Morgunblaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ eeee V.J.V. TOPP5.IS eeee B.S. FRÉTTABLAÐIÐ eeee B.B.A. PANAMA.IS eeee RÁS 2 NICOLAS CAGE EVA MENDES SÝND Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG SVALASTASPENNUMYNDÁRSINS 300 kr.- kl. 14:30 ÖSKUDAGSBÍÓ SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is ÞIÐ VITIÐ HVER HANN ER.... ...SVONA BYRJAÐI ÞAÐ FRÁ SAMA HÖFUNDI OG FÆRÐI OKKUR SILENCE OF THE LAMBS OG RED DRAGON KEMUR eeee H.J. MBL. eeee LIB - TOPP5.IS eeee FRÉTTABLAÐIÐ FORELDRAR KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON HJÁLPIN BERST AÐ OFAN eee S.V. - MBL SÝND BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI ALPHA DOG kl. 8 B.i. 16 ára BLOOD DIAMOND kl. 10:20 B.i. 16 ára ROCKY BALBOA kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára / KEFLAVÍK HANNIBAL RISING kl. 8 -10:10 B.i. 16 ára MAN OF THE YEAR kl. 8 - 10 LEYFÐ VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ / AKUREYRILETTERS FROM IWO JIMA kl. 6 - 9 B.i. 16 ára PERFUME kl. 6 - 9 B.i. 12 ára DREAMGIRLS kl. 6 - 9 LEYFÐ BLOOD DIAMOND kl. 6 - 9 B.i. 16 ára FORELDRAR kl. 7:50 LEYFÐ BABEL kl. 9:30 B.i. 16 ára STRANGER THAN FICTION kl. 5:50 LEYFÐ Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is Í kringlunni í dag SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI HJÁLPIN BERST AÐ OFAN eee S.V. - MBL ÓSKARSTILNEFNING1 ÖSKUDAGSBÍÓ FLUSHED AWAY eeee S.V. MBL. árnað heilla ritstjorn@mbl.is Um nauðgunarmál Fyrir nokkrum árum var maður, sem stolið hafði brauði úr búð, vegna þess að hann var svangur, dæmdur í lengra fangelsi en nauðg- ari. Ég bara spyr, var brauðið meria virði en líf konu sem hafði verið framið sálarmorð á. Ég sá fyrir stuttu síðan í blaði að á annan tug nauðgara gengju lausir. Samfélagið á að senda skýr skilaboð til yf- irvalda að við viljum ekki að stór- hættulegir nauðgarar gangi hér lausir án þess að þurfa að axla ábyrgð á gjörðum sínum. Það er nú orðið þannig nú til dags að sumar konur þora ekki einar út þegar dimma fer. Þær þora ekki á skemmtistaði án fylgdar karlmanna. Konur hafa jafnvel orðið fyrir því að þær hafi verið eltar þegar þær eru einar úti að keyra, snemma morg- uns eða um kvöld. Er hægt að segja að þetta séu frjálsar konur í frjálsu landi sem þurfa að búa við slíkan ótta.? Og við konur sem búum einar erum jafnvel áreittar símleiðis af ókunnugum karlmönnum sem eru með dóna hringar. Ég varð fyrir slíku seint á laug- ardagskvöldi og lögreglan sagði mér að hafa samband þegar kominn væri virkur dagur. Ég var mjög hrædd og mér fannst lögreglan ekki taka rétt á málum. Og þegar kominn var virkur dagur og ég hafði samband við lögreglu var erindi mínu tekið fálega. Kona í fjötrum. Skólayfirvöld ættu að ath. þunga á skólatöskum barna Ég, Laufey Dís, er móðir fjögurra barna, er hafa stundað skóla.Yngsta barn mitt er enn í skóla og næst yngsta var að klára 10. bekk sl. vor. Ekki er spáð í það hver skólataska barna, með öllum sínum þunga, skaða barnið? Síðast þegar taska barns míns var viktuð var hún rúm- lega 6,5 kíló. Flest börn þurfa að ganga langan veg og jafnvel upp brekkur. Yngri börnin mín hafa þjáðst af vöðvabólgu, rifjagigt og sí- felldum höfuðverkjum. Er þetta tal- ið í lagi í þjóðfélaginu, sem segir að réttur barnsins komi fyrst? Er þetta að verja börnin fyrir seinna kom- andi sjúkdómum? Eru foreldrar að gera börn frá 6 ára aldri að sjúk- lingum, í dag, vegna streytu sem skólinn og allt of þung taska veldur? Laufey Dís. Tapað/Fundið 14. febrúar tapaðist svartur Nike bakpoki í flugi frá Reykjavík til Ísa- fjarðar. Hugsanlegt er að taskan hafi endað á öðrum áfangastað Flugfélags Íslands. Í töskunni eru öll skólagögn þ.m.t.bækur, verkefni og f.l. frá fyrsta árs nema í MR. Töskunnar er því auðvitað mjög sárt saknað. Ef þú hefur tekið hana í misgripum vinsamlegast skilaðu töskunni til FÍ eða hringdu í síma 892-9400 og við munum sækja hana. Með fyrirframþökk. Kristín. Hálsmen fannst Lítill gullkross fannst í Holtsbúð Garðabæ, út frá húsi nr 22. Uppl. í síma 8977140. velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 60 ára afmæli. Sextugir eru í dag,miðvikudaginn 21. febrúar, Gunnar Einarsson, Ásbúð 75, og Karl Einarsson, Hverafold 29. Þeir verða að heiman. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569- 1100, senda tilkynningu og mynd á netfangið ritstjorn- @mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn „Senda inn efni“. Einnig er hægt að senda vélrit- aða tilkynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. Að vita eða ekki aðvita, það er spurningin. Við lifum á upplýsingaöld. Í raun er sama hvað maður vill fá að vita, upplýs- ingarnar eru í seiling- arfjarlægð. x x x Sumt vill maður hinsvegar ekki vita, en kemst einhvern veginn ekki hjá því: Mariah Carey gengur ekki á öðru en háhæluðum skóm. Pete Doherty og Kate Moss virðast mestu mátar þessa dagana. Svikamerðir bjóða hár- lokka, sem sagðir eru af Britney Spears, á vefnum. Jennifer Lopez er tilbúin að eignast börn. Þarf maður að vita þetta til að lifa daginn af? x x x Síðan er það spurningin um þaðhverju maður eigi að trúa: Glen Ordnau er ekki aðeins líkur sjálfum sér, hann ber svipmót dæmigerðra vúdú-brúða og hefur engst um af kvölum svo áratugum skiptir. Í frétt í Weekly World News er gefið í skyn að hann þjáist í hvert sinn, sem ein- hver stingur nál í vúdú-dúkku, og segir að í raun sé um sjúkdóm að ræða, þótt ekki sé hann nefndur. Segir að hár mannsins sé eins og strá og húðin sem strigi. Til að bæta gráu ofan á svart féll Ordnau þessi í æsku beint á andlitið á hol- ræsislok og mun andlit hans síðan líta út eins og farið hafi verið yfir það með rifjárni og gert við með saumavél. Heilsu mannsins mun hafa hrakað jafnt og þétt, en læknar eru þó sagðir tregir til að gera á honum meiriháttar aðgerðir. „Hann lítur út eins og risavaxin vúdú- dúkka,“ segir Stilton Warnes, sérfræðingur í lýtalækn- ingum. „Við erum þó fremur hikandi við að byrja að stinga í hann nálum.“ Í sama blaði er í vikunni frétt um að bandaríska varnarmálaráðuneytið hyggist láta framleiða ratsjárfælna orrustuvél úr baðmull. Merkilegt nokk hefur enginn annar fjölmiðill tekið fréttina upp og reyndar bendir flest til að hún sé helber þvættingur og heilaspuni blaðamanns. Varn- armálaráðuneytið vísar fréttinni á bug, en heimildarmaður í baðmull- arfyrirtæki staðfestir hana og bætir við að baðmullin geri vélina ekki að- eins ósýnilega heldur dragi svo úr vélarhljóðinu að ekki heyrist í henni heldur. Trúi hver sem vill. víkverji skrifar | vikverji@mbl.is           dagbók MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Í dag er miðvikudagur- 21. febrúar, 52. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Því að augu Drottins eru yfir hinum rétt- látu og eyru hans hneigjast að bænum þeirra. En aug- lit Drottins er gegn þeim, sem illt gjöra. (1Pt. 3, 12.) Kærasti Önnu Nicole Smith heit-innar, Howard K. Stern, mætti í dómsal í gær með það fyrir augum að ná fram því sem hann sagði að hefði verið ósk hennar um hinsta hvílustað. Það eru þrettán dagar síð- an hún lést í Flórída og nú er bæði barist í réttarsölum í Flórída og Kaliforníu um hvað eigi að gera við jarðneskar leifar hennar sem og um faðerni dóttur hennar. Enn er verið að rannsaka hver dánarorsökin var og þar sem ekki liggur fyrir skrifleg ósk Önnu Nicole um hinsta hvílustað þá mun Seidlin dómari hlýða á vitnisburð þeirra sem telja sig vita hverjar óskir henn- ar í þeim málum voru. Stern vill láta grafa hana á Ba- hamaeyjum, í grafreit við hlið sonar hennar, Daniels, sem lést í sept- ember. Móðir Smith, Virgie Arthur, vill hins vegar láta jarðsetja hana heima í Texas þar sem hún ólst upp. Faðernismálið hefur einnig tafið fyrir áætlunum um jarðarför því Larry Birkhead, fyrrum ástmaður Smith, hefur farið fram á að annað sýni verði tekið úr líkama hennar sem hann vonast til að sanni að hann sé faðir hinnar ungu dóttur Önnu Nicole Smith, Dannielynn.    Fjölskylda bandarísku söngkon-unnar Britney Spears er nú sögð hafa leitað til söngvarans Just- in Timberlake, fyrrum unnusta hennar, og beðið hann um að reyna að fá hana til að leita sér hjálpar. Fjölskyldan er sögð hafa miklar áhyggjur af skemmtunum og drykkjuskap söngkonunnar auk þess sem því hefur verið haldið fram að hún sé nú á barmi taugaáfalls. „Justin er sennilega eina mann- eskjan sem Britney hlustar á úr því sem komið er. Fjölskylda hennar og vinir vona að hann geti fengið hana til að sjá að sér og leita sér hjálpar,“ segir ónafngreindur vinur söngkon- unnar. Þá er Lynn, móðir Britney, sögð hafa farið til Malibu í Flórída til að líta eftir sonum hennar Sean Pre- ston, sautján mánaða, og Jayden James, fjögurra mánaða, og hefur því jafnvel verið haldið fram að Brit- ney hyggist veita móður sinni for- ræði yfir þeim til að reyna að koma í veg fyrir að föður þeirra Kevin Fe- derline verði dæmt forræðið. Hjónin standa nú í skilnaði og hafa bæði far- ið fram á forræði yfir börnunum.    Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.