Morgunblaðið - 21.02.2007, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 21.02.2007, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Jóhann Hall-varðsson fædd- ist á Geldingaá í Leirársveit 8. ágúst 1924. Hann and- aðist á líknardeild Landspítalans, Landakoti, aðfara- nótt 9. febrúar síð- astliðins. Foreldrar hans voru Hall- varður Ólafsson, bóndi á Geldingaá, f. 12. júní 1884, d. 24. ágúst 1957, og Anna Kristín Jó- hannsdóttir, húsfreyja á Geld- ingaá, f. 10. ágúst 1886, d. 14. mars 1966. Systkini Jóhanns eru Svava, f. 17. desember 1913, d. 25. júní 1990, Ólafur, f. 16. júní 1916, d. 25. desember 1979, Björg, f. 27. Erla Jónsdóttir og eru börn þeirra Snorri og Auður. 2) Jón Þór, f. 16. mars 1953, d. 1. ágúst 2004. Jóhann lauk loftskeytaprófi 1948, radíósímvirkjaprófi 1949 og stúdentsprófi frá öldungadeild MH 1977. Hann starfaði við kennslu í Grunnavíkurhreppi frá 1943 til 1945, í V-Eyjafjallahreppi 1945–1946 og í Norðfjarðarhreppi 1946–1947. Jóhann var skipaður radíósímvirki við radíódeild Land- símans 1949. Hann stundaði einn- ig kennslu við Loftskeytaskólann en starfaði lengst af sem deild- arstjóri í tæknideild Pósts og síma. Jóhann hafði mikinn áhuga á siglingum og var heiðursfélagi í siglingafélaginu Brokey. Þar hélt hann úti siglingakeppnum á höf- uðborgarsvæðinu og sá um keppnisstjórn um árabil. Útför Jóhanns verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. mars 1921, og Sigrún, f. 8. ágúst 1924, d. 11. júlí 1975. Hinn 29. desember 1951 kvæntist Jóhann Soffíu Jónsdóttur frá Prestbakka í Hrúta- firði, f. 11. desember 1924, d. 19. febrúar 1973. Foreldrar hennar voru séra Jón Guðnason á Prest- bakka og Guðlaug Bjartmarsdóttir. Syn- ir Jóhanns og Soffíu eru: 1) Snorri, f. 8. febrúar 1952, d. 5. október 1994, kona hans er Sigríður Ósk Ósk- arsdóttir, f. 22. febrúar 1952. Syn- ir þeirra eru Jóhann Davíð, sam- býliskona Valdís Ólafsdóttir, og Ingvi Pétur, sambýliskona Ásdís Að heilsast og kveðjast, það er lífs- ins saga. Ég heilsaði Jóhanni fyrst 17 ára gömul, nýbúin að kynnast syni hans, Snorra. Þar kom ég inn á heim- ili sem samhent hjón voru búin að inn- rétta af smekkvísi og natni. Öllum sínum frítíma þá varði Jóhann í bíl- skúr tengdaforeldra sinna sem bjuggu í sama húsi við að smíða hana Díu sína. Hún var gerð af ást og alúð enda tileinkuð Soffíu. Þegar Día var fullbúin áttu þau margar ómældar ánægjustundir um borð. Í blóma lífs- ins missti Jóhann kjölfestuna í sínu lífi sem var honum mikið áfall og voru því kynni mín af Soffíu tengdamóður minni stutt þar sem hún lést aðeins 49 ára gömul. En þar kom styrkleiki hans í ljós sem endranær. Hann dreif sig í öldungadeild MH og útskrifaðist þaðan með sóma. Bogfimi stundaði hann á tímabili af kappi og sem ávallt lét hann til sín taka þar og hitti í mark. Bókmenntir voru stór hluti af lífi hans og átti hann gott safn af bókum. Íslendingasög- urnar kunni hann utan að og Halldór Kiljan og Þórbergur voru í miklum metum og oft var vitnað í setningar úr þeirra bókum í daglegu tali. Þegar húmaði að og aldurinn færðist yfir lagði hann stund á tréskurð og list- málun í Gerðubergi sér til ómældrar ánægju, ekki síst vegna félagsskapar fólksins þar. Hér hefur verið stiklað á stóru yfir áhugamál Jóhanns en að öðru ólöst- uðu áttu siglingarnar hug hans allan. Þar naut hann sín innan um góða vini enda kosinn stjórnarmaður, gjaldkeri og síðar formaður siglingaklúbbsins Brokeyjar. Mín kynni af þeim fé- lagsskap voru upptökuhátíðirnar sem haldnar voru að hausti. Ég beið spennt eftir hringingu þar sem ég var spurð hvort ég vildi koma með. Já, hvort ég vildi. Þar var hann hlaðinn gjöfum og lofræðum frá vinum sínum fyrir vel metin störf. Gekk ég stolt á braut frá þessum hátíðum yfir vel- gengni hans. Margs er að minnast og ber þar einna hæst öll ferðalögin í Munaðar- nes sem við fórum oftar en ekki með foreldrum mínum. Einnig ferðin um páskana 2006 þar sem áfangastaður- inn var Árhús í Danmörku hjá Ingva, Ásdísi og Snorra litla. Kímni kom í augu hans sem oftar þegar hann sagði að honum væri farið að förlast í dönskunni. Það var þó öðru nær og spænskan var örugglega ennþá til staðar líka. Hans gæfa var að flytjast á Presta- stíg 6 ásamt syni sínum, Jóni Þór, í góða íbúð í húsi með góðu fólki. Þar var samheldni mikil, samanber þorra- blótin sem ég fékk að sitja í hans boði. Þar var glatt á hjalla, alvöru gleð- skapur og mikil vinsemd, sungið og borðað og matnum skolað niður með viðeigandi veigum. Grillveislur voru einnig haldnar á vorin auk skötu- veislu í desember. Hann varð fyrir áföllum í lífinu því að árið 1994 missti hann Snorra son sinn og Jón Þór árið 2004. Sterkur sem klettur rétti hann úr sér, mér til eftirbreytni þegar að erfiðleikar hafa steðjað að í mínu lífi. Drengirnir mín- ir, Jóhann og Ingvi, voru ávallt ofar- lega í huga hans og fylgdist hann vel með þeirra lífi og þeirra nánustu seinna meir. Mikil gleði varð þegar lítill Snorri fæddist 17. júní 2000 og Auður 16. nóvember 2006, börn Ingva og Ásdísar. Síðustu stundirnar var hann á líkn- ardeild Landakots. Þar var hann um- vafinn þeim kærleika sem einkennir það frábæra starfsfólk sem þar vinn- ur. Guð verndi ykkur og blessi og ykkar skjólstæðinga. Jæja Jóhann minn, nú er komið að kveðjustund. Ástarþakkir fyrir okkar stundir saman í gegnum tíðina. Mína virðingu átt þú ómælda. Guð geymi þig og blessi. Ég bið að heilsa hinum megin. Þín tengdadóttir, Sigríður Ósk. Kveðja frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands Fallinn er frá heiðursmaðurinn Jó- hann Hallvarðsson. Jóhann var ötull forystumaður og sjálfboðaliði í sigl- ingahreyfingunni í fjölmörg ár og allt frá stofnun Siglingasambands Ís- lands árið 1973. Jóhann hafði góða nærveru sem einstaklingur og já- kvæður í orði og verki. Hann hafði sterkar taugar til uppbyggingar sigl- ingaíþróttarinnar á Íslandi og lagði fram gríðarlega mikilvægt framlag til hennar. Jóhanni var treyst til fjöl- margra trúnaðarstarfa á vegum Sigl- ingasambands Íslands, sat lengi í sigl- ingadómstól, var í keppnisstjórn Smáþjóðaleikanna 1997 og var lykil- maður í mótahaldi sambandsins í fjöl- mörg ár. Fyrir störf sín og framlag til íþróttahreyfingarinnar var Jóhann sæmdur m.a. gullmerki Siglingasam- bands Íslands 1993 og gullmerki Íþrótta- og ólympíusambands Íslands árið 1996. Íþrótta- og ólympíusamband Ís- lands kveður góðan félaga með sökn- uði og sendir aðstandendum öllum hugheilar samúðaróskir. Stefán Konráðsson. Kveðja frá Siglingasambandi Íslands Fallinn er nú frá traustur félagi og vinur. Jói Hall eins og hann var ávallt nefndur í röðum okkar siglingamanna var um árabil einn af traustustu og virtustu félagsmönnum okkar hreyf- ingar. Jóhann var mikill siglingamaður og undi sér vel á sjónum, þrisvar varð hann Íslandsmeistari með áhöfninni á Össu, fyrst árið 1982. Þá hafði hann einnig gaman af ferðalögum og var ávallt tilbúinn þegar áhöfn vantaði til lengri ferða. Hann sigldi nokkrar ferðir m.a. vestur í Jökulfirði og til Færeyja. Jóhann gegndi ýmsum trúnaðar- stöfum fyrir félag sitt Brokey og Sigl- ingasamband Íslands. Árið 1982 var Jóhann kjörinn í stjórn Brokeyjar og var gjaldkeri félagsins ári síðar. Hann var kjörinn formaður 1984 og gegndi því starf um sex ára skeið. Jóhann á drjúgan þátt í því mikla mótahaldi sem hefur verið í siglinga- íþróttinni, um árabil var hann keppn- isstjóri Brokeyjar og sá um nánast allt mótahald félagsins, á árunum 1989 til 2002 var hann mættur hvern einasta þriðjudag yfir sumarmánuð- ina og ræsti keppni á slaginu klukkan sjö. Fyrir störf sín í þágu siglinga- íþróttarinnar var Jóhanni veitt Gull- merki Siglingasambands Íslands árið 1993. Það sama ár var hann kjörinn í Siglingadómstól og sat í honum þar til dómstóllinn var lagður niður vegna lagabreytinga sumarið 2000. Leiðir okkar Jóhanns lágu oft sam- an á þessum árum, bæði var ég kepp- andi í mótum sem Jóhann stjórnaði og einnig varð ég þess aðnjótandi að starfa með honum við mótahald. Við Jói tókum nokkrum sinnum að okkur umsjón keppni til Keflavíkur, auk þess að sitja saman í keppnisstjórn Smáþjóðaleikanna 1997. Það var mjög ánægjulegt að fá að starfa með honum og kynnast honum, stór hluti tíma keppnisstjóra í siglingamótum fer í bið og sú bið varð aldrei löng þeg- ar Jói var annars vegar, því þessi hægláti maður átti alltaf skemmtileg- ar sögur að segja þannig að tíminn leið hratt. Þótt Jóhanns sé fyrst og fremst minnst sem hins trausta keppnis- stjóra sem alltaf var hægt að reiða sig á, er hans ekki síður minnst fyrir hið ljúfa viðmót og hnyttin tilsvör sem komu frá honum, oftast öllum að óvörum. Fyrir hin miklu störf sín í þágu siglingaíþróttarinnar munum við minnast Jóhanns um ókomin ár. Minningin um góðan félaga og vin megi lifa. Fyrir hönd Siglingasambands Ís- lands, Birgir Ari Hilmarsson, formaður. Í dag kveðjum við í Siglingafélagi Reykjavíkur, Brokey, góðan og traustan félaga. Jóhann, eða Jói eins og hann var alltaf kallaður, gekk í fé- lagið fljótlega eftir að það var stofnað og tók strax virkan þátt í störfum þess. Jói var skipaður í fræðslunefnd félagsins 1978 og var fulltrúi félagsins á þingi Íþróttabandalags Reykjavík- ur 1983. Árið 1982 var hann svo kos- inn í stjórn félagsins og var gjaldkeri 1983. Jói var síðan kosinn formaður félagsins 1984 og gegndi þeirri stöðu farsællega allt til ársins 1990. Þekktastur er Jói þó fyrir keppn- isstjórn en hann sá um vikulegar sigl- ingakeppnir félagsins á hverjum þriðjudegi öll sumur í fjórtán ár eða frá 1989 til 2003. Hann stjórnaði keppnunum að öllu leyti einn en fékk þó góðan aðstoðarmann nokkur síð- ustu árin. Var hann allt í senn keppn- isstjóri, kærunefnd og dómari og voru úrskurðir hans sjaldan véfengdir. Tókst Jóa að stuðla að og byggja upp þann góða og skemmtilega keppnisanda sem ennþá ríkir í öllum siglingakeppnum félagsins. Á þessum árum sá Jói líka um flestallar aðrar siglingakeppnir á vegum félagsins sem og annarra siglingafélaga í ná- grannasveitarfélögunum. Í virðingarskyni fyrir vel unnin störf í þágu félagsins var Jói kjörinn heiðursfélagi Brokeyjar og var hann vel að því kominn. Við þökkum Jóhanni fyrir óeigin- gjarnt starf í þágu félagsins og sigl- ingaíþróttarinnar og sendum fjöl- skyldu hans og vinum okkar innilegustu samúðarkveðjur. F.h.Siglingafélags Reykjavíkur, Brokeyjar Kristján S. Sigurgeirsson, formaður. Látinn er vinur minn Jóhann Hall- varðsson, en við kynntumst þegar báðir voru að smíða kænur til kapp- siglinga. Síðan áttum við samleið til fjölda ára í skútusiglingum og í fé- lagsmálum innan íþróttahreyfingar- innar. Þó Jóhann væri að eðlisfari frekar hæglátur var hann mjög kappsamur, þegar kom að siglingunum. Saman kepptum við fyrst á „Wayfarer“-báti, síðan á „Micro 18“ og síðast „Hunter Formula One“. Allar báru þessar skútur nafnið Assa og reyndust okkur mikil happafley. Ávallt var lagt í hann með það í huga að vinna til fyrstu verðlauna og stundum tókst okkur ætlunarverkið. Þannig nældum við okkur saman í þrjá Íslandsmeistara- titla, í Micro 18-flokki tvö ár í röð, ’82 og ’83 og síðan í kjölbátaflokki 1984. En stundum ætluðum við okkur um of og einu sinni lentum við í hrakn- ingum á Faxaflóa, vorum tveir um borð á leiðinni frá Arnarstapa til Reykjavíkur, en sú sigling endaði í Sandgerði eftir 24 tíma glímu við Ægi. Við allar þessar aðstæður reyndi mjög á þolrif manna og þá var gott að ráðfæra sig við Jóhann, sem lét aldrei koma sér úr jafnvægi. Oftar en ekki áttum við góðar stundir sam- an, þar sem ekki gaf byr og við sátum fastir úti á flóa, þá var mikið spjallað og oftar en ekki var Jóhann sögumað- ur. Hann hafði marga fjöruna sopið og hafði frá mörgu að segja. Vegna málakunnáttu sinnar var honum á hernámsárunum falið að túlka fyrir setuliðið og þegar danska fyrirtækið Storno þurfti aðstoð við uppsetningu talstöðva á Kanaríeyjum, var leitað til Símans og Jóhann valdist til starfans vegna góðrar dönsku- og spænsku- kunnáttu. Að því kom að Jóhann dró úr sigl- ingunum og fór í land, sem kallað er. Þar var honum falið það vandasama verkefni að vera keppnisstjóri. Til dæmis stjórnaði hann svokölluðum þriðjudagskeppnum í fimmtán ár. Þá sat hann í Siglingadómstóli Siglinga- sambands Íslands og síðast en ekki síst var hann formaður Siglingafélags Reykjavíkur Brokeyjar um margra ára skeið. Jóhann hlaut fjölda viðurkenninga fyrir störf sín innan íþróttahreyfing- arinnar og var meðal annars sæmdur bæði gullmerki SÍL og ÍSÍ. Jóhann var einn af þessum föstu punktum í tilveru siglingamanna. Ávallt til staðar, fyrst sem keppandi og síðar stjórnandi. Það verður breyt- ing á, að sjá ekki Jóhann koma á Bro- keyjarbryggjuna. Hans verður sárt saknað en minningin mun lifa í hjört- um okkar. Að leiðarlokum kveð ég vin minn Jóhann Hallvarðsson með virðingu og þökk. Blessuð sé minning hans. Sig- ríði Ósk Óskarsdóttur og fjölskyldu sendi ég innilegustu samúðarkveðjur. Ari Bergmann Einarsson. Jóhann Hallvarðsson Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. Eg veit einn að aldrei deyr: dómur um dauðan hvern. (Úr Hávamálum.) Jóhann og Valdís. HINSTA KVEÐJA ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓHANNA S. HANSEN, lést á Vífilsstöðum þriðjudaginn 13. febrúar. Hún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 22. febrúar kl. 13.00 Sigurður Anders Hansen, Brigitte Hansen, Richard Arne Hansen, Bjarney Ólafsdóttir, Magnús Axel Hansen, Paul Agnar Hansen, Alda Elvarsdóttir, Anna María Hansen, Ástvaldur Eydal Guðbergsson, barnabörn og langömmubarn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR J. PÉTURSSON frá Galtará, Bakkastöðum 73b, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 19. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Ragnheiður Guðmundsdóttir, Guðmundur Pétursson, Inga Arnar, Anna Bára Pétursdóttir, Freysteinn Vigfússon, Sigurður Pétursson, Guðrún Ólafsdóttir, Ingibjörg Pétursdóttir, Valtýr Reginsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir minn, bróðir okkar, mágur og frændi, GYLFI KARLSSON, Hofteigi 22, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 19. febrúar. Rakel Ósk Gylfadóttir, Hilmar Karlsson, Mem Karlsson, R. Hrönn Harðardóttir, Sævar Björnsson, Guðný J. Karlsdóttir, Eyjólfur Ólafsson, H. Jóhanna Hrafnkelsdóttir, Gígja Karlsdóttir, Anton Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.