Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 9
FRÉTTIR
Laugavegi 53, s. 552 1555.
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. 11-16
Ný sending
Póstsendum
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Nýjar peysur
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16
Str. 36-56
! "! #
Lagerhreinsun
þriðjudag – miðvikudag
Meyjarnar Austurveri, Háaleitisbraut 68,sími 553 3305.
Trofe bikiní stök nr. 36 - 38 - 40, verð kr. 1.990.-
Sportlína - eldri gerðir
stuttbuxur - kvartbuxur - vesti - jakkar og pils
30% afsláttur
TÍIU umsóknir bárust um embætti
héraðsprests II í Kjalarnesspró-
fastsdæmi. Umsóknarfrestur rann
út hinn 15. mars sl. Embættið er
veitt frá 1. maí næstkomandi.
Umsækjendur um embættið eru:
Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir guð-
fræðingur, Elína Hrund Kristjáns-
dóttir guðfræðingur, sr. Ingileif
Malmberg, sr. Kjartan Jónsson,
Sigríður Rún Tryggvadóttir guð-
fræðingur, Sigurvin Jónsson guð-
fræðingur, sr. Skírnir Garðarsson,
Sveinbjörg Pálsdóttir guðfræð-
ingur, sr. Torfi K. Stefánsson
Hjaltalín og sr. Þórhildur Ólafs.
Tíu sóttu um
LÖGREGLAN á höfuðborgar-
svæðinu fann fíkniefni á gestum
fjögurra veitingastaða af þeim
sex sem farið var inn á um
helgina. Á þessum stöðum voru
höfð afskipti af 25–30 manns og
fannst maríjúana, hass, kókaín og
amfetamín. Á laugardagskvöld
fann lögregla kannabisplöntur á
heimili karlmanns um fimmtugs.
Einnig var lagt hald á tæki til
kannabisræktunar og tæki til
heimabruggunar.
Fíkniefni á
veitingastöðum
TÍU snjóflóð féllu á vegi á norð-
anverðum Vestfjörðum um helgina.
Skv. upplýsingum frá Vegagerðinni
féllu þrjú flóð á Kirkjubólshlíð á
laugardag og tvö á sunnudag. Þá
féllu tvö flóð á Súðavíkurveg á
sunnudag. Á Hnífsdalsveg féllu tvö
flóð aðfaranótt sunnudags. Á veg-
inn um Óshlíð féll eitt flóð en sex
önnur lentu á þiljum og netakössum
sem sett hafa verið upp til varnar.
Mörg snjóflóð
DAGANA 18. til 25. mars stendur
yfir hér á landi alþjóðlegt námskeið
um vatnsaflsvirkjanir.
Námskeiðið er ætlað háskóla-
nemum á sviði verkfræði. Alls
sækja á þriðja hundrað erlendir
nemendur námskeiðið. Áhuginn
var slíkur að einungis 10% þeirra
sem sóttu um að koma hingað
fengu tækifæri til þess.
Mikill áhugi
ENGAN sakaði þegar fólksbifreið
og jepplingur rákust saman á eystri
enda Skjálfandafljótsbrúar í gær-
morgun. Að sögn lögreglunnar á
Húsavík skemmdust ökutækin hins-
vegar talsvert og þurfti að kalla eft-
ir kranabifreið til þess að draga
þær á brott.
Önnur bifreiðin var að aka af
brúnni þegar slysið varð. Ökumað-
ur hinnar bifreiðarinnar veitti bíln-
um á brúnni ekki eftirtekt og ætlaði
að aka inn á hana og úr því varð all-
harður árekstur sem fyrr segir.
Árekstur á brú
VINNA við lóð Bauhaus í Halla við Vesturlandsveg er nú
hafin. Háfell ehf. vinnur þessa dagana að því að undirbúa
flutning stofnæða vatns- og hitaveitulagna milli Reykja-
víkur og Mosfellsbæjar. Æðarnar liggja nú í stokki í
gegnum miðja lóðina en hann verður tekinn upp og æð-
arnar færðar nær Vesturlandsvegi á nokkrum kafla.
Þá á einnig að gera götur í kringum Bauhaus-lóðina
sem á að vera tilbúin 15. maí næstkomandi, samkvæmt
upplýsingum frá Háfelli ehf. Eins eru fyrirhugaðar fleiri
atvinnulóðir í Halla.
Vinna við þetta verkefni hófst í byrjun febrúar og
verklok eru áætluð í október næstkomandi.
Morgunblaðið/RAX
Grafið í Halla við Vesturlandsveg
UNGUR Íslendingur, Ragnar Þor-
valdsson, sótti nýlega ráðstefnuna
„Menntun án landamæra“ sem hald-
in var í Abu Dhabi, höfuðborg Sam-
einuðu arabísku furstadæmanna.
Ráðstefnan var nú haldin í þriðja
sinn en markmið hennar er að ná
saman ungu háskólafólki til að ræða
mögulegar lausnir til að efla megi
menntun á heimsvísu og til efla
tengsl fólks landa á milli.
„Markmiðið var að sameina nem-
endur alls staðar í því sem kallað er
virk umræða. Á ráðstefnunni fengum
við tækifæri til að kynnast því hvaða
verkefni eru í gangi til að efla mennt-
un og í hvaða stöðu margir eru í til að
mennta sig. Á endanum er stefnt að
því að þátttakendur ráðstefnunnar
reyni að leggja sitt af mörkum, hver
á sínu sviði og sínum vettvangi, til að
fá hugmyndir að því hvernig efla
megi menntunarstig í heiminum,“
segir Ragnar.
Hann hefur sjálfur starfað sem
sjálfboðaliði á vegum AFS, samtaka
sem sjá um að veita fólki færi á að
gerast skiptinemar í öðrum löndum
en heimalandinu. „Á ráðstefnunni
kynntist ég mörgu fólki og fékk inn-
sýn í annars konar verkefni, eins og
verkefni sem miða að því að veita
Afríkubúum sem ekki hafa fengið
tækifæri til að læra á tölvur aðstoð
við það.“
Margir þekktir fyrirlesarar fluttu
erindi á ráðstefnunni og má þar helst
nefna Muhammad Yunus en hann
hlaut nýverið friðarverðlaun Nóbels
fyrir að hafa í gegnum bankarekstur
sinn veitt mörgum fátæklingum í
Bangladesh lán til að koma sér úr
fátækt. Einnig kynnti Nicholas
Negroponte verkefni sem miðar að
því að þróa ódýrar fartölvur fyrir
börn í fátækari löndum.
Ragnar stundar um þessar mundir
nám í viðskiptaháskólanum í Kaup-
mannahöfn en þar rakst hann á aug-
lýsingu um ráðstefnuna en umsækj-
endur þurftu að skila inn ritgerð til
að fá aðgang. Um eitt þúsund há-
skólanemendur frá 108 löndum tóku
þátt í ráðstefnunni og voru þátttak-
endur á aldrinum 17 til 28 ára.
Menntamálaráðuneyti Sameinuðu
arabísku furstadæmanna kostaði
ráðstefnuna að mestu leyti en ís-
lenska menntamálaráðuneytið veitti
Ragnari einnig styrk til fararinnar.
Kynntist leiðum til eflingar
menntunar í þróunarríkjum
Í Abu Dhabi Ragnar Þorvaldsson ásamt öðrum ráðstefnugestum.
NOKKUÐ hefur verið um að fólk
renni í hálku á höfuðborgarsvæð-
inu síðustu daga og slasi sig. Fall í
skíðabrekkum getur líka dregið
dilk á eftir sér og í gær varð
slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
fjórum sinnum að fara í Bláfjöll og
sækja fólk sem hafði dottið á skíð-
um eða snjóbretti. Ýmist var um
ökklabrot eða bakmeiðsli að ræða.
Að sögn varðstjóra hjá slökkvi-
liðinu var mikill erill í gær og síð-
degis voru sjúkraflutningar t.a.m.
orðnir rúmlega 50. Þrisvar sinnum
var slökkviliðið kallað út vegna
bruna í bílum. Um klukkan 14.30
féll erlendur verkamaður af þriðju
hæð húss í Kórahverfi í Kópavogi.
Kvartaði hann undan meiðslum í
baki og fótum en ekki lá fyrir
hversu alvarleg meiðslin voru.
Runnu í hálku
og duttu í
brekkum