Morgunblaðið - 21.02.2007, Síða 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 52. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Austan- og
norðaustanátt,
víða 10–15 m/s
en 18–23 við suð-
urströndina. Snjóar aust-
anl. en rigning suðvest-
anlands. » 8
Heitast Kaldast
5°C 0°C
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
KARLMAÐUR um fertugt situr
nú í gæsluvarðhaldi vegna rann-
sóknar á smygli á tæplega fjórum
kílóum af kókaíni til landsins en
þetta er mesta kókaínmagn sem
fundist hefur í einu lagi hér á landi.
Tollgæslan í Reykjavík fann það í
pallbíl sem verið var að flytja inn
um Sundahöfn hinn 17. nóvember í
fyrra en maðurinn, sem nú situr í
haldi, leysti bílinn ekki úr tolli fyrr
en í byrjun þessa mánaðar og var
handtekinn nokkrum dögum síðar.
Kókaínið var vandlega falið í
bílnum sem var að koma frá Cux-
haven í Þýskalandi. Einnig fundust
um 40 grömm af amfetamíni.
Að sögn Ásgeirs Karlssonar, yf-
irmanns fíkniefnadeildar lögreglu
höfuðborgarsvæðisins, var vand-
lega fylgst með bílnum frá því efn-
ið fannst og þar til maðurinn leysti
pallbílinn, sem er af gerðinni
Mercedes Benz Sprinter, úr tolli í
byrjun þessa mánaðar. Nokkrir
dagar voru síðan látnir líða þar til
maðurinn var handtekinn 9. febr-
úar. Hann var í kjölfarið úrskurð-
aður í þriggja vikna gæsluvarð-
hald. Í síðustu viku var annar
maður handtekinn vegna málsins
og sá þriðji var handtekinn í fyrra-
dag. Báðum var sleppt að loknum
yfirheyrslum.
Sjö kíló í nóvember 2006
Í málum sem þessu er venjan að
lögregla fjarlægi fíkniefnin og
komi fyrir gerviefnum í staðinn áð-
ur en hinn meinti smyglari fær
vöruna í hendur og má fastlega
gera ráð fyrir að það hafi einnig
verið gert í þessu tilfelli. Ásgeir
vildi þó ekki staðfesta það eða
greina nánar frá því hvernig rann-
sókn málsins var háttað að öðru
leyti. Eins og fyrr segir fannst
kókaínið, sem um ræðir í þessu
máli, hinn 17. nóvember. Aðeins
fjórum dögum síðar, 21. nóvember,
lögðu tollverðir á Keflavíkurflug-
velli hald á næstum þrjú kíló í
stærstu kókaínsendingu sem fund-
ist hefur á flugvellinum. Það er því
óhætt að segja að í nóvember hafi
verið skammt stórra högga á milli í
fíkniefnamálum.
Metmagn fíkniefna
Þessar tvær stóru sendingar
vega þungt þegar heildarmagn
haldlagðra fíkniefna er skoðað en á
síðasta ári var samtals lagt hald á
um 12,8 kíló af kókaíni. Þetta er
margfalt á við það sem áður hefur
fundist á einu ári og má benda á,
að á sjö árum, 1999–2005, var alls
lagt hald á tæplega 12 kíló. Í fyrra
var sömuleiðis lagt hald á met-
magn af amfetamíni eða um 46,5
kíló, sem er um fimm kílóum
minna en náðist frá 1999–2005.
Fjögur kíló af kókaíni
vandlega falin í pallbíl
Mesta magn kókaíns sem lagt hefur verið hald á hér á landi í einu lagi
Í HNOTSKURN
» Karl-maður
um fertugt
situr í
gæslu-
varðhaldi
vegna
smygls á 4 kílóum af kóka-
íni til landsins.
» Kókaínið fannst 17.nóvember sl. en pall-
bíllinn, sem efnin voru fal-
in í, var ekki leystur úr
tolli fyrr en í byrjun febr-
úar.
» Alls hafa þrír veriðhandteknir vegna máls-
ins, sá síðasti í fyrradag.
» Þetta er stærsta send-ing kókaíns sem fund-
ist hefur hér á landi.
HVÍTABJÖRN verður til sýnis í skiptistöð Strætós á Hlemmi í
Reykjavík. Náttúrufræðistofnun Íslands stendur þar fyrir örsýningu
undir yfirskriftinni „Hefur þú rekist á hvítabjörn?“ og verður hún
opnuð á föstudagskvöld. Er það framlag stofnunarinnar til Vetr-
arhátíðar í Reykjavík og safnanætur. Sýningarsalir Náttúru-
fræðistofnunar við Hlemm verða opnir á föstudagskvöld til mið-
nættis og verður aðgangur ókeypis, líkt og að öðrum söfnum á
safnanótt.
„Við viljum vekja athygli á loftslagsbreytingum og hvítabjörninn
er orðinn tákn fyrir þá ógn sem að lífríkinu steðjar af yfirvofandi
hlýnun andrúmsloftsins,“ sagði Álfheiður Ingadóttir, útgáfustjóri
Náttúrufræðistofnunar. „Við fengum lánaðan hvítabjörn hjá Veiði-
safninu á Stokkseyri og húsnæði hjá Strætó. Þar ætlum við að segja
frá hvítabirninum og loftslagsbreytingum klukkan sjö á föstudags-
kvöld.“
Einnig verða fyrirlestrar sérfræðinganna Guðmundar A. Guð-
mundssonar og Snorra Baldurssonar um loftslagsbreytingar og líf-
ríkið á norðurhjara í Möguleikhúsinu á föstudagskvöldið. Þar verða
einnig sýndar þrjár íslenskar náttúrulífsmyndir; um Mývatn, mink-
inn og fuglamerkingar, eftir Magnús Magnússon kvikmyndagerð-
armann.
Morgunblaðið/ÞÖK
Hefur þú rekist á
hvítabjörn?
TIL GREINA kemur að skrá Glitni í er-
lenda kauphöll og stjórnendur bankans
munu fara vandlega yfir kosti þess á næstu
mánuðum.
Þetta kom fram í ræðu Einars Sveins-
sonar, formanns bankaráðs Glitnis, þar sem
hann fór meðal annars yfir þær miklu
breytingar sem bankinn gekk í gegnum í
fyrra, m.a. með kaupum á fjármálafyrir-
tækjum í Svíþjóð og nú síðast í Finnlandi.
Um skráningu í erlenda kauphöll sagði Ein-
ar: „Slík skráning hefur marga kosti í för
með sér fyrir félagið og munu stjórnendur
bankans vega þá og meta vandlega á kom-
andi mánuðum.“
Stjórnendur Glitnis munu um hríð hafa
skoðað þann möguleika að skrá bankann í
norsku kauphöllina en bankinn er með um-
svifamikla starfsemi í Noregi. Þegar Glitnir
keypti finnska fjármálafyrirtækið FIM á
dögunum greiddi hann helming kaupverðs
með eigin bréfum þannig að ætla má að
einnig kunni að vera áhugi á að skrá bank-
ann í kauphöllina í Helsinki. | 15
Glitnir í
erlenda
kauphöll?
Horfa væntanlega til
Noregs og Finnlands
VIÐ höfum einfaldlega verið að bíða eftir
grænu ljósi á að fá lyfið í hendurnar,“ segir
Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum
við HÍ og yfirlæknir augndeildar LSH. Und-
irbúningur að notkun lyfsins Lucentis er nú
hafinn á sjúkrahúsinu. Lyfið getur spornað við
blindu af völdum hrörnunar í augnbotnum.
„Það að nota lyfið krefst ekki neins sérstaks
viðbúnaðar og við höfum hæfnina og tæknina,“
segir Einar. „Ég held að þetta sé óþarfa skrif-
ræði og málalengingar,“ segir hann um leyf-
isferlið fyrir lyf. „Við höfum sett upp ferli sem tefur fyrir að lyf,
sem hafa sannað gildi sitt alþjóðlega og vísindalega, séu tekin í
notkun.“ Margir mánuðir séu síðan óskað var eftir að taka lyfið í
notkun. | 10
„Óþarfa skrifræði“
Einar Stefánsson
EKKJA Ragnars
Björnssonar fyrrver-
andi dómorganista, Sig-
rún Björnsdóttir, stað-
hæfir að dægurlagið
Við gengum tvö sé eftir
mann hennar en ekki
skráðan höfund þess,
Friðrik Jónsson. Að
sögn Sigrúnar samdi
Ragnar lagið er hann
var ungur maður á
Siglufirði en sökum æsku og ókunnug-
leika um höfundarrétt láðist honum að að-
hafast nokkuð þegar hann heyrði lagið
eignað Friðriki. Sigrún segir sönn-
unargögnin liggja í laginu sjálfu, þau fáu
lög sem Ragnar samdi séu í sama rytma og
Við gengum tvö. Lagið stingi hins vegar í
stúf við aðrar lagasmíðar Friðriks. | 19
Eignað röng-
um höfundi?
Ragnar
Björnsson
KONA á fimmtugsaldri slasaðist í gær þeg-
ar steinveggur brotnaði og féll á hana á bæ í
Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu. Lög-
reglan á Blönduósi segir að konan hafi legið
föst undir veggnum í fjórar klukkustundir
þar til hjálp barst.
Að sögn lögreglu var konan að reka hross
út úr hesthúsi um tvöleytið í gærdag þegar
slysið varð. Það vildi þannig til að eitt
hrossanna sparkaði í vegginn, þar sem kon-
an stóð, með fyrrgreindum afleiðingum.
Konan lá föst undir steinveggnum til klukk-
an 18 þegar bóndinn á næsta bæ fór að at-
huga um hana þar sem ekkert hafði sést til
hennar.
Konan fótbrotnaði og marðist þegar
veggurinn féll á hana, en að öðru leyti er hún
ekki talin vera alvarlega slösuð. Hún var
flutt með sjúkrabifreið á sjúkrahús í
Reykjavík.
Í fjóra
tíma undir
steinvegg
♦♦♦
♦♦♦