Morgunblaðið - 20.03.2007, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
PÁFAGARÐUR hefur á ný varað
við svonefndri frelsunarguðfræði
sem löngum hefur notið fylgis í
Rómönsku Ameríku. Einn þekktasti
talsmaður þessarar túlkunar á hinni
helgu bók og lífi Krists, spænski
jesúítinn Jon Sobrino, hefur verið
gagnrýndur fyrir að víkja frá nokkr-
um helstu trúarsetningum móð-
urkirkjunnar. Mun þetta vera fyrsta
viðvörunin, sem gefin er út í þessu
efni, frá því að Þjóðverjinn Joseph
Ratzinger, sem þá tók sér nafnið
Benedikt XVI, var kjörinn páfi kat-
ólsku kirkjunnar árið 2005.
„Áríðandi skoðun“
Í tilkynningu sem Páfagarður
sendi frá sér í liðinni viku segir að í
skrifum Sobrinos um Krist sé að
finna „veruleg frávik“ frá þeim
kenningum, sem kirkjan boði. Í til-
kynningunni, sem Ráð hinnar trúar-
legu kenningar sendi frá sér, er ekki
að finna beina fordæmingu á skrif-
um Jons Sobrinos. Talsmaður Páfa-
garðs, jésúítinn Federico Lombardi,
sagði að tilkynningunni fylgdi ekki
„refsing“ af neinu tagi en hann bætti
við að vald til slíkra viðbragða væri í
höndum viðkomandi kirkjulegra yf-
irvalda. Virtist hann þannig vísa til
fulltrúa Páfagarðs í El Salvador þar
sem Sobrino hefur lengi starfað.
Rannsókn Páfagarðs tók til
tveggja bóka eftir Sobrino, „Jesús
frelsarinn: Sagnfræðileg og guð-
fræðileg rannsókn á lífi Jesú frá
Nazaret“ (sp. „Jesucristo liberador:
Lectura histórico-teólogica de Jesús
de Nazaret“) og „Trúin á Jesú Krist:
Ritgerð frá sjónarhóli fórnarlamb-
anna“ (sp. „La fe en Jesucristo:
Ensayo desde las víctimas“), sem
gefnar voru út 1991 og 1999. Í til-
kynningu Ráðsins segir að ákveðið
hafi verið í októbermánuði árið 2001
að taka bækur þessar til „áríðandi
skoðunar“ þar eð verkin hafi víða
farið og verið mikið notuð.
Árið 2004 hafi lista yfir „rangar
eða hættulegar“ fullyrðingar í bók-
unum verið komið til höfundar
þeirra. Svör Sobrinos hafi borist í
marsmánuði árið 2005 og hafi þau
ekki reynst fullnægjandi þar eð hin-
ar „röngu fullyrðingar“ hafi enn ver-
ið að finna í textum hans. Taka beri
fram að áhyggjur höfundar af hlut-
skipti hinna fátæku séu „lofsverðar“
en Ráði hinnar trúarlegu kenningar
beri skylda til að vekja athygli á
vissum staðhæfingum sem ekki fari
saman við boðskap katólsku kirkj-
unnar. Í grófum dráttum er Jon
Sobrino sakaður um að leggja óvið-
eigandi áherslu á manninn Jesú
Krist í stað þess að beina einkum at-
hygli að guðlegu eðli hans; með
þessu sé grafið undan „einingu“ hins
sagnfræðilega Krists og sonar Guðs
og dregið úr mikilvægi fórnardauð-
ans og friðþægingarinnar.
Frelsunarguðfræði skaut rótum í
Rómönsku Ameríku á sjöunda og
áttunda áratug liðinnar aldar. Sam-
kvæmt henni ber einkum að beina
sjónum að Jesú Kristi sem frelsara
þeirra, sem sæta kúgun. Áhersla er
lögð á þá skyldu kristinna manna að
tryggja að hinir fátæku og kúguðu
fái notið réttlætis og ber einkum að
gera það með beinni og gagnrýninni
þátttöku í samfélaginu. Innan hreyf-
ingar frelsunarguðfræðinga í Róm-
önsku Ameríku mátti jafnan greina
marxískar hneigðir, einkum í upp-
hafi. Ákaft hefur verið deilt um nálg-
un frelsunarguðfræðinga innan kat-
ólsku kirkjunnar, sem felur í sér að
stofnuninni beri að koma fram sem
„pólitískt afl“ í nafni félagslegs rétt-
lætis og mannréttinda. Áhrif þess-
ara deilna mátti og forðum greina
innan annarra kirkjudeilda en fyrir
þeim sýnist nú fara minna en áður.
Íhaldsmaðurinn Joseph Ratzinger
var um tveggja áratuga skeið for-
maður Ráðs hinnar trúarlegu kenn-
ingar áður en hann var kjörinn páfi.
Árið 1985 deildi hann hart á Leon-
ardo Boff, einn helsta merkisbera
frelsunarguðfræðinnar í Brasilíu.
Ráðið birti árið 1984 og aftur árið
1986 texta þar sem frelsunarguð-
fræði er hafnað. Í þeim fyrri segir að
hreyfingin feli í sér „ógnun“ við
kenningar katólsku kirkjunnar.
„Ófrægingarherferð“
Bandaríska vikuritið National
Catholic Reporter hefur komist yfir
bréf, sem Jon Sobrino ritaði Peter
Hans Kolvenbach, einum helsta leið-
toga jesúíta, í desember í fyrra þar
sem höfundurinn heldur því fram að
Páfagarður hafi rangtúlkað frels-
unarguðfræði hans síðustu 30 árin
og blásið til ófrægingarherferðar
gegn henni. Þetta hafi iðulega verið
gert án þess að rit hans væru lesin.
Benedikt páfi heldur í opinbera
heimsókn til Brasilíu í maímánuði og
mun hann m.a. stjórna þar fundi
helstu kirkjuleiðtoga í álfunni. Hafa
margir sett aðfinnslur við skrif Jons
Sobrinos í samhengi við ferðina og
þá óvenjulegu samkundu. Þetta er í
fyrsta skipti sem „tilkynning“ tengd
frelsunarguðfræði er birt frá því að
Benedikt XVI varð páfi. Telja marg-
ir það tæpast tilviljun að ákveðið sé
nú að finna að skrifum eins af síð-
ustu „risunum“ á sviði þessarar um-
deildu fræðigreinar.
Páfagarður varar við frelsunarguðfræði
Staðhæfingar í tveimur ritum spænska jesúítans Jons Sobrinos sagðar „rangar og hættulegar“
Kennivald Páfagarðs ítrekað fyrir fund Benedikts XVI með kirkjuleiðtogum Rómönsku Ameríku
Í HNOTSKURN
»Jon Sobrino fæddist 27.desember 1938 í Barcelona
á Spáni.
»Hann hóf störf í El Salva-dor árið 1958 sem ráðgjafi
Oscars Arnulfos Romeros
erkibiskups, sem var íhalds-
maður en snerist til fylgis við
frelsunarguðfræði. Dauða-
sveitir hægri manna myrtu
Romero árið 1980 en þá geis-
aði í landinu blóðugt borg-
arastríð sem rætur átti að
rekja til gífurlegrar misskipt-
ingar auðsins. Árið 1989 voru
sex jesúítaprestar teknir af lífi
og lík þeirra skilin eftir við
heimili Sobrinos í höfuðborg-
inni.
Umdeildur Spænski guðfræðingurinn Jon Sobrino hefur ekki tjáð sig um
síðustu aðfinnslur Páfagarðs. Hann mun eiga við veikindi að stríða.
Moskva. AFP. | Að minnsta kosti 78
námumenn fórust í gassprengingu í
kolanámu í Síberíu í Rússlandi í
gær. Embættismenn sögðu að 83
námumönnum hefði verið bjargað.
Alls voru um 200 við störf í námunni
þegar sprengingin varð og enn var
því óljóst um afdrif nær 40 manna.
Kolanáman er í Novukuznetsk í
Kemerovo-héraði. Leitarsveitir voru
enn við störf þegar tók að dimma í
gær og Vladímír Pútín Rússlands-
forseti hafði sent Sergei Shoigu, ráð-
herra almannavarna, á vettvang til
að stjórna björgunarstarfinu.
Námuslys eru algeng í Rússlandi
enda hefur fjárskortur komið í veg
fyrir nauðsynlegt viðhald. Embætt-
ismenn segja hins vegar að náman í
Kemerovo hafi aðeins verið opnuð
2002 og að tækjabúnaður sé nýr.
Tugir fórust í kolanámu
Námuslys Slasaður námumaður
færður á sjúkrahús í Síberíu.
BIFREIÐ hlaðinni af sprengjuefni
var ekið inn í bílalest frá banda-
ríska sendiráðinu í Kabúl í Afgan-
istan í gær með þeim afleiðingum
að þrír Afganar biðu bana, auk til-
ræðismannsins. Talibanar eru tald-
ir hafa staðið fyrir tilræðinu, en
þeir slepptu í gær ítölskum blaða-
manni sem þeir höfðu haldið í 15
daga og hótað að taka af lífi.
Tilræði í Kabúl
FANGI Bandaríkjahers í Guant-
anamo hefur játað aðild að
sprengjuárás á bandarískt herskip í
hafnarborginni Aden í Jemen árið
2000, að sögn Bandaríkjastjórnar.
17 sjóliðar biðu bana og 37 særðust.
Sagður játa
STJÓRNMÁLASKÝRENDUR í
Finnlandi spáðu því í gær að Matti
Vanhanen, forsætisráðherra og leið-
togi Miðflokksins, myndaði stjórn
með hægriflokknum Þjóðarbanda-
laginu sem jók fylgi sitt verulega í
þingkosningum á sunnudag.
Miðflokkurinn getur haldið áfram
stjórnarsamstarfinu við Jafnaðar-
mannaflokkinn og Sænska þjóðar-
flokkinn þar sem þeir fengu samtals
110 þingsæti af 200. Það er þó talin
mjög ólíkleg niðurstaða í ljósi þess
að finnskir jafnaðarmenn, sem fengu
50 sæti, hafa ekki staðið jafnilla að
vígi í 45 ár.
„Áframhaldandi stjórnarsamstarf
mið- og vinstriflokkanna myndi ekki
endurspegla breytingarnar sem áttu
sér stað í kosningunum,“ sagði í for-
ystugrein Hufvudstadsbladet. „Úr-
slitin eru eðlileg: stærsti stjórnar-
andstöðuflokkurinn jók fylgi sitt en
stjórnarflokkarnir misstu fylgi. Það
er dæmigerð niðurstaða.“
Spá stjórn
hægri- og
miðflokka
London, New York. AFP. | Þess var
minnst víða um heim í gær að fjögur
ár voru liðin frá því að Bandaríkja-
menn gerðu innrás í Írak. Andstæð-
ingar stríðsrekstrarins í Bandaríkj-
unum hugðust standa fyrir mót-
mælaaðgerðum á a.m.k. þúsund
stöðum en talið er víst að á bilinu
100.000 til 150.000 Írakar hafi týnt
lífi á þessum fjórum árum og 3.400
bandarískir hermenn hafa fallið.
Á sunnudag var farin mótmæla-
ganga á Manhattan-eyju í New York
og tóku á bilinu 25 til 30 þúsund
manns þátt í göngunni, að sögn
skipuleggjenda. Degi áður voru sam-
bærilegar mótmælagöngur í Wash-
ington, Los Angeles.
Í tilefni þess að fjögur ár voru í
gær liðin frá upphafi hernaðarátak-
anna létu BBC í Bretlandi, ARD-
sjónvarpsstöðin í Þýskalandi og
fréttastofa ABC-sjónvarpsstöðvar-
innar bandarísku, auk dagblaðsins
USA Today, gera könnun meðal íra-
skra borgara og voru niðurstöður
hennar birtar í gær. Um 2.000
manns tóku þátt í könnuninni en hún
leiðir í ljós að trú Íraka á íröskum yf-
irvöldum, íraska stjórnarhernum,
Bandaríkjaher og öðrum erlendum
hersveitum í landinu hefur minnkað
mikið frá árinu 2005, en þá var síðast
gerð sambærileg könnun.
Einungis 18% Íraka segjast nú
hafa trú á bandaríska herliðinu og
öðrum erlendum hersveitum í land-
inu og 86% segjast hafa áhyggjur af
því að einhver nákominn þeim verði
fórnarlamb ofbeldisins í landinu.
Aðeins 26% segjast telja sig örugg
um líf sitt í hverfi sínu og 78% sögð-
ust mótfallin veru Bandaríkjahers í
Írak. 63% sögðu þó að erlendar her-
sveitir ættu ekki að yfirgefa Írak
fyrr en öryggisaðstæður hefðu batn-
að. Það vekur athygli að íraskir sjít-
ar eru mun bjartsýnni á framtíðina
en súnnítar, en mest er svartsýni
fólks í Bagdad og miðhluta Íraks þar
sem hlutfall súnníta er hæst.
Ramadan tekinn af lífi
Skýrt var frá því í gær að írösk yf-
irvöld hygðust taka Taha Yassin
Ramadan, fyrrverandi varaforseta
Íraks, af lífi í dag. Hann er þriðji
fyrrverandi aðstoðarmaður Sadd-
ams Husseins sem tekinn er af lífi
fyrir fjöldamorð á sjítum árið 1982.
AP
Mótmæli Andstæðingar innrásarinnar í Írak þykjast liggja í valnum í borginni Providence í Rhode Island.
Fjögur ár frá innrás í Írak
UM 44% íbúa Bretlands, Frakk-
lands, Ítalíu, Spánar og Þýskalands
telja ástandið hafa versnað í lönd-
um þeirra eftir inngöngu í Evrópu-
sambandið. Þó vildu aðeins 22% úr-
sögn úr ESB, samkv. nýrri könnun.
Óánægja í ESB