Morgunblaðið - 21.02.2007, Page 43

Morgunblaðið - 21.02.2007, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 43 menning Þ að er haft fyrir satt að á mestu fátæktar- og nið- urlægingartímum hafi Íslendingar lagst svo lágt að leggja sér til munns dýrustu menningarverðmæt- in, handritin. Þegar litið er til þess hvernig ríkisstjórn þeirra flokka sem nú situr, hefur farið með landið sjálft, þá má líta svo á að það sé gert með hugarfari sem er komið í beinan karllegg frá því langsoltna fólki sem bleytti upp handrit sér til átu. Þetta hugarfar einkennist ekki síst af úr- ræðaleysi og útkoman er niðurlæg- ing. Munurinn er sá að handritsæt- urnar meintu höfðu sér afsökun. Þær voru að berjast fyrir lífi sínu í bókstaflegri merkingu. Landæturík- isstjórn Sjálfstæðis- og Framsókn- arflokks hefur sér hins vegar ná- kvæmlega ekki neitt til afsökunar þegar hún heldur áfram á þeirri braut að éta landið undan Íslend- ingum, þessari einu eyju sem þeir hafa til að lifa á um þá framtíð sem þeim er skömmtuð í landinu. Það er engu öðru landi til að dreifa. Það má því líta á það sem mesta alvörumál sem Íslendingar standa frammi fyrir, hvernig þeir ætli að ráðstafa því sem enn er eftir til- tölulega óétið, af þeim menning- arverðmætum sem guð eða einhver gaf þeim, eyjunni sjálfri, landslag- inu, náttúrunni, dýralífinu.    Til að véla um þessi menning-arverðmæti er haft ráðuneytisem kallast umhverfisráðu- neyti. Svo virðist sem það nafn sé nokkurs konar öfugmæli, því ekki verður séð að þær og þeir sem þar hafa ráðið húsum á undanförnum ár- um, séu á bandi umhverfisins. „Um- hverfisráðherrar“ svokallaðir virð- ast undantekningarlaust vera á bandi enn meiri mengandi stóriðju (já og loftslagsbreytingar, hvað er nú það?) og þar með fylgjandi því að halda landátinu áfram. Þessu má líkja við menntamálaráðherra sem væri á móti menntun, og þar með því að kenna íslenskum börnum að lesa. Það segir mikið um styrkleika þessa menningarráðuneytis náttúr- unnar að í árslok 2006 samþykkti stjórn Landsvirkjunar að leggja fé í framkvæmdir við Norðlingaöldu- veitu. En ráðherrann sjálfur, Jónína Bjartmarz, hafði hins vegar sagt 3. júlí sama ár: „Mín afstaða er sú að nú sé svo komið í þessum orkuöfl- unarmálum þjóðarinnar og við- horfum almennings og ég held mikils meirihluta fólks að við eigum að stækka friðlandið og láta af öllum orkunýtingaráformum sem snerti þetta svæði.“ Með friðlandi er hér átt við Þjórsárver. Slík er niðurlæging Íslendinga ár- ið 2007 að enn er hugsað til þess að seilast inn í Þjórsárver, síðustu stóru gróðurvinina á hálendinu sem hefur lifað af eyðimerkurvæðingu Íslands, skefjalausa rányrkjuna frá því land var numið, rányrkju forríkrar þjóðar sem nú er orðin svo gráðug og skeyt- ingarlaus að hún stofnsetur þá stór- felldu land- og náttúrueyðing- armaskínu sem Kárahnjúkavirkjun er.    Það kemur æ berlegar í ljós aðþeir sem eru á því að étalandið sitt enn lengra ofan í svörðinn en nú þegar hefur verið gert, eru skefjalausir öfgamenn, en það er sú nafnbót sem þeir reyna að klína á þá sem unna íslenskri nátt- úru og líta á hana sem menningararf sem Íslendingar hafi ekki rétt til þess að ráðstafa með þeim óaft- urkræfa og fruntalega hætti sem gert hefur verið – meðal annars vegna þess að við eigum hann ekki – að við höfum hann að láni handa af- komendum okkar og öllum heim- inum. Þeir valdamiklu öfgamenn sem vilja halda áfram og ganga enn lengra í að tæta og eyðileggja nátt- úru Íslands, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum, hafa ekki einu sinni sannfærandi rök fyrir því að það sé glóra í sovéskri orku- og stór- iðjustefnu hinnar þaulsetnu rík- isstjórnar Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokks. Sú stefna felur í sér orkusölu á þvílíkum útsöluprís að hann er réttnefnt ríkisleyndarmál, því hann er til orðinn fyrir stórfellda ríkisaðstoð til orkufyrirtækja sem hafa ótakmarkaðan aðgang að er- lendu lánsfé. Þetta þýðir í reynd að erlendir lánardrottnar þurfa ekki einu sinni að lesa skýrslur um gáfuleg og stór- kostlega arðbær verkefni eins og Kárahnjúkavirkjun, allt er það gull- tryggt af íslenska ríkinu. (Já, fróð- legt væri að vita hvað verður um ís- lenskan efnahag ef eitthvað skyldi nú klikka með þetta stærsta áhættu- verkefni Íslandssögunnar. Yrðu þá gömlu góðu virkjanirnar okkar kannski bara teknar upp í pant í út- löndum? Halló, rannsóknarblaða- menn, er einhver heima? Vel á minnst, eru ekki Kárahnjúkar alveg örugglega nokkurn veginn á kostn- aðaráætlun – þrátt fyrir ýmislegt smotterí sem upp á hefur komið á framkvæmdatímanum?)    Því miður er orðið NIÐ-URLÆGING enn lykilorðþegar hugsað er til þess hvernig Íslendingar eyðileggja menningarverðmæti – í þessu tilfelli ekki handrit heldur íslenska náttúru, enda var orðið niðurlæging viðhaft á alþingi þegar auðlindafrumvarpið var fram borið í síðustu viku, með öf- ugmælaorðinu þjóðarsátt. Það er ekki þjóðarsátt á Íslandi og verður aldrei um það að hakka fóst- urjörðina í enn meira spað og girða hana enn fleiri háspennulínum þvera og endilanga. Eða hefur fylgisaukn- ing vinstri grænna farið fram hjá ríkisstjórninni, rétt eins og Lauga- vegsgangan gerði – og hefur það far- ið fram hjá Framsóknarflokknum að hann er að líða undir lok, samkvæmt skoðanakönnunum? Og að það gæti bara meira en vel verið að ein af ástæðunum fyrir þessum stórfelldu óvinsældum Framsóknarflokksins væri sú að þeirra menn hafa farið fremstir í landátinu, með fulltingi og algjörum stuðningi þeirra sem ráða Sjálfstæðisflokknum – svo ótrúlegt sem það er, því margir kjósendur Sjálfstæðisflokks skilja hvaða menn- ingarverðmæti eru fólgin í náttúru landsins – og hátt hlutfall þeirra andvígt Kárahnjúkavirkjun, sam- kvæmt skoðanakönnun.    Já loksins, loksins lítur út fyrirað trygglyndi kjósenda viðblessaðan FLOKKINN séu einhver takmörk sett – að það nái ekki lengur út yfir gröf og dauða ís- lenskrar náttúru. Að éta landið sitt » Því miður er orðiðNIÐURLÆGING enn lykilorð þegar hugs- að er til þess hvernig Ís- lendingar eyðileggja menningarverðmæti … steinunn@mac.com FRÁ PARÍS Steinunn Sigurðardóttir Gróðurvin „Slík er niðurlæging Íslendinga árið 2007 að enn er hugsað til þess að seilast inn í Þjórsárver, síðustu stóru gróðurvinina á hálendinu sem hefur lifað af eyðimerkurvæðingu Íslands.“ Mjög gott 198 fm. fimm herbergja raðhús með bílskúr, á góðum stað í Árbænum. Jón Víkingur fasteignaráðgjafi, veitir fúslega nánari upplýsingar í síma: 892 1316 OPIÐ HÚS REYKÁS 18 - 110 REYKJAVÍK Miðvikudaginn 21. febrúar kl. 17.00 - 19.00 Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is „ÞETTA er bara enn eitt ævintýr- ið,“ segir leikarinn, leikstjórinn og athafnamaðurinn Gísli Örn Garð- arsson sem þekkst hefur boð Þjóð- leikhússins í London um að leika í verkinu Upp á líf og dauða (A Mat- ter of Life and Death) sem frumsýnt verður í byrjun maí. Um er að ræða leikgerð á frægri breskri kvikmynd frá 1946. Í henni segir frá ævintýr- um bresks herflugmanns sem lifir af flugslys vegna klúðurs af hálfu eng- ils og er það einmitt hlutverk hins seinheppna engils sem Gísli hefur tekið að sér. „Það er gaman að prófa að vinna í þessu virta húsi sem hefur þessa miklu sögu,“ segir Gísli en sýnt verð- ur á stóra sviði leikhússins, Olivier- sviðinu. „Ég veit ekki til þess að nokkur Íslendingur annar hafi farið þarna inn.“ Hefur unnið með leikstjóranum Aðspurður segir Gísli tilboðið vera afrakstur ýmissa uppsetninga sem hann hefur ýmist tekið þátt í eða staðið fyrir í London. Emma Rice, sem leikstýrði Gísla í einni slíkri sýningu, þ.e. Night at the Circus. sem sýnt var í Lyric Hammersmith- leikhúsinu í upphafi síðasta árs, er einmitt leikstjóri Upp á líf og dauða. „Hún er ótrúlega flinkur leikstjóri og gerir æðislega skemmtilegar sýn- ingar. Sú staðreynd vó þungt í ákvörðun minni.“ Um þessar mundir leikstýrir Gísli söngleiknum Ást sem hann hefur samið ásamt Víkingi Kristjánssyni. Stefnt er á frumsýningu 10. mars en viku síðar er Gísli floginn til London. „Æfingar hefjast 18. mars þannig að það er að nógu að huga. Svo verð- ur frumsýnt ytra í byrjun maí. Ég er búinn að gera þannig samning að ég get fengið mig lausan ef ég óska eftir því í lok júní,“ segir Gísli en að hans sögn gætu sýningar staðið yfir til loka ágúst ef vel gengur. „Ég er að undirbúa tvö leikhúsverk á Íslandi fyrir næsta vetur þannig að ég þarf að fara að huga að þeim,“ útskýrir hann en þar er annars vegar um að ræða Faust eftir Goethe og hins veg- ar leikgerð á kvikmynd Lukas Moo- dyssons, Till sammans. Leikhús Hið virta Þjóðleikhús í London að næturlagi. „Bara enn eitt ævintýrið“ Gísli Örn Garðarsson leikur á sviði Þjóðleikhússins í London Morgunblaðið/Árni Sæberg Leikari Gísli Örn Garðarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.