Morgunblaðið - 21.02.2007, Side 23
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 23
MARGIR eiga góðar minningar tengdar ösku-
deginum, þegar heilmikil samvera og skemmtun
fólst í því að búa til öskupoka fyrir öskudaginn úr
allrahanda efnum í ótal litum. En mesta fjörið
var að fara út á meðal fólks og næla poka í sem
flesta án þess þeir yrðu þess varir. Sumstaðar
þróaðist þetta í ástarjátningar og kona á sjötugs-
aldri man frá sinni bernsku þann sið að strákar
bjuggu til hjörtu úr pappa eða skáru þau út í tré
og hengdu á stúlkurnar og skrifuðu þar á: Ég
elska þig, og bættu nafni stúlkunnar aftan við.
Stúlkurnar geymdu þau hjörtu sem gull væru,
sem þær fengu frá strákum sem þær voru skotn-
ar í. Þessi sama kona segist stundum hafa laum-
að miða með einhverju fallegu í öskupokana sína
og hún merkti líka suma pokana með upphafs-
stöfum strákanna sem áttu að fá þá. Þetta var því
heilmikil rómantík og full ástæða til að hvetja
ungu kynslóðina til að taka upp þennan leik.
Endurvekjum öskupokana
Allir þeir sem eru eldri en tvæ-
vetur muna eftir fjörinu sem
tengdist öskupokunum á ösku-
daginn. Kristín Heiða Krist-
insdóttir rifjar upp sögur af ösku-
pokum, hrekkjum og ástum.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
1973 Tvær vinkonur tilbúnar í slaginn með öskupokana sína.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
1975 Sú gamla lætur ekki gabba sig í miðbæ Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
1977 Karlinn virðist grunlaus um prakkarann að baki.
MARGAR konur eru væntingar-
fyllri fyrir egglos en annars, að
því er ný rannsókn sýnir. Vís-
indamennirnir telja að með
þessu hafi náttúran viljað auð-
velda konum að finna sér maka.
Fimm til fjórtán dögum eftir
blæðingar stækka egg konunnar
og östrógenmagnið í blóðinu
eykst. Á þessu tímabili fyrir
egglos er meiri virkni í þeim
hluta heila kvenna sem stýrir
væntingum um viðurkenningu,
ákvörðunartöku og úrvinnslu
tilfinninga.
Forskning.no greinir frá því
að bandarískir vísindamenn hafi
rannsakað heilastarfsemi
kvenna á mismunandi tímum
tíðahringsins með því að mæla
blóðstreymi í heilanum. Meðan á
mælingunum stóð voru kon-
urnar látnar spila spil þar sem
peningaverðlaun voru í boði.
Þannig gátu vísindamennirnir
mælt hvernig heilinn brást við
væntingunum um að vinna.
Þeir telja slíkar væntingar
geta haft æðri tilgang. Náttúran
gæti hafa valið þessa eiginleika
vegna þess að konur sem eru
tilfinninganæmar og óska eftir
viðurkenningu eigi auðveldara
með að para sig en ella.
Þá hafa vísindamenn í fyrsta
skipti fundið samband milli
kvenhormónsins östrógens og
dópamíns sem ber boð milli
taugafrumna og virkjar við-
urkenningarmiðstöð heilans.
Skapsveiflur í tíða-
hringnum hafa tilgang
Reuters
Væntingafyllri Konurnar voru látnar spila um peningaverðlaun svo
mæla mætti hvernig heilinn brygðist við sigurvæntingum.
Ólafur Jóhannesson skrifar Vísna-horninu: „Mig langar til að leggja
orð í belg varðandi vísuna um
skarfinn. Um það leyti sem
samningaumræður fóru í gang, ég held
það hafi verið fyrir árið 1980, var Jón
Sigurðsson ráðuneytistjóri fjármála-
ráðuneytisins og formaður samninga-
nefndar ríkisins, en hann var
sanngjarn og viðræðugóður maður.
Honum fannst kröfur opinberra
starfsmanna ganga úr hófi fram og
myndu einungis leiða til áframhaldandi
víxlverkana verðlags og kaupgjalds.
Hann skrifaði því grein í Morgunblaðið
og kastaði fram húsganginum um
skarfinn. Ég tel að hann hafi verið
svona í grein hans:
Margur ágirnist meira en þarf,
maður fór að veiða skarf
hafði fengið fjóra.
Elti þann fimmta, en í því hvarf
niður fyrir bjargið stóra.
Páll Bergþórsson fyrrverandi veður-
stofustjóri og baráttumaður fyrir hags-
munum opinberra starfsmanna, las
þessa grein og sneri útúr þessari vísu.
Þá var ljóst að Jón væri að hverfa úr
embætti ráðuneytisstjóra og taka við
embætti forstjóra Járnblendisins á
Grundartanga. Ég held að hans
bragarbót hafi verið svona:
Margur ágirnist meira en þarf
maður fór að veiða scarf
lánaðist fjóra að fanga.
Elti þann fimmta og í því hvarf
ofan í Grundartanga.
Af skarfi og
Grundartanga
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Í fámenninu í sveitum landsins var
þessi ösku- og steinaburður meira
alvörumál, en hjer í fjölmenninu. Þá
kom það fyrir, að piltarnir ráðg-
uðust um það áður en öskudagurinn
rann upp, hvernig þeir ættu að
koma því fyrir, að allar stúlkur á
heimilinu bæru steina fyrir þá á
öskudaginn. Þeir höfðu ekki tök á,
eða hirtu ekki um að hafa steinana í
poka, heldur reyndu þeir að setja
smásteina í föt stúlknanna, eða eitt-
hvað sem þær báru, t.d. festa þá
með deigi neðan í mjólkurföturnar,
áður en mjaltakonurnar fóru í fjós
eða þvíumlíkt, og koma svo, sigri
hrósandi, er stúlkurnar höfðu borið
steinana tilskilda leið – yfir þrjá
þröskulda. Þetta varð til þess, að
stúlkur, sem varkárar voru, urðu að
grendskoða alt sem þær báru þann
dag, hvort ekki væru þar steinar
fólgnir.
Yfir þrjá þröskulda
Úr Morgunblaðinu 1939
Í gær kom maður inn á skrifstofu Morg-
unblaðsins með hugvitssamlega gerðan
öskupoka, er einhver jungfrúin hafði nælt
aftan á hann á miðvikudaginn. Var poki
sá úr grábrúnu efni og saumaður í mús-
arlíkingu. Var ómögulegt að gera sér
grein fyrir öðru tilsýndar, en að þar væri
komin lifandi mús, því svo var hann
nauðalíkur því. Annan fyrirmyndar ösku-
poka sáum vér einnig. Var hann úr silki
og útsaumaður mjög haganlega, en engin
var í honum askan, því hann var ekki ætl-
aður til þess að hengja aftan í einhvern,
heldur var hann gefinn í öskudagsgjöf.
Ungu stúlkurnar, sem vaxnar eru upp úr
því að leika sér að því að láta piltana bera
ösku, hafa fundið upp á því heillaráði, að
gefa þeim, er þeim þykir vænst um, fal-
legan öskupoka til minningar um sig á
öskudaginn. Er það fallegri siður en sá, er
drengir hafa tekið, að hengja stóra bréf-
poka með verzlunarnafni aftan á þá, sem
um götur ganga.
Í músarlíki
Úr Morgunblaðinu 1915
Ein er sú hefð tengd öskudeginum sem ekki
finnst annars staðar en á Íslandi, en það er
sú venja að hengja öskupoka á fólk.
Kannski má rekja upphaf þess til katólsk-
unnar og krafts öskunnar sem gjarnan var
mögnuð með heilögu vatni. Sóttu menn í að
taka ösku með sér heim úr kirkjum til að
blessa heimilið. Þessi pokasiður þekkist á
Íslandi allt frá miðri 18. öld, mögulegt er að
heimild öld eldri greini frá sama sið. Hér
skiptist pokasiðurinn lengi vel í tvennt eftir
kynjum: konur hengdu öskupoka á karla en
karlar poka með steinum á konur. Líklegt
er að ólík kynjahlutverk og aðgengi að
hlutum hafi þar skipt máli, en lykilatriði
hjá báðum kynjum var að koma pokunum
fyrir svo að fórnarlambið tæki ekki eftir
því.
Snemma á 20. öld þróaðist öskupokasið-
urinn í þá átt að verða nokkurs konar Val-
entínusarbréf. Ungar stúlkur sendu ungum
piltum sem þeim leist vel á poka til að gefa
áhuga sinn til kynna.
Aska handa körlum,
steinar handa konum
Árni Björnsson, Saga daganna.
Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl.
Þetta er aðeins smá sýnishorn.
Allir velkomnir til okkar.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni
ekki í síma eða á netinu.
Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is
Nokkur fyrirtæki úr söluskrá
Erum með óvenjulega góða söluskrá og mörg góð fyrirtæki til
sölu. Eins og flestir vita erum við langelsta fyrirtækjasala
landsins. Hér kemur smá sýnishorn úr söluskrá okkar.
1. Frábær húsgagnaverslun og tengdar vörur. Flott hjónafyrirtæki.
2. Söluturn í eigin húsnæði. Allar vörur. Grill.
Hjá 2 stórum skólum
3. Tveir samliggjandi skemmtistaðir fyrir norðan.
Vinsælir og þekktir.
4. Einn besti austurlenski grillstaður borgarinnar. Tai matur.
Mikið að gera.
5. Stór bílasala með húsbíla. Nær fullbókað í sumar.
Pantanasprengja.
6. Byggingafyrirtæki. Nýsmíði. Glæsileg sumarbústaðalóð getur
fylgt með.
7. Ný og skemmtileg hverfissjoppa. Stór byggð í kring. Grill.
8. Besti kjúklingastaður höfuðborgarinnar. Arðbært, ódýrt
fyrirtæki.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn