Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 52
Í HNOTSKURN
» Fiskneysla fólksá aldrinum 17–26
ára hefur minnkað
verulega undanfarin
ár.
» Ungar konur eruhrifnari af græn-
meti og fiski en ungir karlar, samkvæmt
könnun Matís.
» Ungu karlarnir eru hrifnari af skyndi-bita og kjöti.
» Ungt fólk sem er flutt úr foreldra-húsum borðar minnst af fiski.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„MÉR finnst hann ekki góður,“ segir Jóhanna Gísla-
dóttir, 18 ára nemi í Menntaskólanum í Reykjavík, en
hún er ekki mikið fyrir að borða fisk. Hið sama virðist
gilda um marga jafnaldra hennar, en skv. nýrri könn-
un Matís hefur fiskneysla ungs fólks 17–26 ára
minnkað. Fólk á þessum aldri borðar fisk að með-
altali 1,3 sinnum í viku, sem er töluvert minni fisk-
neysla en Lýðheilsustöð ráðleggur. Einar K. Guð-
finnsson sjávarútvegsráðherra sagði þegar
niðurstöðurnar voru kynntar í gær að það væri
áhyggjuefni hversu lítinn fisk ungt fólk borðaði.
Fiskurinn fínn próteingjafi
Í könnun Matís kemur fram að margt ungt fólk
virðist fremur kjósa kjöt en fisk á sinn disk.
Sumir unglingar hafa þó ekkert á móti fiskmet-
inu. Þau Urður Anna Björnsdóttir og Elías Eyþórs-
son, sem einnig eru menntaskólanemar í MR, segj-
ast borða fisk í viku hverri. „Þetta er fínn
próteingjafi,“ segir Elías. Hann segist hafa prófað
að elda fisk en það sé nokkuð snúið. „Ég hef tvisvar
reynt það og í bæði skiptin skaðbrenndi ég fiskinn.“
Urður Anna telur að hún borði fisk í nokkuð
meira mæli en jafnaldrar hennar, en heima hjá
henni er fiskur á boðstólum 1–2 sinnum í viku. Hún
segir lax og saltfisk í uppáhaldi hjá sér.
Ungmennin þrjú gera öll ráð fyrir að fiskur verði
á boðstólum hjá þeim þegar þau fara sjálf að halda
heimili í fyllingu tímans. „Kannski svona einu sinni í
viku, upp á hollustuna,“ segir Jóhanna.
Í könnun Matís kom í ljós að matarvenjur í æsku
hafa mótandi áhrif á fiskneyslu ungs fólks og sömu-
leiðis búseta þess í æsku. | 4
„Finnst hann ekki góður“
Ungt fólk neytir æ sjaldnar fisks og horfur á að neyslan minnki enn Ungar
konur eru gefnari fyrir fisk en karlar Matarvenjur í æsku hafa mótandi áhrif
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 79. DAGUR ÁRSINS 2007
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Helmingur barna hefur
heimsótt klámsíður
Um 49% íslenskra barna sem nota
Netið hafa heimsótt klámsíður fyrir
slysni. Barnaheillum berast um 50
ábendingar á mánuði vegna ólöglegs
efnis á Netinu og í um 30–40% til-
vika er um barnaklám að ræða.
»Forsíða
Milljarða tekjuauki
Tekjuauki Hafnfirðinga vegna
stækkunar álversins í Straumsvík
yrði 3,4–4,7 milljarðar króna á 50 ár-
um, eða 6–9 þúsund krónur á hvern
Hafnfirðing á ári, að mati Hag-
fræðistofnunar HÍ. »Miðopna
Vill frjálst mjólkurverð
Mjólkursamsalan vill að opinbera
verðlagningin á mjólk verði lögð nið-
ur, segir hana hafa orðið til þess að
mjólkuriðnaðurinn borgi með
drykkjarmjólkinni og það hafi áhrif
á verðið á unnum mjólkurvörum. »2
Hættulegur áverki
Hólmfríður Magnúsdóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu, verður frá
keppni í 2–3 mánuði vegna hættu-
legs áverka. Er það áfall fyrir lands-
liðið því talið er að hún missi af
þremur mikilvægum leikjum þess.
»Íþróttir
Nær viðskiptavininum
Glitnir hefur endurskilgreint hlut-
verk útibúa bankans og segir að
markmiðið sé m.a. að færa hann nær
viðskiptavinum sínum. »13
Írakar á móti hernum
Aðeins 18% Íraka segjast hafa trú
á bandaríska herliðinu í Írak og 78%
segjast vera andvíg veru þess í land-
inu nú þegar fjögur ár eru liðin frá
innrásinni í landið. »14
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Hetjurnar mínar
Staksteinar: Hægri og vinstri
Forystugreinar: Stefna fjórðungs
þjóðarinnar? | Hagvöxtur 21. aldar
UMRÆÐAN»
Rangfærslur ráðuneyta
Laugardalur, svæði IV
„Drengir, sjáið þið ekki veisluna?“
Sneypuför Jóns
/ %
)7"
- (
)
8
%
2 2 2 2 2 2 2 + 9 !6 "
2 2 2 2
:;<<=3>
"?@3<>A8"BCA:
9=A=:=:;<<=3>
:DA"993EA=
A;3"993EA=
"FA"993EA=
"0>""AG3=A9>
H=B=A"9?H@A
":3
@03=
8@A8>"0(">?=<=
Heitast 8 °C | Kaldast -2 °C
S og SA 10–15 m/s.
Úrkomulítið á NA- og
A-landi fram á kvöld.
Slydda, síðar rigning
S- og V-lands síðdegis. » 8
Músíktilraunir halda
áfram í kvöld þegar
tíu sveitir freista
þess að komast í
úrslitin sem fram
fara í lok mánaðar-
ins. »46
TÓNLIST»
Tilraunir
með tóna
ÚTVARP»
„Íslenskt útvarp var við-
bjóður þar til í gær.“ »44
Íslenskur ljósmynd-
ari tók myndir fyrir
Rolling Stone-
tónlistartímaritið á
South by South
West. »44
FÓLK»
Myndar
fyrir RS
BÍÓLISTINN»
Íslendingar fjölmenntu í
bíó um helgina. »49
KVIKMYNDIR»
Fjöldi ungra leikara leik-
ur í Veðramótum. »48
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
ATLI Jóhannsson, 24 ára Eyjamaður sem nú leikur
með KR, var í gær valinn í landsliðshópinn í knatt-
spyrnu í fyrsta skipti. „Ég er í skýjunum yfir þessu,“
sagði Atli við Morgunblaðið en hann er aðeins annar
af tveimur leikmönnum íslenskra liða í hópnum. Atli
lék listir sínar með boltann í snjónum í Vesturbænum
í gær en nú fer hann í sólina á Mallorca þar sem Ís-
land mætir Spánverjum 28. mars. »Íþróttir
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Atli fer úr snjónum í sólina
GREGORY Cattaneo er ekki við eina fjölina
felldur. Íslenski víkingatíminn á hug þessa
franska fræðimanns allan enda hefur hann
lokið meistaragráðu í íslenskum mið-
aldafræðum og leggur nú stund á meist-
aranám í fornleifafræði á íslensku, einn út-
lendinga við Háskóla Íslands. Að auki
kennir hann tvö námskeið við frönskuskor
skólans, hann þjálfar sundfólk hjá Ægi,
hann er ástríðukokkur og kafari, talar
fjölda tungumála og hefur auk fyrrnefndra
gráða lokið meistaranámi í miðaldasögu við
Sorbonne-háskólann í París sem og þremur
BA-gráðum við CPGE Khâgne-skólann í
Orléans. Og þó er hann ekki nema 22 ára
gamall. » Daglegt líf
Heltekinn
af íslensku
víkingunum
Heillaður Gregory Cattaneo hefur brenn-
andi áhuga á íslenskum fornsögum.
Ungur Frakki kennari
við Háskóla Íslands