Morgunblaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 37
✝ Auðbjörg Guð-brandsdóttir
Steinbach fæddist í
Reykjavík 1. apríl
1930. Hún lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans há-
skólasjúkrahúsi í
Fossvogi 11. febrúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Guðbrandur Gunn-
laugsson, f. 23. 6.
1900, d. 26.6. 1949,
og Þuríður Ingi-
björg Ámundadótt-
ir, f. 23. 6. 1898, d. 17. 9. 1991.
Systur Auðbjargar eru Laufey, f.
24.3. 1924, Inga Þuríður, f. 13. 2.
1927, d. 16. mars 2006 og Jóhanna
Guðbjörg, f. 8.2. 1936.
Hinn 11. ágúst 1951 giftist Auð-
björg Guðmundi K. Steinbach
verkfræðingi, f. 5. júlí 1929. Auð-
björg og Guðmundur skildu. Dæt-
ur þeirra eru: 1) Ragnhildur,
læknir, f. 23.2. 1952, m. Einar
Baldvin Stefánsson, lögfræðingur,
f. 4.9. 1957. Sonur þeirra er Bald-
vin, f. 19.3. 1981, stundar fram-
haldsnám í stærðfræði; 2) Auð-
björg, hjúkrunarfræðingur og
ljósmóðir, f. 14.5.
1953, m. Kristján
Loftsson, fram-
kvæmdastjóri, f.
17.3. 1943. Börn: A)
Guðmundur, f. 17.10
1979, viðskiptafræð-
ingur í framhalds-
námi í Kaupmanna-
höfn. Sambýliskona
er Ása Björg Guð-
laugsdóttir, f. 14.4.
1984, nemi í hag-
fræði við Háskóla Ís-
lands; B) Loftur, f.
18.5. 1987 og C)
María, f. 10.8. 1988. Loftur og
María stunda bæði nám við Verzl-
unarskóla Íslands.
Auðbjörg lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1950. Hún bjó í Danmörku og
Þýskalandi frá 1951 til 1956 er
Guðmundur stundaði þar fram-
haldsnám. Auðbjörg vann lengst-
um við skrifstofustörf, lengst hjá
ISAL og síðast hjá Ríkisskattstjóra
þar til hún lét af störfum fyrir ald-
urs sakir.
Útför Auðbjargar verður gerð
frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.
Komin er kveðjustund, elsku
mamma.
Andlát þitt kom á óvart, þrátt
fyrir að þú hafir verið á sjúkrahúsi
síðustu 5 vikur. Ég var ekki búin
undir andlát þitt. Mér fannst ég
ekki ná að kveðja þig þó ég hafi ver-
ið hjá þér síðustu klukkustund þína
sem ég er mjög þakklát fyrir. Einn-
ig er ég þakklát fyrir þann tíma
sem við systurnar og fjölskyldur
áttum á gjörgæsludeildinni eftir
andlát þitt. Að eiga þig fyrir
mömmu var lán og ennþá meira lán
að eiga þig sem ömmu barnanna
minna. Þegar við Mummi bjuggum
hjá þér fyrstu 4 árin hans, hvað þú
varst dugleg að hjálpa mér með
hann og gæta hans þegar ég var á
kvöld-, nætur- og helgarvöktum.
Ekki varstu síðri við Loft og Maríu
eftir að þau fæddust. Þú komst til
mín alla daga eftir vinnu og sast og
last fyrir þau á meðan ég eldaði
kvöldmat. Síðan fórst þú heim eftir
matinn þannig að dagurinn var
langur hjá þér, en aldrei kvartaðir
þú um þreytu. Ég hugsa stundum
til þess þegar þú, 60 ára, ákvaðst að
læra á bíl, og keyptir þér síðan
„Litla-Hvít“ sem þú hafðir mikla
gleði af. Við systurnar vorum hins
vegar í miklu sjokki.
Eftir að þú hættir að vinna 70 ára
fannst þér svo gott að vakna klukk-
an 7 en geta síðan sofið bara áfram
og þurfa ekki að fara út. Síðustu ár
hringdir þú alltaf í mig klukkan 12
og svo aftur um klukkan 18, þannig
að nú er undarlegt að engin mamma
hringir, og sakna ég þess ótrúlega
mikið. Eins verður tómlegt að hafa
þig ekki hér um jól og aðra hátíð-
isdaga. Það var einnig skrítið að
fara heim til þín og vita að þú ættir
ekki afturkvæmt þangað.
Að lokum vil ég fyrir hönd okkar
systra og fjölskyldna okkar þakka
starfsfólki Landsspítala Háskóla-
sjúkrahúss Fossvogi fyrir frábæra
umönnun, hlýju og alúð þennan
tíma.
Hvíl í friði elsku mamma
Þín dóttir
Auðbjörg (Ditta).
Í dag er kvödd tengdamóðir mín,
Auðbjörg, en hún lést eftir erfið
veikindi hinn 11. febrúar sl. Margs
er að minnast eftir hartnær þrjátíu
ára samleið. Þegar ég hugsa til
baka má fullyrða að öll okkar sam-
skipti hafa verið góð. Ef Auðbjörgu
er lýst með tveimur orðum er það
góðmennska og heillyndi. Annað
rúmaðist einfaldlega ekki í huga
hennar. Þar fór kona sem aldrei
lagði annað en gott eitt til málanna
og sá ætíð það besta í samferðafólki
sínu. Börn skynjuðu þetta sterkt og
þurfti hún ekki annað en að brosa
stuttlega við barni og ísinn var sam-
stundis brotinn. Segja má að Auð-
björg hafi lifað fyrir barnabörnin
sín fjögur, sem eins og við öll, sakna
hennar sárt. Þeim hefur hún gefið
ómældan tíma um tíðina og þar hafa
þau átt skjól. Gott dæmi um um-
burðarlyndi hennar gagnvart
barnabörnunum er þegar það elsta
þeirra, þá þriggja ára, var með
ólund eins og gengur. Það endaði
með því að hluti af gluggatjöldunum
féll í gólfið með festingum og öllu
saman. Út úr götum á vegg steig
síðan ryk úr þurri steypu. Ég bjóst
við einhverjum lágmarksaðfinnslum
til málamynda en svo var aldeilis
ekki. Auðbjörg tók upp þann litla,
sem nú er með dagfarsprúðari
mönnum, og sagði aðeins að hann
,,gæti nú verið ósköp góður“. Ekki
orð um það meir. Það er ekki slæmt
vegarnesti út í lífið að vita að ein-
hver stendur með manni hvað sem á
gengur.
Að leiðarlokum þakka ég Auð-
björgu fyrir samfylgdina og bið Guð
að varðveita minningu hennar. Loks
er öllu starfsfólki á Borgarspítalan-
um færðar þakkir fyrir góða
umönnun og hlýju í hennar garð og
einnig í garð okkar sem eftir stönd-
um.
Einar Baldvin Stefánsson.
Elsku amma, það er erfitt að
kveðja þig þar sem varst svo stór
partur af lífi mínu. Sérstaklega er
það þó erfitt af því að þú varst ekki
tilbúin að fara; áttir svo mikið að
lifa fyrir í okkur ljósunum þínum
eins og þú sagðir. Þú varst alltaf
svo góð og alltaf brosandi. Þannig
mun ég alltaf muna eftir þér í
hjarta mínu. Þú vildir alltaf fylgjast
mjög vel með hvernig okkur barna-
börnunum gengi í náminu og það
verður mjög skrítið að hringja ekki
í þig í vor og segja þér hvernig
gekk í prófunum. Ekki verður síður
skrítið að hafa þig ekki við útskrift
Lofts eða mína. En ég veit að þú
verður alltaf hjá mér og fylgist með
mér. Þú fylgdist líka vel með okkur
barnabörnunum sem erum með
bloggsíðu, varst í raun alveg ótrú-
lega tæknivædd miðað við aldur og
mjög skörp. Ég get þakkað þér fyr-
ir svo margt, það líður ekki sá dag-
ur að ég hugsi ekki til þess. Aldrei
var neitt nammi að fá frá þér þegar
þú komst í heimsókn, það lærðum
við systkinin fljótt. En um hver
mánaðamót, þegar þú hafðir fengið
útborgað, komstu með nýjar bækur
handa okkur. Og svo sastu og last
þær fyrir okkur aftur og aftur.
Aldrei varst þú þreytt á því og þess-
ar stundir eru mér mjög dýrmætar.
Ég veit að þær áttu mikinn þátt í
því hversu fljótt ég lærði að lesa og
í framhaldi af því, hinum mikla
áhuga sem ég fékk á lestri, og það
þakka ég þér fyrir. Það, að ég var
hjá þér þegar þú lést, er mér mjög
dýrmætt og þótt það sé erfitt núna
mun ég þakka fyrir það síðar meir.
Ég á eftir að sakna þín sárt en ég
þakka fyrir þann tíma sem við höfð-
um þig hjá okkur og allar þær
mörgu minningar sem ég á nú.
Hvíl í friði elsku amma.
María.
Elsku amma. Við strákarnir finn-
um fyrir miklum söknuði þegar þú
ert farin. Þú varst ávallt svo stór
þáttur í okkar lífi. Frá því að við
gistum fyrst heima hjá þér rétt eftir
fæðingu okkar þá áttum við vísan
stað heima hjá þér. Við notuðum
okkur það óspart langt frameftir
aldri og þá sérstaklega um helgar
að vera hjá ömmu en ekki heima hjá
okkur.
Þegar við hugsum til baka eru
minningarnar úr okkar æsku mjög
margar en tíminn sem við eyddum
með þér stendur uppúr. Allt gerðir
þú fyrir okkur hvort sem það var að
lesa fyrir svefninn, syngja okkur í
svefn eða stjana við okkur þegar við
vorum að horfa á sjónvarpið eða að
leika. Og ýmislegt lékum við, hopp-
uðum á dýnum, köstuðum snjóbolt-
um af svölunum, spiluðum margs
konar spil og köstuðum skutlum.
Það var alveg sama hvað við gát-
um verið erfiðir, aldrei sagðir þú
hast orð við okkur eða skiptir skapi,
ekki einu sinni þegar ein skutlan
lenti í hausnum. Þú máttir aldrei
neitt vont vita og sást alltaf það
besta í öllum. Ef við frændurnir rif-
umst þá mátti heyra þig segja hin
fleygu orð: „Elskið’i friðinn og
strjúkið’i kviðinn“.
Elsku amma, við munum ávallt
minnast þín og blíðu þinnar. Skarð-
ið sem þú skilur eftir þig er vand-
fyllt. Guð geymi þig.
Ljósin þín,
Guðmundur Steinbach
og Baldvin Einarsson.
Haustið 1944, sjálft lýðveldisárið,
settust 8 unglingsstúlkur á ferming-
araldri í fyrsta bekk Menntaskólans
í Reykjavík, ásamt 18 skólabræðr-
um. Þetta var meðan skólinn bauð
upp á 6 vetra nám. Ein þessara 8
var Auðbjörg okkar, sem nú hefur
lokið sinni hérvist. Há og grönn,
dökk á brún og brá, brosmild og ljúf
í viðmóti. Kannski svolítið feimin.
Það tókst fljótt samstaða með þess-
um ungmeyjahópi, sem hefur hald-
ist í öll þessi ár, með hléum eins og
gengur. Þessar fátæku línur eru
þakklætisvottur frá þeim okkar sem
enn lifa, fyrir tryggð og góða sam-
fylgd. Einkum á þessum löngu liðnu
dögum í menntó.
Megi Guðs blessun fylgja Auð-
björgu og afkomendum hennar.
Vottum samúð við fráfall góðrar
konu.
Stella, Guðrún,
Ingibjörg Ýr og Edda.
Auðbjörg G. Steinbach
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir og bróðir,
BJARNI KRISTINN INGÓLFSSON,
Aðalgötu 7,
Ólafsfirði,
verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju föstu-
daginn 23. febrúar kl. 14.00.
Bára Sæmundsdóttir,
Sæbjörg Anna Bjarnadóttir
og systkini hins látna.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
BJARNFRÍÐUR SÍMONARDÓTTIR,
Hafsteini,
Stokkseyri,
verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn
24. febrúar kl. 13.00.
Tómas Karlsson,
Viktor Símon Tómasson, Ásrún Sólveig Ásgeirsdóttir,
Karl Magnús Tómasson, Anna Pálsdóttir,
Kristín Tómasdóttir, Guðsteinn Frosti Hermundsson,
Símon Ingvar Tómasson, Þórdís Sólmundardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem veittu
okkur hlýju og stuðning í veikindum og við andlát
okkar ástkæru
ODDNÝJAR RÍKHARÐSDÓTTUR,
Blikaási 12,
Hafnarfirði.
Við hugsum til ykkar með þakklæti og kærleika.
Jakob Guðnason,
Aðalheiður Ásta Jakobsdóttir, Rachid Benguella,
Jóhanna Kristín Jakobsdóttir, Finnur Geir Sæmundsson,
Baldur Freyr og Ásta Lísa,
Anja Ríkey Jakobsdóttir,
Guðný Heiðbjört Jakobsdóttir, Guðjón Jóhannesson,
Gunnhildur, Brynjar Gauti, Kolbrún Halla
og Jóhanna Magnea.
✝
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát
og útför dóttur okkar, systur og barnabarns,
LÍSU GUÐNÝJAR JÓNSDÓTTUR,
Tröllateigi 49,
Mosfellsbæ.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Einarsdóttir, Jón Karlsson,
Einar Karl, Unnar Karl, Emma Sól,
Guðný Kristín Árnadóttir, Einar Markússon,
Unnur Óskarsdóttir, Karl Jóhannsson.
✝
Kæru vinir!
Innilegar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning ykkar,
hlýju og samúð í veikindum og við andlát og útför
elsku mömmu okkar, tengdamömmu, ömmu og
langömmu,
RANNVEIGAR KRISTJÖNU JÓNSDÓTTUR,
Roðasölum 1,
(áður Birkihvammi 10).
Guð blessi ykkur öll.
Bára Sólmundsdóttir, Helgi Ingvarsson,
Anna Sólmundsdóttir, Geir Geirsson,
Einar Sólmundsson, Svanhvít Einarsdóttir,
Jóna Sólmundsdóttir, Einar Baldvin Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
GUNNAR JÓN VILHJÁLMSSON,
dvalarheimilinu Jaðri,
Ólafsvík,
lést laugardaginn 17. febrúar.
Útför fer fram frá Ólafsvíkurkirkju föstudaginn
23. febrúar kl. 14.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Björn Jónsson.