Morgunblaðið - 21.02.2007, Síða 24

Morgunblaðið - 21.02.2007, Síða 24
heilsa 24 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur gudbjorg@mbl.is Járn er það næringarefni sem helst er af skornum skammti í fæði kvenna og barna víða um heim. Sam- kvæmt íslenskri könnun á mataræði er meðalneysla á járni talsvert undir ráðlögðum dagsskammti hjá konum, en konur á barneignaraldri ásamt ungbörnum og unglingum sem vaxa hratt hafa aukna þörf fyrir járn. Járn er eina næringarefnið sem konur þurfa meira af en karlar. Þessari auknu þörf getur verið erfitt að mæta þar sem konur borða yf- irleitt minna en karlar sem þar að auki borða oft mun meira af kjöti en konurnar. Langvarandi járnskortur kemur fram í blóðleysi. Að sögn Svövu Engilbertsdóttur næringarráðgjafa á LSH er ungum konum hætt við járnskorti vegna tíðablæðinga en blóðleysi getur þó stafað af skorti á B12- og fleiri B- vítamínum. Þá segir Svava ljóst að margar ungar konur borði lítið af rauðu kjöti og járnríkri fæðu eins og slátri og lifur og fullnægi þannig ekki dagsþörfinni af járni. C-vítamín með járninu Járn er í fæðu bæði sem svokallað hemjárn og hemfrítt járn. Hemj- árnið kemur úr dýraríkinu sem mest er af í kjöti/kjötvörum og fleiru. Hemfrítt járn kemur úr jurtaríkinu og er mest í kornvörum og dökku grænmeti. Munur er á frásogi og nýtingu hemjárns og hemfrís járns í lík- amanum, járn úr kjöti frásogast og nýtist betur en hemfría járnið úr kornvörum og grænmeti. Því má segja að auðveldara sé að ná í járn- skammtinn úr kjötinu en það er líka hægt ná járninu úr jurtaríkinu. Svava bendir á að unnt sé að auka nýtingu á hemfríu járni úr kornvör- um og dökku grænmeti með því að neyta C-vítamínríkrar fæðu eins og ávaxta eða grænmetis með máltíð- unum. Heilkorn og dökkgrænt grænmeti En hvaða járnríka fæða getur þá komið í staðinn fyrir slátur, rautt kjöt og lifur hjá ungum konum og öðrum sem fá ekki nægilegt járn í kroppinn? „Heilkorn og járnbætt korn, dökkgrænt grænmeti, ýmsar baunir svo og þurrkaðir ávextir er fæða sem inniheldur töluvert af járni. Þá hafa margir morgunkornsframleið- endur einnig járnbætt vörur sínar. Einnig er nokkuð af járni í sard- ínum, kræklingi og síld. Það verður þó að hafa í huga að það þarf að borða töluvert magn af til dæmis dökkgrænu grænmeti til þess að ná í járnskammtinn. Þegar um járnskort er að ræða skal forðast að drekka te, kaffi eða kakó með járnríkum mat. Mikil neysla gosdrykkja getur haft hamlandi áhrif á frásog járns. Sum lyf t.d. sýrubindandi lyf geta haft þar áhrif líka.“ Hlutverk járns Aðalhlutverk járns er myndun blóðrauða eða hemóglóbíns sem gef- ur blóðinu rauða litinn. „Hemóglób- ínið sér um flutning súrefnis frá lungum til vefja. Einnig er járn í vöðvarauða eða myóglóbíni og geymir súrefni í vöðva. Járn er líka mikilvægt fyrir ónæmiskerfið og fyrir virkni margra efnahvata sem taka þátt í efnaskiptum. Járn þarf fyrir hjarta, lifur, meltingarfæri, bein, vöðva og heila.“ Hvernig lýsir járnskortur sér? „Þreyta og orkuleysi eru fyrstu og algengustu einkenni. Ef um langvarandi og alvarlegan járnskort er að ræða eru önnur einkenni sem gera vart við sig, mæði, svimi, óeðlilegur hjartsláttur, sjóntrufl- anir, höfuðverkur, ógleði og óþægilegar tilfinn- ingar í fingurgómum og tám.“ Svava segir að oft séu fyrstu viðbrögð við þreytu og orku- leysi að leita í skjótfengna orku með sætindum og gosi en það er lausn sem virkar ekki nema í örskamma stund og ætti því að leita orsaka þreytunnar frekar en leita á náðir sykursins. Bara taka járn ef þess þarf Er auðvelt að koma járnbúskapn- um í eðlilegt horf á ný? „Já, það er yfirleitt hægt með því að vera meðvitaður um að borða járnríka fæðu og taka inn fæðubót- arefni ef um skort er að ræða sem hefur verið metin af lækni. Ófrískar konur geta þurft að taka járn auka- lega á meðgöngu og jafn- vel meðan þær eru með börn á brjósti. Á meðgöngu eykst blóðmagn og því aukin þörf járns sér í lagi síðari hluta meðgöng- unnar. Þörfin fyrir járn eykst meira en fyrir flest önnur næringarefni á meðgöngunni. Rétt er að benda á að mjög mikið úrval er til af járni í formi (töflur, vökvi) bætiefna í apótekum og heilsubúðum og magnið af járni í þeim er mismikið. Sumar konur finna fyrir meltingaróþægindum þegar þær taka járn aukalega sem oft er háð því hvernig það er tekið eða hversu mikið járn er í þeim töfl- um sem þær eru að taka. Það má hinsvegar benda á að það er ekki æskilegt að taka járn nema fólk þurfi á því að halda og ætti því að láta mæla járnbú- skap sinn áð- ur en það fer að taka járn auka- lega. Járn- skortur er mun sjaldgæf- ari hjá körlum og hjá konum sem komnar eru af barneignaraldri. Geri járnskortur vart við sig hjá þessum hópi ætti að leita skýringa hjá lækni.“ Járnskort- ur veldur þreytu og orkuleysi Morgunblaðið/Ómar Járnríkt Það er hægt að auka nýtingu á járni úr kornvörum og dökku grænmeti eins og spergilkáli með því að neyta C-vítamínríkrar fæðu eins og ávaxta eða grænmetis með máltíðunum. Ljósmynd / Þórdís Ágústsdóttir ljósm. LSH Svava Engilbertsdóttir næring- arráðgjafi á LSH Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is Hætta á húðkrabbameini vegna ljósabekkjanotkunar hefur aukist í Bretlandi vegna þess að styrkleiki peranna í bekkjunum verður stöð- ugt meiri. Hættan hefur þrefaldast á síðustu tíu árum. Hér á landi eru í gildi reglugerðir sem kveða á um hversu sterkar perur mega vera í bekkjunum. Ný bresk könnun leiddi í ljós að í um 83% ljósabekkja þar í landi er notast við sterkari perur en evr- ópsk og bresk viðmið kveða á um. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu BBC. Samtök sólbaðsstofa vísa gagnrýni á bug og staðhæfa að sól- baðstíminn hafi verið styttur eftir því sem styrkleiki peranna hafi aukist. Skoðaðir voru 133 ljósabekkir á 50 sólbaðsstofum. Kom í ljós að frá árinu 1997, þegar síðast var gerð sambærileg rannsókn, hefur einka- reknum sólbaðsstofum fjölgað um 130% og að á þeim er meira um ljósabekki með sterkar perur. Á mörgum stöðunum er ekkert eft- irlit með bekkjunum sem margir hverjir eru einskonar sjálfsalar sem fara í gang við að smápen- ingum er stungið í þá. Þá eru ekki heldur nein takmörk á aldri sólbað- enda né á því hversu oft þeir nota bekkina. Jafngilda styrk Miðjarðarhafssólarinnar Að sögn Þorgeirs Sigurðssonar hjá Geislavörnum ríkisins eru í gildi reglugerðir sem kveða á um hámarksstyrkleika ljósabekkjapera hérlendis. „Þetta er samskonar takmörkun og er í gildi á Norð- urlöndum, Frakklandi og á Spáni. Löggjöfin hefur verið miklu frjáls- legri annars staðar í Evrópu hvað þetta varðar.“ Hann segir ákveðinn staðal til þar sem ljósabekkjum er skipt í flokka eftir styrkleika. „Hins vegar eru ekki reglugerðir í Bretlandi sem segja að menn þurfi að tak- marka sig við UV3-bekki eins og reglur á Íslandi kveða á um. Þann- ig að ef menn hafa verið með lög- lega bekki hérlendis hafa bekkirnir verið innan tilskilinna takmarka. Að því leytinu til held ég að þessi frétt eigi ekki við okkur.“ Í um- ræddri rannsókn var styrkur ljósa- bekkjanna borinn saman við styrk sólarljóssins úti í náttúrunni. Er bent á að í síðustu rannsókn hafi geislar flestra ljósabekkjanna verið sambærilegir við bresku sólina en í dag séu þeir frekar sambærilegir við sólina eins og hún er í Miðjarð- arhafslöndunum. Þorgeir segir þetta ágæta samlíkingu. „Við vilj- um einmitt takmarka ljósabekkina við styrk Miðjarðarhafssólarinnar, eða mesta sólarstyrk sem finnst við náttúrulegar aðstæður í Evrópu. Ljósabekkjaiðnaðurinn hefur hald- ið því fram að þörf sé á því sem er kallað hraðmeðferð og vilja að þessi styrkur sé tvöfaldaður. Okk- ur finnst hins vegar rétt að tak- marka þetta við þekkt viðmið úr náttúrunni.“ Að sögn Þorgeirs er þó ýmislegt í deiglunni hvað varðar ljósabekki í Evrópu. „Evrópusambandið er til dæmis með til athugunar hvort ljósabekkir megi yfirhöfuð teljast vera öruggir fyrir neytendur og m.a. vegna þess er verið að vinna í því að setja hámörk fyrir ljósa- bekki alls staðar í Evrópu.“ Styrkur ljósabekkja eykst Ljósaperur Hér á landi eru í gildi reglugerðir sem kveða á um hversu sterkar perur mega vera í bekkjunum. Að hvítlaukur er hollur er engin ný speki. En nú hafa vísindamenn fundið út að hollusta hans eykst ef hann er kraminn. Hvítlaukur er talinn virka gegn sýklum og ýmiskonar sjúkdómum. Nýjar rannsóknir benda t.a.m. til þess að hvítlaukur innihaldi efni sem fyrirbyggi blóðtappa. Í rann- sókninni var hrár hvítlaukur til skoðunar en líkt og með margar aðrar matvörur breytist efna- samsetning hvítlauksins þegar hann er hitaður. Þannig getur hiti eyðilagt hin góðu hollustuefni hvít- lauksins. Argentínskir vísindamenn hafa hins vegar komist að því að sé lauk- urinn marinn eða kraminn áður en hann lendir í þeim hita sem fylgir því að sjóða eða steikja, haldast þessi efni mun betur heil en ella. Forskning.no greinir frá þessu. Vísindamennirnir ýmist suðu hvítlauk í vatni eða steiktu í ofni í þrjár mínútur. Í ljós kom að hvít- laukurinn var þá jafn hollur og hrár hvítlaukur. Eftir þrjár til sex mínútur í miklum hita hvarf hins vegar efnið, sem vinnur gegn blóð- Kremjið hvítlaukinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.