Morgunblaðið - 20.03.2007, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AÐALMEÐFERÐ Í BAUGSMÁLINU
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
VITNALEIÐSLUM í Baugsmál-
inu svokallaða lauk í gær, á 26.
degi málsins. Aðeins fjórir dagar
eru eftir þar til málið verður lagt í
dóm og verða þeir notaðir í munn-
legan málflutning málsaðila – sem
hefst næstkomandi mánudag. Þó
verður stutt þinghald á föstudag-
inn kemur og mun þá settur sak-
sóknari m.a. leggja fram rafræn
eintök af tölvubréfum.
Dómþing var með lengra móti í
gær og lauk ekki fyrr en á sjötta
tímanum. Mestur tími fór í
skýrslutöku yfir löggiltum endur-
skoðendum hjá Pricewaterhouse-
Coopers, þeim Vigni Rafni Gísla-
syni og Ólafi Kristinssyni, en þeir
unnu að greinargerðum fyrir verj-
endur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
og Tryggva Jónssonar.
Ítarlega var farið yfir ákæruliði
ákærunnar og niðurstöður í skýrsl-
unni. Meðal þess sem spurt var út í
var rannsókn PWC á ráðstöfun á
mánaðarlegum greiðslum Baugs,
frá ársbyrjun 2000 fram á mitt ár
2002, til Nordica eða New Viking.
Samkvæmt ákærunni er Jóni Ás-
geiri og Tryggva gefinn að sök
fjárdráttur með því að hafa fjár-
magnað eignarhlutdeild fjárfest-
ingarfélagsins Gaums í skemmti-
bátnum Thee Viking úr sjóðum
Baugs. Snýr ákæruefnið reikning-
um vegna afborgana af lánum,
rekstrarkostnaðar og tilfallandi
kostnaðar vegna bátsins.
Heildarniðurstöður skýrsl-
unnar breyttust ekki
Gestur Jónsson, verjandi Jóns
Ásgeirs, spurði Vigni Rafn hvað
flestra spurninga. Í máli hans kom
m.a. fram að PWC hefði verið falið
að stilla upp innborgunum og út-
borgunum af bankareikningum
Nordica og New Viking og greina
frá hvernig greiðslum frá Baugi
var ráðstafað. „Við teljum að það
sé ekki augljóst orsakasamhengi
milli þeirra innborgana frá Baugi
og útborgana vegna skemmtibáts-
ins. Það er ekki augljóst að greiðsl-
urnar hafi farið í bátinn og alveg
jafn oft að þær fara til eiganda fyr-
irtækisins,“ sagði Vignir.
Á föstudaginn sl. skýrði Aldís
Hilmarsdóttir lögreglufulltrúi frá
rannsókn ríkislögreglustjóra á
kostnaði Jóns Geralds vegna báts-
ins. Hún skoðaði m.a. bókhald Jóns
Geralds og sagðist hafa tekið týp-
ískan bátakostnað, en sleppt vafa-
atriðum – sakborningum í hag.
Hún sagðist hafa staðreynt að það
sem lagt hefði verið út vegna báts-
ins hefði í það minnsta numið upp-
hæðinni sem barst mánaðarlega frá
Baugi. Auk þess kom fram í máli
hennar að gerðar voru athuga-
semdir við skýrslu PWC, sem hefði
verið haldin augljósum annmörk-
um, m.a. vegna þess að þá sem
hana hefðu unnið hefði vantað
gögn, sem hún hefði verið með.
Vignir Rafn sagði hins vegar í
gær að heildarniðurstöður PWC
hefðu ekki breyst við athugasemdir
RLS.
Settur saksóknari, Sigurður
Tómas Magnússon, spurði þá hvort
hægt væri að greina hvernig fjár-
hæðum væri ráðstafað þegar fjár-
munir kæmu inn á bankareikning.
Vignir sagði svo ekki vera enda
kæmi það fram í skýrslunni að
þessum fjármunum hefði verið ráð-
stafað almennt í rekstur.
Einnig kom fyrir dóm í gær
Kristrún Sveinbjörnsdóttir, sem
starfaði hjá Nordica frá nóvember
2000 til ágúst 2002. Hún sá m.a.
um útgáfu og greiðslu reikninga og
bókhaldsstörf.
Sigurður Tómas spurði hana
m.a. út í reikningana mánaðarlegu,
sem hún kannaðist við. Sagði
Kristrún að þeir hefðu verið til
þess að „dekka“ kostnaðinn við
bátinn og það hefði legið ljóst fyrir.
Hún var einnig spurð hvort hún
vissi hvernig fénu var ráðstafað og
hvort það hefði dugað til reksturs
bátsins. Kristrún sagði greiðslurn-
ar ekki hafa dugað fyrir rekstr-
inum og það sem vantaði upp á
hefði verið greitt af Nordica – sem
lán. Hún sagði jafnframt að
greiðslurnar hefðu verið sveiflu-
kenndar milli mánaða en aðallega
hefðu þær verið lánið af bátnum,
um fimm þúsund dollarar, auk
hafnargjalda og tilfallandi kostn-
aðar. Einnig hefði verið greitt af
eldra láni, fyrir fyrri skemmtibát,
upp á rúma tvö þúsund dollara.
Ósátt við Jón Steinar
Sambýliskona Jóns Ásgeirs,
Ingibjörg Pálmadóttir, var m.a.
spurð út í samskipti þeirra Jóns
Steinars Gunnlaugssonar, núver-
andi hæstaréttardómara. Ingibjörg
sagði Jón Steinar hafa verið lög-
mann sinn á árinu 2002 og hún
hefði orðið ósátt þegar hún komst
að því að hann hefði verið Jóni
Geraldi innan handar á fyrstu stig-
um Baugsmálsins. „Ég spurði hann
hvers vegna hann hefði ekki vísað
honum á annan lögmann, hann
sagði að það hefði verið vegna
þrýstings frá svo mörgum mönn-
um,“ sagði Ingibjörg.
Hún var einnig spurð út í tengsl
sín við Fjárfar, sagðist hún hafa
keypt hlutabréf af Fjárfari en hefði
annars ekkert haft með það að
gera. Þá var borinn undir hana
kaupsamningur um hlutabréf í
Fjárfari sem hún og Jón Ásgeir
skrifuðu undir. Samkvæmt honum
keypti Jón Ásgeir öll hlutabréf
eignarhaldsfélagsins ISP í Fjár-
fari. Ingibjörg kannaðist við undir-
skrift sína og að ISP væri félag
hennar. Hún gat hins vegar ekki
skýrt samninginn.
Síðar skýrði Jón Ásgeir samn-
inginn þannig að hann hefði enga
þýðingu, og hann hefði ekki gengið
eftir. Hann neitaði því að samning-
urinn væri kaupsamningur með
hlutabréf í Fjárfari, og engin skjöl
væru til um slíkt.
Jakob R. Möller, verjandi
Tryggva, fékk einnig tækifæri til
að spyrja Jón Ásgeir út í 19.
ákærulið en hann snýr að meintum
fjárdrætti Tryggva vegna notkunar
á American Express-greiðslukorti.
Jón Ásgeir sagðist hafa gefið leyfi
fyrir útgáfu kortsins, sem var stíl-
að á Nordica, og sagði fyrirmæli
Jóns Geralds hafa verið skýr varð-
andi útgáfu reikninga vegna þess,
þ.e. að Tryggvi ætti að fá reikning
vegna einkaneyslu sinnar.
Einnig kom fram í máli Jóns Ás-
geirs að Tryggvi hefði séð um tón-
listarsmekk Baugs og gert það vel.
Tryggvi hafði heimild til að kaupa
þá geisladiska sem m.a. er ákært
fyrir í málinu, og taldir til einka-
nota Tryggva, og þeir hefðu verið
notaðir á bátnum Thee Viking, í
starfsaðstöðu Baugs í Lundúnum
og við skemmtanahald í New York,
þar sem nokkrir starfsmenn Kaup-
þings voru einnig viðstaddir.
Ekki augljóst að greiðslurnar frá
Baugi hafi farið í skemmtibátinn
Skiptar skoðanir á ráðstöfun fjármuna sem Baugur greiddi Nordica mánaðarlega í tvö og hálft ár
Morgunblaðið/G. Rúnar
Vitnaleiðslum lokið Hrafnhildur Gunnarsdóttir aðstoðarmaður og Sigurður T. Magnússon, settur saksóknari.
Í HNOTSKURN
Dagur 26
»Um níutíu vitni og þrír sak-borningar hafa gefið skýrslu
í Baugsmálinu síðan 12. febr-
úar.
»Kjartan Gunnarsson varfyrsta vitni gærdagsins og
þurfti aðeins að stoppa stutt við.
Hann var spurður hvers vegna
hann mætti ekki á föstudag og
sagðist ekki hafa verið boðaður.
»Gestur Jónsson spurði hvortStyrmir Gunnarsson hefði
leitað álits hans á Jóni Steinari
Gunnlaugssyni og vísaði Kjart-
an til yfirlýsingar sem hann
sendi fjölmiðlum um málið.
»Jón Ásgeir Jóhannessonmætti einnig til skýrslutöku,
öðru sinni, og segja má að hans
eina játning hafi komið fram við
þinghaldið.
»GSM-sími truflaði þá upp-töku skýrslutökunnar og ját-
aði Jón Ásgeir brot sitt ský-
laust, að hafa gleymt að slökkva
á símanum.
Vitnaleiðslum lokið í Baugsmálinu
VEFVARP mbl.is
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi yfirlýsing frá
Jóni Steinari Gunnlaugssyni
hæstaréttardómara:
„Í fréttum af yfirheyrslu í
Héraðsdómi Reykjavíkur yfir
Ingibjörgu Pálmadóttur í dag,
mánudag, er haft eftir henni að
ég hafi sagt henni að ég hefði
orðið fyrir þrýstingi frá svo
mörgum mönnum að ég hefði
ekki getað vísað Jóni Gerald
Sullenberger að leita annars
lögmanns, þegar hann leitaði til
mín á árinu 2002. Af þessu til-
efni er óhjákvæmilegt að ég taki
fram, að Ingibjörg fer ekki með
rétt mál, þegar hún segir þetta.
Ég varð ekki fyrir nokkrum
þrýstingi hvað þetta snertir og
hafði ekki orð á neinu slíku við
hana.
Ástæðan fyrir því að ég tók
mál Jóns að mér var einkum sú
að hann var einstaklingur, bú-
settur erlend-
is, sem þurfti
að fá lögmann
til að fara með
bótamál gegn
mesta við-
skiptaveldi á
Íslandi, lík-
lega frá upp-
hafi vega.
Hann þekkti
ekki mikið til
hérlendis og mér var sagt að
hann ætti í erfiðleikum með að
finna lögmann sem ekki væri
tengdur þeim efnuðu mönnum
sem hann átti sökótt við eða ótt-
aðist þá. Það höfðaði til mín við
þessar aðstæður að hjálpa hon-
um við að ná fram rétti sínum
væri sá réttur til staðar.
Reykjavík, 19. mars 2007,
Jón Steinar Gunnlaugsson
fyrrverandi hæstaréttarlögmað-
ur.“
„Varð ekki fyrir
nokkrum þrýstingi“
Jón Steinar
Gunnlaugsson
FRÉTTIR
ÁTJÁN ára karlmaður sem grun-
aður er um að hafa nauðgað sér
litlu eldri konu á salerni Hótel
Sögu um helgina var í gær úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 28.
mars næstkomandi. Hann neitar
sök.
Að sögn Björgvins Björgvins-
sonar, yfirlögregluþjóns lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, var
maðurinn handtekinn seint á
sunnudagskvöld. Vísbendingar
sem bárust lögreglu efir að aug-
lýst var eftir vitnum leiddu til
handtöku mannsins. Maðurinn var
yfirheyrður í gær með aðstoð túlks
en hann er erlendur ríkisborgari.
Fleiri voru yfirheyrðir vegna
málsins.
Að sögn Björgvins hafa níu
nauðganir verið kærðar til lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
það sem af er þessu ári. Ef frá er
talin nauðgunin á Hótel Sögu er
ein nauðgun og ein nauðgunar-
tilraun óupplýst.
Í fyrra voru 40 nauðganir kærðar
til lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu, árið 2005 voru þær einnig
40 en voru 32 árið 2004.
Í þessu samhengi er vert að hafa í
huga að samkvæmt nýlegri rann-
sókn á reynslu Íslendinga af af-
brotum sögðust aðeins 19% þeirra
sem urðu fyrir nauðgun eða tilraun
til nauðgunar á árunum 2000–2004
hafa kært málið til lögreglu.
Í gæsluvarð-
hald vegna
nauðgunar
ENN er viðbúnaður á norðan-
verðum Vestfjörðum vegna hættu
á snjóflóðum en í gær var þó ekki
talin þörf á að rýma byggð eða
loka vegum, samkvæmt upplýs-
ingum frá Veðurstofu Íslands og
Vegagerðinni.
Í dag er spáð rigningu og
hláku sem getur aukið hættu á
flóðum og verður því vandlega
fylgst með aðstæðum. Alls féllu
tíu snjóflóð á vegi á norðan-
verðum Vestfjörðum um helgina;
fimm á Kirkjubólshlíð í Skut-
ulsfirði, tvö á Súðavíkurveg og á
Hnífsdalsveg féllu tvö flóð. Á
veginn um Óshlíð féll eitt snjóflóð
en sex önnur flóð sem féllu úr
hlíðinni lentu á stálþiljum og
netakössum sem komið hefur ver-
ið upp til að verja veginn.
Enn viðbún-
aður vegna
snjóflóðahættu LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu hefur tekið skýrslu af íslensk-
um karlmanni sem grunur leikur á
um að hafi haft milligöngu um störf
tveggja erlendra vændiskvenna í
Reykjavík.
Konurnar eru af brasilískum
uppruna en talið er að þær hafi m.a.
stundað iðju sína á hótelum.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu hefur maðurinn áður komið
við sögu vegna sambærilegra mála.
Grunaður
um milligöngu
um vændi