Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
Hefur þú einhvern tímann gert mjög stór mistök?
SÝND Í SAMBÍÓ
KRINGLUNNI
/ KRINGLUNNI
300 kl. 8 - 10:10 - 10:30 B.i. 16 ára DIGITAL
NORBIT kl. 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ
MUSIC & LYRICS kl. 8 LEYFÐ DIGITAL
THE BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 5:50 LEYFÐ
300 kl. 6:30 - 9 - 10:40 B.i. 16 ára
BLOOD & CHOCOLATE kl. 8 -10:15 B.i. 12 ára
LETTERS FROM IWO JIMA kl. 5:30 B.i. 16 ára
DREAMGIRLS kl. 5:30
eeee
V.J.V.
BREAKING AND ENTERING
HORS DE PRIX ísl. texti kl. 5:40 - 8 - 10:20
TELL NO ONE (NE LE DIS A PERSONE) kl. 8 - 10:20
PARIS, JE T'AIME kl. 5:40
ALLIANCE FRANÇAISE, Í SAMVINNU
VIÐ PEUGEOT OG BERNHARD, KYNNA:
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Í HÁSKÓLABÍÓ 3.MARS TIL 1. APRÍL
,,TÍMAMÓTAMYND"
eeeee
V.J.V. - TOPP5.IS
STÆRSTA MYND ÁRSINS
Í BANDARÍKJUNUM
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Á ÍSLANDI
FRÁ HÖFUNDI
SIN CITY
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA er engin grínmynd eins og
ég hef stundum gert, þótt það gerist
skemmtilegir hlutir af og til,“ segir
Guðný Halldórs-
dóttir leikstjóri
um sína nýjustu
kvikmynd,
Veðramót, sem
verður frumsýnd
í haust.
„Þetta er kvik-
mynd um þrjá
unga hug-
sjónamenn sem
taka að sér að
stjórna heimili fyrir vandræðabörn
norður í landi,“ segir Guðný sem
skrifaði einnig handritið að mynd-
inni, en það er byggt á reynslu henn-
ar þegar hún vann í Breiðavík
snemma á áttunda áratugnum. „Ég
læt þessa mynd hins vegar bara ger-
ast einhvers staðar úti á landi, ég læt
hana ekki gerast á Breiðavík, heldur
heitir staðurinn Veðramót.“
Guðný segir myndina ekki fjalla
um það ofbeldi sem átti sér stað í
Breiðavík og hefur verið fjallað um í
fjölmiðlum að undanförnu, myndin
gerist árið 1974 þegar því tímabili
var lokið. „Það var afskaplega vel
farið með þetta fólk á meðan við vor-
um þar. Það var til dæmis einn hjá
mér í heimsókn um helgina sem var
þarna, og ég hef mjög gott samband
við flesta þeirra sem eftir lifa,“ segir
Guðný.
Baugalín
Guðný segir að útgáfa bókarinnar
Launhelgi lyganna árið 2000 hafi
orðið til þess að hún ákvað að gera
myndina. Bókin var skrifuð undir
dulnefninu Baugalín, en í bókinni
lýsir höfundur því hvernig hún var
misnotuð af fósturföður sínum í
æsku. Stúlkan var send í Breiðavík,
en að sögn Guðnýjar kom ekki í ljós
fyrr en 25 árum seinna hvers vegna
hún var send þangað. „Ég las bókina
og varð svo agalega vond þegar ég
uppgötvaði að hún var búin að vera
lokuð inni fyrir ekki neitt, án þess að
við vissum það. Hún var lokuð inni
fyrir að vera fórnarlamb,“ segir
Guðný, og bætir við að gerandinn í
málinu hafi aldrei þurft að svara til
saka.
Ungir leikarar
Eins og vænta má af mynd sem
gerist á unglingaheimili leika fjöl-
margir ungir leikarar í Veðramót-
um. Að sögn Guðnýjar reyndust þeir
mjög vel. „Þeir þurfa náttúrlega
meiri æfingu en fullorðnu leik-
ararnir,“ segir hún. „Ég fann þau
flest í menntaskólaleikritunum sem
voru í gangi síðasta vetur. Ég sá öll
þessi leikrit og pikkaði þau út úr
þeim, þá sem mér fannst standa sig
vel. En þetta var annars góður hóp-
ur og samviskusamur,“ segir Guðný,
en á meðal leikara í myndinni eru
Tinna Hrafnsdóttir, Hilmir Snær
Guðnason, Atli Rafn Sigurðarson,
Baltasar Breki Baltasarsson, Ugla
Egilsdóttir, Arnmundur Ernst
Björnsson og Þorsteinn Bachmann.
„Það má segja að ég sé búin að
vera þrjú ár að gera þessa mynd.
Fyrst skrifaði ég handritið, svo
þurfti að fjármagna, taka hana og
svo vorum við að ljúka við að klippa
hana og hún er núna í hljóðklipp-
ingu,“ segir Guðný.
„Myndin var tekin í Reykjavík og
vestur á Snæfellsnesi. Svo eigum við
eina senu eftir og hún er tekin í
Kaupmannahöfn, við tökum hana í
næstu viku,“ segir Guðný, en mynd-
in verður frumsýnd föstudaginn 17.
ágúst. „Þetta er alvarleg mynd um
það hvernig þessa krakka dagaði
uppi án þess að nokkur hefði áhuga á
þeim. Ég held að allir hafi gott af því
að sjá svona mynd.“
Stormasamt á Veðramótum
Kvikmynd byggð á dvöl ungs fólks í Breiðavík árið 1974 frumsýnd í ágúst
Guðný
Halldórsdóttir
Við veiðar Að sögn Guðnýjar var vel farið með vistmenn í Breiðuvík á
meðan hún vann þar. Baltasar Breki Baltasarsson og Gunnur Schlüter.
Veðramót Arnmundur Ernst Björnsson og Atli Rafn Sigurðarson í hlutverkum sínum í kvikmyndinni.
ÞAÐ HAFA eflaust margir gripið
andann á lofti í gær þegar komst í
hámæli að leikkonan Emma Wat-
son, sem leikið hefur Hermione
Granger í Harry Potter-mynd-
unum, hefði neitað að skrifa undir
samning um að leika í síðustu
tveimur myndunum. Samkvæmt
fréttunum átti Watson, sem er sex-
tán ára, að hafa hafnað tilboði sem
kvað á um tvöföldun launa hennar,
þ.e. að hún fengi rúmar 262 millj-
ónir króna fyrir hvora mynd.
Warner Bros-kvikmyndaverið
gaf í kjölfarið frá sér yfirlýsingu
þar sem fram kemur að það sé
„mjög líklegt“ að Watson verði
með.
„Við erum sannfærð um að
Emma verði með í sjöttu og sjöundu
myndunum,“ sagði talsmaður kvik-
myndaversins í gær.
Watson
verður með
Með? Margir Harry Potter-
aðdáendur bíða frekari frétta.
Á SJÖTTA hundrað manns hafði
sótt sér eintak af nýrri smáskífu
rokkhljómsveitarinnar Mínus á
mbl.is þegar Morgunblaðið fór í
prentun í nótt. Hægt var að sækja
lagið, sem nefnist „Futurist“, fram-
undir morgun.
„Futurist“ er fyrsta lagið sem
fær að hljóma af væntanlegri breið-
skífu hljómsveitarinnar, The Great
Northern Whalekill, sem út kemur
16. apríl nk. Fer lagið í spilun á út-
varpsstöðvum í dag.
Fjöldi sótti
sér Mínus