Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is „ÞAÐ er orðið mjög tímabært að við beitum okkur fyrir því að hin opinbera verðlagning á mjólk verði felld niður,“ er mat Guðbrands Sigurðssonar, for- stjóra Mjólkursamsölunnar. Þetta kom fram í ræðu hans á aðalfundi MS/Auð- humlu sl. föstudag en fundurinn var sá fyrsti sem haldinn er eftir stofnun sérstaks rekstrarfélags um mjólkuriðnaðinn sem hlaut nafnið Mjólkursamsal- an. Telur Guðjón að Mjólkursamsalan verði eitt stærsta matvælafyrirtæki landsins innan tíðar. Magnús H. Sigurðsson, formaður Auðhumlu, gat þess í ræðu sinni að mjólkuriðnaðurinn hefði tekið á sig umtalsverðan kostnað til þess að koma í veg fyr- ir verðhækkun á mjólkurvörum, meðal annars með 12 mánaða verðstöðvun á mjólkurvörum sem nú er í gildi. Á aðalfundinum kom fram að verðstöðvunin kostaði mjólkuriðnaðinn á milli 500 og 800 milljónir króna á ársgrundvelli. „Þetta útspil mjólkuriðnað- arins verður hins vegar ekki sársaukalaust og má gera ráð fyrir nokkrum halla á rekstri Mjólkursam- sölunnar fyrstu tvö rekstrarárin eða þangað til að sú hagræðing sem er möguleg fer að skila sér í rekstri félagsins,“ sagði Guðbrandur á fundinum. Hann sagði ennfremur að hið opinbera verðlags- kerfi hefði orðið til þess að iðnaðurinn borgaði með drykkjarmjólkinni og það hefði áhrif á verðlagn- ingu á vinnsluvörum mjólkuriðnaðarins. „Þannig hefur skapast töluverð slagsíða í verðlagningunni hjá okkur og auðvelt er fyrir nýja aðila, hvort sem er erlenda eða innlenda, að fleyta rjómann af mark- aðnum í orðsins fyllstu merkingu. Með því móti gefst okkur nokkurra ára aðlögunartími til að verð- leggja afurðir okkar þannig að þær endurspegli framleiðslukostnaðinn.“ Á aðalfundinum var nafn eignarhaldsfélags mjólkuriðnaðarins stytt úr MS/Auðhumla í Auð- humla. Félagið á allar fasteignir sem áður tilheyrðu mjólkurbúunum og leigir aðstöðuna til Mjólkur- samsölunnar. Konur voru kjörnar í fyrsta sinn í stjórn félags- ins. Mjólkursamsalan er í eigu um 700 bænda og fjölskyldna þeirra. Hjá fyrirtækinu starfa um 450 manns. Vilja fella niður opinbera verðlagningu á mjólk Segja verðstýringu drykkjarmjólkur hafa áhrif á verð á unnum mjólkurvörum Í HNOTSKURN » Verðstöðvun á mjólkurvörum er talinkosta mjólkuriðnaðinn um 5–800 millj- ónir króna á ári. » Forstjóri Mjólkursamsölunnar segiropinbert verðlagskerfi verða til þess að iðnaðurinn borgi með drykkjarmjólk og það hafi áhrif á verðlagningu á vinnsluvör- um iðnaðarins. » Konur voru kjörnar í stjórn félagsins ífyrsta skipti á nýliðnum aðalfundi. ÞINGMÖNNUM hafði í gær borist fjöldi áskorana um að skrifa und- ir sáttmála Fram- tíðarlandsins. Fjölmargir stjórnarand- stöðuþingmenn eru nú orðnir „grænir“, en auk þeirra hefur Jón- ína Bjartmarz umhverfisráðherra skrifað undir. „Að sjálfsögðu mun ég við tækifæri taka einhverja afstöðu til þess efnis sem í póstinum var,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson. Hann var þó ekki sáttur við leiðina sem farin var til að vekja athygli hans en hann hafði fengið um hundr- að áskoranir í tölvupósti. „Mér finnst sjálfsagt að félagasamtök sendi manni póst og biðji mann að skoða hann, en hins vegar er óþarfi að drekkja pósthólfinu manns með sömu skilaboðunum til að afgreiða sama málið.“ | 12 „Óþarfi að drekkja í pósti“ Guðjón Arnar Kristjánsson BARÁTTUSAMKOMA var haldin í gærkvöldi, í tilefni af því að fjögur ár eru síðan innrás var gerð í Írak. Hópur félagasamtaka stóð að samkomunni og segir innrásina hörmuleg mistök sem notið hafi fulltingis íslensku ríkisstjórnarinnar. Þau krefjast þess að stjórnvöld axli ábyrgð vegna stuðnings við ólöglegt innrásarstríð. Góð mæting var á fundinn sem haldinn var í Austurbæ og mikil stemning að sögn fundargesta. Ávörp fluttu Helgi Hjörvar og Guðfríður Lilja Grét- arsdóttir en auk þeirra komu listamenn fram. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fjögur ár frá því ráðist var inn í Írak ♦♦♦ ELDRI karlmaður lést eftir að hafa orðið milli dráttarvagns og bifreiðar í Reyðarfirði um hádegisbil í gær. Að sögn lögreglunnar á Eskifirði varð slysið með þeim hætti að mað- urinn var að tengja vagninn við bif- reiðina þegar bíllinn rann til með fyrrgreindum afleiðingum. Lífgun- artilraunir báru ekki árangur og lést maðurinn af áverkum þeim sem hann hlaut við slysið. Slysið varð á geymslusvæðinu á Hjallanesi sem mörg fyrirtæki hafa afnot af. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu. Lést í vinnuslysi Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson. Banaslys Karlmaður lést er hann varð á milli dráttarvagns og bifreiðar. RÍKISENDURSKOÐUN hefur ekki tekist að fylgja því eftir sem skyldi að kanna og staðfesta hvort þeir fjármunir sem Alþingi sam- þykkir að veita til aðila utan kerf- isins skili sér í þeirri þjónustu sem til er ætlast eða hvort styrkveitingar gangi til þeirra hluta sem þær grundvallast á. Þetta kemur fram í formála ríkisendurskoðanda, Sig- urðar Þórðarsonar, að ársskýrslu stofnunarinnar fyrir árið 2006. Þar kemur einnig fram að Ríkis- endurskoðun hafi ekki endurskoðað meginþorra umræddra verkefna eða leitað eftir upplýsingum um ráðstöf- un fjármuna. Ráðuneytin gerðu alls 195 skuld- bindandi samninga um opinbera þjónustu við aðila utan stjórnkerfis- ins á árabilinu 2006 til 2007 um út- gjöld sem nema samtals 94,1 millj- arði króna. Að sögn Sigurðar endurskoðar Rík- isendurskoðun 30 til 40 af þessum samningum en hitt er endur- skoðað af öðrum. „Þeir sem end- urskoða þessa samninga gera það ekki í umboði okkar,“ segir Sig- urður en til greina kemur að breyta fyrirkomu- laginu þannig að samningarnir verði endurskoðaðir í umboði Ríkisendur- skoðunar. Í formála Sigurðar er bent á að sérstakt átak þurfi að gera til þess að ná utan um þessi mál og það verði annars vegar gert með því að nýta til þessa aukinn hluta núverandi vinnu- framlags og hins vegar með því að leita eftir viðbótarfjármunum. Ekki skoðað sem skyldi Samningar við aðila utan ríkiskerfisins Sigurður Þórðarson Eftir Ólaf Þ. Stephensen olafur@mbl.is SAMKOMULAG hefur í grundvall- aratriðum náðst um aðild Búlgaríu og Rúmeníu að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er líklegt að gengið verði frá sam- komulagi á næsta fundi sameigin- legu EES-nefndarinnar á föstudag. Gengið er út frá að EFTA-ríkin greiði samtals um 60 milljónir evra til viðbótar á ári í þróunarsjóð fyrir fátækari ríki ESB. Þar af koma um 1,5 milljónir evra, eða um 135 millj- ónir króna, í hlut Íslands. Á móti fá íslenzk fyrirtæki tollfrjálsan inn- flutningskvóta á humri og karfa, sem metinn er til tæplega 70 millj- óna króna árlega. Norðmenn fá um 2.000 tonna toll- kvóta á rækju, auk smávægilegra leiðréttinga á tollkvótum vegna fyrri viðskipta við Rúmeníu og Búlgaríu. Senn samið um EES VÉLSLEÐAMAÐUR varð fyrir nokkrum meiðslum þegar hann varð fyrir snjóflóði sem féll í hlíðum Kálfstinds norðan Lyngdalsheiðar um tvöleytið í gær. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar á Selfossi voru fimm vélsleða- menn á ferðinni þar sem snjóflóðið féll og virðist sem það hafi komið á einn þeirra, sem í kjölfarið féll af sleða sínum við hamrabelti. Maðurinn mun hafa komist niður að veg með aðstoð félaga sinna þar sem sjúkraflutningamenn tóku á móti honum. Hann kenndi sér eymsla í hálsi og baki og var því fluttur með sjúkrabifreið á Land- spítala – háskólasjúkrahús til skoð- unar. Þar kom í ljós að meiðsl hans voru ekki alvarleg og fékk hann að fara heim að skoðun lokinni. Maðurinn var vel búinn en hann var klæddur sérstakri hlífðarbrynju og með hjálm. Mun það hafa átt sinn þátt í að ekki fór verr. Snjóflóð féll á vél- sleðamann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.