-ingar hafa borið af í ís-
lenskri karlaknattspyrnu und-
anfarin ár og undirstrikar Íslands-
meistaratitillinn undanfarin þrjú
ár það rækilega. Þeir hafa fengið
flesta áhorfendur á heimaleiki sína
undanfarin tvö ár, tæplega 2.000
að meðaltali á hvern leik, og Viðar
segir að bætt aðstaða komi öllum
vel. Hann áréttar að við norð-
anverðan völlinn verði líka reist
stúka með þaki „og fyrir tímabilið
2008 verðum við með eina „alvöru“
knattspyrnuvöll landsins,“ segir
hann.
Með þessum aðgerðum lýkur
framkvæmdum á svæðinu. Viðar
segir að allt sem gert verði, gjör-
breyti málum og frjálsíþróttahúsið
muni til dæmis nýtast skólafólki og
eldri íbúum en þrátt fyrir miklar
framkvæmdir anni knatt-
spyrnudeildin ekki eftirspurn og
næsta skref þar sé að fá aðstöðu
annars staðar til viðbótar við að-
stöðuna í Kaplakrika. „Æfinga-
greiðslur bæjarins hafa aukið þátt-
töku ungra krakka og það segir sig
sjálft að þegar vel gengur, þá
eykst áhuginn auk þess sem vin-
sældir knattspyrnunnar almennt
eru miklar,“ segir Viðar.
Allt í einum pakka
Samkomusal félagsins verður
hægt að breyta í æfingasal og er
gert ráð fyrir að skylmingadeildin
fái þar aðstöðu fyrir æfingar sínar.
Félagið fær líka skrifstofuaðstöðu
við hæfi og búningaþvottaaðstöðu
fyrir utan nýjan tækja- og lyft-
ingasal fyrri allar deildir. „Nú
verður þetta allt á einum stað, allt
í einum pakka með einu anddyri,“
segir Viðar, en áætlaður kostnaður
við framkvæmdirnar er um 1-1,2
milljarðar króna.
Unnið að lokauppbyggingu FH-svæðisins
Inngangur Teikningin sýnir aðkomutorgið að mannvirkjum FH í Kaplakrika. Nýja frjálsíþróttahúsið er til vinstri.
Skýli Knattspyrnuvöllur FH verður glæsilegur með stúkum beggja vegna
þar sem áhorfendur sitja undir þaki og njóta leiksins.
Mikil lyftistöng
fyrir Hafnfirðinga
Í HNOTSKURN
» Í lokaáfanga fram-kvæmdanna í Kaplakrika
verða reistar samtals um 7.000
m² nýbyggingar.
» FH-ingar fá m.a. lang-þráða félagsaðstöðu, tvær
stúkur með þaki við aðalknatt-
spyrnuvöll félagsins og 4.500
fermetra frjálsíþróttahús.
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
FYRIRTÆKIÐ Björgun hefur sett
fram hugmyndir um lágreista byggð
fjölbýlishúsa og raðhúsa við Pollinn í
botni Eyjafjarðar og hefur málið
verið til umfjöllunar hjá yfirvöldum í
Eyjafjarðarsveit og á Akureyri síð-
ustu mánuðina. Alls er óvíst hvort
hugmyndirnar verða að veruleika en
óhætt er að segja að ásýnd svæðisins
breytist verulega ef af framkvæmd-
um verður.
Það er Björn Ólafs arkitekt sem
unnið hefur teikningar að hugmynd-
inni fyrir Björgun. Þær fela í sér
byggð raðhúsa í fjörunni sunnan við
þjóðveg 1 – við tjörnina í krikanum
þar sem Eyjafjarðarbraut austari og
Leiruvegurinn mætast – og hús á
manngerðum eyjum á strandsvæði
við Pollinn, norðan Leiruvegarins.
Alls 351 íbúð í lágreistri byggð rað-
húsa og lítilla fjölbýlishúsa.
Bryggjuhverfi fyrir sunnan
Björgun ehf. hefur áður fengist
við samskonar verkefni og er enn að;
fyrirtækið gerði Bryggjuhverfið í
Grafarvogi frá grunni (annaðist
landgerð, skipulag gatna og lagna og
teikningar húsa), það stóð einnig fyr-
ir upbyggingu Sjálands í Garðabæ
og fyrirhugaðar eru framkvæmdir
Fossvogsmegin í Kópavogi.
Akureyrarbær gerði í fyrra at-
hugasemdir við tillögur Eyjafjarðar-
sveitar að nýju aðalskipulagi, m.a.
vegna fráveitumála vegna nýju
byggðarinnar en nú virðast sveitar-
félögin tvö vera orðin sátt um hvaða
leiðir verða farnar til úrlausnar í
þeim ágreiningsefnum.
Forráðamenn Akureyrar minntu
einnig á í fyrra, vegna fyrirhugaðrar
Fjörubyggðar, að nærliggjandi
verndarsvæði í óshólmum Eyjafjarð-
arár væri mikilvægur staður vegna
fuglalífs. Nú hafa verið samþykkt
ýmis ný skilyrði fyrir uppbyggingu
svæðisins, vegna ótta við neikvæð
áhrif á lífríkið og náttúruna, sem
eiga að tryggja að Fjörubyggðin
skaði ekki friðlandið í óshólmum
Eyjafjarðar.
Á meðfylgjandi teikningum, sem
unnar eru af Birni Ólafs arkitekt fyr-
ir Björgun, sést vel hverjar hug-
myndir fyrirtækisins eru og stað-
setning hugsanlegrar byggðar miðað
við Akureyri. Rétt er þó að árétta að
óvíst er hvort af framkvæmdum
verður eða hvort niðurstaðan verður
þessi ef byggt verður á svæðinu.
Hugmyndir um eyjabyggð
AKUREYRI
BRIM hefur ákveðið að kæra tvo
frístundaveiðimenn á Akureyri til
lögreglu fyrir að festa trillur sínar
við eldiskvíar fyrirtækisins skammt
norðan Krossaness.
Sævar Þór Ásgeirsson, umsjón-
armaður fiskeldis hjá Brimi, sagð-
ist í gær hafa varað umrædda menn
við áður en þeir hafi ekki látið segj-
ast og hann ætti því ekki annarra
kosta völ. Sævar segist hafa látið
lögreglu vita eftir að hann varð
mannanna var á sunnudaginn og
hún tekið athæfi þeirra upp á
myndband.
Mennirnir eru líka grunaðir um
að hafa stolið fiski úr kvíum en eng-
inn afli fannst. Sævari finnst þau
rök mannanna lítt haldbær að þeir
hafi fest bátana vegna straums á
meðan þeir voru að veiða, því stafa-
logn hafi verið á sunnudaginn.
Sævar segir segir mikið tjón
hljótast af því ef gat kemur á poka í
kvíunum. „Ef menn valda því að gat
kemur á poka eru þeir bótaskyldir
fyrir tugum milljóna króna. Ég
held þeir átti sig ekki á því.“
Kæra tvo
trillukarla
ERLINGUR Jóhannsson, prófessor
við Íþróttafræðasetur KHÍ á Laug-
arvatni, heldur í dag erindi sem
hann nefnir Líkamlegt ástand og
hreyfing íslenskra barna á Fé-
lagsvísindatorgi HA. Þar ræðir Er-
lingur m.a. um niðurstöður um-
fangsmikillar rannsóknar á lífsstíl
9 til 15 ára Íslendinga sem gerð var
á hér á landi árið 2004.
Erindi Erlings hefst kl. 12.00 í
stofu L201 á Sólborg við Norð-
urslóð.
Líkamlegt
ástand barna